Frá lesendum
31. Júlí 2008
NÝ SÝN Á FJÖLMIĐLA-FRUMVARPIĐ?
Sæll, Ögmundur, fínn pistill hjá þér um fjölmiðla og einkavæðingu, en varðandi fjölmiðlafrumvarpið langar mig að spyrja þig nánar út í afstöðu sína til þess á sínum tíma og í dag? Hefur afstaða þín breyst? Mig minnti að þú hefðir barist ötullega gegn því á sínum tíma en sýnist á þessum pistli að þú hugsir hlýjar hugsanir í garð þess.
Besta kveðja,
Viktor
Þakka bréfið Viktor. Afstaða mín hefur ekki breyst í grundbvallaratriðum en aðstæður hafa vissulega breyst. Ég sagði á sínum tíma að mótvægið við einkabransann ætti að vera Ríkisútvarpið undir handarjaðri okkar allra. Síðan sagði ég að mesti óvinur málfrelsisins á fjölmiðlum væri óöryggið sem gæti meðal annars skapast af bágri fjárhagslegri stöðu. Vinir nmínir á Helgarpóstinum í gamla daga sögðust hafa haft meiri ótta af auglýsendum en eigendum. Ég hef litið svo á að ef takist að mynda stönduga fjölmiðla með sjálfsörugga áhöfn þá væri til nokkurs unnið. Við slíkar aðstæður ætti eigendavaldið altént í höggi við varðmenn faglegra vinnubragða.
Síðan gerist það að RÚV er hlutafélagavætt og eignarhaldið á fjölmiðlunum verður einsleitara. Ráðningar á ritstjórnir taka að endurspegla þetta. Aðstæður hafa breyst og sennilega er það rétt hjá þér að hjá mér gæti meiri hlýju í garð fjölmiðlafrumvarpsins en áður var. Tímarnir breytast og mennirnir með. Ætli það eigi ekki við um mig einsog aðra.
Kveðja, Ögmundur
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












