Frjálsir pennar
2. Júlí 2010
Baldur Andrésson skrifar: NÝ HÖLL Á HAFNARBAKKA
Braskhöfðinginn var heimskur og fékk til liðs við sig hóp loddara til hallarsmíða.
Loddarnir grófu og klömbruðu. Alltaf þurftu þeir meiri pening. Þá henti það höfðingjann að fara á hausinn út af ýmsum fjárglæfrum. Það hörmuðu loddarar sáran og óttuðust um eigin hag, og að upp kæmist um fyrri loddarabrögðin sín.
Loddarar grétu fyrir ráðamönnum. Aðspurðir um höllina, bentu þeir á grunn og útveggi. Höllin verður fögur, sögðu þeir, en aðeins í augum gáfaðara og dannaðra. Aðspurðir sögðust þeir þurfa miklu meiri peninga og miklu meiri tíma. Aðspurðir sögðu þeir að enginn gæti smíðað höll, nema þeir sjálfir.
Ráðamenn vildu sér og loddurum vel og samþykktu allt sem loddarar sögðu. Þetta var tilkynnt þjóðinni í litla landinu, sem varð bara hvumsa. Borgið þið meira, var skipað. Við það tækifæri hvarf hallartyrkur til menningar af blaði. Hann varð loddurum að féþúfu strax, ásamt öðru smíðagulli til þeirra. Ráðamenn klöppuðu og skipuðu riturum sínum að segja þjóðinni að allskonar væri frábært.
Loddarar klömbruðu áfram og alltaf streymdi til þeirra ómælt gullið. Því miður höfðu loddarar komið víðar við með braski. Þeir fóru á hausinn, þrátt fyrir hallargullið allt, en höfðu þó áður komið erlendum vinum sínum að klambrinu. Þeir tóku stöðu loddara.
Þegar hér er komið í sögu var þjóðin farin að ókyrrast og spyrjast fyrir um afdrif fjármuna sinna, tilganginn með hallarklambrinu. Þá efldu ráðmenn menningartrúða til starfa.
Höllin er til menningar segja trúðarnir nú, þegar önnur viðskipti leyfa segja þeir. Tapið á viðskiptunum borgar þjóðin. Hver annar ! Hún verður falleg, nema í augum heimskingja, segja trúðar og vitna í loddaraorð. Svo fín að allir gáfaðir falla í stafi. Í höllinni má kannski dansa, syngja, spila . Aðeins aumingjar efast, spyrja óþægilegra spurninga, velta vöngum. Ráðamenn og trúðar klappa einir. Þjóðin klórar sér í kollinum. Þjóðin þegir. Nú er bráðum sumarfrí. Sól á lofti. Þá fer þjóðin að grilla.
Hallarævintýrið er ófullgerð saga og verður köttur úti í mýri. Þoka umlykur höll á hafnarbakka. Þar lyktar vel af útrásarbraski. Gamlar vofur á sveimi.
Baldur Andrésson,arkitekt
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












