Frjálsir pennar Apríl 2017
... Líkja má fólki sem ekki hefur efni á að kaupa húsnæði við
jarðnæðislaust fólk á árum áður, það var neytt í
vinnumennsku hjá bændum gegn húsaskjóli og fæði. Fyrirtæki
eins og Vísir í Grindavík hafa keypt heilu blokkirnar undir
starfsfólk sem var flutt frá Húsavík, þegar fiskvinnsla var þar
lögð niður. IKEA hyggst reisa nýjar íbúðir fyrir starfsmenn sína,
kísilverið á Bakka við Húsavík er að reisa íbúðir þar fyrir
starfsmenn og svo mætti eflaust lengi telja. Hver er hin
raunverulega hugsun bak við þessar aðgerðir fyrirtækjanna?
Nú spyr eflaust einhver. Af hverju er maðurinn að velta
þessari spurningu fyrir sér? ...
Lesa meira
... Efnahagsástandið á Íslandi er nú með þeim hætti að enginn
íbúi landsins ætti að þurfa að búa við fátækt. Með réttri stefnu,
ákvörðunum og aðgerðum geta stjórnvöld komið í veg fyrir fátækt.
Fátækt er því í raun pólitísk ákvörðun.
... það breytir því þó ekki að fyrir þá sem búa við
efnislegan skort er það engin sárabót þótt þeir séu hlutfallslega
færri hér en annars staðar, staða þeirra er jafn sár fyrir því. En
á hinn bóginn skyldi maður ætla að það sé auðveldara að ráða bug á
þessum vanda eftir því sem hlutfallið er lægra og því minni afsökun
að láta það undir höfuð leggjast ... Þótt efnislegur
skortur sé tiltölulega fátíður hér miðað við önnur lönd gefa
niðurstöðurnar í skýrslu UNICEF sannarlega tilefni til viðbragða.
...
Lesa meira
Kyssa vöndinn Vinstri Græn
verja nú Bjarna kallinn
Veikluleg og alls-ekkert væn
vísast er stjórnin fallin.
Með verðbólgu og verðlag hátt
venjast má öllu smátt og smátt
ég lyktina finn
í sjöunda sinn
allt á fleygiferð í gjaldþrota átt.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allrahanda eðalglingur,
allt úr gulli í salnum.
Elísabet er Íslendingur,
ættuð úr Víðidalnum.
Fljótt ég þetta færði í tal,
fleiri kunna að meta.
Virðuleg kona úr Víðidal,
valdist í hásæti Breta.
...
Kári
Lesa meira
Fallin finnur ekki taktinn
farinn samstarfsvilji
þannig endar vina vaktin
vísast að leiðir skilji.
Til helvítis hann sendir börn
frá harðindum á Fróni
En þjóðfélagið þeim veitir vörn
frá viðsjárverðum Jóni.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Flóttamenn hér fella stjórn
á fréttir agndofa góndi
Vinstri Græn vilja færa fórn
ekki Jón Blóðmerabóndi.
Flokkinn minkar fljótt og hratt
og fylginu þar tapar
Á samstarfinu fer Katrín flatt
að feigðarósi hrapar.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Þeir fengu fyrst auðlindir okkar
framsókn og sjálfstæðisflokkar
í fátækt oss hnepptu
svo bankana hrepptu
í auðmennina Bjarni nú kokkar.
Á bláþræði hún hangir víst
með heldur lítið traustið
Um heiðar-leika lífið snýst
hún lafir fram á haustið.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ég hef staðið í þeirri trú að stefna VG væri sú að Ísland stæði utan hernaðarbandalaga, með öðrum orðum, gengi úr NATÓ. Nú er talað allt öðru máli. Annað hvort á VG þá að breyta gjörðum sínum til samræmis við gefin loforð til kjósenda eða lofa þeim öðru, annarri stefnu og þá væntanlega þeirri að Ísland verði áfram NATÓ-þjóð og tali ...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Af fréttavakt Vísis 3. maí: “Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, heiðraði í dag starfsmenn vopnaverksmiðju í Bandaríkjunum þar sem svokallaðar Javelin-eldflaugar eru framleiddar. Hann sagði Úkraínumenn nota þær til að gera Rússa að fíflum." Víða finnast fíflin eða er málið alvarlegra en svo að þetta sé bara auli að aulast?
Nei, þetta er forseti Bandaríkjanna að gleðjast yfir mætti drápstóla. Eflaust hefur verið klappað í ...
Jóel A.
Lesa meira
Verkalýðsdegi að vanda hér fögnum
en samstöðuna nú almennt mögnum
sjáum erfiða tíma
við verðlag glíma
og kaupmáttarskerðingum höfnum.
Spillingin leikur enn lausum hala
líka hjá stjórnarliðinu
Þeir eignir okkar undir sig mala
og eru með í spilinu.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Hér vandræða tíma og mikla vá
vonbráðar fáum að horfa upp á
stjórnin þá fallin
og Bjarni kallinn
og langflestir vilja kosningar fá.
Já ef ég ætti banka bréf
bráðlega yrði ríkur
Engin fátækt ekkert þref
eymdinni allri líkur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef vantar fé í villta neyslu,
velgjörðirnar munum.
Bananasýslan bauð í veislu,
bankaræningjunum.
Gráðugir sýnast sumir menn,
sækja pund og franka.
Mafíustarfsemi magnast enn,
margir rændu banka.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum