Frá lesendum
10. Nóvember 2004
1000 kall á ári og samráđsárin ljúfu
Sćll Ögmundur.
Undarleg tilveran. Ţórólfur tilkynnir um ađ hann hćtti mestan part vegna krafna fulltrúa VG ef marka má fréttir og eftir sitjum viđ hugsi. Um hvađ snýst ţetta samráđsmál eiginlega? Ţórólf Árnason? Snýst ţetta ekki um víđtćkt verđsamráđ olíufélaganna? Hverfur ţađ međ brotthvarfi Ţórólfs? Ég er ekki alveg viss. Ţegar ég kaup benzín á bíltíkina mína skiptir engu máli hvort ég kaup inn hjá Esso, Skeljungi, eđa Olís. Ég get dćlt sjálf á hjá Orkunni eđa Atlantsolíu og ţađ er alveg sama. Stađan í heimilisbókhaldinu breytist ekkert alveg sama hvađ ég eltist viđ lćgsta benzínlítraverđiđ. Bíllinn minn eyđir 9 lítrum á hverja 100 ekna kílómetra. Ég keyri 10 ţúsund kílómetra á ári og nota til ţess 900 lítra af eldsneyti. Ég hef dćlt á bílinn sjálf í ár og fylgst međ verđlagningu benzíns hjá systrunum ţremur. Munurinn hefur veriđ um ţađ bil ein króna á hvern lítra. Mér til mikillar skelfingar uppgötvađi ég ađ ţessi eltingaleikur minn viđ ódýrt benzín hefur kannske skilađ mér eitt ţúsund krónum á heilu ári. Athyglisvert. Ég get ekki stađiđ í ţví frekar en ađrar ađ setja vetrardekkin undir sjálf heldur fer ég á dekkjaverkstćđi. Akstursbókin mín segir mér ađ ég hafi í síđustu viku greitt 1500 krónum meira fyrir ţjónustuna ţar en ég gerđi í fyrra. Úff, ţar fór öll fyrirhöfnin í benzínstríđi mínu og gott betur. Til umhugsunar. Ég fór ađ reyna ađ ná áttum í olíufélagsmálunum. Ţau eru enn ađ reka saman hin og ţessi fyrirtćki og yfirvöld virđast ekki sjá neitt athugavert viđ ţađ. Yfirvöld já, hvernig stendur á ađ olíufélögin hafa getađ komiđ sér svona fyrir á 11 ára tímabili. Er hugsanlegt ađ Samkeppnisstofnun hafi orđiđ á í messunni, eđa viđskiptaráđherrum síđustu 11 ára? Er kannske einhver í Samkeppnisstofnun, eđa í viđskiptaráđuneytinu sem hefđi átt ađ segja af sér? Arnarhváll var vinnustađur Finns Ingólfssonar um nokkurra ára skeiđ. Hann varđ viđskiptaráđherra 1995 ef ég man rétt og sat hann ţessi ljúfu samráđsár í embćtti. Gćti veriđ eitthvađ samband milli afskiptaleysis Samkeppnisstofnunar eđa viđskiptaráđherra, hverjir áttu Essó á samráđstímanum og hverjir voru ţar innstu koppar í búri? Áttu fulltrúar VG í borginni kannske ađ beina ljóskastara sínum frá Ţórólfi ađ ţeim stóru strákum? Ţađ var einhvern tíma fjallađ um kaup S-hópsins á Búnađarbankanum á síđunni ţinni Ögmundur međ ţessum orđum: “Góđ fréttamynd sýnir ekki bara ţá mynd af raunveruleikanum sem hiđ pólitíska vald heldur ađ okkur til einföldunar og ţćginda, fréttamyndin afruglar ţá tálsýn og fćrir okkur raunveruleikann sjálfan. Fréttamynd ársins er fjögurra dálka baksíđumynd eftir Ţorkel í sunnudagsblađi Morgunblađsins. Hún sýnir Ólaf Ólafsson, forstjóra Samskipa, og Finn Ingólfsson, forstjóra VÍS, renna frá Arnarhváli eftir ađ hafa fengiđ Búnađarbankann á kostakjörum. Ţeir eru gleiđbrosandi félagarnir, enda ástćđa til, og engu líkara en Ólafur Ólafsson sé ađ stinga á sig kvittun fyrir bankakaupin um leiđ og bílstjórinn ekur af stađ....Sigurbrosiđ á samskipsforstjóranum og varaformanni Framsóknarflokksins fyrrverandi ljá ţeim yfirlýsingum forsćtisráđherra ađ bankarnir hafi veriđ seldir á góđu verđi laukrétta meiningu. Ţetta er góđ sala fyrir kaupandann og kjarninn í raunveruleikanum sem ljósmyndaranum tekst ađ miđla okkur. Á broti úr sekúndu missa ţeir andlitiđ, Ólafur og Finnur, og viđ sjáum glitta í óneitanlega nokkuđ drýgindalega en um leiđ barnslega ánćgju ţeirra međ gjöfina.” Ţurfa ekki ţingmenn VG ađ grafa duglega í hauginn til ađ varpa ljósi á raunverulegar persónur og leikendur í stađ ţess ađ láta sér nćgja ađ reita arfann?
Ólína
Frá lesendum
3. Júní 2013
UM RÉTTINDI Í TRYGGINGA-KERFINU
Kjartan
27. Maí 2013
HVER HAFI VIT FYRIR HVERJUM?
Einar
25. Maí 2013
LUGU SIG TIL VALDA?
Jóel A.
25. Maí 2013
VILL EKKI VESALDDÓM Í STJÓRNAR-ANDSTÖĐU!
Það er átakanlegt að heyra ...
Haffi
16. Maí 2013
BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN
Þór Gunnlaugsson
16. Maí 2013
FRJÁLST FLĆĐI
Óskar K Guðmundsson fisksali
12. Maí 2013
ÝMIS SPJÓT
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
6. Maí 2013
GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...
Sunna Sara
5. Maí 2013
NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA
H.P.
4. Maí 2013
Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?
Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara












