Fara í efni

EFNT TIL AFMÆLISHÓFS

Á morgun fylli ég 60 ár og hef ákveðið að efna til afmælishófs fyrir vini og velunnara af því tilefni. Þetta geri ég undir bláhimni við götuna mína, Grímshagann í Reykjavík. Ég á góða granna sem leyfa mér að tjalda yfir götuna fari svo að veðurguðirnir stríði mér. Veðurspáin lofar hins vegar góðu.  Ég er að endurtaka leikinn frá því fyrir tíu árum en þá hafði ég nákvæmlega þennan sama hátt á. Ég set þetta hér á síðuna enda þótt á henni  sé sjaldan að finna persónulegt efni. Hins vegar langar mig til að fastagestir síðunnar viti að þeir eru hjartanlega velkomnir á Grímshagann - sem er botnlangi út úr Suðurgötu - á milli  klukkan 17 og 20 á morgun, fimmtudaginn 17. júlí!