Frá lesendum
27. Mars 2007
VIRÐUM STARFSHEIÐURINN
Gott þið viljið virkja! Ég hef þá misskilið ykkur fram til þessa dags en ef VG vill virkja er allt í fína lagi! Varðandi áhættumat þá vil ég segja þetta. Ég er sjálfur verkfræðingur og þekki talsvert til við hönnunarferli. Það er einhver mikill misskilningur á ferðinni eða eitthvað annað. Áhættumat heitir á ensku Risk Assessment og er notað til að meta áhættu af notkun þeirrar vöru sem hönnuð er t.d. vélum af ýmsum gerðum, rafföngum og einnig mannvirkjum á borð við stíflur. Það er oft hluti af hönnunarvinnu að gera áhættumat og þá ber hönnuðinum sjálfum að meta áhættuna, gera matið. Það er óþarfi af stjórnmálamönnum að láta svo líta út sem eitthvað gruggugt sé við það, það er það ekki. Það er nefnilega alltaf svo að hönnuðir bera ábyrgð á eigin verkum og gleymum ekki heldur því að það er svo margt gert þegar hannað er sem utanaðkomandi gætu alveg eins "rifið í sig" ef þeir fá þær hugdettur. Nefni: stilla upp hönnunarforsendum, frumhönnun, rýni hönnunar, sannprófun hönnunar, fullgilding hönnunar og þetta er endurtekið mörgum sinnum til að fá góða niðurstöðu. Verkfræðingar bera ábyrgð á sínum verkum þegar allt kemur til alls. Þeirra verk eru vissulega pappírsins virði og áhættumat er eðlilegur hluti hönnunarferlis. Ég get skilið að sumir séu á móti virkjunum en best að hafa þær forsendur í heiðri en ráðast ekki að starfsheiðri manna. Ég þekki til nokkurra sem í hlut áttu síðasta sumar vegna árasa ÁI og það kom þeim mjög svo í opna skjöldu hvað var sett í gang af hennar hálfu. Tek fram að sjálfur er ég ekki neitt viðloðandi virkjunarhönnun - starfa m.a. við að kenna gæðastjórnun og þar eru hönnunarferli viðamikill þáttur.
Kær kveðja,
Sveinn V. Ólafsson
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












