Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

17. Júlí 2008

ERU ENGIN VIĐURLÖG VIĐ ŢVÍ AĐ EYĐILEGGJA EFNAHAGSKERFI ŢJÓĐAR?

Það sést lítið af þeim í kastljósum sjónvarpsstöðvanna núna drengjunum sem voru að ráðleggja almenningi hvaða hlutbréf hann ætti að kaupa til að verða ríkur. Þeir virðast líka forðast kastljós fjölmiðlanna bankastjórarnir sem með vanþekkingu sinni og kúltúrleysi bera ábyrgð á því að útrásin sem svo er nefnd fór í vaskinn. Nú tala þeir ekki um samfélagslega ábyrgð sína þegar heilt samfélag, heilt efnahagskerfi þjóðar, er á heljarþröm af því þeir stóðu sig ekki í stykkinu. Þeir halda sig heima og láta lítið fara fyrir sér í rándýru húsunum sem þeir keyptu og endurbyggðu á besta stað í bænum. Ábyrgð þeirra felst í að senda fram á völlinn hagfræðinga sem telja almenningi trú um að nú sé brýnast að taka fimm hundruð milljarða lán. Stjórnmálamennina sannfærðu þeir á einni nóttu í marz.  Svona horfir þetta við mér Ögmundur. Eftir einkavæðingu bankanna komust til valda í peningakerfinu menn sem höfðu takmarkaða þekkingu á alþjóðlegum bankaviðskiptum. Þeir áttu innhlaup hjá okurlánurum heimsins og slógu þar lán til hægri og vinstri. Sameiginlega lögðu þeir til atlögu við fasteignamarkaðinn sem mistókst og þýddi að bankarnir gátu til allrar hamingju ekki hneppt nema eina kynslóð í fasteignaviðskipti við sig til fimmtíu ára. Einn angi séríslensku bankakreppunnar er að bankana vantar viðskiptavini til að standa undir óhagsstæðum lánum sem útrásarsnillingarnir töldu óhætt að taka. Og nú vilja þeir aðgerðir af hálfu Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Traustið sem þessir flokkar njóta á alþjóðlegum fjármálamörkuðum í kompaníi við bankana íslensku er slíkt að þrátt fyrir óskiljanlega lagaheimild Alþingis þá getur þessi hópur ekki fengið lán við viðráðanlegum vöxtum. Það er ekki „alþjóðleg lánsfjárkreppa" sem veldur. Af hverju skyldi smáríki þar sem allt er í dúndrandi sveiflu, þegnarnir ánægðir, þar sem bjart er framundan og þar sem tækifærin blasa við í orkuhungruðum heimi, já, af hverju skyldu þau ekki fá lán Geir og Ingibjörg, Sigurður og Smárason, Jón og allir hinir ólfarnir? Ætli gamla góða orðið lánstraust skýri þetta ekki.  Þessi valdaflokkur nýtur ekki lánstrausts í útlöndum. Er það ekki bara skiljanlegt? Fyrst settu hinir ábyrgu efnahagslífið í uppnám, síðan skríða bankarnir oní forsætisráðuneyti og fá tryggingu fyrir því að
Íbúðalánasjóður kaupi af þeim bréf og þegar fíkillinn þarf meira þá vilja menn risalán - ábyrgðarmaðurinn er Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn fyrir hönd barnanna okkar og barnabarna. Er enginn sem treystir sér til að mótmæla þessu vistarbandi Samfylkingarinnar? Sér enginn að bankastjórarnir eru ekki í neinu? Kynslóðin á svörtu og gráu reinsunum brást öllum öðrum en sjálfum sér. Það er afskaplega mikilvægt að þetta lið fái að kynnast því sem Sjálfstæðisflokkurinn trommar upp með á tyllidögum, frelsi og umfram allt ábyrgð einstaklinganna. Í hverju ætli ábyrgðin á því að eyðileggja efnahagskerfi þjóðar liggi? Ætli það séu engin viðurlög við því að eyðileggja efnahagskerfi heillar þjóðar og smeygja vistarbandi sautjándu aldarinnar um háls nokkurra kynslóða fram í tímann með fimm hundruð milljarða risaláni? Og fjölmiðlarnir þegja, enda eiga þeir alla fjölmiðlana, ríkisvaldið og bakmenn bankakerfisins.
Til hamingju með daginn,
Ólína


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta