Frá lesendum
31. Júlí 2010
Þú segir í pistli þínum um vatnið og atkvæðagreiðsluna hjá SÞ að auðhringurinn Bechtel hafi jafnvel viljað meina fólki að nýta sér rigningarvatn í Bólívíu og segist hafa fjallað um það hér á heimasíðu þinni. Legg til að þú látir slóðir fylgja. Ég leitaði og fann þessa:
http://ogmundur.is/annad/nr/3239/. Ég sé að á eyjunni (eftir ágæta umfjöllun þar) og víðar bloggar fólk um þessi skrif þín og setur í samband við meinta stjórnarandstöðu. Við sem höfum fylgst með þessari síðu og skrifum þínum annars staðar um þetta og tengd málefni í mörg ár ef ekki áratugi, hlæjum að slíku rugli. Það gera líka reyndar ...
Grímur
31. Júlí 2010
Hvernig stendur á því Ögmundur að þú spyrð svona einkennilegra spurninga á síðunni þinni - sem er væntanlega hugsuð almenningi til aflestrar. Hvað er einkennilegt við spurninguna þína - "Hvers vegna stóð Ísland ekki með mannréttindum" og er um hvers vegna Ísland sat hjá við afgreiðsu vatnsréttindanna hjá SÞ. Jú, þú hefur beinan aðgang að bæði mannréttindaráðherra (Jóhönnu held ég) og utanríkisráðherra (Össur) og getur spurt þau beint og krafist svars án málalenginga eða útúrsnúninga! Við alm. lesendur þínir höfum ekki þennan kost. Það væri reyndar fróðlegt að fá að vita ....
Ragnar Eiríksson
30. Júlí 2010
... Það er mjög einkennilegt að vilja ekki styðja tillögu Sameinuðu þjóðanna um að flokka réttinn til vatns sem mannréttindi. Heldur skipar ríkisstjórnin sér í flokk með hægri stjórnunum í Danmörku, Svíþjóð og Englandi sem vilja braska og gera drykkjarvatn að söluvöru. Sú afsökun sem gefin er út í fjölmiðlum er óskiljanleg. VG skuldar kjósendum sínum skýringu.
Pétur
29. Júlí 2010
...Þá finnst mér auglýsingar skemmtannaliðsins í Vestmannaeyjum ganga út fyrir allann þjófabálk. Sínu verst er sú auglýsingin þar sem þingmaðurinn öskrar djamm, inn í tjaldið hjá tveim drengjum. Annar virðist svag fyrir drykkjulátunum. Hinn er klæddur í skátabúning og virðist ekki hafa áhuga á drykkjulátunum. Þeir sem bera ábyrgð á auglýsingunni leyfa sér í þessari auglýsingu að gera grín að unglingnum sem ekki vill drekka áfengi og skemmta sér með drykkjulátum. Þetta er ótrúleg ósvífni. Ríkisfjölmiðillinn lætur ekki sitt eftir liggja varðandi ...
Kristbjörn Árnason
29. Júlí 2010
...Rétt að vekja athygli á þessari framsetningu nú þegar fámennt íslenskt samfélag gæti staðið frammi fyrir því að rakna upp með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Það er ekki bara að þetta sé grundvöllurinn sem gerir okkur fær um að takast á við sjálf okkur og heiminn, þetta er útgangspunktur þess sem vill reisa hér velferðarsamfélag, til dæmis norrænt. Það er freistandi að lesa grein Styrmis og skilja, sem hugmyndafræðilega endurskoðun eða byrjun á uppgjöri, sem ætti að leiða til tímabærs uppgjörs í flokkakerfinu, ekki ólíkt því sem verður að verða í siðferði atvinnulífsins. Eða hvað finnst þér Ögmundur?
Kveðja,
Ólína
29. Júlí 2010
..Mér fannst greinin þín GUÐLAST lýsa EES vitleysunni vel...Við ættum að losa okkur út úr EES samningnum og ALLS EKKI ganga í Evrópumiðstýringarofríkið og ALLS EKKI borga 1 eyri úr ríkissjóði fyrir Icesave-nauðungina. Icesave er skuld Björgólfs Thors og Landsbankans og kemur EU eða bresku og hollensku ríkisstjórnunum eða íslenska ríkissjóðinum ekki við. Og skömm að þeim Alþingismönnum sem hylma yfir og þagna. Og ekki síst öllum þeim sem kusu JÁ með Icesave. Voðalegt var að lesa skrif Péturs í færslu sem þú kallar EÐLISLÆG PERSÓNURÖSKUN? Veit maðurinn ekkert um ofríki EU? Veit hann ekkert um ólögmæti Icesave?
ElleE
28. Júlí 2010
Hlutabréf í Magma Energy á hlutabréfamarkaðnum í Toronto hafa hækkað í vikunni. Eftir blaðamannafund ríkisstjórnarinnar og loforðin um að "vinda ofan af einkavæðingunni", hækkuðu bréfin skarpt eða um 2%. Það er skoðun markaðarins á loforðum ...
Hreinn K
27. Júlí 2010
...Doði virðist hafa runnið á hjartlæga aðgerðarsinna. Það lítur út fyrir að menn sjái ekki fyrir sér að hægt sé að snúa við þeirri hörmung sem við blasir, afsal hluta æðakerfis úr skjaldarmerki þjóðarinnar. Hverjar eru nú varnirnar. Goð í suðri fallið. Ég hef nú reyndar ekki talið að heppilegt að íslenzkir rekstrarmenn ættu að koma þar að og því í góðu lagi að semja við erlenda rekstrarstjóra, en fulltrúar okkar í samninganefnd verða þó að vera með réttu ráði þegar slíkir samningar eru gerðir. Aukinheldur vil ég benda á að dagurinn í dag 27 júlí mun talinn sorgardagur í hugum þorra fólks hér á landi enda upphaf spyrðingaráætlanna við ESB hafið. Vonandi tekst ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali
27. Júlí 2010
...Ég bið þig að koma eftirfarandi á framfæri hér á síðunni gagnvart Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra: Loks er kominn fram sjávarútvegsráðherra sem þorir að framkvæma. Framganga ráðherrans í kvótamálunum er til mikils sóma og jafnvel þó aðeins sé nartað í litlu tánna enn sem komið er, þá finnur risinn til. Vona að JB fái vinnufrið og hafir orku og vilja til áframhaldsins.
Bestu kveðjur,
Egill
25. Júlí 2010
...Afstaða öfgahópsins innan VG er síður en svo til að standa vörð um hagsmuni fátæks fólks á Íslandi. Það fer lítið fyrir efnislegri umræðu hjá þessu fólki og andstaða þess við menn og málefni virðist fremur eiga rætur í eðlislægri persónuröskun og athyglissýki frekar en trú á að það sé að vinna fátækum gott. Ef félagshyggjufólk leyfir sér að gagnrýna þennan hóp er því svarað með orðum eins og "síðsovésk viðhorf". Er það efnisleg umræða? Þessi hópur hefur haldið ríkisstjórninni í gíslingu og haldið aftur af efnahagslegum úrbótum og þar með dregið verulega úr þjónustu við fátækt fólk. Ég nefni afstöðu þess til Icesave málsins, ESB, sem það ...
Pétur
24. Júlí 2010
...Fyrir ekki löngu, nánar tiltekið fyrir tíu dögum, velti ég því fyrir mér hvort félagsmálaráðherrann og Samfylkingin væri að klofna í hugsjónamenn og hagsmunamenn. Í síðari hópnum væru til dæmis menn sem vildu gera Yngva Örn Kristinsson að forstjóra Húsnæðisstofnunar, Runólf Ágústsson að umboðsmanni skuldara og fyrrum stjórnarmann í FME og Seðlabanka að nýjum viðskiptaráðherra. Þetta er nú byrjað að ganga upp. Umboðsmaður skuldara er fundinn. Hann fannst í ...
Jóna Guðrún
24. Júlí 2010
...Jón Þórisson bendir á að Magma braskarinn eigi að fá kaupverðið að mestu að láni hjá íslensku bönkunum í formi kúluláns með einungis 1,5% vöxtum. Verður það til þess að bæta hag þeirra? Til samanburðar hefur verið rætt um að við getum ekki vænst lægri vaxta en 5,5% vegna óreiðu Sjálfstæðisflokksins á liðnum árum við að koma í veg fyrir að Icesave vitleysan hefði komið okkur í þann bobba sem kunnungt er og er sú deila enn galopin og ekki verið tekin nein ákvörðun um það. Orkulindir landsmanna hafa verið ...
Guðjón Jensson Mosfellsbæ
24. Júlí 2010
Ég verð að játa það að athugasemd Hafsteins um Álfheiði er mjög áleitin, vægast sagt. Hitt sem ég vildi nefna er að mín upplifun er að komið er að vissum þáttaskilum í tilvist Vinstri Grænna. Ef Vg setur sig ekki eindregið á móti Magma málinu hefur pólitískur grundvöllur Vg brostið. Ályktanir duga ekki heldur verk. Magma málið sker línu í sandinn hverjir skilja og vilja vera Íslendingar fyrir Íslendinga.
Gunnar Skúli Ármannsson
24. Júlí 2010
Ljóst er að okkar nýi atvinnumálaráðherra verðandi, Jón Bjarnason, hefur enn einu sinni sýnt að hann stjórnast ekki af fyrirfram forritaðri hugmyndafræði og vangaveltum framlagðri af lénsherrum sem ekki kæra sig um uppskiptingu valdsins. Það var jú í uppleggi samstarfsflokksins að uppræta eða innkalla kvótann í áföngum, ef þessi ráðstöfun mála hjá Jóni sýnist mönnum birtast sem innköllun, þá hlýtur það að vera samstarfsflokknum þóknanlegt. Ég ætla svo bara rétt í lokin að vona að Jón sé ekki í útskiptihugmyndum flokksins til framtíðar, það teldi ég bera vott um að verri hagsmunum væri þjónað. Ég ítreka það síðan, að sá flokkur sem lýsir yfir afturköllun á aðildarumsókninni...
Kv. Óskar K Guðmundsson fisksali.
24. Júlí 2010
...Vinstri grænir gagnrýndu á sínum tíma að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skyldi, í ljósi stórskuldugs eiginmanns, taka þátt í umræðum bak við luktar dyr um efnahagsviðbrögð í kreppu og ...Getur verið að eiginkona lögmanns Lýsingar sitji alla fundi ríkisstjórnar þar sem menn leggja á ráðin í myntkörfumálinu, með og án Seðlabanka og Fjármálaeftirlits? Samfylkingarfugl hvíslaði þessu að mér og var mikið niðri fyrir þótt ekki fari ég útí það sem hún sagði um þetta að sinni...
Hafsteinn
23. Júlí 2010
...Allan þennan tíma hef ég talað fyrir þunnum eyrum á vettvangi atvinnulífsins er ég hef sagt frá þeirri skoðun minni að greiðslur launamanna í lífeyrissjóði væru hreinar skattagreiðslur, enda lögbundnar ...Það er enginn vafi á því, að það væri mikið hagkvæmara fyrir launamenn að í landinu væri einn lífeyrissjóður í vörslu t.d. tryggingastofnunar og allir landsmenn greiddu í hann með sínum tekjusköttum. Bara það, að ef ríkissjóður fengi tekjuskattstekjur af þessum 16% er það eitt og sér gríðarlega há upphæð og væntanlega myndu skattahækkanir vegna þessa fyrirkomulags vera mun lægri en greiðslur launamanna eru nú í þessa spillingarhýt.
Launamenn báðu ekki um lífeyrisjóðakerfi á 7. áratugnum, þeir kröfðust eftirlaunakerfis og það er ...
Kristbjörn Árnason
22. Júlí 2010
... Ykkar ... allra ... er sektin! Þannig verður "tæranníið" til í valdakerfinu ... þegar hinir opinberu á ríkis-verð-tryggðum launum og lífeyri í stíl ... aðhafast ekkert ... bara þegja þunnu hljóði eða mala svona pínulítið til okkar sem lepjum dauðann úr skel ykkar. Spurning 2, 3, 4, 5: Er nú ekki lag að reka af sér slyðruorðið Ögmundur? Eða passar það ekki opinberum starfsmanni að hræra of mikið upp í rjómaskálinni? Kallast það til vinstri í dag? Kannski grænt í myglu rjómans?
Pétur Örn Björnsson
22. Júlí 2010
...Björgólfur Thor hefur náð samningum um lendingu 1200 milljarða og ætlar að efna þá á næstu fimm árum. Þetta þýðir að á hverjum mánuði þarf hann að reiða fram kr 20 milljarða og hefur þá ekki verið tekið tillit til vaxtafærslna, en með varúðarfærslu eru þeir aldrei undir 2,25 prósent sem gera rúma 5 milljarða á ári. Björgólfur er stórhuga maður og hefur margoft sýnt það í viðskiptum sínum, eins og með actavis, play, ccp og nú síðast gagnaver verne holdings, allt eru þetta fyrirtæki sem eru með hvað hæsta framlegð hvert á sínum vetvangi. Hins vegar stingur það mann í augu þegar sú staðreynd er viðblasandi að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali
22. Júlí 2010
...Ég held því fram að öll þjóðin beri ábyrgð á gjaldþroti Íslands, bæði lýðræðislega ábyrgð og einnig þá ábyrgð sem fólst í því að njóta mikils kaupmáttar. Það er komið að skuldadögum ...Við féllum á fyrsta prófinu með því að neita að standa við skuldbindingar okkar í Icesave-málinu, en þar á forseti Íslands meiri sök en aðrir. Við verðskuldum víst svona forsetafígúru. ...Þó ríkisstjórnin hafi ekki komið mikilvægasta málinu í endurreisn Íslands í gegn, Icesave, hefur hún gert margar réttarbætur sem hefðu verið óhugsandi með Framsókn eða Sjálfstæðisflokki við stjórnarvölinn, eins og t.d. lögin sem heimila kyrrsetningu eigna. Ábyrgð öfgahópsins innan VG, sem ekki greinir á milli auka- og aðalatriða, verður því nokkur þegar hann fellir ríkisstjórnina...
Pétur
21. Júlí 2010
Matsfyrirtækið FITCH hefur áhyggjur af íslenska fjármálakerfinu, eða þeim sem eiga kröfur á hina föllnu banka eftir að hafa lánað þeim ótæpilega í nokkur ár. Ekkert undarlegt við þessa afstöðu, og ekkert undarlegt við ríkisútvarpið sem tók viðskiptaráðherrann tali vegna þessa. Yfirgangur ráðherra er slíkur, að sá sem ber ábyrgð á honum í ríkisstjórn, þarf alvarlega að fara að hugsa sinn gang. Í dag var viðskiptaráðherra spurður um FITCH drengina. Látum ráðherra tala um dómskerfið og FITCH: "Það kemur nú svo sem ekki á óvart að matsfyrirtækin skuli hafa áhyggjur af þeirri stöðu sem komin er upp. Auðvitað er þessi óvissa um það hvernig verður farið með öll þessi myntkörfulán á endanum mjög óþægileg." (Hádegifréttir RÚV 19.07 2010) Síðan er sagt frá því að ...
Ólína
21. Júlí 2010
Íslensku bankarnir grófu sér sína eigin gröf og margra viðskiptavina sinna og urðu gjaldþrota. Nýju bönkunum stjórna þó enn margir þeirra sem í þeim eldri sátu og flestir starfsmanna eru úr gömlu bönkunum. Þar ríkir því miður enn sami hrokinn og áður gagnvart þeim sem standa illa. Þar er veifað framan í menn keyptum upplýsingum frá skítafyrirtækjum eins og Lánstrausti og sagt...Hvernig væri nú að Lánstraust tæki saman afrekaskrá fyrir almenning um rekstur bankanna á síðustu árum og þar yrðu tíunduð nöfn stjórnenda og starfsmanna sem sátu í þeim fyrir þrot og eftir þrot? Hvers vegna ættum við að eiga viðskipti við þetta fólk? Ekki virðist það hafa ...
Jóhann G. Frímann
21. Júlí 2010
Ögmundur, hvenær ætlar restin að þinghópi VG sem varð fyrir SMS skilaboðunum og öðrum hótunum í aðdraganda ESB atkvæðagreiðslunnar að vakna og gangast við þeim? Er ekki komin tími til að talað sé tæpitungulaust um þessi mál og að menn hætti að meðhöndla þetta mál sem eitthvað tabú sem ekki má ræða opinskátt, er undirlægju hátturinn við Samfylkinguna svo mikill að þingmenn VG skríði í felur þegar þetta er rætt opinberlega og þegja þunnu hljóði í stað þess að gangast við málinu. Í stað þess koma ...
Rafn Gíslason
19. Júlí 2010
Það verður spennandi að fylgjast með hvort Steingrímur J Sigfússon, Jón Bjarnason, Katrín Jakobsdóttir og Álfheiður Ingadóttir skrá sig með þeim sem vilja halda orkuauðlindunum í eigu þjóðarinnar. Ég efast ekki um Svandísi Svavarsdóttur. Hún er búin að tjá sig. Spurning með Svavar. Ef til vill óþægilegt fyrir Breta og Hollendinga. En Össur "Eitt Kína" mun sjálfsagt vera upptekinn á ferðalögum við að útvega verkfræðistofunni Mannviti verkefni í Sómalíu. Fyrir Kínverjana sem eru að eigna sér auðlindir í Afríku.
Hreinn K.
19. Júlí 2010
...En það sem gleður mann mest og það sem mikilvægast er, er að hann gefur út frjálsar rækjuveiðar. Rækjukvóti hefur á undanförnum árum verið notaður sem skiptimynt fyrir aðrar tegundir, eða s.s. þorskígildi. Ég vil hér með nota þennan samskiptavef þinn Ögmundur sem er bæði vinsæll og mikið er vitnað í til að koma fram þakklæti til Jóns Bjarnasonar sem sýnir með úthlutun kvóta fyrir árið 2011 að vilji hans er mikill til að breyta núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi til sanngjarnari og betri háttar....
Ágúst
18. Júlí 2010
...Þessar spurningar vakna í kjölfar fréttar um að Björn Valur þingmaður VG teldi að ekki væru til peningar hjá ríkinu fyrir orkuveri. Er það virkilega svo að við eigum ekki aura fyrir undirstöðu atvinnuvegum okkar. Ég minnist ekki að blankheitum hafi verið borið við þegar mokað var fé í tryggingafélagið Sjóvá. Ef við höfum ekki efni á því sem við byggjum afkomu okkar á, hver er þá framtíðarsýn þingmannsins og annarra þingmanna VG? Varla Evrópusambandið eða hvað? Að lokum, er ekki...
Húsmóðir í austurbænum
16. Júlí 2010
Fyrir alllöngu síðan fannst mér að sökum ýmissa afleikja ríkisstjórnarinnar væri fokið í svokölluð flest skjól. Með ótrúlegum klókindum hefur stjórninni þó tekist að skríða inní nokkur slík kennd við skálka. Þar er þó ekki hægt að hírast lengi enda efniviður slíkra skjóla ótraustur sakir fúinna haldreipa. Aftansöngur ríkisstjórnarinnar er hafinn það er held ég flestum sem eitthvað eru læsir á stöðuna nokkuð ljóst. Þar sem mörgum þykir gott að hlusta á aftansöng, ber þeim þó saman um að hann megi ekki vera of langur. Þess vegna kalla ég eftir ábyrgum og öflugum aðilum til að hefja viðskilnaðarferlið. Ég ætlast til að þú Ögmundur verðir þar stafnvörður. Ég ætlast til að ...
Óskar K Guðmundsson fisksali.
16. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifaði: "Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig komið er. Ríkisstjórn sem ekki grípur inn í þennan feril á afgerandi hátt þannig að HS orka komist aftur í almannaeigu er ekki að gæta almannahagsmuna." Og ég er honum algerlega sammála. Stærsta vandamál okkar er að núverandi ...
ElleE
15. Júlí 2010
Ríkisútvarpið, sem þú verð langt út fyrir hið óendalega, kemur þrátt fyrir allt ennþá á óvart. Í morgun heyrði ég tvo snillinga setja á dagskrá hugaróra lagastúdents úr Háskólanum. Aflaði mér upplýsinga um manneskjuna í dag og mér er sagt að hún sé innundir hjá Samfylkingunni og tengist henni meira en margur annar. Snillingarnir, umsjónarmennirnir á Rás 2, ræddu við samfylkingarkonuna um yfirvofandi klofning í VG og kosningar í haust. Kostulegt var að fylgjast með útleggingunum og spurningafæð umsjónarmannanna. Engu var líkara en hér væri kominn grínari, sem ætti sér þann draum heitastan, að verða á landsvísu það sem leiðtogi Besta flokksins er í Reykjavík. Makalaus umfjöllun. Þetta er eins og mæta í útvarp allra landsmanna og segjast hafa heyrt að Samfylkingin sé að klofna. Annars vegar séu ...
Jóna Guðrún
14. Júlí 2010
..Þessi stjórn lafir á þeirri ógn einni að íhaldið taki við fari hún frá. Stuðningsmenn hennar hafa þverrandi trú á verkum hennar heldur byggir stuðningurinn á óttanum við sameiginlegan óvin. Ráðleysið í þessu gengistryggingarmáli er ekki úrslitamál heldur einn naglinn til viðbótar í kistuna. Þessi stjórn er ekki á vetur setjandi og trúlega veit hver einasti kjósandi það í hjarta sínu. Það sem meira er, þá tel ég að æ fleiri séu orðnir leiðir á að láta þennan óttaáróður stjórna bæði tilfinningalífi sínu og stjórnmálaskoðunum og hætta að ríghalda sér í stjórnfyrirkomulag sem ræður aðeins við það eina verkefni að...
Árni V.
14. Júlí 2010
...Ég er að vinna hjá Ístaki á Grænlandi. Hér hafa verið og verða á næstu árum miklar framkvæmdir sem við höfum tekið þátt í og verðum sennilega þátttakendur í framtíðinni. Þetta er eitt af því sem gerist þegar heimurinn minnkar og fólk fer að hreyfa sig í áttina þar sem vinnu er að fá. Mundu bara eitt. Mest fátækt er þar sem fólk hefur hreiðrað um sig og vill ekki vegna átthagafjötra ýmissa fara til að leita af gæfunni. Við sjáum dæmi um hið gagnstæða í USA. Evrópusambandið er öðrum þræði ætla til að hrista uppí vinnumarkaði sem vill helst vera staður og óhreyfanlegur. Það er ekki svarið fyrir komandi kynslóðir...
Ágúst Ingi
14. Júlí 2010
Hvað ef Magma Energy Sweden Aktie Bolag væri ekki skúffufyrirtæki? Er það eitthvað betra? Segðu okkur frekar hvernig við eigum að leysa málið í stað þess að benda á skúffur og skrifborð. Þessi Suðurnesja orkufyrirtæki voru að setja mörg bæjarfélög á hausinn. Hvað á að koma í staðinn? Ríkið má ekki eiga þau vegna EES. Innlendir fjárfestar virðast ekki hafa fé til þess eða eru svo græðgissjúkir að þeim er ekki treystandi. Svo er þessi frétt frá ...
Þorgeir Jónsson
14. Júlí 2010
Ég er fullkomlega sammála þér þegar þú segir að staða Magma á Íslandi sé byggð á skúffufyrirtæki og loddaraskap og að það eigi að stöðva kaup þess á HS Orku, og banna því starfsemi á Íslandi! Ég er sammála Svandísi Svavarsdóttur um að ólöglegur loddaraskapurinn nái langt inní ríkisstjórn Íslands! Ég er sammála Atla Gíslasyni að VG hafi brugðist skyldum sínum í ríkisstjórn gagnvart Magma! Ásamt á fjölda öðrum sviðum! Ég er sammála Björk Sigurgeirsdóttur að það eigi að banna eign og starfssemi Magma Energy á Íslandi þar sem það er byggt á svikum og farið sé á svig við íslensk lög! Ég virði viðleitni Margrétar Tryggvadóttur að vilja ...
Helgi
13. Júlí 2010
Alveg magnaðir sleggjudómar hjá þér Ögmundur,ef rétt er haft eftir þér að hálaunafólk skuli borga meira eða koma sér í burtu af eyjunni ÞINNI !! grænu. Ég og konan mín erum bæði með háskólagráðu, ég kláraði fyrir tveimur árum síðan, við erum skuldug uppfyrir haus af verðtryggðum námslánum og vorum ekki að græða á 2007 bólunni. Nú er ég að fara að borga af öllum þessum lánum sem ég tók á námsárunum til að mennta mig, en nei ríkið vill sitt og þú talar niður til okkar sem finnst nóg komið. Segir að ef við mótmælum getum við bara komið okkur burtu. Maður með milljón á mánuði borgar núna um ...
Guðfinnur
13. Júlí 2010
....Það hefur oft hvarlað að mér að stíga skrefið til fulls og flytja alfarið til Noregs, borga mína skatta og skyldur þar. En ég hef ekki gert það enn. Þau skilaboð sem ég vil beina til þín er að fara varlega í að hækka skatta á ungt hátekjufólk sem flokkast undir hátekjufólk vegna þess að það er mjög duglegt að vinna og færir miklar fórnir (fjöldskylda mín og nýfætt barn býr til að mynda á íslandi). Það er nógu erfitt fyrir ungt fólk að standa í skilum í dag með stökkbreytt lán hvort sem þau eru gengistryggð eða verðtryggð. Stjórnvöld hafa verið svolítið gjörn á að velta skuldabagganum á þennan þjóðfélagshóp...
Guðjón Örn
11. Júlí 2010
Það er einkennilegt að nú loksins eftir að í ljós kom hvernig saumaskap og frágangi á lausum endum var fyrir komið af hálfu iðnaðarráðherra að þá skuli loksins haldið á lofti að nú muni reyna á flokkssamþykktir um auðlindir í eigu þjóðar. Væri ekki eðlilegt að slíkt hefði verið gert í upphafi málsins. Menn vissu að um skúffuna góðu var um að ræða. Það þýðir lítið í mínum huga að öskra og veina og benda á iðnaðarráðherra, það má vera að hún hafi setið á svikráðum við þjóðina og kortlagt aðferðafræðina en ennþá lélegra þykir mér að málinu skuli samt sem áður vera veitt fullt brautargengi af hálfu VG og það þykir mér vera hroðaleg handvömm....
Óskar K Guðmundsson, fisksali
11. Júlí 2010
....Vildi bara benda þér á þetta ef að þú hefur ekki séð þetta. Vill spyrja þig líka hvort að þú getir lifað með sjálfum þér ef þetta fer í gegn og þinn flokkur er við völd?
Atli Steinn
11. Júlí 2010
Ögmundur, í pistlinum þínum: HVERS VEGNA EKKI FYRSTA FRÉTT, segirðu: "Að lokum: Er baráttan gegn Magma Energy Sweden vegna sviksemi fyrirtækisins einvörðungu? Nei, en sviksemin ein er nægilega ástæða til að rifta kaupunum. Hitt er morgunljóst í mínum huga að orkuauðlindir verða ekki nægilega tryggðar sem þjóðareign ef ráðstöfunarrétturinn er með þeim hætti sem nú er. Fráleitt er annað en að stærstu orkufyrirtækin verði í almannaeign. Hvers vegna í ósköpunum ættum við að gefa frá okkur mjólkurkýrnar? Þegar það er gert - og í ofanálag í hendur - loddara, þá verður mér spurn: Hvers vegna er þetta ekki fyrsta frétt?"
Ég vil taka undir hvert orð. Nú hefur komið fram í fréttum að ...
ElleE
9. Júlí 2010
Í janúar 2006 þegar gagnrýnir menn fóru að óttast um bankana, íslenska fjármálakerfið, héldu systurnar Viðskiptaráð og ríkisstjórnin því að mörlandanum að fjármálasnillingar riðu um héruð bæði hér og um víða veröld. Framtíðin var björt og Halldór Ásgrímsson, sem rannsóknarnefnd Alþingis talaði ekki við ef marka má viðmælendalista nefndarinnar, hélt ræðu .... Í þessu sambandi ályktaði bankaráð eins stórbankans ...að mörlandinn þyrfti að fara að tala ensku. Enska skyldi verða háskólamóðurmálið og öll bankaviðskiptin skyldu fara fram á ensku. Sumir menn, sparsamir, þorðu lengi vel ekki að fara í banka í Reykjavík af ótta við að þurfa að gera sig skiljanlega á ensku þegar þeir ætluðu að taka út þúsundkall. ...Kemur það ekki á óvart, að hinir miklu enskumenn skuli nú bera við vankunnáttu í ensku, þegar þeir reyna, hver um annan þveran, að koma sér undan yfirheyrslum ...
Ólína
9. Júlí 2010
Að koma AGS í almenna umræðu og hvað þá gagnrýna umræðu er hægara sagt en gjört. Blaðamenn landsins virðast ekki gera ráð fyrir honum í umfjöllun sinni um íslensk stjórnmál í dag. Það virðist vera sækni þeirra í einfaldar fréttaskýringar þar sem gamli sandkassaleikurinn er hryggjarstykkið í hugsun þeirra. Þeim tekst ekki að hefja sig yfir eigin skoðanir í pólitík. Mikið væri það óskandi að þeir legðu á sig nokkra vinnu og læsu þau skjöl sem nú þegar eru aðgengileg á netinu um AGS og samstarf sjóðsins við Ísland. AGS rekur ...
Gunnar Skúli Ármannsson
8. Júlí 2010
Komdu með frumvarp, Ögmundur. Frjálsar handfæraveiðar, 15.000 manneskjur án vinnu. Sýndu þjóðini að það sé eitthvert gagn að þér.
Aðalsteinn Agnarsson
8. Júlí 2010
Í dagblöðum í dag talar þú að AGS sé á móti almennum lausnum á skuldavanda heimilanna. Þ.e.a.s. að færa niður höfuðstól lána hjá öllum. En er ekki AGS einmitt að benda á að með slíkum aðgerðum þurfi ríkið að aðstoða banka og fjármálastofnarnir eina ferða enn ef að eignir þeirra verða keyrðar niður. Hin leiðin sem AGS bendir á er ...
Hermundur Sigurðsson
8. Júlí 2010
Áhrif hæstaréttardóms um mynkörfulán Í fjölmiðlum er nær eingöngu talað um bílalán. Mun stærri hluti þessara lána fór samt í lán til sjávarútvegsfyrirtækja og til til skuldsettrar yfirtöku fyrirtækja á markaði. Dæmi eru um að bílar séu veðsettir fyrir allt að þrefalt markaðsvirði sitt en heimtur á bílalánunum eru líklega bestar af þessum flokkum. Það er t.d. algerlega borðleggjandi að það megi afskrifa 70% af gengislánum til yfirtöku fyrirtækja. Að þessu fratöldu eru áhrif dómsins þau að ...
Sigurður Þórðarson
8. Júlí 2010
...15.000 manneskjur eru án vinnu, það liggur á þessu. Trúðu mér, það er gott líf að róa á trillu. Það besta að ég trúi, ef Alþingi gefur frelsi.
Aðalsteinn Agnarsson
6. Júlí 2010
Hverjum hefði dottið það í hug fyrir örfáum mánuðum síðan að SKJALDBORGIN margumtalaða skyldi slegin utan um úlfagráðug fjármálafyrirtækin í landinu....Úthrópun samstarfsflokkanna er algjör. Þeir kenna sig báðir við sósíaldemókratíska hugsýn, en það skal vera á hreinu að löngu framgengnir forvígismenn þeirrar hugmyndafræði hafa marg snúið sér við í gröfum sínum, alla vega rúmaðist hugtakið knésetning öreiganna ekki innan þeirrar merkingar. Ögmundur, ég vil meina að það dugi ekki að stinga niður penna, það eru bara kurteis samræðustjórnmál, ég held að þú sért maðurinn sem munir iðka aðgerðastjórnmál framtíðarinnar. Ef það reynist ekki rétt þá er ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.
5. Júlí 2010
Mig langar til að vekja athygli þína á þeim eðlismun sem er á mótmælunum sem efnt var til við Seðlabankann í dag og upphafi mótmælanna í búsáhaldabyltingunni. Eðlismunurinn kemur fram í þeim harða tóni sem nú er í andstæðingum fjármálafyrirtækjanna, miklu harðari tóni. Ég var á Austurvelli haustið 2008 og ég var við Seðlabankann í dag. Guð hjálpi þeim stjórnvöldum, forystumönnum VG og Samfylkingar, sem hafa egnt fyrir fólkið gildru með dyggri aðstoð Alþjóðagjaldseyrissjóðsins sem það verður svo látið lenda í. Er útilokað að þið almennir þingmenn sem segist styðja ríkisstjórnina látið sverfa til stáls, standið með fólki en ekki fjármálafyrirtækjum, og setið ...
Jóna Guðrún
4. Júlí 2010
„AGS hafði ekki haft hönd í bagga þegar Seðlabanki og Fjármálaeftirlitið ákváðu að gefa út tímabundin tilmæli um það við hvaða vexti skuli miða við útreikning á gengistryggðum lánum. "Þetta er hlutverk stofnananna. Við vissum ekki hvað þær ætluðu að gera og sáum tilmælin í fjölmiðlum eins og aðrir," segir Franek Rozwadowski." (Fréttablaðið 3. júlí 2010). "Við höfum auðvitað skýrt stjórnvöldum frá okkar ákvörðun, við höfum rætt þetta ítarlega við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og gerum ráð fyrir að hann muni styðja þessa ákvörðun." (Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri í hádegisfréttum útvarpsins 1. júlí 2010 ...
Hafsteinn
2. Júlí 2010
Af hverju tjáir Ögmundur sig ekkert um nýfallin hæstaréttardóm og "tilmæli" seðlabanka ( Ríkisstjórnar)? Af hverju ver engin lánþega í Ríkisstjórn Íslands?...
Björg F. Elíasdóttir
1. Júlí 2010
...Það er raunar einkennilegt að gæslumennirnir skuli ekki hafa séð ástæðu til þess, þegar horft er til efnahagsstöðugleikans, að gera athugasemdir við það þegar 16 milljarðar voru settir í Sjóvá, þegar 26 milljarðar voru settir í Verðbréfastofuna, og þegar 15 milljarðar runnu til Saga Capital, allt á takk bærilegri vöxtum en gæslumenn efnahagsstöðugleikans telja sanngjarnt að heimilin greiði nú af hinum ólöglegu lánum. Þeir Gunnar og Már taka með tilmælum sínum starfstengda áhættu sem væri talin talsverð ef þeir hefðu ekki tryggingu fyrir því að vera í skjóli framkvæmdavaldsins fram yfir haustmánuði. Þeir keppast enda við að undirstrika að þeir hafi tekið "sjálfstæða ákvörðun". Þeir tönnluðust á þessu í gær og þetta sagði Gunnar Andersen í ágætum útvarpsþætti á Bylgjunni í morgun, "þetta er...
Ólína