Fara í efni

HERINN: ÚT UM FRAMDYR, INN UM BAKDYR

Samkvæmt útvarpsfréttum eru framundan framkvæmdir á öryggissvæðinu á Keflavíkurfluvelli auk ratsjárkerfis í fjórum landshornum, framkvæmdir fyrir 14 milljarða króna. Upphæðin jafngildir ca. 100 nýjum glæsivillum.

Framkvæmdunum má skipta í tvo hluta. Annars vegar er uppfærsla á ratsjárkerfum NATO umhverfis landið og hins vegar viðhald og uppbygging á Keflavíkurflugvelli, bæði af hálfu NATO og bandaríska hersins... Bandaríski flugherinn ætlar svo að útbúa aðstöðu til búsetu í einskonar gámaíbúðum fyrir meira en þúsund hermenn inni á varnarsvæðinu. Íbúðirnar rísa ekki strax heldur verður lagt skólpkerfi í jörðu, raflagnir og annað slíkt.“ https://www.ruv.is/frett/14-milljarda-framkvaemdir-vid-varnarmannvirki

Þegar Mike Pompeo utanríkisráðherra kom í heimsókn til Íslands í vetur sagði hann að „Ísland verði ekki vanrækt lengur“. Sjá hér: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/02/15/island_verdi_ekki_vanraekt_lengur/  Hann ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson um viðbúnað á norðurslóðum og „hvert sé best að flytja hergögn og annað, til að tryggja öryggi á norðurslóðum“. En samkvæmt RÚV: „Guðlaugur Þór túlkar orð Pompeo um flutning hergagna ekki sem svo að Bandaríkjamenn séu að boða aukin hernaðarumsvif“ ...„Þannig að það er ekkert neitt annað í gangi en það sem er búið að vera í gangi á undanförnum árum“.  https://www.ruv.is/frett/samhljomur-i-rikisstjorn-um-nordurslodir  Friðardúfan Katrín Jakobsdóttir sagðist auk heldur hafa sagt við Pompeo að „mikilvægt sé að ekki verði hernaðarumsvif á norðurskauti“ og á Arctic Circle í fyrra sagðist hún vona að „Norðurslóðir verði vopnlaust svæði“. https://www.ruv.is/frett/nordurslodir-verdi-vopnlaust-svaedi  Katrín hefur hlutverk í samhenginu: að gefa uppbyggingunni hér mildilegt andlit.

Hinar auglýstu framkvæmdir benda ekki til að allt sé bara í hefðbundnum skorðum á Miðnesheiði. Viðvera herliðs eykst jafnt og þétt. Kafbátaleitarsveitir Bandaríkjanna og NATO-ríkja dvelja nú reglulega á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Þar bætist við á annað eða þriðja hundrað manns sem koma þrisvar á ári vegna „loftrýmiseftirlits“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður VG, spurði utanríkisráðherra í nóvember sl. um viðveru erlends herliðs á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli frá 2007-2017. Svarið var á þessa leið: „Á síðustu ellefu árum hefur viðvera erlends herliðs á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli verið mjög breytileg frá ári til árs, allt frá sautján dögum árið 2007 til þess að vera dagleg viðvera síðustu þrjú árin.“ Og fram kom í svarinu að fyrsta árið voru hermennirnir alls 17 en síðasta árið voru þeir 1220. Ekkert að breytast? Sjá hér svarið: https://www.althingi.is/altext/149/s/0427.html?fbclid=IwAR3vDzS3SVkYJZu4i1evoaag_b973yGHiXX1P-45kZAgQhCmrBL3SG9R-KI 

Herstövasamningurinn við BNA er enn í fullu gildi. Bandaríkin fluttu aðeins her sinn í bili af taktískum ástæðum. Í stefnumörkun núverandi ríkisstjórnar Íslands segir:  „...grunnstoðir utanríkisstefnunnar eru samstarf vestrænna ríkja, evrópskt og norrænt samstarf, aðild að Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu, varnarsamningurinn og friðar- og öryggissamstarf.“

Borgar Þór Einarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, viðurkennir nýja og aukna hernaðaruppbyggingu Bandaríkjanna hér og í Norður-Atlantshafi, sem auðvitað stafar af hinni miklu ógnun frá Rússum:

„Þeir [Bandaríkjamenn] eru náttúrulega búnir að virkja aðra flotadeildina á nýjan leik og það er alveg augljóst að það verða hér meiri hernaðarumsvif. Það verður meiri fókus. Hernaðarumsvif Rússa og uppbygging er auðvitað mest hér, miklu meiri en uppbygging Bandaríkjamanna. Því miður þá er það þannig að hernaðarumsvif eru að aukast.“ https://www.ruv.is/frett/telur-ad-hernadarumsvif-aukist-a-nordurslodum

Það er reginlygi að Rússar leiði vígvæðinguna. Við höfum ekki gleymt Trident Juncture í haust: 10 herskip, 6000 sjóliðar, 400 bandarískir landgönguliðar á Íslandi, og héðan stukkur þeir yfir í mestu heræfingu í Skandinavíu eftir kalda stríðið: 50 þúsund hermenn, 8 þúsund stríðsökutæki og skriðdrekar, 70 herskip og 130 flugvélar bara í Noregi. Og ári áður var 20 þúsund manna NATO-æfing í Svíþjóð (hlutlaust land!). Bandaríski flotinn hefur í fyrsta sinn í sögunni fengið tvær fastar herstöðvar í Noregi. Norðurlönd liggja flöt sem stökkpallur fyrir Bandaríkin og NATO gegn Rússum. Uppbyggingin í Keflavík er liður í því. Þetta eru EKKI „STRÍÐSLEIKIR“ (uppáhaldsorð sumra hjá SHA). Þetta er STRÍÐSÁRÓÐUR OG STRÍÐSUNDIRBÚNINGUR. https://neistar.is/greinar/nato-i-vigahug-trident-juncture-a-islandi-og-noregi/

Hver ógnar hverjum? Hver æfir stríð við landamæri hvers? Bandaríkin hafa yfir 800 herstöðvar erlendis. Rússar hafa eina flugherstöð og eina flotastöð í Sýrlandi, og þá er allt upptalið. Árið 2017 stóðu Rússar fyrir 3.8% af herútgjöldum heimsins, Bandaríkin 35%. Þegar hertólahlutföllin eru þannig er huggun að heyrða það og sjá að Pompeo og Pentagon ætla að „hætta að vanrækja Ísland“. Eða hvað, VG?