Beint á leiðarkerfi vefsins

Frjálsir pennar

26. Maí 2007

Helgi Guðmundsson skrifar: AÐ SKILJA KIND OG KÚ

Alveg er það dásamlegt að Guðni Ágústsson frá Brúnastöðum skuli vera orðinn formaður Framsóknarflokksins. Arfleið Halldórs Ásgrímssonar í flokknum er ekki björguleg, og mikið lagði hann á sig til að Guðni yrði ekki formaður. Það mátti víst alls ekki verða að bóndasonurinn, sem var alinn upp við að konur stæðu „á bak við eldavélina” eins og hann komst einhverntíma að orði, yrði formaður bændaflokksins. Þess í stað sótti Halldór Jón Sigurðsson í Seðlabankann, líklega til að bjarga því sem bjargað varð, eftir að Halldór hafði verið eins og frímerki á Davíð Oddsyni í hálfan annan áratug. Ekki varð sú ferð til fjár og verður Jóni ekki kennt um. Þessi mikli valdaflokkur, Framsókn, var rúinn trausti, einkum í þéttbýlinu...

20. Maí 2007

Kristján Hreinsson skrifar: VIÐHALDSSTJÓRNIN

...Sannir hugsjónamenn vilja leiðrétta ójöfnuð, eyða spillingu, tryggja velferð og vernda náttúru landsins fyrir ágangi auðhringa, svo fátt eitt sé nefnt. Ágætu vinstrimenn, við erum ennþá í því eftirlitshlutverki sem í stjórnarandstöðunni felst. Það er skylda okkar að sýna stjórninni aðhald...
Viðhaldið með von og þrá
verður hvatt til dáða
en íhaldið mun áfram fá
öllu hér að ráða.

11. Maí 2007

Einar Ólafsson skrifar: ALLIR FLOKKAR FYLGJA HERNAÐARHYGJUNNI - NEMA VINSTRI GRÆN

...Samfylkingin gefur sig út fyrir að berjast fyrir bættum kjörum alþýðu. Hernaðarstefna Bandaríkjanna og NATO beinir fjármagninu frá velferðarmálum til gífurlegrar sóunar vegna vígvæðingar. Almenningur líður fyrir hernaðarstefnuna. Almenningur líður fyrir tilveru NATO og hernaðarsamstarf við Bandaríkin.
Íslandshreyfingin gefur sig út fyrir að berjast fyrir umhverfisvernd. Auk óheftrar gróðahyggju er hernaðarstefnan einhver mesta ógnunin við umhverfisverndina.
Það þarf enginn að velkjast í vafa um hvar Sjálfstæðisflokkurinn stendur þótt hann hafi ekki látið svo lítið að svara fyrirspurn SHA. Sjálfstæðisflokkurinn er gersamlega staðnaður hvar sem á er litið, fastur í stóriðjulausnum og frjálshyggju sem varð úrelt fyrir hundrað árum, en auk þess hangir flokkurinn í hernaðarstefnu Bandaríkjanna hversu siðlaus sem hún er. Og hinir flokkarnir, allt frá Framsókn til Samfylkingar fylgja með. Aðeins Vinstri græn hafa skynsemi og þor til að taka aðra afstöðu. Kjósum gegn hernaðarstefnunni....

8. Maí 2007

Óli Gneisti Sóleyjarson skrifar: REYNDAR KAUS ÉG FRAMSÓKN...

Ég var einu sinni Framsóknarmaður. Ég kaus flokkinn tvisvar en það segir ekki alla söguna þar sem ég hafði stutt hann frá því áður en ég fékk kosningarétt. Þetta gengur í fjölskyldunni minni. Það er þó þannig að yngsta kynslóðin hefur átt töluvert auðveldara með að sleppa undan þessu en þeir eldri. Nú má sjá Jón Sigurðsson lýsa því hvernig hann fór í Keflavíkurgöngur áður en hann varð eldri og þroskaðri. Merkilegt nokk þá fór ég í hina áttina. Einu sinni hugsaði ég þannig að Íslendingar ættu fyrst og fremst að hugsa um efnahagslegan ávinning af því að hafa bandarískan her. Ég var semsagt ekki á bandi barða þrælsins heldur feita þjónsins. Ég man eftir að hafa orðið vitni af deilum ungra hægri manna og ungra vinstri manna sem enduðu á því að þeir sættust á að ...

6. Maí 2007

Sigurður Jón Ólafsson skrifar: UM STÉTTARVITUND OG HÖRKU Á VINNUMARKAÐI

...Hefur stéttarvitund verkafólks hrakað?  Eða hefur kapítalismanum tekst að herða tök sín á verkafólki í meira mæli en áður?  Undirritaður vann í álverinu í Straumsvík á 8. áratug seinustu aldar.  Þá þótti 8 stunda vinnutími ósköp eðlilegur og sjálfsagður enda var barátta verkalýðshreyfinginarinnar fyrir 8 stunda vinnudegi mikilvæg á sínum tíma og stórt skref í réttindabaráttunni þegar honum var komið á.  Einstaka hjáróma raddir voru að biðja um 12 tíma vaktir en voru jafnharðan kveðnar í kútinn enda langur vinnutími í álveri beinlínist hættulegur öryggi og heilsu manna.  Þegar álverið í Hvalfirðinum var reist var það eindreginn vilji starfsmanna þar að fá að vinna 12 stundir í senn. Þau sjö ár sem ég starfaði í álverinu í Straumsvík man ég aðeins eftir tveimur tilvikum þar sem menn voru reknir úr starfi.  Brot þeirra voru þess eðlis að ...

3. Maí 2007

Helgi Guðmundsson skrifar: HVAÐ Á AÐ KOMA Í STAÐINN?

...Gaman væri að vita hvort þessir sömu spyrjendur hafa velt því fyrir sér hvað Danir gera, sem eiga enga möguleika á að reisa álver. Hvað skyldu eiga "að koma í staðinn" hjá þeim?" Þeir sem eitthvað þekkja til í Danmörku vita að þar í landi er byggt á gríðarlegum fjölda smárra og stórra fyrirtækja af öllu mögulegu tagi. Hugvit þeirra og útsjónarsemi er miklu meiri en nokkurn tíma kemur fram á Íslandi. Þannig er t.d. hverskyns endurvinnsla og framleiðsla sem byggist á náttúruverndarsjónarmiðum orðin öflugur atvinnuvegur og nægir í því sambandi að nefna að þeir eru meðal fremstu framleiðenda á vindmyllum sem framleiða rafmagn. Fylgist maður með dönskum fjölmiðlum á netinu sér maður nánast aldrei spurningar í "íslenska" veru. Hver vegna? Örugglega vegna þess að Danir hafa ekki trú á að stjórnmálamenn færi þeim atvinnutækifæri eins og enn er lenska hér á landi. Atvinnulíf á að ...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frjálsir pennar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta