Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

30. Júní 2010

ESB-ÓRÁĐ

Ekki virðist hafa verið dugur í fólki að taka afstöðu til aðildarumsóknar að ESB á nýliðnu samstarfsþingi VG. Þykir mörgum það örugglega firnavont, sérstaklega þar sem flestum þeim er fylgja VG að málum finnst það hörmulegt að slíkur gjörningur skuli finnast í stjórnarsáttmálanum. Það virtist aukinheldur sem þingmenn og ráðherrar VG teldu þetta bölvað óráð. Meira að segja Árni Þór sem er í klappliðinu virtist hálfhrekjast horn úr horni þegar hann rembdist haldandi í staurinn við að útskýra í hvaða farvegi málið væri og endaði með því að hálf opinbera andstöðu sína. Nei, fjandakornið segi ég nú barasta, nú er komið að....
Óskar K Guðmundsson, fisksali

30. Júní 2010

ÓAFGREITT Á MILLI STJÓRNARFLOKKA

...Ég hef verið óánægður með Ögmund, ekki vegna sjónarmiða hans heldur vegna þess hvernig hann opinberar æði oft sín sjónarmið í fjölmiðla þegar þau eru öðruvísi en sú leið sem ríkisstjórnin kýs að fara. En einnig vegna þess að Ögmundur eins og hann segir orðrétt: „Alla mína tíð í pólitík og verkalýðshreyfingu hef ég átt auðvelt með að miðla málum og komast að samkomulagi". Öll þessi erfiðu mál lágu fyrir áður enn til kosninganna kom, svo ég nefni: Icesave, kaup Magma Energy á HS orku, stefnan um fyrningu kvótans, stefnan um eignarhald á vatni, stefnan um markaðsvæðingu heilbrigðiskerfisins, Skattamálin , utanríkismálin, ESB og AGS...
Kristbjörn Árnason

26. Júní 2010

AFNÁM KVÓTAKERFISINS: EKKI TÓMT MÁL UM AĐ TALA

...Ertu sáttur við framvindu kvótamálsins hjá ríkisstjórn þinni og Jóni Bjarnasyni? Finnst þér ekkert athugavert við síðasta útspil ráðherrans vegna þess? Er þetta bara tómt mál um að tala?
Edda

26. Júní 2010

PRINSÍPPFÓLK Í FLOKKSTARFI EN...?

Hvernig er hægt að halda þetta út? Eftir að hafa setið aðgerðalaus hjá meðan Magma eignast HS-Orku er bókað á flokksráðsfundi að svona nokkuð sé á móti grundvallarstefnu flokksins og lífsskoðun okkar. Þetta er verra en íhaldið sem grillaði á kvöldin og græddi á daginn. Við erum prinsippfólk í flokksstarfi en ...
Áslaug

23. Júní 2010

LÁGVAXTALÁNIN

Um allan heim er hægt að taka lágvaxtalán. Árið 2006 og 2007 tóku margir Íslendingar lágvaxtalán. Það voru skynsamar ákvarðanir. Löng jenalán hafa ávallt verið góð lán. Fagmennirnir sem veittu þessi lán klikkuðu á því hvernig þeir skyldu tryggja sig. Þeir tryggðu sig með ólöglegum hætti. Þeim hefur verið refsað af hæstarétti. Skynsemdarfólkið heldur sínum lágvaxtalánum. Vonandi veitist ...
Hreinn K

23. Júní 2010

ENDURREIKNING STRAX

Fjármálastofnanir hafa einhliða ákveðið að senda ekki út greiðsluseðla vegna dóms Hæstaréttar í næstu viku. Þetta er þeim óheimilt. Samningar gera ráð fyrir jöfnum mánaðarlegum afborgunum lánanna og öðrum aðila samnings alls ekki heimilt að breyta samningum, nema þá að í því felist að fjármögnunarfyrirtækið afsali sér þessari tilteknu greiðslu. Það sem fjármálastofnanirnar eru að gera er að þær eru að reyna að svæfa stjórnvöld og almenning fram í næsta mánuð. Kaupa sér tíma heitir það hjá PR-fyrirtækjunum. Ef það er eitthvað sem ríkisstjórnin ætti að gera þá væri það að beina þeim tilmælum til fjármálastofnananna að endurreikna lánin í samræmi við niðurstöðu Hæstaréttar þegar í stað með hjálp ...
Hafsteinn

23. Júní 2010

GEGNDARLAUS HROKI ESB!

Ekki fyrir löngu sagði ESB að ábyrgðir gagnvart Englandi og Hollandi væru ábyrgðir gagnavart öllu ESB. Þettar hlýtur þá að vera gagnkvæmt: Þ.e.a.s. að segja að svik, lögbrot, skuldir og ábyrgð hvers einstakts lands innan ESB eru á ábyrgð alls Evrópusambandsins. Því hljótum við Íslendingar að geta krafist af ESB að það gangi í ábyrgð fyrir hvert og eitt ESB-land. Nú er það svo að breska fyrirtækið BP hefur mengað hafið í Mexikóflóa, afleiðingarnar geta spannað áratugi. Eru ekki líkur á því að hafstraumar Golfstraumsins geti flutt þennan skít á íslensk fiskimið og eyðilagt allan okkar afla? Fróðlegt væri að fá oceangrafer eða hafstraumsfræðinga að rannsaka þetta. Ef það eru líkur á þessu, þá...
Karl Jóhannsson

22. Júní 2010

TVÍSKIPTING VALDSINS

...Yfirlýsingar ráðherra uppá síðkastið staðfesta að hér á landi er verið að búa til alveg splunkunýja samfélagstegund, tvískiptingu valdsins. Annars vegar er löggjafarvaldið, framkvæmdavaldið, fjármálafyrirtækin, fjölmiðlarnir og háskólarnir, en hins vegar almenningur, forsetinn og Hæstiréttur. Athyglisverð skipting sem til dæmis varpa sérstöku ljósi á afstöðu framkvæmdavaldsins ("norrænu velferðarstjórnarinnar"), háskólasamfélagsins og fjölmiðlanna til forseta Íslands. Athyglisverð skipting, sem skýrir til dæmis hugmyndir manna um "þjóðstjórn". Hvað er enda þjóðstjórn? Staðfesting á að öllu valdi, nema valdi fólksins, forsetavaldi og valdi Hæstaréttar, sé undið upp í hnykil til að enginn geti séð hvar spottin byrjar og endar. Ætli menn hafi atkvæðis- og skoðanarétt undir Þjóðstjórn?En hvað gerum við þá, sauðsvartur almúginn? Við getum ...
Ólína

22. Júní 2010

HĆGJAST MUN Á ESB FERLINU

Nú er það ljóst að við hörðustu andstæðingar að aðildarviðræðum við ESB samkomuna höfum fengið öflugan bandamann. Sá er alnafni afrísks knattspyrnuliðs er nú tekur þátt á HM 2010. Ljóst er enfremur að með aðkomu hans höfum vér tryggt okkur að hægjast muni verulega á ferlinu. Nú er bara Ögmundur að einhenda sér í að Icesave fari fyrir dómstólanna, sem gerir það að verkum að aðildarumsóknin frýs þar sem ekki þykir sýnt að turbo hraði muni ríkja við ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.

22. Júní 2010

AĐ SPILA GUĐ

Hann var ný fermdur drengurinn og hafði fengið talsvert af peningum í fermingagjöf og vildi nota þessa aura sína af skynsemi. Fjölskyldan sat við kvöldverða borðið. Sá ný fermdi var hugsi, og spurði foreldra sína hvað þau hefðu í laun á ári. Faðirinn sagði að þau væru með ca. 900.000. (DK). Eru það góð laun spurði sá stutti. Faðirinn svaraði um hæl og sagði að þau ættu fallegt glæsilegt hús,sumarhús 2 nýja bíla og við höfum það gott, förum í góð frí hvert ár. Sá stutti sagði þetta hljóta að vera góð laun: Við höfum það svo gott og erum svo hamingjusöm. Þá spurði sá stutti...
Erling Bjarnason 

20. Júní 2010

AĐ TRYGGJA ŢJÓĐARHAG

...Það er óþarfi að bjóða Sjálfstæðisflokknum inn í Stjórnarráðið, glóðvolgum úr hruninu. Pottarnir og pönnurnar eru enn á sínum stað. Núverandi ríkisstjórn á að einbeita sér að því að starfa í anda almannahagsmuna. Aðkoma allra stjórnmálaflokka að ranglátum ákvörðunum verður aldrei kölluð þjóðstjórn. Slík stjórn yrði kölluð samtryggingarstjórnin!
Jóel A.

20. Júní 2010

VARLEGA VERĐI FARIĐ MEĐ VALDIĐ

Það má aldrei gleymast að þeim sem er falið umboð til að ráðstafa opinberum fjármunum verða að fara vel með það vald og svara til ábyrgðar. Í samhengi þess þótti mér vænt um að sjá fyrirspurn frá Eygló Harðardóttur um hvernig ríkið gætti hagsmuna sinna eftir að hafa sett 12 milljarða til að bjarga Sjóvá frá gjaldþroti.... Mér þótti minna vænt um að sjá röksemdafærsluna. Þar segir um það bil orðrétt að vegna stærðar og markaðshlutdeildar Sjóvár hafi ekki þótt æskilegt að hin tryggingafélögin á markanum myndu taka við rekstrinum. Nú er ég á móti einokun og allt það. En þegar einkafyrirtæki á samkeppnismarkaði fer á hausinn þá þarf að...
Gústaf

20. Júní 2010

AĐ KOMAST TIL NÁMS AĐ NÚPI

...Þörf ábending hjá Ólínu. En kannski er Jóhanna komin með Núp við Dýrafjörð á heilann. Þar voru nokkrir "ólátabelgir" við nám á sínum tíma og virðast spjara sig mun betur í pólitíkinni en Jóhanna, enda er hún orðin hálf-gerð grín-fígúra af einhverju sem hún reyndar kannski aldrei var ... nema að hennar eigin sögn ... með gjallarhornum fyrir kosningar, að auglýsa aumingja-gæsku sína ...
Pétur Örn Björnsson

18. Júní 2010

...OG EKKI BIĐST HÚN AFSÖKUNAR

Forsætisráðherra urðu á alvarleg mistök, opinberlega, sjálfan 17. júní. Hún kenndi Jón Sigurðsson, forseta, við Dýrafjörð. Mörg orð mætti hafa um þessi mistök flytjanda, ræðuritara og yfirlesara, en þeim verður hér stillt nokkuð í hóf. Mistök af þessu tagi gera menn ekki. Ekki á 17. júní, ekki þegar í hlut á Jón Sigurðsson. Skeytingaleysi, þekkingaleysið, af þessu tagi er óafsakanlegt. Sama hve hátt menn hanga á strái, sama á hvaða strái menn hanga, viðkomandi þurfa að ...
Ólína

16. Júní 2010

ESB-SINNAR Í FRAMSÓKN OG ŢJÓĐSKJALA-SAFNIĐ

Og þá tók loksins steininn úr. Hvað haldiði, voru ekki evrópusinnaðir framsóknarmenn að berja á þingflokksformanni sínum fyrir þá stórbrotnu leikfléttu hans að hafa aðkomu að tillöguflutningi til afturköllunar umsóknaraðildar að EB. Borið er því við að vilji þessarra evrópusinnuðu framsóknarmanna standi til þess að sjá hvað sé í boði, bara rétt að kíkja á hvað gaurarnir séu tilbúnir að bjóða íslenzka stórveldinu. Nei. hvílík hrakför, svona afleiki leika menn ekki nema þeir vilji samfélaginu hreinlega eitthvað slæmt. Ljóst er að innviðir Evrópusambandsins eru teknir að bresta. Svekkelsi Þýzkra með letidurgshátt ...
Óskar K Guðmundsson,
fisksali.

16. Júní 2010

TYRKJARÁNIĐ OG ICESAVE

Tyrkjaránið 1627 var eins og flestir vita ekki eins og nafnið gefur til kynna,beinlínis Tyrkjarán, áhafnir skipanna komu frá Alsír og Marokkó, en stjórnendur/bandítarnir komu að sjálfsögðu frá Bretlandi og Hollandi eins og ræningjarnir í dag en nú heitir það Icesafe-ránið 2010. Þessir gömlu og verstu nýlendukúgarar heimsbyggðarinnar hafa engu gleymt, það er einungis komin ný áhöfn t.d.svokallaðir vinir okkar frá Norðurlöndunum (að undanskyldum Norðmönnum og Færeyingum) EB, Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og ekki ...
Íslendingur búsettur í Danmörku

15. Júní 2010

RĆĐAN SEM EKKI VAR FLUTT

Enn eru margir í losti yfir því að bröskurunum í Magma Energy væri leyft að koma eignarhaldi sínu á HS orku og þar með öðlast ráðstöfunarrétt á orkulindum Reykjaness. Ekki er enn séð fyrir endann á því máli. Getur verið að ríkisstjórnin ætli að gefast upp í þessu máli???? Ég hugsaði við eldhúsdagsumræðurnar á Alþingi í gær: Mikið væri gaman ef einhver hefði flutt ræðu sem verið hefði ein setning svohljóðandi...
Jóel A

15. Júní 2010

ŢJÓĐNÝTING AUĐLINDA ER RÉTT - FRÁBIĐ NÝJA RÚSSAGRÝLU!

...Við sem viljum sem mest einstaklings athafnafrelsi skiljum að þó þjóðin eigi sameiginlega grundvallarþætti athafnalífsins, þá kemur það enganvegin í veg fyrir að einstaklingar stofni sín fyrirtæki og reki þau sér til ágóða, og nýti grundvallar eigur þjóðarinnar til þess. Það eru einmitt þessi smáu einkafyrirtæki sem skapa flest störfin og eru driffjaðrir framfara þjóðfélaga. En við skiljum og viljum jafnframt að ÖLL auðævi landsins og allur þjóðarnauðsynlegur rekstur, sem ekki getur notið eðlilegrar samkeppni, verði að vera í sameiginlegri eign allrar þjóðarinnar! Við einkaaðilar erum ...
Helgi  

14. Júní 2010

ORKAN VERĐI Í ALMANNAEIGN

Mér finnst þetta tal um hverjir séu góðir og hverjir vondir eigendur að orkulindum út í hött. Þegar búið er að setja auðlindirnar út á markað þá skiptir ekki máli hver kaupir, þetta endar í hörðum bisniss. Mundir þú vilja selja einhverjum mjög góðum og þjóðhollum Íslendingi?...
V.

14. Júní 2010

HVERS VEGNA FÁUM VIĐ EKKI UPPLÝSINGAR?

Skilanefnd Landsbankans neitar staðfastlega að veita almenningi upplýsingar um greiðslur bankans til innistæðu-trygginga-sjóðanna í Bretlandi og Hollandi. Það er vitað að Landsbankinn var með fullar tryggingar hjá Financial Services Compensation Scheme (FSCS) í Bretlandi og hjá De Nederlandsche Bank (DNB). Samt kemur Páll Benediktsson upplýsingafulltrúi af fjöllum og segist engar upplýsingar hafa. Landsbankinn hefur verið með undarlegt bókhald, ef skilanefndin getur ekki dregið fram upplýsingar um þær greiðslur eða skuldbindingar sem bankinn hefur innt af hendi vegna innistæðu-trygginganna. Getur raunverulega verið, að...
Þór Gunnlaugsson

13. Júní 2010

EF OF GOTT TIL AĐ VERA SATT ŢÁ SENNILEGA EKKI SATT

Ríkisstjórninni hefur verið legið á hálsi að stöðva allar framkvæmdir og framfaramál. Ég get ímyndað mér að hún sé örðin nervös vegna þessa og vill alls ekki veita viðnám í nokkrum málum sem gætu skapað vinnu í verktakageiranum. En er það ekki ankannalegt að á sama tíma og það á að skera niður um 30 milljarða á ári í ríkisrekstrinum næstu árin er ákveðið að halda áfram með gamla tillögu sem þeir Davíð og Halldór höfðu í sem mestum metum. Þetta er bóluáraprósjekt þar sem áætlanir voru gerðar af sama stóruhug og t.a.m stóra tónlistarhúsið. Maður spyr sig hvernig...
Ella Kristín

13. Júní 2010

KJARAJÖFNUN

Ég er sammála Ögmundi varðandi umræður um frystingu launa, að þá sé launa/kjarajönun lausnarorðið.
Stefán Böðvarsson

11. Júní 2010

"ÁSTANDIĐ"

 Í ágætu bréfi frá Árna V. hér á síðunni, með yfirskriftinni "Allt að forskrift AGS?" er greinargóð og skýr lýsing á "ástandinu" á ríkisstjórnarheimili þeirra Steingríms J. og Jóhönnu. Allir á heimilinu virðast vera á fullu í "ástandinu" en húsbændurnir á heimilinu banna öllum að ræða það. Bara má ekki ræða það, bara alls ekki. Heimilsfólkið má kannski, svona innra með sér, blístra voða lágt: "Það er draumur að vera með alþjóða gjaldeyrissjóði ... og finna hve fallega þeir gera ... dásamlega dúdderí og sjúdderí dú ... Flanagan og Franek og sá frægi ... vínarvalsa-kaninn í nikkunnar æðsta dómi ... í einum sussu sussu rómi." Á ekki sauðsvartur almúginn bara að þakka fyrir að það er enn til svona "fínt fólk" á Íslandi, sem virðist vera í náðinni hjá stríðs-kapítalistum heimsins; fær að vera í ....
Pétur Örn Björnsson

10. Júní 2010

ALLT AĐ FORSKRIFT AGS?

Þegar félagsmálaráðherrann ljáir máls á því hvernig megi bregðast við hallarekstri ríkisins án uppsagna er hann snupraður af fjármálaráðherranum. Maður spyr sig hvort það séu engir sameiginlegir hagsmunir og markmið í þessari ríkisstjórn. Er ekkert sem bindur menn saman svo þeir geti metið tillögur um aðgerðir í efnislegri umræðu? .... Jóhanna og Steingrímur eru reyndar með plan. Það er nokkurs konar "laissez faire" hagstjórn þar sem ríkisstjórnin gerir ekkert meðan hin margrómaða endurreisnaráætlun AGS er að virka. Framvindan samkvæmt þessari áætlun er nokkurn veginn þannig að...
Árni V.

9. Júní 2010

UM HAGFRĆĐINGA OG FRĆĐIMENN TANNLĆKNA-DEILDAR

Ekki finnst mér skrýtið að hinar merku fræðigreinar háskólasamfélagsins útheimti há laun að þeim fulllærðum. Nú síðast sá ég hvar tveir merkir fræðimenn, eflaust hagfræðingar gátu túlkað menntun sína ansi rúmt í báðar áttir. Annar sem er erlendur að uppruna fullyrðir að samfélag vort sé með svo veikburða hagkerfi að ekki sé möguleiki að greiða þrælsánauðina en hinn sem dvelur við rannsóknir og spár hjá Seðlabankanum ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.

9. Júní 2010

ŢÁ VERĐUR AĐ LENGJA ŢINGHALDIĐ

Sæll Ögmundur, núna eru lög frá iðnaðarráðherra um afnám vatnalaganna frá 2006 í nefnd. Munu hin umdeildu vatnalög frá 2006 öðlast gildi eða tekst ykkur að lögfesta nýju lögin fyrir 1 júlí?...
Gunnar Skúli Ármannsson

8. Júní 2010

Dr. ROBERT

2007-ruglið heldur áfram, nú í boði Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og fyrirtækis sem stofnað var undir handarjaðri fjármálaráðuneytisins. KADEKO hringir það einhverjum bjöllum? Sem sagt einkavæðing heilbrigðisþjónustu í herspítala í Heiðinni í boði heilbrigðis- og fjármálaráðherra. Faglegi hlutinn verður á ábyrgð heilbrigðisráðherra og fjármagn til að byggja upp spítalann kemur af ráðstöfunarfé íslenska ríkisins, en íslenski fjármálaráðherrann er formaður VG. Kastljós sjónvarpsins kynnti hugmyndina í kvöld, eða greiddi áferðarfallegum kadeco-talsmanni leið inn í stofur landsmanna. Hann talaði um viðskiptamódel, hann talaði um gríðarlegar tekjur sem einkarekstur sjúkrahússins myndi ...
Hafsteinn

8. Júní 2010

SEĐLABANKI, VERNE OG RÁĐHERRA

Óreyndur ráðherra Samfylkingarinnar vill frysta laun opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Þetta leggur hann til um leið og hann með liðlegu hendinni samþykkir stórfelldan skattafslátt til fyrirtækis sem Björgólfur Thor Björgólfsson á í komapaníi við athafnamann úr röðum Samfylkingarinnar. Þetta leggur hann til samtímis því að ljóst verður að trúnaðarmenn Samfylkingar hafa leitað leiða til að komast framhjá Kjararáði til að geta greitt annars konar opinberum starfsmanni 400 þúsund krónur meira á mánuði í laun. Hann vill ...
Jóna Guðrún

8. Júní 2010

BESTA RÁĐNING Í HEIMI?

Ráðning Más í seðlabankann er besta ráðning í heimi ef marka má orð forsætisráðherra. Aldrei fyrr hefur verið staðið jafnvel að ráðningu svo vitað sé til í forsætisráðuneytinu. Orð ráðherrans lýsa þessu best: „Það hefur aldrei nokkurn tíma að því er ég best veit verið staðið eins faglega að ráðningu og í tilfelli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra" Alveg er það magnað að besta ráðning í heimi feli í sér að launþegi telji að á sér hafi verið brotið og ekki staðið við umsamin ráðningarkjör ári eftir ráðninguna. Nú er Már sennilega ...
Árni V.

3. Júní 2010

FIMM PRÓSENTA ARĐSEMI?

...Fréttin um 37 prósenta hækkunina til að tryggja 5 prósenta arðsemi Orkuveitunnar birtist í Fréttablaðinu. Þetta var góð frétt. Fréttamannsins, eða blaðsins vegna, er vonandi að þörfin fyrir hækkun og krafan um arðsemi byggist ekki á framkvæmdum sem verður að ráðast í af hálfu Orkuveitunnar til að selja orku til stóriðjunnar á Suðurnesjum eða annars staðar. Ef svo væri hefði fyrirsögnin átt að vera: Stóriðjan kallar á verðhækkun á heitu vatni. Ef svo væri hefði þurft að víkja að þessu nokkrum orðum í ágætri frétt. Það þarf líka að skýra hvenær borgarstjórinn vissi af þessu. Vissi hún af þessu þegar hún hún sagði frá því að Sjálfstæðisflokkurinn hefði, eins og gjörvallur fjórflokkurinn, unnið glæstan sigur í kosningunum? Að birta þessar upplýsingar þremur dögum eftir kosningar í Reykjavík og í Reykjanesbæ er óþolandi og fullkomið virðingaleysi við þá sem skipta við...
Ólína

2. Júní 2010

VANHUGSAĐ ORĐAGJÁLFUR

Margt gott hefur þú látið frá þér fara, en þegar að Israel kemur virðist þú alltaf rjúka upp í vanhugsað orðagjálfur og yfirlýsingar frá þér og þeim sem alltaf virðast vera andstæðir gyðingaþjóðinni eru ótrúlega hugsunarlausar. Hvaða þjóð hefði leyft lest af skipum hlöðnum óþekktum vörum og greinilega mönnuðum af andstæðingum viðkomandi þjóðar að ...
Sigþór Guðmundsson

2. Júní 2010

UM SÖGU-RANNSÓKNIR OG TILEFNI ŢEIRRA

...Veist þú fleiri dæmi þess að þingmenn VG hafi verið á sporslum frá NATO á síðustu árum?...
Hannes

1. Júní 2010

G) nar (r)

Óneitanlega vekur samstarf styrkþegans Dags, sem leiðir ríkisstjórnarnefnd sem er svo absúrd að tekur fram gnarrismanum, (Allir glaðir 20/20), og grínflokksins Besti flokkurinn nokkra athygli. Og meira en athygli, maður veltir stundum fyrir sér hvor er grínarinn; Dagurinn eða Jón.  
Hafsteinn

1. Júní 2010

STÖĐVIĐ ÍSRAEL

Það þarf að beita Ályktun 377 strax í Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna framhjá Bandaríkjunum og beita því á Ísrael...
Jón Þ

1. Júní 2010

FARIĐ VARLEGA

Það er ljóst að nýjustu fréttir af framlagi Ísraelsmanna til friðarviðleitni munu ekki bera árangur. Það er sorglegt að sjá heila þjóð aftrompaða með slíkum hætti af vægast sagt misvitrum ráðamönnum hennar. Þarna niður frá væri svo sannarlega gott tækifæri fyrir capasent eða hvað þeir heita til að mæla fylgi íbúa Ísraelsríkis við þessa aðför. Frávikstölur yrðu engar þar sem fylgi yrði fortakslaust gegn slíkri skammarframkomu við það fólk sem í hlut á. Hins vegar hefur belgingurinn og blásturinn sem ...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta