Frá lesendum
27. Nóvember 2006
ENN UM BANKANA OG ÓJÖFNUÐINN
Sæll Ögmundur.
Ég vil byrja á að þakka þér fyrir þessa mjög svo góðu heimasíðu þína, hún er öðrum til eftirbreytni. En eitt er það sem hefur verið að trufla mig undangengnar vikur, það eru ummæli þín um bankana og þátt þeirra í vaxandi ójöfnuði hér á landi. Áður en ég geng að kjörborðinu nú á vori komanda verð ég að vita hvort þetta sé eitthvað sem þú og þínir flokksbræður-og-systur komið til með að beita ykkur fyrir þ.e. að koma bönkunum úr landi.Og ef svo er hvort fleiri fyrirtæki sem verður það á að greiða fólki há laun mega búast við hinu sama.
Með von um greið svör.
Sigurjón Njarðarson
Sæll Sigurjón og þakka þér fyrir bréfið. Ætli þeir séu margir sem eru meiri áhugamenn en ég að hafa í landinu öflugt og gott bankakerfi. Staðreyndin er sú að íslensku bankarnir eru mjög öflugir og bjóða upp á góða þjónustu. Ekki vil ég að við verðum af henni. Það er ekki þar með sagt að bankarnir - eða öllu heldur forsvarsmenn þeirra - eigi að geta sagt íslensku samfélagi fyrir verkum. Ég hef gert grein fyrir afstöðu minni í þessu máli í greinum og pistlum sem birst hafa í blöðum og einnig hér á síðunni. Ég leyfi mér að vísa þér t.d. á þessa grein HÉR.
Með bestu kveðju,
Ögmundur
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












