Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

4. Maí 2005

BÆÐI ÁGÆT, EN HVORUGT NÓGU GOTT!

Sæll Ögmundur !
Ég reyni að fylgjast með öllu sem ég sé um formannskjörið í Samfylkingunni. Margt vekur þar athygli mína og undrun. T.d. að engin skuli segja það sem mér finnst vera kjarni málsins, sem er að þau eru auðvitað bæði ágæt sem slík Ingibjörg og Össur en hvorugt þeirra er þó nógu gott. Gaman væri að heyra þitt álit.
Ég verð vör við það í kring um mig að margir hafa samúð með Össuri umfram Ingibjörgu.  Hann sé búinn að berjast með Samfylkinguna gegn um allar hennar þrengingar og hafi komið henni þangað sem hún er. Menn minnast þess einnig að engin vildi byrja við stýrið þegar Samfylkingin var stofnuð nema hann. Ingibjörg lét þá hvergi sjá sig og stundaði það reyndar á þeim tíma að sverja Samfylkinguna af  sér. Hún mun hafa sagt eitthvað á þá leið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 2002 að hún væri í Kvennalistanum, kynni af þeim sökum að hafa verið færð inn í Samfylkinguna, en í þann flokk hefði hún aldrei gengið. Ingibjörg mun einnig hafa lagt á það mikla áherslu þegar samið var síðast um samstarfið í Reykjavík að vera ekki fulltrúi Samfylkingarinnar þar heldur utan flokka og samnefnari sem myndi líma hlutina saman næstu fjögur árin. Allir muna svo hvernig þau loforð héldu. Þegar hún nú kemur og vill taka við finnst mörgum að hún ætli að njóta eldanna sem aðrir hafa kveikt eða borða brauðið sem aðrir hafa bakað, sbr. litlu gulu hænuna. Þetta er svona "nú get ég" aðferðin. Ingibjörg á vissulega glæstan feril að baki sem hluti af sögu Kvennalistans og sem borgarstjóri, en hún er ekki hafin yfir gagnrýni og ýmsir eiga um sárt að binda eftir samstarf við hana. Það gildir um okkur sem unnum með henni innan kvennalistans en framganga hennar sérstaklega í EES málinu olli okkur mörgum miklum sársauka. Einnig eru sárindi innan R listans eftir viðskilnað hennar þar er mér sagt þó ég þekki það ekki eins vel.
Og þá að Össuri. Hann gat sér frægðar í upphafi sem róttækur uppreisnarmaður og ritstjóri á málgagni kommanna, Þjóðviljanum, en svo var hann allt í einu orðinn forustumaður hjá Alþýðuflokknum eins og ekkert væri. Og er þetta ekki saga hans í hnotskurn. Hann er fjörugur og hefur seiglast, en það er eins og eitthvert alvöruleysi og galgopaháttur sé alltaf stutt undan. Fínustu jakkaföt og bindi í stað þverslaufu breyta þessu ekki.
Að lokum verð ég að segja að ég er orðin afar þreytt á þessu langdregna kosningatilstandi hjá Samfylkingunni og hvernig fjölmiðlar elta þetta og draga á langinn svona rétt eins og dauðastríð Páfa. Getur þetta fólk ekki bara kosið sér formann eins og aðrir án þess að öll þjóðin þurfi að vera undirlögð með fréttum af því vikum saman. Þetta hefur nú líka fengið á sig hálfgerðan sápuóperublæ á köflum þegar heilum bekkjum skólakrakka er smalað inn í stjórnmálaflokk bara vegna atkvæðanna. Ekki finnst mér gaman að sjá menn nota sér trúgirni og reynsluleysi barna með þeim hætti, en það eru sjálfsagt engin lög sem banna slíkt.
En mér finnst sem sagt mergurinn málsins vera sá að hvorugt þeirra er sérstaklega álitlegt sem formaður í Samfylkingunni. Sá flokkur verður engu nær því að endurnýjast hugmyndalega eða kynslóðalega, það verða engin tímamót og ekki einu sinni farið út fyrir sömu fjölskylduna í Vesturbænum hvernig sem fer.
J.G. fyrrv. Kvennalistakona

P.s. Mér tókst með erfiðismunum að fá mig tekna af skrám Samfylkingarinnar árið 2001eftir að hafa lent þar inn sem félagi í Kvennalistanum. Ég hef ekki gengið í neinn flokk síðan þó mér líki margt vel hjá ykkur. Þú ert skeleggur í kjaramálum og Kolbrún stendur sig mjög vel í jafnréttismálum, baráttu gegn vændi og mörgu fleiru og þó ég sé ekki sátt við allt myndi ég kjósa ykkur núna. En það sem ég ætlaði að nefna er að sonur minn, sem er í tónlistarnámi, hann fékk allt í einu sendan atkvæðaseðil í þessari formannskosningu hjá Samfylkingunni án þess að hafa hugmynd um hvers vegna. Hann heldur helst að einn bekkjarfélagi sinn hafi skráð hann eða jafnvel einn kennarinn sem er í Samfylkingunni. Ég hef velt því fyrir mér hvort þetta geti verið svo ósvífið að börn þeirra sem einu sinni hafa verið í skránni hjá þeim fái send bréf. En spurningin er hvað getur maður gert? Þegar verið er að tala um þörfina fyrir lög um stjórnmálaflokka þá velti ég því fyrir mér myndu þau taka á svona löguðu? Veist þú um það Ögmundur?

Heil og sæl og þakka þér fyrir bréfið. Þú kemur víða við. Það er nú varla að ég þori að tjá mig um þessa formannskosningu í Samfylkingunni. Ég gerði það um daginn og var ég umsvifalaust vændur um afskipti af innanflokksmálum í öðrum flokki en þeim sem ég er í. Ég gerði þó ekki annað en taka vel í hugmyndir Össurar um vinstri stjórn, nokkuð sem við í VG lögðum áherslu á fyrir síðustu kosningar. Við töluðum þá um að Velferðarstjórn  skyldi mynduð ef við fengjum ráðið. Nú talar Össur um Frjálslynda Velferðarstjórn. Ágætt. Síðan setti ég skoðanir formannsefnanna á pólitíska mælistiku og sagði að mín niðurstaða væri sú að Inibjörg Sólrún stæði lengra til hægri en Össur. Þetta er einfaldlega mitt mat.
þá er komið að þinni stóru spurningu, hvort þau séu ekki ágæt bæði tvö en hvorugt nógu gott. Ég held að þetta sé röng nálgun hjá þér. Þau kunna vissulega að vera ágæt, sá hluti staðhæfingarinnar gæti verið réttur og er það án efa. Hins vegar er það Samfylkingin sem er ekki nógu góður stjórnmálaflokkur. Alla vega gæti ég ekki hugsað mér að eiga heima  í Samfylkingunni, þótt ég eigi þar marga ágæta vini.
Varðandi nauðungarflutningana inn  í Samfylkinguna, þá hef ég einnig frétt af þessu. Mér segir hugur um að sögum af þessu tagi eigi eftir að fara fjölgandi.
Kv.
Ögmundur

       


Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta