Frá lesendum
14. Maí 2005
ŢIĐ KUNNIĐ ŢAĐ KOMMARNIR BEST, AĐ LJÚGA MARGFALT Í MÁLI OG MYNDUM
Mér var bent á ţađ áđan ađ ţú vćrir ađ birta myndir á heimasíđu ţinni sem ég tók núna á dögunum á árshátíđ Hrútavinafélagsins. Og hvílíkur spuni sem upp úr ţér gengur í kringum myndirnar mínar, undir fyrirsögninni: Heimsforystan fest á filmu. Og svo bítur ţú höfuđiđ af skömminni međ ţví ađ eigna ţćr allar blađasnápnum Steingrími Ólafssyni sem ekki ţekkir muninn á fallegum hrúti og fljúgandi snjótittlingi, eins og raunar allt of títt er um unga framsóknarmenn nú á dögum. Áđur en ég skrifa reikninginn á ţig upp á höfundarlaunin vegna myndanna vil ég greina frá ţví ágćta fólki sem prýđir myndirnar mínar og er á tali viđ forsćtisráđherra sem var heiđursgestur kvöldsins:
Mynd 1. Ţar rćđir Bogi Benediktsson á Brúsastöđum, og formađur Hrútavinafélagsins, viđ Halldór. Vinstra megin viđ ţá glittir svo í Grím Ólafsson bónda á Hruna og landskunnan hrútadómara. Ef svo horft er lengra inn eftir salnum, nánar tiltekiđ fyrir miđju myndar, má međ góđu móti greina í faxiđ á Guđna Ágústssyni en hann var veislustjóri á hátíđinni og fórst ţađ verk, eins viđ var ađ búast, sérlega vel úr hendi.
Mynd 2 (til vinstri á lygavefi ţínum). Ţar ţykist ţú sjá Frakklandsforseta og keisara Ţýzkalands og frú á tali viđ Halldór. Rétt er ađ lengst til vinstri á myndinni er séra Franz Sigurgeirsson prófastur á Míganda, fyrir myndinni miđri er Geirharđur Ţorsteinsson bóndi á Kreppu, ţá Katrín Pálsdóttir í Hálsakoti, sem var, ef ég man rétt, einu sinni fréttamađur á Sjónvarpinu, og svo vitanlega forsćtisráđherra (ţ.e. Halldór en ekki Katrín).
Mynd 3 (hćgra megin á vefnum). Ţar uppnefnir ţú Kristján Ólafsson bónda á Rauđamýri, og ritara Hrútavinafélagsins, og kallar hann Pútín. Milli Kristjáns og Halldórs má greina baksvipinn á Boga formanni ţar sem hann stendur í hrókasamrćđum viđ félaga sína.
Ţannig er nú sagan öll í kringum myndirnar mínar og vćnti ég ţess ţú birtir áđur langt um líđur leiđréttingar mínar og ţá allra helst međ myndunum sjálfum og stundir í ţađ sinniđ ekki neina kommúníska útúrsnúninga. Innheimtu á höfundarlaunum mun ég svo fela lögmanni Hrútavinafélagsins enda sýnist mér ţađ liggja beinast viđ ađ ţessu sinni.
Virđingarfyllst,
Ţórđur Bogi Bogason
Áhugaljósmyndari og virkur međlimur í Hrútavinafélagi Íslands.
Heill og sćll Ţórđur Bogi.
Enda ţótt ţú farir međ stađlausa stafi og skrif ţín séu ámćlisverđ, svo ekki sé fastar ađ orđi kveđiđ, lćt ég hér fylgja slóđ á ţá frétt sem ţú vísar til. Međ kveđju, Ögmundur
http://ogmundur.is/news.asp?id=658&news_ID=2188&type=one
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












