Fara í efni

HVATT TIL ÁSKRIFTAR


Senn líður að því að ég sendi út 200. fréttabréf heimasíðunnar. Nokkuð er um að fólk, sem hefur óskað eftir því að fá send reglulega fréttabréf  mín, fái þau ekki. Ég vil af þessu tilefni hvetja hlutaðeigandi að skrá sig að nýju. Það má gera í til þess gerðum reit hér til hliðar. Þess má geta að slíkt fréttabréf var sent út fyrir fáeinum dögum. Hafi skráðir viðtakendur ekki fengið bréfið hvet ég þá til að skrá sig að nýju og að sjálfsögðu alla þá aðra sem áhuga hafa á að fá þessi bréf send sjálfkrafa. Ef þið síðan fáið ekki bréfin bið ég ykkur um að senda mér línu eða hafa samband.
Með kveðju,
Ögmundur Jónasson