Frjálsir pennar
27. Mars 2007
Björn Jónasson skrifar: BRÉF FRÁ BRETLANDI
Miklar umræður eru hér um þrælahaldið enda 200 ár frá því að þrælahald var afnumið með lögum í Bretlandi. Andstæðingar þrælahalds voru margir og þrælarnir sjálfir sögðu gjarnan: "Er ég ekki manneskja og erum við ekki bræður?" ("Am I not a man and a brother?) "Ein af röksemdum þeirra sem stóðu gegn banni var að því myndi fylgja efnahagslegt hrun, atvinnuleysi og kreppa á Bretlandi. Margir héldu því fram að þrælahald væri mannúðlegt, þar sem svartir ættu erfitt með að sjá fyrir sér. Engin kom kreppan en samþykkt var að greiða skaðabætur uppá einn milljarð punda (á núverandi gengi). Margir hefðu giskað á að þær skaðabætur sem breska ríkið tók að sér að greiða, hefðu verið ætlaðar þrælum og afkomendum þeirra. En skaðabæturnar voru reyndar handa þrælasölunum. Þrælarnir fengu ekkert...
26. Mars 2007
Kristján Hreinsson skrifar: ÚTVARP FÁRRA LANDSMANNA
Nú er Páll Magnússon kominn með alla stjórnartauma hjá RÚV. Hann er svo samofinn þeirri straumlínulaga stefnu sem virðist hafa það eitt að markmiði að hækka laun fárra á kostnað fjöldans að það liggur við að maður geri þá kröfu að RÚV hætti umfjöllun um stjórnmál. Nú er staðan nefnilega sú að Útvarpið er mitt í hringiðu pólitískra deilna og útvarpsstjóri er í þeirri ákjósanlegu aðstöðu að geta ákveðið hvernig fréttir fara í loftið, hann getur skrifað fréttirnar sjálfur og hann les þær fyrir okkur landsmann. Allt væri þetta nú sjálfsagt ef við tilheyrðum viðurkenndu bananalýðveldi og ef við ætluðum...
25. Mars 2007
Bergþóra Sigurðardóttir skrifar: Stærsta álver Alcan!
...Alcan ætlar að eiga 20% í 350 000 væntanlegri álbræðslu í Sohar, Oman og líka að færa út kvíarnar í Cameroon og Orissa í Indlandi. Í Kína eru þeir svo lítillátir að eiga 77 kt eða helming í Qingtongxia álverinu, en stefna hærra. Lokun álvera í Evrópu og N-Ameríku er vegna raforkuverðs, sem nemur þar 25 -30% af kostnaði. Ísal fellur ekki þar undir. Hagur Hafnarfjaðar er ekki í hættu með jafn góða og hagkvæma framleiðslu af áli og álblöndum...
14. Mars 2007
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir skrifar: VERUM ANDVÍG STÆKKUN !
...Samkvæmt tölum byggðum á matsskýrslu Alcans kemur í ljós að heimilt verður að auka losun á brennisteinsdíoxíði um rúm 280%. Heimildin í dag er 6,57 tonn á dag en verður 18,9 tonn á dag eftir stækkun. Heimiluð losun á flúor eykst um 244% og aukin losun á gróðurhúsalofttegundum nemur 240%. Þetta eru allt tölur sem rúmast innan þeirra marka og skilyrða sem umhverfismatið setur. Sættum við okkur við þessi mörk? Sú atburðarás sem nú er í gangi í Hafnarfirði, og reyndar víða um land, er til þess fallin að stilla bæjarbúum upp við vegg. Ímyndabaráttan er hafin. Álbræðslan kynnir sig sem lítilmagna. Það breytir hins vegar ekki því að hagsmunir þeirra sem eiga fyritækið er að græða á framleiðslunni...
12. Mars 2007
Karl Jóhann Lilliendahl skrifar: SPARIFÉ MILLJARÐAMÆRINGANNA !
...Sjálfur er ég öryrki, missti fót fyrir ári síðan vegna sjúkdóms, en það er ekki málið hér, þetta er orðið svo yfirgengilegt, tvær þjóðir (eða fleiri) í þessu landi. Enginn segir neitt þ.e.a.s. enginn rís upp gegn svona óréttlæti. Hvers vegna er það? Fjölmiðlar minnast aðeins á svona viðskipti sem menn eiga við sjálfan sig og svo er ekkert meira talað um þetta. Ég man að fyrir nokkrum árum síðan þegar forstjóri Glitnis var gerður að forstjóra Íslandsbanka og hafði með einhverjum hætti lagt 100 milljónir í púkkið. Fréttamaður RÚV spurði hann hvernig hann hafi fjármagnað svona mál. “Ég lagði nú allt mitt sparifé í þetta” var svarið. Sjáðu Framsóknarflokkinn, sem...
5. Mars 2007
Jón Torfason skrifar: ENN UM "TRÚFRELSI"
...Hvaða skoðanir sem menn hafa á því hvernig haga skuli samskiptum ríkis og kirkju þá held ég það geti ekki talist brýnasta kosningamálið vorið 2007 þegar misréttið í þjóðfélaginu fer vaxandi, fátækt fólk, sjúkt og örkumla er fótum troðið, framsókn peningaaflanna er nánast hömlulaus og óbætanleg spellvirki unnin á náttúru landsins. Ég er ekki að halda því fram að afstaðan til þjóðkirkjunnar sé lítilsvert mál, heldur að mörg önnur mál séu miklu, miklu brýnni. Ekki má gleyma því að þingmenn VG hafa flutt tillögur á alþingi um aðskilnað ríkis og kirkju, þau Árni Steinar Jóhannsson og Þuríður Backmann, síðast árið 2003. Það fór heldur aldrei svo að kirkjumálin væru ekki tekin til afgreiðslu á landsfundinum. Mjög góðar tillögur, ættaðar frá ungum vinstri grænum, um jafnrétti í trúfræðslu í skólum og um hjónavígslur í þá veru að fólki yrði ekki mismunað eftir kynhneigð, voru samþykktar með öllum greiddum atkvæðum og yrðu til mikilla bóta ef ákvæði þar að lútandi yrðu lögbundin. Tillögu ungra grænna um "aðskilnað ríkis og kirkju" var hins vegar vísað til fulltrúaráðs til frekari umræðu. Í mínum huga var það fyrst og fremst til að...
3. Mars 2007
Gestur Svavarsson skrifar: ERFITT AÐ ÁTTA SIG Á FRAMSÓKN
Það er oft erfitt að átta sig á framsókn. Ég man svo vel eftir því þegar Jón Sigurðsson, þá tiltölulega nýbúinn að setja fram afturvirka stefnubreytingu í stóriðjustefnunni, sagði að ákvörðun um stuðninginn í Írak, hefði verið byggð á röngum upplýsingum, og ákvörðunin þvi röng eða mistök. Síðan á alþingi Íslendinga heldur hann því fram að listi hinna staðföstu þjóða hafi ekki verið til, hann sé í raun fréttatilkynning. Á setningu framsóknarþings, kveður hann síðan upp með það að...
1. Mars 2007
Óli Gneisti Sóleyjarson skrifar: REIÐUR UNGUR MAÐUR SKRIFAR UM TRÚFRELSI
Jón Torfason skrifar yfirlætisfulla grein hér á heimasíðu þinni Ögmundur um aðskilnað ríkis og kirkju. Þar skiptir hann fylgismönnum aðskilnaðar ríkis og kirkju innan VG í tvo flokka, annars vegar "Þingeyinga" sem berjast gegn afturhaldssemi kirkjunnar og hins vegar reitt ungt fólk. Nú á ég ættir að rekja til Norður Þingeyjarsýslu en mig grunar samt að Jón sé tilbúinn til að afgreiða mig einfaldlega sem reiðan ungan mann. Vissulega er ég reiður en ég virðist verða reiðari eftir því sem ég eldist. Jón reynir að búa til skrípamynd af okkur unga fólkinu (sjálfur er ég 28 ára). Við erum víst of vön allsnægtum að við bara vitum ekki hvað skiptir raunverulega máli. Þetta sýnir kannski best hve lítið Jón þekkir til ungliðanna. Hann ætti að gera tilraun til að ræða við þá áður en hann dæmir þá. Mín upplifun af ...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












