Frá lesendum
2. Júlí 2012
BREYTA BER LÖGUM
Ágæti innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson. Ég undirrituð vil biðja þig að sjá til þess að mál systranna þriggja sem teknar voru burt af heimili sínu í Kópavogi fyrir helgi verði endurskoðað. Við horfðum þegjandi upp á alla vanvirðinguna gagnvart Breiðuvíkurbörnunum. Látum ekki velferð þessara barna sem vind um eyru þjóta. Þú sem ráðherra dómsmála hefur völd og rödd sem heyrist og hlýtur að geta tekið í taumana í þessu máli og séð til þess að vilji barnanna í sambandi við tengsl og búsetu sé virtur. Vinsamlegast beittu þér fyrir breytingu á þeirri löggjöf þar sem fórnarlömbin eru saklaus börn. Barnaverndarlöggjöf hlýtur samkvæmt orðanna hjóðan að vera ætlað að vernda sálarheill barnanna en ekki splundra lífi þeirra og öryggi. Þetta mál þolir ekki bið, þarna eru barnssálir sem bíða skaða af.
Virðingarfyllst,
Jónína Óskarsdóttir,
Birkimel 6, 107 - Reykjavík.
Nú er það svo að ég hef reynt að beita mér í þessu máli í langan tíma. Það vita allir sem þekkja til. Þetta varð hins vegar niðurstaðan eins dapurleg og hún er. Nú er að vinna úr málinu eins og það stendur. Ég tel sjálfur það aldrei vera réttlætanlegt að fara inn á heimili og taka börn með valdi nema til að forða þeim frá ofbeldi. En þannig eru hins vegar lögin. Ég lagði til lagabreytingu í þessa veru í vor en Alþingi hafnaði henni.
Kv.,
Ögmundur
Frá lesendum
3. Júní 2013
UM RÉTTINDI Í TRYGGINGA-KERFINU
Kjartan
27. Maí 2013
HVER HAFI VIT FYRIR HVERJUM?
Einar
25. Maí 2013
LUGU SIG TIL VALDA?
Jóel A.
25. Maí 2013
VILL EKKI VESALDDÓM Í STJÓRNAR-ANDSTÖĐU!
Það er átakanlegt að heyra ...
Haffi
16. Maí 2013
BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN
Þór Gunnlaugsson
16. Maí 2013
FRJÁLST FLĆĐI
Óskar K Guðmundsson fisksali
12. Maí 2013
ÝMIS SPJÓT
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
6. Maí 2013
GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...
Sunna Sara
5. Maí 2013
NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA
H.P.
4. Maí 2013
Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?
Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara












