Frá lesendum
1. Nóvember 2007
EVRUSAMNINGAR?
Sæll Ögmundur.
Mér sýnist þú vera alltof neikvæður gagnvart þeirri hugmynd að semja um kaup og kjör í evrum, sbr. ummæli þín í Fréttablaðinu í dag, fimmtudag. Svo kann að vera að það henti ýmsum fyrirtækjum og starfsfólkinu ekki síður einmitt prýðilega að fá kaupið greitt í evrum. Þar er ég að tala um fyrirtæki sem eru með sína starfsemi að uppistöðu til í útlandinu og starfsfólkið þar með annan fótinn. Yfirleitt er ég þér sammála um flest en hef efasemdir um afstöðu þína í þessu máli.
Grímur
Sæll Grímur og þakka þér bréfið.
Ég hef nú ekki gerst mjög alhæfingarsamur í þessu máli. Ég hvet þig til að lesa grein sem ég ritaði í 24 Stundir í gær og er að finna hér á heimasíðunni einnig. Þar er ég fyrst og fremst að gagnrýna þröngt sjónarhorn evru-umræðunnar. Við erum með krónu sem okkar gjaldmiðil og meðan svo er skulum við umgangast hana sem gjaldmiðil þjóðarinnar sem ber að vernda sem kostur er fyrir óþarfa áföllum sem meðal annars geta hlotist af gáleysislegu og mótsagnakenndu gaspri eins og við heyrum úr Stjórnarráðinu alltof oft.
Grein mín er HÉR.
Kv. Ögmundur
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












