Beint á leiðarkerfi vefsins

Frjálsir pennar

30. Nóvember 2006

Sigríður Stefánsdóttir skrifar: FORDÓMAR OG AÐRIR DÓMAR

Að undanförnu hefur umræða um fordóma verið fyrirferðarmikil í íslenzku samfélagi.  Ekki er alveg ósennilegt að fyrirferðin tengist því þungunarástandi sem jafnan skapast þegar þingkosningar eru í nánd.  Stjórnmálaflokkarnir vilja fá að vita hvaða fylgi þeir eiga" tryggt svo markviss sókn megi hefjast í fylgi annarra flokka.  Engan afla virðist lengur að hafa á grunnslóð og því er nú sótt á djúpið.
Jæja, og hvað er konan að fara?  Enginn kannast við að hafa fordóma af því það er svo ljótt.  Fólk vill hafa opna umræðu, horfast í augu við staðreyndir eða er bara raunsætt.  Orðræðan undanfarnar vikur hefur einkum snúizt um fjölgun útlendinga á Íslandi.   Sumir eru reyndar svo hræddir við að verða ásakaðir um fordóma að þeir geta ekki einu sinni sagt útlendingar, heldur tala um ...

28. Nóvember 2006

Steinþór Heiðarsson skrifar: AÐ SEGJA JÁ AF GÖMLUM VANA

Það hefur verið dálítið sérstakt að fylgjast með viðbrögðum héðan og þaðan við þeirri tilraun sem formaður Framsóknarflokksins gerði nýlega til að losa sig við einn versta erfðagripinn í búinu sem Halldór Ásgrímsson lét honum eftir í sumar. Með hæfilega tæknikratískri loðmullu um ófullnægjandi ákvarðanatökuferli og rangar forsendur kom Jón Sigurðsson því í loftið að stuðningur ríkisstjórnarinnar við innrásina í Írak 20.03.2003 hefði ekki átt rétt á sér. Flokkssystir Jóns í utanríkisráðuneytinu, Valgerður Sverrisdóttir, fór ekki dult með þá skoðun sína að gamla línan væri betri í málinu. Miðað við þær upplýsingar sem hefðu legið fyrir á sínum tíma, hefði stuðningurinn verið réttur og hún myndi leggjast á sömu sveifina á sömu forsendum enn þann dag í dag. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, fór með nálega sömu þuluna þegar fréttastofa Sjónvarpsins spurði hana út í málið...

27. Nóvember 2006

Ómar Ragnarsson skrifar: KÓRÓNA LANDSINS

...Í þessu ljóði er farið í flugferð upp jökulfljótin á Norðausturlandi, Jökulsá á Fjöllum og Jökulsá á Dal, sem nú er verið að afmá af yfirborði jarðar. Farið er og stiklað yfir eldfjallasvæðið norður af Vatnajökli sem á sér engan líka í heiminum, yfir Herðubreið, einstæðan stapa sem varð til í samskonar eldgosi undir ísaldarjökli og eldgosinu í Gjálp, - yfir Öskju þar sem tunglfarar komu 1967 og Rudloff og Knebel hurfu 1907 og síðan hefur verið reimt, - þar næst yfir Kverkfjöll þar sem m. a. rennur volg á í íshelli. Að lokum er farið snöggt yfir Þingvelli, Heklu, Kverkfjöll og Öskju og niðurstaðan dregin saman. Hér kemur þetta í heild. Mestur hluti ljóðsins er...

23. Nóvember 2006

Kristján Hreinsson skrifar: HIN HÁLFA ÞJÓÐ

Þótt ég skammist mín ekki neitt sérstaklega fyrir það að þjóð mín sé yfirleitt hálf, þá skammast ég mín svo sannarlega fyrir þann helming hennar sem styður helmingaskiptaveldið. Ég sagðist í sjónvarpsviðtali um daginn, ekki vilja þurfa að skammast mín fyrir að vera Íslendingur, sagði að ég væri búinn að fá nóg af spillingunni og ætlaði af þeim sökum að stökkva í stjórnmálin og bjarga því sem ég get hugsanlega bjargað. Ég hef þurft að hugleiða skömmina oft og mörgum sinnum í þeirri stjórnartíð sem brátt er á enda. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði þegar ég las um það í blöðunum að íslenska þjóðin væri komin í stríð við Írak. Og ég hef margoft komist ansi nálægt því að blygðast mín fyrir þjóð mína þegar ég hef horft á það hvernig áformum um virkjanaframkvæmdir og stóriðju hefur verið þvingað gegnum þingið og...

21. Nóvember 2006

Margrét Guðmundsdóttir skrifar: HAFNFIRÐINGAR, FÖGNUM ÞVÍ AÐ FÁ AÐ KJÓSA

Sú lýðræðislega ákvörðun bæjarstjórnarinnar í Hafnarfirði 2002, að Hafnfirðingar skyldu fá að kjósa um allar stórar ákvarðanatökur bæjarins eru þakkarverðar og ómetanlegar. Því þurfum við að kynna okkur málið frá öllum hliðum og spyrja spurninga. Er hagkvæmt fyrir okkur Hafnfirðinga að samþykkja stækkun verksmiðjunnar í Straumi? Er það hagkvæmt fyrir okkur Íslendinga að virkja meira, sökkva stærra landi, bora í fleiri eldstöðvar, eingöngu til þess að geta annað sífellt viðbótar  kröfum útlendra auðhringa, til að fá  ódýra orku á okkar fagra landi. Er ekki búið að virkja nóg í bili? Er ekki gott að staldra aðeins við? Ég nem við Háskóla Íslands. Þar  flutti  Bjarni Bjarnason, framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar, erindi og lofaði framkvæmdagleði og framsýni fyrirtækisins og virtist mikið framundan. Eftir klukkustundar langa tölu, mátti salurinn koma með fyrirspurnir. Ég spurði...

16. Nóvember 2006

Kristján Hreinsson skrifar: FYRIRGEFNING, GLÆPUR OG REFSING

Okkur er uppálagt að sýna góðvild og fyrirgefa þeim sem gert hafa á okkar hlut. Okkur er sagt að það sé heilbrigt að menn fái uppreist æru, jafnvel þótt eftir brautum klíkunnar sé farið. Okkur er kennt í æsku að best sé að bjóða vinstri vangann þeim sem hefur löðrungað okkur á þann hægri. Fyrirgefningin er þannig athöfn heiðarleikans og hún gerir þá kröfu að við horfum á verk manna, metum þau og reynum að trúa því að brotamaðurinn muni aldrei framar brjóta af sér. En okkur er hvergi bannað að efast...:
Ég fyrirgef með ást og yl
öllum sem ég þekki
en þegar allt ég tíni til,
þá treysti ég þeim ekki.

13. Nóvember 2006

Guðmundur R. Jóhannsson skrifar: ÞAÐ ERU KOMNIR GESTIR

...Við eigum að fagna því fólki sem vill raunverulega koma til okkar kalda lands og taka þátt í okkar samfélagi.  Við eigum að  gera það sem hægt er að kenna því okkar tungu, okkar siði og viðhorf.  Við þurfum ekki að samþykkja öll viðhorf og skoðanir þessara nýju heimilismanna.  Þeir þurfa líka að taka tillit til okkar, þeir eru að ganga ínní samfélag okkar, ganga undir okkar gildi, okkar trúbrögð og siði.  Þeir sem ekki geta það munu eflaust fara burt og við því er ekkert að segja. Um aldir hefur komið hingað fólk frá öðrum löndum sem hefur auðgað okka rmenningu. Það sama er að gerast núna, kannski í meira mæli en fyrr, en við eigum að hafa styrk að takast á við það ...Íslendingar ásamt mörgum fleiri þjóðum fluttu í stórum stíl til Vesturheims á þarsíðustu öld.  Við héldum okkar siðum en féllum að fulllu inní það þjóðfélagt sem við komum til.  Það sama viljum við frá þeim sem ætla að búa hjá okkur til framtíðar.   Þeir samþykki okkar menningu, við njótum góðst af þeirra menningju,  það sem á milli ber verðum við að ræða hispurslaust og vandamál eru til þess að leysa...

10. Nóvember 2006

Helgi Guðmundsson skrifar: TIL HVERS AÐ TALA OG TALA?

Enda þótt Jón Magnússon lögmaður og Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður séu ekki endilega heppilegustu mennirnir til að hefja umræður um „útlendingavandamálin”, vegna þess að óneitanlega örlar á óæskilegri þjóðrembu hjá þeim, þá er alveg ástæðulaust fyrir „virta” stjórnmálamenn” eins og Steinunni Valdísi óskarsdóttur, að fara á límingunum þótt þeir taki til máls um efnið. Það er að minnsta kosti alveg á ystu mörkum að kalla mennina rasista þótt þeir kunni að komast óheppilega að orði. Hvert mannsbarn veit að undanfarin misseri hafa mörgþusund útlendingar komið hingað til lands í atvinnuleit. Sumir halda því meira að segja fram að þenslan og allt það sé þeim að kenna, þótt hver skynug manneskja hljóti að sjá að eftir þessu vinnuafli hefur verið kallað til þess að koma því í verk sem hefur skapað þensluna...   

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frjálsir pennar

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta