Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

27. Apríl 2008

PÖSSUM UPP Á MATVĆLAÖRYGGIĐ!

Sæll Ögmundur
Ég rakst á þína ágætu vefsíðu, og las pistil Skarphéðins Gunnarssonar og svar þitt til hans. Þú hefur góða vefsíðu Ögmundur og mun ég opna hana oftar.  Þú ættir að hafa fréttbréf til að senda manni, svona til að minna mann á!

Þú hefur 100% rétt fyrir þér Ögmundur, og það er erfitt að ímynda sér Íslendinga eins illa upplýsta og þessi Skarphéðinn er, um stöðu matvælaöryggis í heiminum. Og að reyna svo að blanda mataröryggi við pólitík með því að segja "Það má skilja á málflutningi ykkar VG og hluta Framsóknar " bla.bla.bla......  er ómerkilegt og heimskulegt.  Auðvitað á mataröryggi ekki að koma pólitík við frekar en bifreiðaslys, fótbrot eða annar mannlegur kvilli, já jafnvel persónuleg heimska fólks sem sannast hefur að fólk getur drepið sig á.  Nema jú, ef fólk ætlar sér að eitra fyrir sér og þjóð sinni eða að selja eitraðan mat og eitthvað stjórnmálafólk væri á svo lágu plani að það teldi það allt í lagi!  Þá væri auðvitað eðlilegt að heilbrigðir stjórnmálamenn, sérfræðingar ásamt öðrum samborgurum létu heyra til sín!

Þú mátt vita að konan mín er háskólagenginn hjúkrunarfræðingur, lyfjafræðingur og matvæla- og næringarfræðingur.  Ég persónulega hef unnið mikið í ýmsum útlöndum og hef því farið víða.  Einu sinni var ég á 5 stjörnu hóteli í "þriðjaheimslandi" og fékk þar heiftarlega matareitrun sem ég mun ekki gleyma.  Ég ræddi þetta við konu mína þegar heim kom og hún sagði mér hversu matareitrun getur verið hættuleg, lúmsk og slungin.

Ég fór á námskeið á meðan ég var erlendis viðvíkjandi matareitrun og sannfærði konu mína um að við færum saman á alþjóðanámskeið um matareitrun til að fá alþjóðaviðurkenningu og leyfi til að gefa fyrirlestra og kennslu um matareitrun og varnir gegn henni, sem við og gerðum. Síðan störfuðum við þetta saman í "aukavinnu" og byrjuðum í því landi sem ég fékk mína matareitrun, og lifir á ferðamannabransanum. 

Málið er Ögmundur, að rannsóknir og skýrslur sanna að hundruð þúsunda manns veikjast af matareitrun á ári hverju í iðnvæddu löndunum og hvað þá í "þriðja heiminum " þar sem lítið er um rannsóknir og upplýsingar. Það þarf ekki einusinni að gera annað en að slá inn "Food Safety" á "Google" til að fá tilheyrandi upplýsingar um mataröryggi, þá matareitrun um heim allan!

Ég eins og flestir Íslendingar borðaði hrá egg í gamla daga á Íslandinu góða og mér finnst steik og hamborgari, stundum hrár, ekki verri en öðrum, en það skal enginn efast um að skoðun mín á þeirri hegðun hefur gjörbreyst með aukinni þekkingu. Ég leyfi mér að taka fram að mér þykir íslenskt lambakjöt, saltkjöt, hrosskjöt og nær allur fiskur langbesta fæðan.   Það má vel vera að hættan sé minni á Íslandi en í útlöndum, en hún er næg til þess að fólk skal fara varlega og spila ekki happadrætti með heilsu sína gagnvart heilbrigði þess matar sem neytt er!  Það er enginn efi að íslenskur matur er mikið heilsusamari (jafnvel betri) en í útlöndum, en það er ekki að ástæðulausu, né fyrirhafnarlaust  því þar er að þakka langri sögu og arfleifð og duglegu þekkingarfólki!

Það skal hafa í huga að lönd eins og Bandaríkin og England hafa tapað hundruð billjónum dollara, vegna markaða sem hafa neitað að leyfa matvæla innflutning frá þeim. Svo ekki sé talað um svæða Asíu, Suður Ameríku og Afríku. Þetta er grafalvarlegt mál sem á að vera algjörlega óháð pólitík.  En ef Skarphéðinn hefur rétt fyrir sér að aðeins stjórnmálamenn VG og svo Guðni Framsóknarmaður vilji vernda, styrkja og þróa íslenska matvælaframleiðslu á Íslandi, þá matvæli landsmanna, nú þá er eins gott að þorri fólks fari að hlusta betur á Ögmund, VG og Guðna, og hver veit þá nema að þetta fólk hafi ekki rétt fyrir sér í fjölda öðrum þjóðmálum.

Að vernda matvæli þjóðarinnar, þýðir að koma í veg fyrir innflutning á varhugaverðri matarvöru frá útlöndum og menga allsekki neinn hlekk ferils íslenskar matvöruframleiðslu frá framleiðslu, þá frá landbúnaði og veiðum, til neyslu og útflutningi!   Þetta er ekki aðeins fjárhagslega nauðsynlegt fyrir þjóðina, þetta er lífsnauðsynlegt!  Þeir sem hafa verndað íslenskan landbúnað hingað til, hafa vitað upp á hár hvað þeir eru að gera!
Virðingarfyllst,
Helgi Geirsson

Þakka bréfið Helgi. Þú nefnir fréttabréf, það fá allir  - um það bil vikulega  - sem skrá sig á listann.
Kv.
Ögmundur

 


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta