Frjálsir pennar Janúar 2022
Stríðsleikir, manndráp, hafa lengi verið skemmtan manna oft sögð uppspretta menningar. Hér á útúrborunni Íslandi var lítið um krassandi stríð forðum, sögur af manndrápum urðu þó kjarnafæðan, Íslendingasögur. Alltaf var haft sem réttast þótti, heiður höfunda lá undir. Heimsbókmenntir að fornu og nýju snúast um manndráp og stríð að miklu leyti og veita leiklist innblástur. Listasöfn yrðu fátækleg án stríðs-mynda. Ekki skortir stríð og dráp í kvikmyndir, sjónvarpsþætti og tölvuspilin, mikla skemmtiblessun. Morðsögur eru best seldar bækur nú á Íslandi. Trúarbrögð mörg eru tengd ofbeldi, sem þau upphefja, og boðberar þeirra oft í drápshug.
Ein stríðssagna í nútíma snýst um Afganistan. Opinbera útgáfan er þó ...
Lesa meira
Það er nokkuð rætt um skyldubólusetningar þessar vikurnar. Ríki á meginlandi Evrópu hafa t.a.m. farið þá leið að skylda bólusetningar vegna veiki þeirrar sem kennd er við Covid-19. Þar hefur m.a. verið stuðst við dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli ... Eins og kemur fram í dóminum er í tékkneskum sóttvarnarlögum nr. 258/2000, 1. mgr. 46. gr., kveðið á um það að fólk með fasta búsetu, og útlendingar sem heimild hafa til langtímabúsetu í Tékklandi, skuli gangast undir hefðbundnar bólusetningar í samræmi við ítarleg skilyrði sem sett eru fram í afleiddum lögum [reglugerðum]. Forráðamenn barna, yngri en 15 ára, bera ábyrgð á því að skyldunni sé framfylgt. Almennt er litið svo á að ...
Lesa meira
Ef reynt er að lesa í vilja íslenskra kjósenda að loknum kosningum til Alþingis virðist sem talsverður hluti þeirra sé ekki mjög óánægður með yfirstandandi braskvæðingu raforkumálanna. Líklegt er að sú afstaða haldist óbreytt þangað til notendur sjá áhrifin með vaxandi þunga á rafmagnsreikningum sínum. Þegar breytingarnar skila sér í buddu notenda, með gríðarlegum hækkunum, kann að verða breyting á. En það gildir hér, eins og víða annars staðar, að best er að bregðast við í tíma, ekki bíða þar til allt er komið í óefni. Það stefnir nefnilega í ...
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Verkalýðsdegi að vanda hér fögnum
en samstöðuna nú almennt mögnum
sjáum erfiða tíma
við verðlag glíma
og kaupmáttarskerðingum höfnum.
Spillingin leikur enn lausum hala
líka hjá stjórnarliðinu
Þeir eignir okkar undir sig mala
og eru með í spilinu.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Hér vandræða tíma og mikla vá
vonbráðar fáum að horfa upp á
stjórnin þá fallin
og Bjarni kallinn
og langflestir vilja kosningar fá.
Já ef ég ætti banka bréf
bráðlega yrði ríkur
Engin fátækt ekkert þref
eymdinni allri líkur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef vantar fé í villta neyslu,
velgjörðirnar munum.
Bananasýslan bauð í veislu,
bankaræningjunum.
Gráðugir sýnast sumir menn,
sækja pund og franka.
Mafíustarfsemi magnast enn,
margir rændu banka.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum