Baldur Andrésson skrifar: FLÍSIN OG BJÁLKINN/íRAK
Robert Marshall fréttamaður Stöðvar 2 var einn þeirra þúsunda
Íslendinga sem veltu fyrir sér hvers vegna yfirvofandi
stuðningsákvörðun Íslands við Íraksinnrás var ekki
kynnt á ríkisstjórnarfundi í þann mund sem tveir ráðherra
kynntu hana Bandaríkjamönnum. (Sbr.staðfestingu m.a.Guðna
Ágústssonar þ.a.l.)
Mislestur á heimasíðu CNN fékk Róbert til að trúa (að forsögu
gefinni) að ákvörðunin hefði verið tekin og tilkynnt fyrir áður
uppgefinn tíma og lái honum hver sem er að rýna skakkt í galdurinn,
undanbrögðin og vélbrögðin öll. Ríkisstjórnin fékk CNN fréttina
eftir fund sinn!
Robert hefur nú axlað fréttamannspoka fyrir þessa smávægilegu flís
í auga. Bjálkamennirnir fara hamförum gegn honum.
Ráðherrarnir tveir,sem gríðarstóra ákvörðun tóku í óþökk þjóðar
sinnar, brutu lögskyldu við stofnun Alþingis og fóru á svig
við ríkisstjórn í galinni ákvarðannatöku - þeir eru of smáir í sér
til að axla þá ábyrgð,sem þeir sjálfir þó mikla sig af að bera.
Þjóð þeirra blöskrar.
Íraksmálið er tröllaukið heimsmál. En það er ekki síður stórt
innanríkismál á Íslandi því að lýðræði og lögum er ögrað vegna
þess.
Robert Marshall hefur vaxið að virðingu en virðing Halldórs og
Davíðs vex ekki.
Baldur Andrésson