Frá lesendum
24. Mars 2003
Verkalýðsbarátta í öndvegi
Sæll Ögmundur. Ég horfði nýlega á þáttinn Ísland í dag á stöð 2 og þar var meðal annars viðtal við Þóreyju Eddu sem er í framboði við VG í suðvestur kjördæmi. Þar gerði hún lítið úr þeim störfum sem verða til í álveri á Reyðarfirði þar sem þetta verði nánast eingöngu störf fyrir verkafólk, það væri nær að búa til störf fyrir menntað fólk. Ég hef hitt fleiri sem tóku eftir þessum orðum hjá henni. Því vil ég spyrja. Ert þú í flokki sem hugsar eingöngu um menntað fólk? Ef svo er hvenar breyttust þá viðhorf þín? Ég hef alltaf litið á þig sem talsmann verkalýðsinns og þykir það mjög miður ef þar er að verða breyting á.
Með kveðju, Sigurbjörn Halldórsson.
Heill og sæll Sigurbjörn og þakka þér fyrir bréfið. Því miður sá ég ekki þennan þátt en hitt held ég að ég geti fullyrt að Þórey Edda er ekki haldin því sem kalla má menntahroka nema síður sé. Hún kemur mér fyrir sjónir sem bæði víðsýn og geðþekk manneskja sem hefur mikið til málanna að leggja. Í málflutningi sínum hefur hún lagt áherslu á það stefnumið VG að byggja upp fjölskrúðugan þekkingariðnað í bland við aðra framleiðslu í stað þess að einskorða okkur við frumvinnslu í þágu Alcoa. Hafi ummæli hennar skilist á annan veg og þá þann sem þú nefnir þá skil ég þín viðbrögð mæta vel. Sjálfum finnst mér menntahroki bæði leiðinlegur og barnalegur en það vil ég ítreka að hann er ekki að finna hjá Þóreyju Eddu. Að mínu viti er ekki hægt að leggja að jöfnu menntun og skólagöngu. Langskólagenginn maður getur verið þröngsýnn og þannig í sjálfu sér ómenntaður. Einstaklingur með litla skólagöngu að baki getur hins vegar verið vel menntaður. Ekki svo að skilja að ég telji skólagöngu óæskilega. Það geri ég ekki. Reyndar þvert á móti. Ég er einfaldlega að leggja áherslu á afstöðu mína til menntunar; hvern skilning ég legg í þetta hugtak. Viðhorf mín nú eru hin sömu og þau hafa verið svo lengi sem ég man eftir mér og tók ég snemma ástfóstri við þessa vísu eftir Klettafjallaskáldið Stephan G. Stephanson:
Þitt er menntað afl og önd,
eigirðu fram að bjóða
hvassan skilning, haga hönd,
hjartað sanna og góða.
Mér finnst skipta máli að við búum við fjölbreytni í atvinnulífinu og ein ástæðan fyrir andstöðu VG gegn því að gera þungaiðnað að uppistöðu íslensks atvinnulífs (samkvæmt hugmyndum Framsóknarflokksins á hann að verða rúmur þriðjungur efnahagsstarfseminnar) er að hann leiðir til einhæfni. Ég lít svo á að öll störf í þjóðfélaginu séu mikilvæg og öll krefjist þau færni og kunnáttu. Þess vegna ber að leggja ofuráherslu á stöðugt framboð menntunar fyrir öll störf. Ég er með öðrum orðum mjög hlynntur því að ýta undir menntun bæði til undirbúnings starfi og síðan í atvinnulífinu.
Þú spyrð hvort hugarfarsbreyting hafi átt sér stað hjá mér. Við höfum í gegnum tíðina rætt sitt af hverju þessu tengt Sigurbjörn og fullvissa ég þig um að engin hugarfarsbreyting hefur orðið hjá mér í þessum efnum. Ég er t.d mjög andvígur launamun vegna menntunar; hef viljað skoða skuldabyrði vegna námslána og taka tillit til hennar en að öðru leyti sé ég ekki réttlætingu fyrir launamun á grundvelli menntunar. Þú spyrð hvort VG sé ekki flokkur verkalýðsins. Ég tel okkur merkisbera verkalýðsbaráttunnar í stjórnmálum og að innan okkar raða rúmist allt launafólk. Í stefnumótun okkar leggjum við sérstaka áherslu á að jafna kjörin í landinu.
Með kveðju, Ögmundur

3. Júní 2013
UM RÉTTINDI Í TRYGGINGA-KERFINU
Að því þú virðist vera einn af bestu þingmönnum og lætur þig allt mannlegt varða að þá langar mig að spurja að einu. Allir Íslendingar sem hafa haft búsetu lengur en 6 mánuði á Íslandi eiga að vera inni í þessu svokallaða velferðarkerfi. Eru einhverjar undantekningar á því? Má undanskilja aðila undan þessu velferðarkerfi, vegna t.d. skilnaðarmála foreldra. Ég spyr vegna þess að við erum í þessari stöðu og best bara að setja hér inn link á blogg-ið mitt, þar sem þetta kemur ...
Kjartan
Kjartan
27. Maí 2013
HVER HAFI VIT FYRIR HVERJUM?
Það vill enginn láta hafa vit fyrir sér. Fyrir utan það að það er tæknilega ómögulegt...
Einar
Einar
25. Maí 2013
LUGU SIG TIL VALDA?
Eftir að stjórnarsáttmálinn leit dagsins ljós vöknuðu strax grunsemdir um að núverandi ríkisstjórn hefði logið sig til valda. Stjórnarflokkarnir eru að setja á fót nefndir sem eiga að kanna hvort raunhæft sé að framkvæma allt það sem lofað var fyrir kosningarnar eins og að lækka höfuðstól lána um 20%! Ef ekki kemur ...
Jóel A.
Jóel A.
25. Maí 2013
VILL EKKI VESALDDÓM Í STJÓRNAR-ANDSTÖÐU!
Óttalegan vesaldóm er að finna í málflutningi nýrrar stjórnarandstöðu. Það er eins og enginn ætli að þora að taka á þessu forréttindaliði sem búið er að koma fyrir að nýju uppi á valdastólunum. Og þegar eru þau farin að boða misréttisstefnu. Allir gömlu hrunverjarnir mættu á flokkskontórana til að samþ ykkja og fagna nýjum stjórnarsáttmála.
Það er átakanlegt að heyra ...
Haffi
Það er átakanlegt að heyra ...
Haffi
16. Maí 2013
BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN
... Teresa May innanríkisráðherra Breta hefur staðið í ströngu að koma dæmdum brottvísuðum öfgaklerki frá Bretlandi en hefur þó þar ríkisfang þar sem hann sé álíka hættulegur og Bin Laden. Þá bregðast dómarar við og dæma honum í vil slag í slag á öllum dómstigum að honum verði misþyrmt jafnvel þótt hann byggi í tjaldi á Gobi eyðimörkinni. Þetta hefur nú þegar kostað þá í málaferli yfir 600 milljónir punda fyrir utan að halda uppi fjölskyldu hans í luxusvillu í Mayfair hverfinu og ríflegum vasapeningum á meðan allt er skorið við nögl hjá heimamönnum. Frúin hefur gefið það út að ætli hæstiréttur landsins að ...
Þór Gunnlaugsson
Þór Gunnlaugsson
16. Maí 2013
FRJÁLST FLÆÐI
...Örlítil hugvekja að allfögrum sunnudagsmorgni. Heyrði fyrir ekki all löngu að nú væri að opnast fyrir hið endanlega frjálsa flæði sem ekki hefur svo lítið verið dásamað í umæðu ESB unnenda. Bretar sem eru svo lánsamir að vera bara svona B- gaurar í ESB og hafa hafnað Schengen og Evru hafa gefið það sterkt út að þeir muni ekki flykkjast á Heathrow til að taka á móti þykkum hópum frá Búgaríu eða ég nefni nú ekkI Rúmenum sem einhverra hluta vegna virðist ekki meðal þeirra hjartfólgnustu heimsækjenda hins vestræna heims. Ekki mun okkar ...
Óskar K Guðmundsson fisksali
Óskar K Guðmundsson fisksali
12. Maí 2013
ÝMIS SPJÓT
Jæja minn kæri nú er að standa sig sem aldrei fyrr, ýmis spjót eru aðstandandi en niðurstaða þeirra mála sem hæst bera þarf að vera í samræmi við þarfir okkar í samfélaginu.
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali
6. Maí 2013
GENGUR VONUM FRAMAR AÐ...
Okkur er sagt að vel gangi í viðræðum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknaflokksins um myndun ríkisstjórnar. Fundarstaðurinn var leynilegur. Það er táknrænt. En fjölmiðlar fundu út að fundað var í sumarbústað pabba annars þeirra Bjarna eða Sigmundar Davíðs við Þingvallavatn. Kannski líka táknrænt. Þeir standa einir í viðræðunum með ritara með sér. Táknrænt. Þetta er allt að...
Sunna Sara
Sunna Sara
5. Maí 2013
NAUÐSYNLEGT AÐ RÆÐA OPNUM HUGA
Sæll Ögmundur og þakka vangaveltur þínar um úrslit kosninga. Ég sé ekki betur en þú bregðist við ákalli stuðningsmanna félagshyggjuflokka um að leiðtogarnir fari yfir stöðu mála og leiti skýringa á afhroðinu. Það er mikilvægt að það sé gert með opnum huga en ekki einvörðungu til að viðhalda því hugmyndakerfi sem kom mönnum í ógöngur til að byrja með. Ég vil þó bæta einu hráefni í uppskriftina sem ég tel vera uppistöðuna í þessu en þú virðist ekki sjá, e.t.v. vegna nálægðar þinnar við viðfangsefnið. Þar vísa ég til ...
H.P.
H.P.
4. Maí 2013
Á AFTUR AÐ STELA ÍSLANDI?
Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara
Póstlisti
Frjálsir pennar
3. Maí 2013
Helgi Guðmundsson skrifar: UM ORSÖK OG AFLEIÐINGU
...Las greiningu þína á kosningaúrslitunum á heimasíðunni, sem mér finnst um margt umhugsunarverð. Mörgu er ég sammála, enda þótt ég hafi ekki lagst í jafn djúpar pælingar og þú. Í öllu falli verður fróðlegt að sjá hverni SDG gengur að koma saman stjórn, og hvort hann velur að gera alvöru tilraun til vinstri. Mér fannst reyndar vanta hjá þér - og það skiptir miklu máli - að helmingur þjóðarinnar kaus ekki til hægri. Líklega meira en helmingur, því af gamalli reynslu veit ég að innan Framsóknar eru vinstri sinnuð öfl, sem í mörgum málum eru ...
25. Apríl 2013
EINAR ÁRNASON HAGFRÆÐINGUR: STÖÐVUM ÓSANNINDIN
Þannig jókst skattbyrði lægstu tekjuhópanna um 10 til 13,5% á þessum tíma en þáverandi stjórnvöld fullyrtu að þeir hefðu samt lækkað. Þessi aukna skattbyrði var vegna þess að skattleysismörk lækkuðu að raungildi þessi ár svo almenningur var að borga skatta af stærri hluta tekna sinna en áður... Sjálfstæðismennirnir sögðu ósatt allan tímann og Framsóknarmennirnir...
20. Apríl 2013
Einar Árnason skrifar: OPIÐ BRÉF TIL FORYSTU-MANNA FRAMSÓKNAR-FLOKKS OG SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKS: SVAR ÓSKAST
...Hrunflokkarnir núverandi, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, lofa miklu? Hvar er innihaldið? Hvar er útfærslan? Er þetta ekki sama og með loforð helmingaskiptaflokkanna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, um einkavæðingu ríkisbankanna í dreifða eignaraðild sem vitað er að aldrei stóð til , þó því hafi verið logið að íslenskum almenningi í fjölda ára þ.e. um Landsbanka og KB banka. Þeir slógu það sjálfum sér eins og segir í ævisögu séra Árna Þórarinssonar um sýslumanninn og Sigurð svinakarl sem nöppuðu fé og jörðum frá Guðmundi dúllara. Í þessari helmingaskiptingu milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks greiddu þeir á víxl með lánsfé frá hinum ríkisbankanum. Svik á víxl. Hvað skyldi forystumönnum...