Frá lesendum
6. Febrúar 2010
SKRÍPÓSTJÓRNMÁL
Þú Ögmundur og Lilja Mósesdóttir greidduð atkvæði gegn lögunum um ríkisábyrgð. Það fer ekki á milli mála að afstaða ykkar almennt í þessari ríkisstjórn gera hana meira og minna óstarfhæfa. Það hlýtur að vera mikilvægt fyrir þá sem fylgja þér að málum og eins fyrir hina að fá að vita hvað þú vilt gera í Icesavemálinu. Um hvað verður kosið. Hver eru markmið þín? Þú skuldar svar við spurningunni: 1. Viltu að íslenska þjóðin standi við skuldbindingar sínar og greiði innistæðueigendum Icesave í Bretlandi og Hollandi lágmarkstryggingu, allt að 20.887 evrur hverjum innistæðueiganda? Óska eftir svari já eða nei og enga útidúra. Dómstólaleið og greiðslugeta koma þessari spurningu ekkert við.
Pétur
Alþingi hefur samþykkt fyrirvara á ríkisábyrgð þar sem fram kemur að við véfengjum greiðsluskyldu okkar. Ég er sammála þeim fyrirvara. Ég er því líka sammála að leita lausnar í samningum við Breta og Hollendinga einsog nú er verið að gera. Þú spyrð um markmið mín. Þau eru að bæta stöðu Íslands og þar með bæta stöðu velferðarþjónustunnar sem mun eiga við nóga erfiðleika að stríða í framtíðinni. Ég skil ekki hins vegar hvað vakir fyrir þér að leggja slíkt ofurkapp á að negla okkur niður með yfirlýsingum um hvað við gætum endanlega fallist á einsog þú gerir ítrekað í bréfum þínum. Þetta gerir það eitt að veikja samningsstöðu okkar. Finnst þér það ef til vill vera slæmt ef Íslendingar ná betri samningi? Hefurðu efnt til rökræðu við aðila sem að þessum málum hafa komið eða aðra þá sem best til þekkja ? Hefurðu rætt þetta fyrir framan spegil?
Kv.
Ögmundur
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLÆTI
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIÐ VONBRIGÐUM!
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGÐ Í MUNNINN
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓÐ KVEÐJA
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
Jón Jón Jónsson












