Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

21. September 2006

FORSTJÓRI ALCOA SVARAR ÚT Í HÖTT

Ögmundur, í viðtali við Morgunblaðið, miðvikudaginn 13/9 sl., var Alain Belda, aðalsforstjóri  ALCOA m.a. spurður um ástæðu þess að einungis stæði til að nota þurrhreinsibúnað í stað þurrhreinsi- og vothreinsibúnaðar. Hann bar fyrir sig niðurstöður Skipulagsstofnunar, sem nýlega birti álit um umhverfismat álversins. Þar kemur fram að báðir kostir væru fullnægjandi til að halda loftmengunneðan tilgreindra marka! Þessi hluti svars forstjórans er vel að merkja réttur. Skipulagsstofnun grundvallar sitt álit á þeirri mengunarviðmiðun, sem gildir innan Evrópusambandins. Þar nýtast ALCOA þeir einstöku kostir að fá tækifæri til að hleypa mun meira magni mengandi efna út í andrúmsloftið yfir Íslandi vegna "hreinleika loftsins", en ella væri ef á Íslandi væri mengandi iðnaður fyrir.

Þegar blaðamaður spurði forstjórann, af hverju fyrirtækið hefði ekki íhugað að setja upp vothreinsibúnað á við þann sem Norsk Hydro hugðist setja upp í Reyðarálbræðslunni sem til skoðunar var að þeir tækju þátt í á sínum tíma, svaraði hann : "Við teljum að þurrhreinsibúnaður komi að bestum notum miðað við það hvernig álverið hér verður rekið. Vothreinsibúnaður skapar önnur umhverfis-vandamál. Hvað gerir maður til dæmis við efnin sem safnast saman í honum? Við rekum mörg álver með þurrhreinsibúnaði og við teljum hann mæta þeim kröfum sem bæði við og ríkisstjórnin gerum, án þess að skapa önnur vandamál."

Þetta makalausa svar hlýtur að krefjast nánari greiningar. Við hvað á forstjórinn, þegar hann fullyrðir að "...þurrhreinsibúnaður komi að bestum notum miðað við það hvernig álverið verði rekið...." ? Væntanlega að þetta sé hagkvæmasta lausnin rekstrarlega fyrir ALCOA, þ.e. það sem ekki kemur fram er að fjárfesting í vothreinsibúnaði er sagður kosta 75-80 milljónir bandaríkjadala. Til viðbótar fellur síðan til árlegur rekstrarkostnaður. Miðhluti svarsins er hinsvegar algerlega út í hött : "Vothreinsibúnaður skapar önnur umhverfis-vandamál. Hvað gerir maður til dæmis við efnin sem safnast fyrir í honum?"

Svarið hlýtur að vera einfalt. Ef um mengandi efni er að ræða, er þeim einfaldlega  eytt á viðunandi hátt. En slíkt kostar að sjálfsögðu fjármuni, sem fyrirtæki á  borð við ALCOA leggja áherslu á að spara sér. Er enda nokkur ástæða til  annars fyrir ALCOA, sbr. síðasta hluta svarsins : "Við rekum mörg álver með  þurrhreinsibúnaði og við teljum hann mæta þeim kröfum sem bæði við og  ríkisstjórnin gerum, án þess að skapa önnur vandamál."

Þarna kemur ALCOA-forstjórinn að þeim kjarna málsins að ákvörðun um  "íþyngjandi aðgerðir" gagnvart álhringnum var á valdi ráðandi  stjórnmálaafla, þ.e. ríkisstjórnar Íslands. Það sem hjá öðrum þjóðum tekur nokkur ár, tók í tilfelli ALCOA nokkrar vikur, þ.e. samningar um að þeir "slægju til" og reistu álbræðslu á Íslandi. Fyritæki sem hefur ekki séð hentugt færi til slíks í 20 ár, hljóta að bjóðast "einstakir kostir", þegar að rokið er til ákvörðunar á nokkrum vikum. Ljóst var að ALCOA hafði aldrei áður hugleitt valkostinn Ísland fyrr. þeir litu á Ísland sem þróaða og vel stönduga Norðurlandaþjóð. Eftir skyndiferð aðstoðarforstjórans til Íslands, eftir dæmalaust símtal við Finn Ingólfsson, þar sem sá síðarnefndi upplýsti um "einstaka kosti sem í boði væru á Íslandi, varð stjórnendum ALCOA ljóst, að Ísland biði upp á einstaka og áður óþekkta möguleika. Tinandi ríkisstjórn, sem ekki vissi sitt rjúkandi ráð. Skammt var til alþingiskosninga og yfirvofandi hætta talin vera á að kjörfylgi framsóknarhluta stjórnarinnar hryndi í komandi kosningum ef eina ferðina enn sætu Austfirðingar uppi með svikin loforð um stórkostlega stóriðjuuppbyggingu. ALCOA var þar með í draumastöðu að ná fram samningi um raforkuverð, sem hvergi var mögulegt að næðist fram í sambærilegu landi. En einnig um mengunarkvóta, sem sakir "hreinleika Íslands"  var einstakur. Þannig hafa þeir heimild til losunar 4688 tonna/ári  af brennisteinsdíoxíði (SO2), í stað 243 tonna/ári, ef um vothreinsun  væri að ræða. Er nema vona að Tómas Sigurðsson, forstjóri væntanlegrar  álbræðslu og Alain Belda, aðalforstjóri tönnlist á því við öll möguleg  tækifæri að um "grænastu" og "vistvænastu" álbræðslu heims verði  að ræða! Sjötíu ára gömul aðferð Göbbels lifir greinilega enn góðu lífi.

Síðasti hluti svars aðalforstjóra ALCOA "... án þess að skapa önnur  vandamál ", er í himinhrópandi mótsögn við þær nöturlegu staðreyndir  sem við blasa og sífellt koma betur í ljós vegna framkvæmda við Kárahnjúka.   Á grundvelli óraunhæfrar draumaáætlunar Landsvirkjunar um framkvæmda-  hraða og kostnað vegna á þeim tíma fyrirhugaðra virkjanaframkvæmda,  var af hálfu Landsvirkjunar gerður raforkusölusamningur við ALCOA til 2 x 20 ára.

Þrátt fyrir síendurteknar yfirlýsingar Landsvirkjunar að framkvæmdin sé  nánast á kostnaðaráætlun, má ljóst vera að kostnaður við borframkvæmdir  og risastíflu hafa nú þegar farið langt fram úr áætlun um framkvæmdakostnað.  Borframkvæmdin hefur reynst mun umfangsmeiri en ráð var fyrir gert. Endurhönnun risastíflu og undirstöðu undir hana, auk vandamála sem tengjast sprungum, sem ekki var gert ráð fyrir, sem kallað hafa á viðamiklar “mótvægisaðgerðir”, þýða einfaldlega stóraukinn framkvæmdakostnað umfram það sem grundvöllur LSV að raforkusölusamningi  gerði ráð fyrir.

Kveðja, 
Sveinn


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta