Áætlun í Hvítabretlandi um að reisa fangabúðir fyrir “ dökk innskot ”, skv. litgreiningu, flóttafólk undan stríðshelvíti, hungri og pólitískum ofsóknum, er framkomin. Rúanda er keypt til vistunar á dökku flóttafólki, því fullgott til dvalar og þar skulu fangabúðir Hvítabretlands reistar og starfræktar. Þar með skal brugðist við “svörtu hættunni” sem steðjar að Hvítabretlandi nútímans, henni er ætlað að “ gufa upp”, týnast í myrkviðum Afríku, fjarri siðmennt. Til Hvítaíslands slæðist stundum mislitt fólk á flótta ...
Þegar ég staðhæfði, skömmu eftir að innrás Rússa hófst, að Úkraínustríðið væri staðgengilsstríð var allt slíkt tal stimplað sem «Pútínáróður» enda væri stríðið einfaldlega þjóðfrelsisstríð Úkraínu.Slíkir stimplar eru vissulega enn á lofti og mynd þjóðfrelsisstríðsins er haldið fast að okkur í fjölmilum. Inn á milli heyrist samt oftar og oftar frá háum stöðum, ekki síst í Washington, að Úkraínustríðið sé einmitt – staðgengilsstríð. Það er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir sambandi “staðgengils» og þeirra sem hann «staðgengur” fyrir ...
Eftirfarandi grein er stíluð til félaga í Vinstrihreyfingunni grænu framboði og birtist fyrst 9. maí á vettvangi þeirra. Þar sem ég tel hana eiga erindi út fyrir raðir Vinstri grænna hef ég farið fram á að hún birtist hér á þessum opna vettvangi. Í meðfylgjandi grein í Kjarnanum frá 6. maí stendur þetta: „Íslensk stjórnvöld styðja þær ákvarðanir sem þjóðþing Finnlands og Svíþjóðar munu taka varðandi aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO). Engin breyting hefur orðið á samþykktri stefnu Vinstri grænna (VG).Þetta kemur fram í svari ...
Eitt er að hafa skoðun annað að hafa ritskoðun. Þótt ást og hatur virðist við fyrstu sýn vera andstæðar tilfinningar hafa vísindamenn á sviði taugalíffræði komist að þeirri niðurstöðu að sömu rásir í heilanum tengist bæði ást og hatri. Þá benda rannsóknir í sálfræði til þess að því dýpri sem „ástin“ er þeim mun meira sé „hatrið“. Þetta tvennt virðist því fara saman. Nútildags eru tjáðar skoðanir sem ekki fylgja valdinu í blindni flokkaðar sem „hatursorðræða“...
Leiðtogahjörðin á liðinni stund lyftist á tá hver einasta Hrund þær sér útvöldu sitt ágæti töldu og heimsyfirráð vildu eftir fund. Höf. Pétur Hraunfjörð.
Skýrsluna hefði mátt skrifa betur til nánari skoðunar landinn hvetur þeir vinahóp töldu og ættmenni völdu í eftir á meðferð sjáum hvað setur. ... Höf. Pétur Hraunfjörð.
... Nú hafnar eldflaug í Póllandi. Bandarísk yfirvöld eru að rannsaka hvort ekki sé öruggt að Rússar hafi skotið henni. Líklegt? Spyr sá sem ekki veit en grunar margt. Við erum í hættulegu kompaníi með stærstu auðhringum heims, þar á meðal hergagnaframleiðendum og handbendum þeirra. Ísland úr NATÓ HERINN BURT. Jóhannes Gr. Jónsson
Með glórulausari gerningum forsætisráðuneytisins er mál nr. 2/2023. Það er tillaga til þingsályktunar um aðgerðaáætlun gegn „hatursorðræðu.“ Áætlunin, í sautján liðum, var birt í „samráðsgátt“ þann 4. janúar síðastliðinn. Næsta mál gæti heitið „Varnir gegn illsku heimsins“, eða „Aðgerðaráætlun gegn ranglæti heimsins.“ Í tillögunni gegn „hatrinu“ er þó viðurkennt að ...
„Nú vinnum við ætlunarverk NATO“, segir varnarmálaráðherra Úkraínu, Oleksiy Reznikov. Í viðtali í úkraínsku sjónvarpi 5. janúar sl. talaði hann um hvernig hernaður Úkraínuhers fellur að verkefnum NATO. Nánar sagði Reznikov: „Þeir skilja þetta alveg núna. Við sögðum þeim það áður og þeir brostu. En núna segja kollegar mínir, varnarmálaráðherrarnir, skýrt í ræðum sínum ...
Kaup Elon Musk á Twitter voru frágengin í október. Þau fóru fram af hans hálfu undir merkjum tjáningarefrelsis og „afnáms ritskoðunar“. Í íslenskum fjölmiðlum var okkur sagt að eigendaskiptin boðuðu að öllum líkindum stóraukna „hatursorðræðu“. Í desember sl. gerðist það svo að af hálfu nýrra eigenda var gefin, í nokkrum skömmtum, innsýn í innri tölvuskrár Twitter, og þar birtist mikið „ritskoðunarveldi“. Um það heyrum hins vegar lítið í fjölmiðlum ...
Það er útbreidd skoðun í þjóðfélaginu að fullveldi sé gamaldags. „Deilihagkerfið“ gengur út á samnýtingu hlutanna. Þar eru fá ef nokkur takmörk. Fólk telur að hægt sé að „deila fullveldi“ ríkja [sem er ekki hægt], það deilir bílum, tækjum, leigir fötin sem það stendur í, leigir hús og íbúðir (Airbnb) og fleira í þeim dúr. Fólk deilir jafnvel mökum og sambýlisfólki. Þessi þróun er ekki að öllu leyti neikvæð ...
Útbreidd trú er það að Evrópusambandið [ESB/Sambandið] sé sérstakt friðarbandalag og afar lýðræðislegt fyrirbæri. Hvorugt á við rök að styðjast. Enda þótt friður í Evrópu hafi upphaflega legið til grundvallar forvera Evrópusambandsins, þ.e. Kola-og stálbandalaginu, eftir síðari heimsstyrjöld, er fátt sem bendir til þess í dag að sambandið sé sérstakt friðarbandalag, í raun fjarri því ...
Því miður verður ekki sagt um frumvarp um vefverslun (netverslun) með áfengi sem fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram í fyrra að því hafi ekki fylgt nein hætta á aukinni neyslu. Sama gildir að öllum líkindum um frumvarp dómsmálaráðherra um sama efni sem væntanlegt var ...