Frá lesendum
4. Apríl 2008
INGIBJÖRG, GEIR OG NATÓ
Já, Ögmundur....
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur svo sannarlega oft skipt um lit, skoðun og hlaupið útundan sér trekk í trekk. Í gegnum síðustu ár hefur hún að mínu mati ekki orðið til að auka hróður Samfylkingarinnar nema síður sé. Ég vil taka svo djúpt í árinni að segja að upp á síðkastið hafi hún hreinlega orðið allri íslensku þjóðinni til skammar, ekki bara sínum eigin flokki! Ekki gleyma því að þetta er manneskja sem veitir þeim flokki forustu sem bauð sig fram í síðustu alþingiskosningum sem jafnaðar og félagshyggju flokkur, og þeir sem kusu flokkinn trúðu því. Hún hlýtur nú að hafa loks opnað augu þess fólks sem lét blekkjast þá, og mun vonandi sjá villu síns vegar í næstu alþingiskosningum!
Sunna Sara segir á síðunni þinni að Ingibjörg Sólrún hafi á sínum tíma mótmælt veru Íslands í NATO með þátttöku í Keflavíkurgöngu. Síðar barðist hún gegn inngöngu Íslands í EES og varð borgarstjóri Reykjavíkur af þeim orðstír, en hún hljóp þá útundan sér enn og sveik málstað Íslands í deilunni um EES; hljóp svo frá störfum sínum í borgarstjórn til að bola Össuri frá sem formanni Samfylkingarinnar, til að komast á þing, og nú er sem er. Ingibjörg hefur nú flogið með einkaþotu til Rúmeníu á NATO fund í fangi Geirs Haarde. Það er ekki hægt að kenna Geir um undirferli og siðleysi Ingibjargar, því hann hagar sér akkúrat samkvæmt sjálfum sér og sínum, svo hans áhangendur verða ekki fyrir neinum vonbrigðum með hann...Fólk gerir engar siðferðisköfur til Geirs...eins og Samfylkingarmannskapurinn hlýtur að gera gagnvart formanni sínum. Öðru neita ég að trúa!
Parið hefur setið NATÓ fundinn í Rúmeníu, við sama borð og Georg Bush sem er svo alræmdur og illa liðinn að honum er hvergi boðið á mannamót hvorki heimafyrir, né erlendis, nema kannski í Rúmeníu og þjóðfélögum af því tagi; þjóðfélögum sem eru vönkuð og ringluð, nýskriðin undan erlendum járnhæl og liggja nú á bæn um að komast undir forræði nýrra herra. Jafnvel samflokksmaður Bush sem er í framboði sem arftaki hans í Hvíta húsinu, vill ekki láta sjá sig með honum, eða kannast opinberlega við hann. Íslenska parið veit hins vegar ekkert eftirsóknarverðara en fá að sitja til borðs með Georg þessum Bush og lætur leigja undir sig einkaþotu til að verða ekki of sein í matinn. Það mega þau vita að íslenskri þjóð er ekki skemmt.
Erindi Bush og NATÓ til Rúmeníu er að umkringja og þrengja enn að Rússum með kjarnorkuhlöðnum eldflugum eins og fyrridaginn, sem aftur þvingar Rússa til að hervæðast á ný sér til varnar. Það endurnýjar kaldastríðið og gerir vonir mannkynsins um frið, að engu. Fólk má minnast þess að það var einmitt NATÓ sem á sínum tíma var kveikjan að Varsjábandalagi Austur-evrópuþjóðanna, og þá kaldastríðinu. Ætli Ingibjörg Sólrún sé búin að gleyma þeim kostnaðarsama hildarleik?
Það var víst ekki nóg að gera Íslendinga að samsærisþjóð Bandaríkjanna í innrás þeirra í Írak, með böðulshernámi þar, pyntingum og fjöldamorðum. Nú á að endurvekja NATÓ sem árásarsamkundu, ekki Varnarbandalagi Norðuratlandshafsþjóðanna eins og NATÓ var ætlað. Er þetta það sem utanríkisráðherra Íslands, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og forsætisráðherra Íslands, Geir Haarde ætla að vera hlutaðeigendur að, við sama borð og Georg Bush, óvinsælasti forseti í sögu Bandaríkjanna heima sem heiman. Ég spyr eins og Ögmundur Jónasson Alþingismaður: Að hverjum er þetta fólk að gera grín? Þykir því virkilega svívirðing við íslensku þjóðina, vera eitthvað grín? Eða er það að gera grín að sjálfu sér, en er svo þrælspilt að það sjái ekki villur síns vegar? Spyr sá sem ekki veit!
Það er ekki auðvelt fyrir okkur almenning að skilja framferði sem þetta af hálfu óbrenglaðra Íslendinga. Mér er ekki kunnugt um að neitt það hafi hent formann Samfylkingarinnar persónulega sem skýri eða afsaki þetta ótrúlega framferði. Undir hennar stjórn er Samfylkingin orðinn falskur og undirförull flokkur. Var þetta, sem flokkurinn aðefst nú, stuðningurinn við stríðsrekstur í Írak og Afganistan og skefjalaus undirgefni við erlenda hernaðar- og auðhyggju á kostnað íslensku þjóðarinnar - var allt þetta fyrirséð? Ef svo er þá býr þessi stjórnmálaflokkur yfir meira falsi og undirferli en ég hafði hugarflug til að ætla. Ég var í hópi þeirra sem hlustaði á formann flokksins Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, og veit um marga aðra sem vildu taka hana trúanlega. Getur verið að hún hafi alla tíð verið að bíða eftir tækifæri til að svíkja yfirlýstan málstað sinn og kjósendur sína! Glottandi Geir er eins og hann og hans fólk er og hefur verið. Honum til bóta, má með sanni segja að hann hefur ekkert breyst og notar Ingibjörgu óspart, allt frá því að þau kysstust á Þingvöllum!
Kveðja,
Úlfur

11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...