Beint á leiđarkerfi vefsins

Frjálsir pennar

19. Febrúar 2010

Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir skrifar: RÉTT OG RANGT HJÁ JÓHÖNNU

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í ræðu í vikunni að niðurskurður í velferðarþjónustunni væri kominn að þanmörkum. Þetta þýðir að hætt er við því að frekari niðurskurður muni  bitna á þjónustu og störfum, umönnunarstörfum, kvennastörfum, störfum sem enginn vill eða getur með góðu móti verið án. Með þessum ummælum minnti Jóhanna Sigurðardótti okkur á að þessi ríkisstjórn vill vera velferðarstjórn, líka á erfiðum tímum samdráttar. Þetta eru orð í tíma töluð og lífsnauðsynlegt að draga skýrar varnarlínur. Ef gengið er of nærri velferðarkerfinu erum við að bregðast grunnhlutverki okkar og erindi. Ég var sammála mörgu öðru í ræðu Jóhönnu - t.a.m. nauðsyn þess að hlutur kvenna í viðskiptalífinu sé bættur og að Ísland færist nær skattaumhverfi norrænna velferðarsamfélaga, burt frá því að hygla auðugum á kostnað láglaunafólks.

Ég var hins vegar hugsi yfir því sem forsætisráðherrann sagði á nýafstöðnu þingi Viðskiptaráðs um fjármálastofnanir og afskipti stjórnmálannna af þeim. Ef ég skildi Jóhönnu rétt, vill hún meina að það sé af hinu illa að lýðræðislega kjörnir fulltrúar skipti sér af háttum viðskiptalífsins. Þessi afskipti hafi hafist þegar menn einkavinavæddu bankana.

Það liggur auðvitað fyrir í sögulegu samhengi að afskipti stjórnamálamanna af viðskiptalífinu á Íslandi hófust ekki við einkavæðingu bankanna, það er öðru nær; slíkt afskipti voru rótgróin í gegnum árin. Einkavæðing bankanna sem slík lyktar af átakanlegri pólitískri spillingu, og nauðsynlegt eins og komið hefur fram á þessari síðu að það ferli sé rannsakað ofan í kjölinn og staðreyndir færðar fram í birtuna. Það sem hins vegar gerist í framhaldi af einkavæðingu er að bankarnir færast miklu mun fjær allri lýðræðislegri aðkomu, kröfum um upplýsingar og aðgengi almenningi til handa. Spilling viðskiptalífsins grasseraði í skjóli einkaframtaksins svokallaða. Þeir voru jú orðnir svo mikið „einka" bankarnir og fjármálakerfið að stjórnmálamenn áttu ekki að voga sér að hafa  þar einhver áhrif eða jafnvel skoðun. Stjórnmálalífið tók miklu fremur við skipunum frá bönkunum og gerði m.a. tillögur Viðskiptaráðs að sínum. Fjármagnið fékk að skapa samfélagið í þeirri mynd sem það óskaði. Í raun átti að þurrka út lýðræðið í veigamiklum geirum samfélagsins og leyfa „einkageiranum" að taka yfir. Stjórnmálin eru spillt, sagði sagan, markaðurinn leysir vandann.

Vandinn í einkavæðinu bankanna og því fádæma gróðakerfi sem hér byggðist upp var ekki lýðræðið heldur spilling, skortur á gagnsæi og skortur á lýðræði, skortur á lýðræðislegri aðkomu og aðhaldi. Það er ekki tilviljun að viðskiptasamningar séu leyndarmál, handan lýðræðisins. Kapítalið vill búa sér til sitt eigið samfélag þar sem almenningur hefur takmarkað aðengi. Kjarni hugmyndafræðinnar sem óð hér uppi var að það kæmi fólki einmitt ekkert við þótt gerðir væru mörg hundruð milljóna króna kaupréttarsamningar.  Bankarnir höfðu verið gerðir „frjálsir", kraftarnir „leystir úr læðingi" - það kom ekki okkur hinum við.

Svo hrundi spilaborgin, en áfram virðist malla undirliggjandi og allt um kring sama gamla hugmyndafræðin um „frelsi" fjármálakerfisins. Spurningin nú er hvort því sé leyft að gerast að sama gróðakerfið reisi sjálft sig við eða hvort gera verði hlutina öðruvísi ef þeir eiga raunverulega að breytast. Nú er kallað á lýðræðislega kjörna fulltrúa í landinu að sitja ekki hjá meðan útrásarvíkingar eignist aftur íslenskt viðskiptalíf, skilanefndir skammti sér ekki fleiri milljónir á mánuði, og kerfið haldi áfram uppteknum hætti - allt einmitt í skjóli þess að þetta sé allt svo mikið einka að almenningi komi þetta ekki við né heldur lýðræðislega kjörnum fulltrúum almennings.

Sú stund hlýtur hins vegar að eiga að renna upp að það komi að hugmyndafræðilegum skilum. Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Ef lýðræðislega kjörnir fulltrúar almennings eiga að geta haft eitthvað um það að segja hvernig viðskiptalíf er reist hér við, hvernig samfélag er reist hér við, þá verða þeir að hafa einhverja aðkomu að gerð viðskiptalífs framtíðarinnar. Ef þeir hafa enga slíka aðkomu er tómt mál að tala um að „stjórnmálamenn" séu að verða þess valdandi að útrásarvíkingar eignist aftur Ísland. Ef stjórnmálamenn eiga að geta haft þarna alvöru áhrif, þá verður hugmyndafræðin um „frelsi" fjármálakerfisins, frelsi til að vera ríki í ríkinu handan lýðræðislegrar aðkomu, að láta undan. Hversu slæmir sem fólki finnast stjórnmálamenn vera þá er það nú samt þannig að hlutverk þeirra er skilgreint sem þjónar í þágu almannahags. Skilgreining fjármálastofnana eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leggur til fyrir nýja Íslands er arseðmi eigenda, punktur.

Hægt er að spyrja spurningarinnar: Vill fólk að bara Björgólfur Thor eða einnig Ögmundur Jónasson hafi eitthvað um það að segja hvernig viðskiptalíf byggist hér aftur upp? Ef fólk vill aftur tært og ómengað hið svokallaða „frelsi" fjármálakerfis (sem að mínu mati er vanvirðing við hugtakið frelsi en það er annað mál) þá verður það um leið að skrifa upp á að Björgólfur Thor hafi alla þá aðkomu sem honum lystir að endurreisn viðskiptalífsins. Fólk getur ekki bölvað og ragnað stjórnmálamönnum fyrir að gera ekki neitt í málinu ef það skrifar um leið upp á hugmyndafræðina um að stjórnmálamenn eigi ekkert að hafa um það að segja hvernig viðskiptalíf er reist hér við - stjórnmálamenn eigi að vera utan „frelsis" fjármálakerfisins og ekki að „skipta sér af".

Ef fólk vill hins vegar að Ögmundur Jónasson hafi eitthvað um endurreisn viðskiptalífsins að segja þá verður það að endurskoða hugmyndafræðina um frjálst fjármagnskerfi og skora á hólm heilaþvottinn sem átt hefur sér stað í þessum efnum öll hin síðari ár. Það klappa allir þegar sagt er að fjármálakerfinu eigi ekki að vera „miðstýrt" af stjórnmálunum. Þetta hljómar mjög vel - við erum frjálst, upplýst fólk. Sú sem þetta skrifar er ekki hrifin af miðstýringu, alls  ekki. En við erum afvegaleidd frá kjarna málsins þegar hlutum er stillt upp sem vali á milli „miðstýringar" eða „frelsis". Þetta snýst ekki um val milli „miðstýringar", „hafta", „afskipta" eða „frelsis" heldur hvernig hægt er að tryggja að hér byggist upp það samfélag sem fólk vill sjá, samfélag lýðræðis í þágu fólks en ekki fjármagns.

Það eru til spilltir stjórnmálamenn og það eru til heiðarlegir stjórnmálamenn. Það eru til spilltir viðskiptamenn og heiðarlegir viðskiptamenn. Sumir stjórnmálamenn ljúga, aðrir segja satt; og hið nákvæmlega sama á við um menn í viðskiptalífinu. Þetta á við um allt hið mannlega litróf - það eru árþúsunda gömul sannindi um mannlegt eðli.

Það sem gagnvart almenningi og samfélagslega aðgreinir „stjórnmálamanninn" Ögmund Jónasson og „viðskiptamanninn" Björgólf Thor er að þann fyrrnenfda getur fólk rekið úr starfi þegar það vill, og til hans sem stjórnmálamanns er gerð sú sjálfsagða krafa að allt séu uppi á borðum, hann sé þjónn almennings og eigi að framfylgja því sem hann er kosinn til. Þegar kemur að Björgólfi Thor þá hefur almenningur nákvæmlega ekkert um það að segja hvenær hann er ráðinn eða rekinn, hvaða stefnu hann framfylgir, hvaða tengslum hann hyglar, hver hans ítök eru í gerð samfélagsins, hver hans auður og lífssýn yfirhöfuð er. Þótt hann ráði óhemju miklu um það hvernig samfélag byggist hér upp í krafti auðs, valda og tiltekinnar gerðar af fjármálakerfi, þá er hann sem „viðskiptamaður" handan lýðræðisins.

Ef fólk vill að kjörnir fulltrúar almennings í landinu - hinir alræmdu „stjórnmálamenn" - hafi eitthvað um það að segja hverjir koma að viðskiptalífinu á „nýja Íslandi", með hvaða hætti viðskiptalífið er endurreist  og hvers konar fjármálakerfi verður hér aftur til,  þá verður fólk að þora að endurskoða heilaþvottinn um „frelsi" fjármagnsins. Án slíkrar endurskoðunar er tómt mál að úthúða stjórnmálamönnum fyrir að sitja hjá en hrópa að þeim um leið fyrir að ætla að hafa áhrif á gang mála.  

Um eitt er ég altént sammála Viðskiptaráði í nýrri ályktun: Það verður að passa að stjórnmálamenn láti ekki undan öflugum þrýstihópum. Samkvæmt reynslu fyrri ára hlýtur Viðskiptaráð þar að vera að vara við sjálfu sér og sínum eigin öflugu áhrifum innan Stjórnarráðsins á árunum fyrir hrun. Þökk sé höfð fyrir áminninguna. Hún er áríðandi sem aldrei fyrr og mál til komið að stjórnmálamenn hlusti meira á grasrótarsamtök fólksins í landinu heldur en hagsmunasamtök fjármagnsins.


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frjálsir pennar

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta