Frá lesendum
14. Júní 2007
JÓNAS UM ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐINN
Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri með meiru, skrifar ágætan pistil á heimasíðu sína um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Mér sýnist það vera í þeim anda sem oft hefur sést á þessari síðu um þá stofnun. Ég tek undir með Haffa að það er með ólíkindum hve gagnrýnislausir íslenskir fjölmiðlar eru um "ráðgjöf" Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Síða JK er á slóðinni www.jonas.is . Pistil hans ætla ég að leyfa mér að birta hér: "
Óskammfeilinn sjóður
Það er óskammfeilni af Alþjóðlega gjaldeyrissjóðnum að senda menn um lönd til að hafa álit á efnahagsmálum. Fáar stofnanir í heiminum hafa orðið að eins miklu aðhlátursefni og þessi banki. Hann tók þátt í að rústa efnahag Rússlands á tíma Jeltsíns. Með því að troða úreltum kreddum frá háskólanum í Chicago upp á ríkið. Sjóðurinn hefur haft slæm áhrif víðs vegar um þriðja heiminn. Einkum hefur hann valdið almenningi hörmungum. Með kröfu um erlent vinnuafl og lægra kaup, andúð á samtökum launþega og hatri á velferð. Bezt hefur gengið þeim ríkjum, sem minnst mark hafa tekið á sjóðnum."
NN
Frá lesendum
16. Maí 2013
BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN
Þór Gunnlaugsson
16. Maí 2013
FRJÁLST FLÆÐI
Óskar K Guðmundsson fisksali
12. Maí 2013
ÝMIS SPJÓT
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
6. Maí 2013
GENGUR VONUM FRAMAR AÐ...
Sunna Sara
5. Maí 2013
NAUÐSYNLEGT AÐ RÆÐA OPNUM HUGA
H.P.
4. Maí 2013
Á AFTUR AÐ STELA ÍSLANDI?
Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara
4. Maí 2013
ATHYGLISVERÐ MÁLSTOFA
Guðjón Jensson
4. Maí 2013
ÞAKKIR
Ísak Pétur Lárusson
2. Maí 2013
STÖÐVAÐU GRISJUN Í ÖSKJUHLÍÐ!
Konráð Bragason
2. Maí 2013
NÚ SKRÍÐA BRASKARA-ÖFLIN FRAM
Guðjón Jensson, Mosfellsbæ












