Frá lesendum
3. Júlí 2008
VIRKJUM ÁRNA
VIRKJUM ÁRNA
Ég tek heils hugar undir með Bjarna sem skrifar þér hér á síðuna og vill að Árrni Mattt, fjármálaráðherra, verði settur á bónusgreiðslur, árangurstengd laun. Því meiri hagnaður fyrir ríkissjóð þeim mun meira í vasa Árna (les: lægri laun ríkisstarfsmanna og minni þjónusta, þeim mun meiri tekjuafgangur og þar með meira í árangursgreiðslur fyrir Árna) Ég er sannfærður um að með árangurstengingunni muni losna úr læðingi allt það mannvit sem býr innra með fjármálaráðherranum. Ástæðan er þessi: Ríkisreksturinn heldur atorkunni og hugvitinu í skefjum. Um hömlurnar verður að losa svo Árni fjármálaráðherra geti virkjað alla þá dínamík sem hann býr yfir. Þá getur hann farið með ríkissjóð þangað sem allt óhefta einkavædda útrásarfólkið fór með sparnað landsmanna. Til góðs fyrir okkur? Ég held reyndar ekki en þetta er tíðarandinn. Kjánar við stjórnvölinn. Bæði þeir sem eru einkavæddir og einnig hinir sem eru ríkisreknir. En bíddu, Ögmundur viljum við að farið verði með ríkissjóð þangað sem brilljantínbörnin fóru með lífeyrissjóðina? Sennilega ekki. Við skulum vera varfærin.Sennilega á ekki að virkja Árna. Þannig yrði skaðinn minnstur.
Haffi
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












