Frá lesendum
12. Júní 2012
OG SVARAĐU NÚ!
Ég tek eftir að í öllum þeim deilum sem einkennt hafa þinghaldið að undanförnu virðist eitt sameina stjórnarmeirihlutann og það er milljaðra lántaka ríkissjóðs vegna Vaðlaheiðaganga. Einu sinni átti þetta að vera áhættufjárfesting einakaðila nú á áhættan að vera hjá ríkissjóði. Vaðalaheiðagöng eiga að sjálfsögðu réttlætingu en ekki þá að göngin verði tekin framfyrir aðrar miklu brýnni framkvæmdir. Hefur þú snúist í málinu Ögmundur, varla er þetta í þínu umboði? Og svaraðu nú!
Jóhannes Gr. Jónsson
Ég hef gert grein fyrir minni afstöðu til þessa máls, m.a. hér: http://ogmundur.is/stjornmal/nr/6336/
Mér hefur ekki snúist hugur nema síður sé. Meirihluti stjórnarmeirihlutans kann að standa að þessu en ekki stjórnarmeirihlutinn allur og vísa ég þar í formann og varaformann samgöngunefndar, Guðfríði Lilju Grétarsdóttur og Ólínu Þorvarðardóttur svo og Mörð Árnason og fleiri.
Með kveðju,
Ögmundur
Frá lesendum
3. Júní 2013
UM RÉTTINDI Í TRYGGINGA-KERFINU
Kjartan
27. Maí 2013
HVER HAFI VIT FYRIR HVERJUM?
Einar
25. Maí 2013
LUGU SIG TIL VALDA?
Jóel A.
25. Maí 2013
VILL EKKI VESALDDÓM Í STJÓRNAR-ANDSTÖĐU!
Það er átakanlegt að heyra ...
Haffi
16. Maí 2013
BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN
Þór Gunnlaugsson
16. Maí 2013
FRJÁLST FLĆĐI
Óskar K Guðmundsson fisksali
12. Maí 2013
ÝMIS SPJÓT
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
6. Maí 2013
GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...
Sunna Sara
5. Maí 2013
NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA
H.P.
4. Maí 2013
Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?
Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara












