Frá lesendum
27. September 2010
Ágæt og þörf var fyrirspurn Ólafar Nordal um greiningu á því hvers konar kröfur stæðu á bak við nauðungaruppboð frá hruni. Einkennilegur kansellítónn var hins vegar í svörum Dómsmálaráðherra. Margir mannmánuðir, mikið verk að kanna etc. Maður næstum heyrir röddina í Mr. Humphreys í Yes Minister. Það er ekkert verk mikilvægara en að reyna skilja stöðuna sem við erum í á Íslandi og alveg hægt að fiska einhverja atvinnulausa fræðimenn í slíka rannsókn, sem sennilega tæki nú ekki nema ca. mánuð fyrir tvo menn. Gylfi Magnússon var frægur fyrir það í fyrra að ætla láta athuga stöðu heimilana og vera búinn að því innan ...
Hreinn K
27. September 2010
Sammála þér Ögmundur. Þetta var fín ræða hjá Össuri. Mannréttindi og náttúruvernd ættu að vera okkar aðalsmerki á alþjóðavettvangi. Þarna skammaði Össur bæði Íran og Ísrael þannig að ekki verðum við sökuð um hlutdrægni.
Viggó Jörgensson
27. September 2010
...ég skora hér með á þig til þess að endurskoða ákvörðun vinnumálastofnunar varðandi atvinnuleyfi fyrir Jussanam da Silva með hliðsjón af sérstökum aðstæðum hjá henni. Það eru á Íslandi ekki fáeinar konur af erlendum uppruna í sömu stöðu og hún er í augnablikinu þannig að ákvörðun mannréttindaráðuneytis um mál Jussanam er fordæmisskapandi hvað varðar hagsmunum þess hóps....
Luciano Dutra, þýðandi IS-PT.
26. September 2010
Það gerist ekkert ef ekki fer fram almennt uppgjör í okkar samfélagi. Það getur ekki þessi ríkisstjórn gert það hefur sannað sig. Það verða að fara fram Alþingiskosningar sem fyrst, annars gerist ekkert. Þessi ríkisstjórn ætlaði að slá skjaldborg um heimilin en það hefur ekki verið gert. Það hefur verið slegið skjaldborg um fjármagnseigendur og fyrirtæki. Það getur ekki gengið endalaust að atvinnulausir, fátækir, öryrkjar og eldriborgarar taki á sig skerðingar meir.
Þórir Karl Jónasson
24. September 2010
Ég skrifaði þér tölvupóst þar sem ég hvatti þig til að koma í veg fyrir það níðingsverk sem virðist vera í uppsiglingu gegn Jussanam da Silva. Svo sá ég þig í ríkissjónvarpinu þar sem fjallað var um þetta mál. E.t.v. hefur viðtalið við þig verið klippt með óeðlilegum hætti, en þar sagðir þú ekkert um kjarna málsins, þ.e.a.s. hvað þú hyggist gera til að koma í veg fyrir aðfarir af þessu tagi. Það eru margir sem setja traust sitt á þig í mannréttindamálum sem nú heyra undir þig sem ...
Einar
22. September 2010
Til hamingju með embættið. Ég hef mikla trú á þér í þessu hlutverki og hef aldrei orðið ráðherraskiptum jafn fegin. Mig langar að vita hvort mannréttindaráðuneytið hefur beitt sér eitthvað í máli írönsku konunnar Sakine Ashtiani sem nú bíður þess að verða grýtt til bana. Ef ekki, hvaða áform eru þá uppi um það? Mig langar líka að heyra persónulegt álit þitt á þeirri stefnu sem virðist algeng hjá íslenskum ráðamönnum, að senda ríkisstjórnum sem verða uppvísar að mannréttindabrotum bréf en birta efni þeirra ekki opinberlega...
Eva Hauksdóttir
22. September 2010
Sæll Ögmundur, Ég hvet þig til þess að endurskoða mál Jussanam de Silva og veita henni landvistarleyfi, og jafnframt að sjá til þess að vinnubrögð Útlendingastofnunnar verði endurskoðuð.
Bkv.
Sveinbjörn Þórðarson
22. September 2010
Er nú ekki mál að linni. Eigum við Vestmanneyingar nú að borga meira fyrir að ferðast eftir þjóðvegi en aðrir landsmenn? Hvernig væri að taka peningana sem fara í ESB viðræður sem gagnast engum og verða felldar af þjóðinni?Við mótmælum þessum hækkunum ef af verður því reynslan er sú að það sem einu sinni hefur verið hækkað lækkar ekki. Við eigum ekki að gjalda fyrir eldgos og hönnunargalla .Við hérna í eyjum þekkum eldgos vel og höfum fengið okkar skerf af þeim. Hvernig væri að þið VG menn tækjuð ykkur tak ...
Inda Marý Friðþjóðfsdóttir
17. September 2010
Í ágætri grein í TMM segir Solla að fjórir hópar háskólamanna hefðu átt að vita betur fyrir hrun: lögfræðingar, viðskiptafræðingar, hagfræðingar og endurskoðendur. Það sem skýrsla þingmannanefndarinnar boðar varðandi Landsdóm er ekkert annað en endurkoma sérfræðingaveldisins sem kom okkar í þessa stöðu sem við nú erum í. Sérfræðingaveldið er lífseigt og í skýrslu þingmannanefndarinnar rekur hvert sig á annars horn. Annar hluti hennar fjallar um umbætur í anda lýðræðis. Hinn hlutinn er þvælan um Landsdóm sem tilraun til að koma lögfræðingunum til æðstu áhrifa og valda yfir hinum svo kallaða Landsdómi. Eða hvað? Þingmannanenfndin var undir ...
Kjartan Emil Sigurðsson
17. September 2010
...Á sama tíma er ungur borgarstóri í Reykjavík að taka á móti sendimanni Keisarans í Kína sem hingað er kominn í nafni frelsis, vináttu og hjálpsemis. Borgarstjórinn rétti sendimanninum bréf þar sem óskað er eftir að rithöfundur, sem situr inni vegna skoðanna sinna, samviskufangi, verði látinn laus. Bogarstjórinn virðist óhræddur virða mannréttindi framar undirlægju. Hvað gerðist? Sendiboði heimsveldisins hvarf á braut, eins og Fagin í Olíver Twist, án þess að kveðja gestgjafa sinn. Ég tek ofan fyrir borgarstjóranum, en er ekki kominn tími fyrir þjóðina að losna við þennan forseta?
Eyjólfur Akrafjall
16. September 2010
Eftir að hafa lesið kyngreiningu þingmannaskýrslunnar, áttar maður sig á því hversu mikilvægt er mótvægi Evrópuhverfra þingmanna sem mótvægi í tákngervingu valdsins. Það er greinilegt að margir þingmenn hafa ákveðið að bogna ekki, í fárviðrinu sem geysar í sápukúlunni, sem Alþingi er að verða. Einn þeirra er Össur Skarphéðinsson sem er dæmi um ókyngervðan, ójaðarsettan, óþaggaðan en þrátt fyrir allt óþjóðhverfan þingmann af gamla skólanum. Maður hugsar með sér, þegar maður hlustar á hann: "þetta er allt að koma".
Hreinn K.
12. September 2010
Undirritaður hlustaði á nokkuð yfirlætisfullar staðreyndarfærslur utanríkisráðherra nú fyrir skemmstu. Staðreyndarfærslur þessar tilheyra þeirri ógn og skelfingu sem yfir okkur kunna að hellast í líki hörmungar þeirrar er sambandsaðild Evrópu kallast. Í umfjöllun sinni vildi téður ráðherra gera lítið úr þeim áhyggjum manna sem ótta bera fyrir brjósti varðandi sjávarútvegsmálin..... Sem betur fer mun viðk. ráðherra ekki fara með þennan málaflokk fyrir hönd þjóðarinnar heldur maður sem sýnt hefur að þarna verði ekki kastað til höndum og vona ég að Jón muni fá staðfestingu á ummælum þessum hið fyrsta hjá fiskveiðistjórnun Evrópusambandsins. Mér finnst það hroðaleg handvömm að ætla að fleygja þjóðinni þarna inn bara til þess eins að fá evruna til að leysa krónuna af.
Óskar K Guðmundsson fisksali
11. September 2010
Það fer lítið fyrir þeirri umræðu í fjölmiðlum varðandi ESB að þeir hafa hækkað hressilega aðildargjöldin og um leið dregið úr endurgreiðslum. Bretar missa 3 milljarða punda sem þeir hafa fengið sl.ár vegna búvörustyrkja en nú telur ESB að jafnvægi hafi verið náð á innri markaði og því séu endurgreiðslur til þeirra lækkaðar og útgjöld Breta aukast sem þessu nemur. Það er nú ekki svo að ...
Þór Gunnlaugsson
9. September 2010
Ég legg til að þú beitir þér í stöðu þinni nú fyrir setningu laga um skipulagða glæpastarfsemi og þurfa þau að þekja alla glæpastarfsemi, jafnt skipulagðra glæpahópa sem og pólitískra hópa/flokka, sem meðal annars hafa með glæpum sínum og virðingarleysi við eðlilegt siðferði og lýðræði, velt íslensku efnahagslífi á hliðina og fært heilbrigðis-, mennta-, félags- og löggæslumál og reyndar allt mannlíf til jafns við rekstur í vanþróuðum ríkjum með fjársvelti í nafni sparnaðar. Nauðsyn er að fara vel með fé en landið er komið í flokk með vanþróuðum ríkjum af þessum sökum. Þá ber að benda á að ...
Þórður Eric
6. September 2010
Ögmundur, komdu með stuðning við frjálsar handfæra veiðar, þarna gætu orðið til þúsundir starfa, án þess að ríkið leggi til krónu, þetta gæti orðið næsta stóriðja. Það er búið að koma almenningi í sömu spor og á miðöldum, þú mátt ekki róa til fiskjar og fénýta aflann. Á meðan ræna örfáir útvaldir þjóðina lífsbjörginni með því að ryksuga fiskimiðin með verksmiðjuskipum, og skilja miðin eftir í rúst. Það eru 15.000 manneskjur atvinnulausar, þær mega ekki bjarga sér, þó til séu ...
aagnarsson
5. September 2010
Það er einkennilegt þegar menn af vinstri vængnum vilja absólút dæma íslenskan verkalýð til ævarandi þrældóms; 60 stunda vinnuviku og hárra vaxta. Láta svo LÍÚ reka sjávarútveginn þannig að gengisfellingar verði notaðar til að leiðrétta reksturinn þegar búið er að uppfæra bílaflota stjórnenda og húsakost á Íslandi og Florida. Svo hugsar maður til baka og man þá að sá til vinstri einkavæddi ræstinguna á spítölum borgarinnar eins og að drekka vatn. ...
Villi
5. September 2010
Erindi fagnaðar hefur nú nýverið verið boðað hvers innihald ber með sér staðfestingu á styrk Ögmundar og Jóns Bjarnasonar. Ég geld engu síður varhug við að hróflað verði við Jóni um næstkomandi áramót í aðdraganda stofnunar atvinnuvegaráðuneytis. Þá er viðbúið Ögmundur minn að þú þurfir að endurstílisera línuna sem forveri þinn úr samstarfsflokknum hafði lagt, en þá á ég við vegtolla og stapp við lífeyrissjóðina. Ég held aukinheldur í vonina um afturköllun aðildarumsóknarinnar sem og breyttan prófíl á undirlægjuhætti gagnvart AGS. Nú ríður á Ögmundur minn kæri að þú nýtir það bakland og þann styrk sem að baki því býr og mundu að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali
4. September 2010
Loksins, loksins ...er kominn ráðherra löggæzlumála, sem ekki er úr Sjálfstæðisflokki. Ég óska þér góðs gengis með þann málaflokk sem og aðra sem þú nú stjórnar. En gumar og mær Sjálfstæðis sitja víða við stjórn DMR og stofnana þess. Ætli matið á "hæfi" þeirra margra hafi ekki verið ákveðið með flokksgæðingaþukli pótintáta og þægðarstuðlum frekar en raunverulegu hæfi. Gangi þér líka vel að eiga við þann skrautlega hóp.
kveðja,
Ver
4. September 2010
Fyrst hægt er að greiða tugmilljóna biðlaun til fyrrverandi ráðherra og að varnarmálafulltrúi, eða hvað það hét, fær full laun í fjóra mánuði eftir að starfið er lagt niður,væri þá ekki bara sanngjarnt að þeir lífeyrisþegar sem hafa kr. 150 þúsund á mánuði eftir skatta, fái smáhækkun á þá forsmán....
Edda Ögmundsdóttir