Frá lesendum
11. Mars 2007
FJÖLDAHREYFING GEGN NEFSKATTI ÞORGERÐAR KATRÍNAR?
Ég saknaði þess að þú svaraðir ekki spurningu Ólínu hér á síðunni í gær. Hún spurði hvort þú myndir styðja samtök sem berðust gegn nefskatti Þorgerðar Katrínar, menntamálaráðherra, til að fjármagna hlutafélagið RÚV. Ólína segir í bréfi sem ég er hjartanlega sammála: "Myndir þú styðja samtök sem hefðu það að markmiði að láta reyna á nefskatt Þorgerðar fyrir dómstólum og berjast gegn nefskatti hennar þar til hann verður lagður niður. Við voru að velta því fyrir okkur nokkrar vinkonur hvort við ættum að hrinda af stað fjöldahreyfingu gegn nefskattinum. Fórum alveg á flug eftir því sem við veltum þessu meira fyrir okkur. Sjónvarpsstöð sem rekin er eins og ríkissjónvarpið á skilið að fá fjöldahreyfingu gegn nefskatti Þorgerðar á bakið. Hvað finnst þér? "
Sunna Sara
Þakka þér fyrir bréfið Sunna Sara. Ég er sammála því að nefskatturinn er fráleit innheimtuaðferð fyrir RÚV ohf. Ég ítreka það sem ég áður hef sagt að ég hef miklar efasemdir um lögþvingaðan skatt á hlutafélög, jafnvel þótt þau séu alfarið í ríkiseign. Ég mun ekki beita mér fyrir því að koma á laggirnar fjöldahreyfingunni sem Ólína talar fyrir. Ég hygg engu að síður að ég myndi taka undir málflutning hennar og styðja málstað hennar. Þetta hef ég áður sagt. Ég hef reyndar heyrt víða að slík hreyfing kunni að myndast. Fólk muni hafna þessari skattlagningu. Umhugsunarvert ef samtök yrðu mynduð gegn skattlagningu Sjálfstæðisflokksins, gegn nefskatti Þorgerðar Katrínar!
Hverju skyldi þesi frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum, svara þeirri kröfu að fallið verði frá þessum rangláta skatti, nefskatti Sjálfstæðisflokksins, nefskatti Þorgerðar Katrínar? Skyldu fjölmiðlar spyrja menntamálaráðherra? Skyldu fréttamenn RÚV ohf spyrja?
Kv.
Ögmundur
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












