Frá lesendum
20. Mars 2007
FJÖLSKYLDUPÓLITÍK AÐ HÆTTI FRAMSÓKNAR: BJÓR Í VERSLANIR
Sælir Ögmundur.
Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi, er þekktastur fyrir að hafa verið stoð, stytta og helsti ráðgjafi Halldórs Ásgrímssonar allt þar til hann þreyttist svo að hann kaus að yfirgefa land. Borgarfulltrúinn er líka þekktur fyrir áhuga sinn á vexti og viðgangi fjölskyldunnar. Hann er til dæmis formaður nefndar sem skipuð var samkvæmt ráðleggingum hans sjálfs og ber heitið Nefnd um stöðu íslensku fjölskyldunnar. Undir því flaggi heldur framsóknarmaðurinn ræður um það sem fjölskyldum er fyrir bestu og þess utan hefur hann í orði haldið hagmunum fjölskyldunnar mjög á lofti í borgarstjórn. Því er þetta rifjað upp að fjölskyldusinninn og framsóknarmaðurinn Björn Ingi Hrafnsson virðist mikill áhugamaður um aukið aðgengi að áfengi og léttvínum ef marka má pistil á heimasíðu hans. Spyrja má hvort framsóknarmaðurinn í gervi frjálshyggjumannsins ætlar að leggja til að léttvín verði selt í sjöppum og á benzínstöðvum eða hvort framsóknarmaðurinn bregður sér í forvarnafrakkann á fjölskyldunefndarfundunum sem hann stjórnar og leggur til í því samhengi að unglingum verði forðað frá vímuefnum. Nefndarmennirnir sem hann stjórnar og fjalla um framtíð íslensku fjölskyldunnar gætu haft gaman af því að heyra þennan fyrrverandi ráðgjafa forsætisráðherra fjalla um sölu áfengis og unglingadrykkju. Í nefninni um framtíð íslensku fjölskyldunnar eru Árni Sigfússon, Björk Vilhelmsdóttir, Björn B. Jónsson, Elín Thorarensen, Fanný Gunnarsdóttir, Guðný Eydal, Ingibjörg Pálmadóttir, séra Ólafur Jóhannsson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Stefán Snær Konráðsson, og séra Þorvaldur Karl Helgason.
Bestu kveðjur,
Þór
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












