Frjálsir pennar Febrúar 2022
Við heyrum það alls staðar, Úkraínudeilan snýst um yfirgang og árásarhneigð einræðisherrans í Kreml gagnvart varnarlitlu sjálfstæðu grannríki hans, Úkraínu. Yfirgang sem jafnframt er «ógn við öryggi í Evrópu” eins og utanríkisráðherann okkar segir. Já, deilan snýst um frelsi og valkosti Úkraínu. En hún snýst um fleira. Um öryggi Rússlands, eins og Pútín klifar á. Hún snýst líka um grundvöll bandalagsins NATO og um þenslu þess í austur – og um hlutverk Bandaríkjanna í Evrópu ...
Lesa meira
2.3billjarða dala spillingarveisla stóð innan BNA jafnt og í Afganistan frá 2001 til veisluloka í ágúst 2021. Línurnar lagði einkum Dick Cheney ásamt Bush og Rumsfeld, en innrás BNA í Olíu-Irak tafðist smávegis. ( Sem Dick Cheney þótti þó miður). Umrætt þríeyki í BNA valdi fyrrum ráðamann í röðum Talibana, skúrkinn Hamid Karzai, sem valdamikinn leppforseta í Afganistan. Sá dreifði völdum og fjármagni til stríðsherra, héraðsstjóra, lénshöfðingjavalds ...
Lesa meira
... Og höfum í huga að þessi bóluefni eru ekki aðeins boðin fólki sem er í raunverulegri hættu ef það smitast af Covid-19. Þau eru boðin öllum, allt niður í fimm ára börn. Fólki sem hefur nákvæmlega enga þörf fyrir þau. Og nú gegn nýjum stofni, sem þau virka ekki einu sinni gegn, eins og þegar hefur verið sýnt fram á. Og yfirvöld nota takmarkanir og þvinganir til að framfylgja áætluninni. Samt höfum við vitað frá upphafi að bóluefnin gegn Covid-19 eru ekki hönnuð til að koma í veg fyrir sýkingu og það varð ljóst fyrir löngu að þau munu aldrei mynda hjarðónæmi; þau vernda aðeins bólusetta einstaklinginn. Við þekkjum nú þegar hinn gríðarlega mun sem er á Covid-19 dauðsföllum eftir aldurshópum og þar með á þörfinni fyrir þessi lyf ...
Lesa meira
Það hefur verið makalaust að fylgjast með fréttaflutningi af ástandinu í Úkraínu. Deilan er máluð þannig að hún snúist nánast einvörðungu um yfirgang Rússa (Pútíns) og gefið er í skyn að allri mótstööu við valdhafa í Kænugarði sé handstýrt frá Kreml. Ekki er svo mikið sem tiplað á tánum í kringum tvö mjög mikilvæg smáatriði í kringum þennan fréttaflutning. Það fyrsta er það að andspyrnan gegn stjórnvöldum í Kænugarði er ekki í höndum fámenns liðs handbenda Moskvu, heldur er sá hópur innan Úkraínu sem er á móti stjórninni sem tók völdin í kjölfar EuroMaidan beinlínis stærri en þeir sem fylgja henni. Hin staðreyndin er sú að hersveitirnar sem stefna nú á stóráhlaup á austurhluta Úkraínu eru að ...
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Verkalýðsdegi að vanda hér fögnum
en samstöðuna nú almennt mögnum
sjáum erfiða tíma
við verðlag glíma
og kaupmáttarskerðingum höfnum.
Spillingin leikur enn lausum hala
líka hjá stjórnarliðinu
Þeir eignir okkar undir sig mala
og eru með í spilinu.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Hér vandræða tíma og mikla vá
vonbráðar fáum að horfa upp á
stjórnin þá fallin
og Bjarni kallinn
og langflestir vilja kosningar fá.
Já ef ég ætti banka bréf
bráðlega yrði ríkur
Engin fátækt ekkert þref
eymdinni allri líkur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef vantar fé í villta neyslu,
velgjörðirnar munum.
Bananasýslan bauð í veislu,
bankaræningjunum.
Gráðugir sýnast sumir menn,
sækja pund og franka.
Mafíustarfsemi magnast enn,
margir rændu banka.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum