Frjálsir pennar Apríl 2004
Ég fór til Kúbu fyrir skömmu sem ekki er í frásögur
færandi. Það hefur fjöldi íslendinga farið þangað á
undanförnum árum. Kúba hefur sérstöðu í
hugum fólks, þessi eyja sem lenti í því að verða bitbein
stórveldanna. Í hugum margra er Kúpa líka einskonar
forngripasafn þar sem tíminn standi í stað og margir vilja koma
þangað meðan Kastró er enn á lífi því við fráfall hans muni allt
breytast.
Lesa meira
Umræður um málefni heimsins eiga til að lenda í skringilegum
farvegi hér á landi og er stundum engu líkara en helstu valdamenn
landsins geti ekki sett það sem er að gerast í eðlilegt samhengi.
Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson hafa verið helstu talsmenn
ríkisstjórnarinnar í utanríkismálum, eins og eðlilegt má teljast.
Utanríkisráðherra hefur beitt sér fyrir jákvæðum breytingum á
utanríkisstefnunni í þá veru að auka stuðning við þróunarlöndin og
standa að þeim verkefnum af meiri myndleik en áður. Aftur á móti
eru þeir félagar furðulega...
Lesa meira
Við upplifum magnaða tíma í jafnréttisbaráttunni og þegar við
lítum til baka eftir nokkur ár munum við minnast þessara tíma sem
þriðju bylgju femínismans. Fyrsta bylgjan var barátta fyrir
formlegu jafnrétti, kosningarétti kvenna og réttinum til að stunda
nám á við karlmenn. Önnur bylgjan er oft kennd við rauðsokkurnar,
en þá þegar var orðið ljóst að lagalegt jafnrétti væri ekki nóg.
Meira þurfti að koma til og baráttan gegn hinum hefðbundnu
kynjahlutverkum hófst fyrir alvöru. Launajafnrétti var sett á
oddinn ...
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum