Frjálsir pennar 2005
Mér gengur erfiðlega að skilja siðfræði hægri manna. Raunar hef
ég aldrei skilið hvernig einstaklingshyggja geti verið hugsjón. Eða
að Kristur geti verið leiðtoginn í lífi hægri manna, hvað þá
helgaður þeim. Ein af höfuðklisjum hægri manna er að vinstri menn
geti ekki stjórnað vegna óráðsíu í fjármálum. Hannes Hólmsteinn
grípur hvert tækifæri til að fara með ellefta boðorðið, sem hann
kallar svo og segir vinstri menn ekki kunna að virða (fremur en
hin): "Þú skalt ekki gera góðverk á kostnað náunga þíns." Raunar
hefur mér virzt að aðal kennisetning hægri manna í siðfræði sé
þessi...
Lesa meira
...Ráðherrarnir tveir...brutu lögskyldu við stofnun Alþingis og
fóru á svig við ríkisstjórn í galinni ákvarðannatöku - þeir eru of
smáir í sér til að axla þá ábyrgð,sem þeir sjálfir þó mikla sig af
að bera. Þjóð þeirra blöskrar. Íraksmálið er tröllaukið heimsmál.
En það er ekki síður stórt innanríkismál á Íslandi því að lýðræði
og lögum er ögrað vegna þess. Robert Marshall hefur vaxið að
virðingu en virðing Halldórs og Davíðs vex ekki...
Lesa meira
...Eftir langa mæðu ráðherrans fékkst Eiríkur Tómasson til að
slá botninn í þrasið fyrir skömmu. Niðurstaða Eiríks var að
ákvörðunin um stuðning við Íraksinnrás hefði verið minniháttar
utanríkismálefni á Íslandi. Ákvörðun Íslands og nokkurra
ríkja var áður sögð forsenda Íraksinnrásar, sem samkvæmt þessu var
smámál, ekki heimsviðburður. Þetta er
lögmannsálitið. Þjóðaræsingur Íslendinga stafar af vanþekkingu
þeirra á eigin lýðræðiskerfi og vanmati þeirra á ráðherravaldi.
Íraksinnrás var og er ...
Lesa meira
...Er rangt að tala í einu orðinu um skelfilega
stríðsstefnu og í hinu orðinu um skelfilegar náttúruhamfarir ?
Líklega ekki því mannlegir vitsmunir hefðu í báðum tilvikum getað
afstýrt miklum hörmungum. Þegar skynsemin sofnar þá vaknar
villidýrið og þá vaknar líka kæruleysið um hag náungans.Slíkt
leiðir til mannlegra hamfara og stundum til varnarleysis gegn
hamförum náttúrunnar....
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum