Beint á leiđarkerfi vefsins

Breyta skráningu

Breyta skráningarupplýsingum

Skráđu netfang ţitt hér fyrir neđan og smelltu á "Áfram". Eftir ađ ţú hefur slegiđ inn netfang og smellt á "Áfram" fćrđ ţú sendan tölvupóst međ leiđbeiningum.

Netfang:

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Mars 2010

VATN Á MYLLU ANDSTĆĐINGA?

Eru það ekki tómir draumórar og jafnvel barnaskapur að halda að hægt sé að ná einhverri sameiginlegri niðurstöðu allra flokka um Icesave? Er það ekki löngu ljóst að formenn stjórnarandstöðuflokkanna, og þá sérstaklega Framsóknarflokksins, þrífast á illdeilum og vilja draga deiluna sem allra mest á langinn í því skyni að auka líkurnar á því að þeir komist aftur til valda? Eru orð þín og gjörðir ekki einmitt vatn á myllu þeirra?
Svala Jónsdóttir

10. Mars 2010

ŢEGAR ÍHALDIĐ HRÓSAR...

Ég er flokksmaður í VG í kraganum og kaus þig og Guðfríði í síðasta prófkjöri. Ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með samstöðuleysi þitt og hina viðkvæmu sannfæringu þína sem þér finnst þú verða að fara eftir. Þú talar mikið um þörf á samstöðu, sem mér finnst birtast í því að það sé samstaða að vera sammála þér. Ég var í Alþýðubandalaginu, og ég verð að segja að ég var dauðfeginn þegar það var lagt niður, og verstu þrasararnir stofnuðu Samfylkinguna með Alþýðuflokknum. Frá stofnun VG hef ég kosið þann flokk, nú finnst mér að ég sé kominn í Alþýðubandalagið aftur, þegar Ólafur Ragnar Grímsson, stjórnaði ...
 Árni Magnússon

9. Mars 2010

ER SAGAN AĐ ENDURTAKA SIG?

Hefur þú séð skuldaklukku Icesave seinkunarinnar? Hún birtist á vef ungra jafnaðarmanna og byggir á útreikningum Gunnlaugs nokkurs hagfræðings sem Pétur vinur þinn hér á síðunni hefur vitnað til. Gunnlaugur hefur reiknað út að Icesave seinkunin kosti þjóðarbúið 75 milljarða á mánuði. Þannig að spörun á Icesave, ef hefði verið samþykkt væri nú komin í 900 milljarða í hreinar tekjur. Hugsaðu þér hvernig hagfræðin getur nú hjálpað okkur! Þetta kannt þú ekki Ögmundur, heldur ert bara í því að velja hvort smyrja eigi brauðið með osti eða kæfu. Þú hefðir kannski átt að fara í hagfræðikúrsinn hjá Þórólfi, þá kynnir þú að reikna og gætir sparað fyrir okkur hin. Við þurfum kannski ekkert að hugsa um velferðina, því það er nóg að taka á okkur skuldbindingar okkar og vera alvöru ...
 einn óháður kjósandi VG

9. Mars 2010

VILL LÁTA SYNDA MEĐ STRAUMNUM

Ég sem meðlimur VG frá upphafi vil fá að vita hversu langt þú vilt ganga til að ná þínum persónulegu markmiðum til að að öll dýrin í skóginum verði einhuga. Að nota þennan tíma Íslandssögunnar til að koma skítugri fortíðinni aftur að "sínum" kjötkötlum finnst mér ófyrirgefandi. Ef þú getur ekki synt með straumnum í þessu samstarfi og beint þínum áherslupunktum í rólegheitum í réttan farveg, finnst mér að þú ættir að stíga til hliðar og undirbúa betur forsetaframboðið. Með...
Gunnar

8. Mars 2010

MUN STJÓRNIN LIFA?

...Nú hafa fleiri en einn haldið því fram að "órólega deildin" í VG hafi líf ríkissjórnarinnar í hendi sér.Nú ráðist það fljótt hvort stjórnin lifi áfram eða ekki. Hver er þín skoðun?
Hrafn Arnarsson

8. Mars 2010

ERU PÓLITÍSK MARKMIĐ FRAMSÓKNAR EKKI SKÝR?

...Þú sást Silfur Egils í gær. Þú hefur verið lengi í pólitík. Er einhver vafi í þínum huga um pólitískt agenda Sigmundar Davíðs? Meira að segja amatörinn ég sé skýrt hvað Sigmundur Davíð ætlar sjálfum sér og sínum. Svar óskast....
Hlynur Grímsson.

7. Mars 2010

ÓSKAĐ EFTIR SVARI

...Nú er komin niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðsluna og hvað svo? Hvernig sérð þú næstu skref hvað villt þú gera? Er nú að hlusta á Silfur Egils eins og þú ert væntanlega líka að gera. T víburabræðurnir í stjórnarandstöðunni vilja ríkisstjórnina frá og finnst þér málflutningur þeirra góður eins og síðast þegar þú varst yfir þíg hrifin af Sigmundi er þetta það sem þú villt að fá þessa drengi til valda og ég vil fá skýr svör vegna þess að ég hef í gegnum tíðina stutt víð bakið á þér í þeim málum sem þú hefur tekið þér fyrir hendur þó svo að ég hafi ekki verið sammála þér í þessu ICESAVE máli. Mér finnst að þú eigir að koma fram...
 Viðar Magnússon

7. Mars 2010

TRÚARLEGT STEF?

Fjármálaráðherra sagði í viðtali við sjónvarpið á kjördag að hann hefði tekið að sér starf sem enginn annar vildi. Hann bætti um betur og sagði að hann væri ekki öfundsverður. Til þess að leggja áherslu á hversu kröfuhart starfið væri sagði hann frá því að hann hefði hitt erlenda sjónvarpsfréttamenn og manað þá til að leita að arftaka fyrir sig. Hann var þess fullviss að þrátt fyrir svo víðtæka leit myndi enginn finnast. Þetta samhengi er miklu biblíulegra en maður á að venjast þegar ...
Árni V.

6. Mars 2010

ŢJÓĐ, VALD OG ÁBYRGĐ

Í dag er fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan frá lýðveldisstofnun. Það er mikilvægt að þjóðin taki hana alvarlega. Fólk á ekki hlusta á orð forystumanna ríkisstjórnarinnar sem hafa af dónaskap og yfirlæti kallað þennan atburð marklausan skrípaleik. Maður hefði seint trúað að heyra slík orð af vinstri væng stjórnmálanna - frá því fólki sem mest hefur talað fyrir virkara lýðræði og kallað eftir þjóðaratkvæðagreiðslum um stór mál. ..Við skulum ekki heldur hlusta á hrunverjana... Á kjörstað tökum við afstöðu til hagsmuna þjóðarinnar og til framtíðarinnar. Ég hef hafnað Icesave - lögunum. Mín niðurstaða er sú...
Þorkell Gunnarsson

6. Mars 2010

TRYGGVI ŢÓR KEMST EKKI

Enn berast fregnir af ógöngum fyrirmenna þjóðarinnar á kjördag. Nú er ljóst að Tryggvi Þór Herbertsson getur ekki kosið en hann varð fyrir því óhappi að festast í skuldabréfavafningi í gærkvöldi. Greiningardeild ríkislögreglustjóra...
Þjóðólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

11. Mars 2010

Drífa Snćdal skrifar: ÓTRÚLEGUR ÁRANGUR Í KVENFRELSI Á EINU ÁRI

...Ein er sú kona í ríkisstjórninni sem verðskuldar sérstakt lof fyrir framtak sitt í þágu kvenna og er það Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra. Að öðrum ólöstuðum er það henni að þakka að fyrsti dómur í mansalsmáli gekk 8. mars síðastliðinn en hún viðurkenndi nauðsyn þess að setja fjármagn og mannafla í þá rannsókn og vitnavernd sem þurfti til. Það er nefnilega ekki nóg að setja lagarammann það verður að vera vilji innan kerfisins til að framfylgja honum líka og meðtaka mikilvægi þess að ofbeldi karla gegn konum sé ekki liðið. Þetta gerði Ragna og með því er Ísland aðeins fjær því að vera griðastaður ofbeldismanna. Nú bíðum við bara eftir fyrsta ...

19. Febrúar 2010

Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir skrifar: RÉTT OG RANGT HJÁ JÓHÖNNU

...Um eitt er ég altént sammála Viðskiptaráði í nýrri ályktun: Það verður að passa að stjórnmálamenn láti ekki undan öflugum þrýstihópum. Samkvæmt reynslu fyrri ára hlýtur Viðskiptaráð þar að vera að vara við sjálfu sér og sínum eigin öflugu áhrifum innan Stjórnarráðsins á árunum fyrir hrun. Þökk sé höfð fyrir áminninguna. Hún er áríðandi sem aldrei fyrr og mál til komið að stjórnmálamenn hlusti meira á grasrótarsamtök fólksins í landinu heldur en hagsmunasamtök fjármagnsins...

5. Febrúar 2010

Baldur Andrésson skrifar: BANNAĐ BÖRNUM

Í  des.2007 vakti athygli mína spillingarsamningur þáv. menntamálaráðherra við Samson Properties, en þá lofaði hún með ríkisábyrgð að greiða fyrir lóðabraski fyrirtækisins við Laugaveginn, á Frakkstígsreit, borga kostnað við leigukassasmíði.   Milljarðasamningur var gerður til rekstarleigu á óbyggðu einkahúsi braskaranna til Listaháskólans, 14.000 fm. ferlíki í þröngu, grónu, miðborgarumhverfi. Að auki fékk einkafyrirtækið að gjöf verðmætt  ríkisland í Vatnsmýri(!).   Ríkisgjöfin til braskfyrirtækis Björgólfs var metin á nálega 6 milljarða. Samson átti að verða borgið í bili. Ríkisgjöfin var ,,utan ríkisreiknings"...Aðrar sögur eru enn í smíðum. Þær væru hættulegar börnum , en skapandi höfundar finnast  sem skapa barnslega fegurð úr vondum veruleika. Á Íslandi ríkir réttsýni, skynsemi, heiðarleiki, segja þeir.   Eigum við sjálf að...

Slóđin mín:

Fréttabréf » Breyta skráningu

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta