Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

29. Desember 2010

ÓSANNGJARNIR VEGATOLLAR

...Nú get ég ekki lengur orða bundist vegna samgöngumála hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég hef fyrir nokkru síðan gefið upp alla von um að við hér á höfuðborgarsvæðinu, sem borgum að langmestu fyrir vegakerfi landsins, fáum úrbætur á hættulegustu vegaköflum landsins, þar sem flest dauðaslys verða. Þá er ég að tala um Vesturlandsveg og Suðurlandsveg. Nú eru uppi hugmyndir um að að taka vegtoll af höfuðborgarbúum, sem hafa þó verið nógu góðir til að ...
Stefán Þórsson, Kjalarnesi

29. Desember 2010

NÓG KOMIĐ AF GÍFURYRĐUM

Sæll Ögmundur - Venjan er sú að þingmenn Sjálfstæðisflokksins fái svona meðferð hjá Samfylkingarfjölmiðlunum og er þá sannleikurinn ekkert að þvælast þar fyrir. Nú er sá góði drengur Ásmundur Einar skotspónninn. Sf væntanlega að hefna sín. En er nú ekki kominn tími til þess að þingmenn hætti gífuryrðum í garð hvers annars og reyni að endurheimta eitthvað af virðingu þingsins? Svona skrif um Ásmund eða aðra þingmenn dæma sig sjálf. Ummæli Björns Vals um þremenningana og aðra eru hans orð og dæma hann sjálfann en niðurlægja þingið í leiðinni. Árni Þór svarar væntanlega ...
Ólafur I. Hrólfsson

29. Desember 2010

TREYSTI HVORKI ÁSMUNDI NÉ ŢÉR

Æ Ögmundur. Þið samþykktuð að taka þátt í þessari ríkistjórn og að sækja um aðild að EB og leyfa síðan fólki í atkv.greiðslu að ákveða hvort að það vildi inn eða ekki. Ég treysti hvorki Ásmundi (sem hefur verulega sérhagsmuni að gæta, t.d. að meina mér að borða "Gamle Ole" ost sem er eitthvað sem við kunnum ekki að framleiða) og ekki heldur treysti ég þér til að ákveða þetta fyrir mig. Af hverju ekki að láta fólkið í landinu ákveða þetta? Eða eruð þið svona miklir "besserwisser" að þið teljið að þið vitið þetta í nafni þjóðarinnar. Ég vil taka það fram að ég er vinstri maður og hef alltaf verið það, alinn upp á Hagamel og aldrei kosið ....
Skarphéðinn Gunnarsson

28. Desember 2010

EKKI HJÁSETAN - BARA ESB

Þakka þér fyrir að vekja athygli á skipulagðri rógsherferð á hendur Ásmundi Einari Daðasyni þingmanni VG. Þú gleymdir að vísu að telja upp eyjuna.is sem hefur ekki látið sitt eftir liggja yfir hátíðarnar. Það er mikill misskilningur að þetta snúist  um hjásetu ÁSD við fjárlagafrumvarpið. Mitt mat er að þetta snúist einvörðungu um andstöðu Ásmundar Einars við ESB umsóknina. Þar kemur heiftin og þar truflar hann hugsanlega inngöngu í himnaranninn sjálfan. Slíkt gengur náttúrlega ekki af hálfu sanntrúaðra.
Jóel A.

26. Desember 2010

VEGATOLLAR EĐA GJÖLD Á ELDSNEYTI?

Ég held að það sé mikilvægt að taka þessa umræðu ekki um einstaka vegaspotta heldur út frá því hvaða leið á að velja til framtíðar við skattlagningu. Það er ekkert sem bendir til þess að við þurfum að flýa okkur við þessa ákvörðun, rafbílar eru fáséðir á götum og verða það næstu ár. Ekki er vandamál að nota núverandi kerfi við skattlagningu á aðra orkugjafa svo sem vetni og metan. Í fréttum hefur komið fram að Hollendingar hafa frestað sínum gervihnattapælingum vegna kostnaðar. Fyrverandi vegamálaráðherra talar eins og kerfið sé til og þetta verði ekkert mál. Formaður FÍB hefur verið með góð rök og upplýsingar. Tel undarlegt að í ljósi þess að ...
Haukur Harðarson

26. Desember 2010

ÁSKORUN TIL DÓMSMÁLA-RÁĐHERRA

Ef ég hef skilið málflutning þinn í gegn um tíðina rétt vilt þú virða mannréttindi fólks. Nú ertu dómsmálaráðherra og þess vegna vil ég vita hvort þú hyggst breyta því misrétti að sumar fjölskyldur geti borið ættarnafn en aðrar ekki. Þetta er klárlega brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Ég er í þeirri stöðu að vilja ekki bera kenninöfn foreldra minna af góðum ástæðum en stjórnvaldið á Íslandi hefur sett lög sem ...
Ísak

26. Desember 2010

VONA AĐ ÁSTANDIĐ LAGIST

Tek heilshugar undir Pétri (23.12.2010). Er og hef verið eindreginn stuðningsmaður VG undanfarin ár. Eftir hryðjuverk Lilju og co. undanfarin misseri þá efast ég stórlega um að flokkurinn sé atkvæðis virði. Vona þó að þetta ástand lagist. Það er í lagi að vera með andstæðar skoðanir. Berjast fyrir þeim af hörku innan flokks og halda sínum sjónarmiðum á lofti. Síðan er haldin atkvæðagreiðsla eða tilteknum aðilum falið að komast að niðurstöðu, þá er það niðurstaða sem á að fylgja því að á endanum þá er stjórnarseta eðli málsins samkvæmt, málamiðlun margra þingmanna og ólíkra skoðana. Menn eiga að fylkja sér um ...
Kristján

23. Desember 2010

HVAĐ VILL ŢETTA FÓLK UPP Á DEKK?

það er fyndið að sjá og heyra að Bretar og Norðmenn ætli sér að banna Íslendingum að veiða makríl í þeirra lögsögu, sérstaklega í ljósi þess að fyrrnefnda þjóðin stundaði hér rányrkju í marga áratugi upp í landsteinum (að vísu með leyfi Dana á meðan þeir réðu hér) Norðmenn aftur á móti voru búnir að eyða öllum hval kringum landið um 1911. Hvað vill þetta fólk upp á dekk?
Edda

23. Desember 2010

UNDIRFERLI?

Ég hef ekki alltaf deilt með þér skoðunum Ögmundur, en talið þig þó þokkalega heiðarlegan, án tilburða til undirferlis. Nú kemur í ljós að þú situr að svikráðum með lökustu félögum VG gegn eigin ríkisstjórn og öðrum samstarfsfélögum! Þú hlýtur að gera þér grein fyrir að þetta getur ekki gengið upp. Vinstri menn á Íslandi hafa aldrei getað unnið saman. Þegar þeir komast til valda þá eru það alltaf einhverjir meðal þeirra sem fara að dansa þegar herrarnir í Hádegismóum þenja nikkuna. Einu sinni var það Finnbogi Rútur, þá Hannibal, svo Eðvarð og Björn og þá hefur Hjörleifur Guttormsson, með óraunsæjum kröfum, ekki látið sitt eftir liggja með að brjóta niður tilraunir til að byggja upp félagslega réttlátt samfélag ...
Pétur

18. Desember 2010

HĆRRA PLAN, HĆRRA PLAN...

"Slík leikflétta myndi því litlu breyta og vandséð að hún gæti gefið fólkinu í landinu nýja von." Þannig endar Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi afsettur formaður Sjálfstæðisflokksins, maðurinn sem hóf einkavæðingaferli Sjálfstæðisflokksins með sölu, sumir sögðu gjöf, Síldarverksmiðjanna til þóknanlegra og afkomenda þeirra, maðurinn sem festi í sesssi framsalið í kvótakerfi Halldórs Ásgrímssonar. Svona endar hann enn einn pistilinn hjá skoðanabræðrum sínum rit-og  fjölmiðlastjóranum, sem áður og fyrr var aðsoðarmaður sendiherrans við Skúlagötu...Umræðan má ekki verða svona prívat og þröng og snúast um eitthvað sem gerðist á fundi fyrir hálfu 
tuttugasta ári...
Jóna Guðrún

17. Desember 2010

ŢAĐ VAR GOTT AĐ HAFNA ICESAVE

Reynslan af því að hafna Icesave er góð. Gengið hækkaði, vextir lækkuðu, skuldatryggingaálag lækkaði, álversframkvæmdir töfðust, sjálfstraust þjóðarinnar jókst. Þjóðaratkvæði um Icesave er lýðræðisleg nauðsyn. 
Hreinn K

17. Desember 2010

MÁ BIĐJA UM HJÓLREIĐAVĆNA SKATTA

Nú er VG flokkur sem stendur fyrir umhverfisvernd. Hvernig stendur á því að þið reynið ekki að auka almenna reiðhjólanotkun landsmanna t.d. með því að fella niður tolla af reiðhjólum og lækka virðisaukaskattinn sem er settur á reiðhjól.
NN

17. Desember 2010

JÁ EĐA NEI

Icesave samningurinn hlýtur að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Á almenningur að greiða skuldir óreiðumanna og einkafyrirtækja? Engin lög segja að íslenskir skattgreiðendur eigi að greiða innistæðutryggingar í Englandi og Hollandi. Nýja Ísland krefst þess að þjóðin taki ákvörðun. Spurning mín er þessi: Styður þú ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um þennan nýja Icesavesamning Ögmundur? Já eða nei...
Pétur

15. Desember 2010

EF EINSOG SÁ GAMLI...

Ef það er rétt hjá félögum þínum Jóhönnu og Steingrími að nýi Icesave samningurinn sé nánast eins og sá gamli, þá bendi ég á að þjóðin er búin að hafna þessum samningi. Mér sýnist þau aðeins of dugleg í vörninni...
Hreinn K

15. Desember 2010

BANAHÖGG

Til samgönguráðherra. Ég er aldeilis rasandi yfir ætlun þinni að setja aukinn skatt á bifreiðaeigendur. Sú skattheimta kemur hrikalega misjafnlega niður, höfuðborgarbúar geta mögulega dregið úr bifreiðanotkun og notað strætó, en hér úti á landi er enga slíka þjónustu að hafa og fólk þarf oft að sækja tugi kílómetra í vinnu. Ofan á allan annan ójöfnuð sem ...
Bryndís Símonardóttir

15. Desember 2010

ÓFORSKÖMMUĐ DELLA!

...Ég er algjörlega á móti vegatollum til að fjármagna vegagerð!!!  Þetta hefur verið notað í Bandaríkjunum og í Kanada og sjálfsagt í fleiri útlöndum, en er mjög misheppnuð aðferð til að fjármagna vegagerð og viðhald.  Í Kanada hefur þessu sem betur fer verið hætt. Gera sprenglærðu spekingarnir sér ekki grein fyrir því að það mun taka að eilífu að greiða fyrir vegagerð með vegatollum þar sem oft mun ekki koma inn fyrir kostnaðinum á innheimtunni!  Hefur enginn gert sér raunhæfa grein fyrir raunverulegum kostnaði á...
Helgi

15. Desember 2010

VISSI FÓLK UM VEGATOLLANA?

...Jarðgangagerð undanfarin ár hefur verið á kostnað allra í landinu og ekkert rukkað sérstaklega fyrir notkun á þeim. Nú er verið að gera einhverjar sjálfsagðar vegabætur hér á suðvesturhorninu og þá er gripið til vegatolla til að fjarmagna framkvæmdina. Hvaða réttlæti er þetta eiginlega? ... Hver bað um þessa framkvæmd? Vissi sá aðili að þetta væri fjármögnunarleiðin? Hver er skoðun þín á þessu öllu saman?...
Gunnar Sigmundsson

12. Desember 2010

TAKK GUĐFRÍĐUR LILJA OG ÁSMUNDUR EINAR!

Þú hlýtur að þurfa að taka þig á þegar þú er beðinn um að birta hatrammar skammir um þig einsog hér á síðunni frá einhverjum NN sem sakar þig og þína samherja um að stunda skemmdarverk (!)...Annars skrifa ég  þér til að þakka fyrir að vekja athygli á rangtúlkunum fréttaskýrenda um Icesave...Atkvæðaskýringar Ásmundar Einars og Guðfríðar Lilju sem þú gefur slóðir á í pistlinum opnuðu augu mín. Ég ætla að þetta fólk lesi síðuna þína. Við þau vil ég segja...
Jóel A. (get upplýst að hef verið kjósandi VG í öllum kosningumVG hingað til.)

12. Desember 2010

EKKI MEIRI SKEMMDARVERK!

Á nú aftur að fara að rífast um icesave? Hvenær kemur að því Ögmundur að þú og þínir líkar þagnið? Á mannamáli: Haldið ykkur saman og gefið vinstri stjórn vinnufrið? Nóg er komið af skemmdarverkum ykkar....
NN

12. Desember 2010

Séra Jón eđa BARA jón?

...Hvað ætla bankarnir að gera við seldar íbúðir sem þeir hafa keypt á slikk langt undir markaðsverði og skuld eiganda við þá? Þeir fá fullt af eignum á silfurfati en eru ekki tilbúnir að gera neitt til afskriftar lánum sem eru á hálfvirði hjá þeim. Ekki meira í bili, góða helgi og gleðileg jól. Einhverjir eiga ekki gleðileg jól og þá hugsar maður til þeirra. Einhverjir á götunni, aðrir standa í röð og bíða eftir mat og einhverjir að bíða eftir kraftaverki.
Jóna Jóns.

12. Desember 2010

TÖPUĐUM EKKI Á AĐ BÍĐA

Það er náttúrulega fínt, að kjörin séu betri nú, en þau voru. Allt annað hefði nú verið "katastrófa", svo vægt sé að orði kveðið. Það sem mig langar hinsvegar að spyrja þig um Ögmundur er: Hver heldur þú, að sé orðinn kostnaður þjóðfélagsins (beint og óbeint), vegna þess þófs, sem var viðhaft á Alþingi á sínum tíma og síðan neitunar "Keisarans" á lögunum og eftirfarandi þjóðaratkvæðagreiðslu og nýtt samningaferli?? ....
Snæbj.

12. Desember 2010

SAGAN ENDURSKRIFUĐ?

...Trúboð þeirra gengur út á að ljúga upp á þig sakir og endurskrifa söguna svo mjög að minnir helst á það þegar hægriöfgamenn afneita þróunarkenningu Darwins. Vill kirkjumálaráðherrann verja svona ofsatrúarlið út í hið óendanlega? Lið, sem afbakar sannleikann miskunnarlaust og klastrar upp helgimyndum af AGS og ESB og Magma og Icsave svo tilbiðjendurnir verða sturlaðir og hringsnúast sem snældur og verða þannig snældu-vitlausir og hugsa ekki lengur skýrt, heldur hlaupa út um allar koppagrundir og velli með blinda augað á kíkinn í tossabandalagi og af hjarðeðli og baula að þetta sé allt glæsilegt, því Steingrímur segi það og Svavar segi það og Indriði segi það og Þórólfur og RÚV segi það. Þetta lið er orðið ...
Pétur Örn Björnsson

9. Desember 2010

ATHAFNALEYSI EKKI AFSAKANLEGT

Það eru talin vera ein af frumskyldum ríkisstjórnar að verja hagsmuni þjóðarinnar. Þegar ríkisstjórnin lætur undir höfuð leggjast að færa fram málsvörn gagnvart ESA í Icesave málinu,  hlýtur það að teljast ámælisvert. Það er ekki hægt að afsaka athafnaleysi. Það er Geir Haarde að horfast í augu við. Gildir það ekki líka um núverandi ríkisstjórn? Hreinn K.

8. Desember 2010

HVORKI SĆMANDI FYRIR SÍ NÉ HÍ

...Jóel A. þarf ekkert að undrast þótt þeir sem vildu pranga fyrri samningi inn á þjóðina í vankunnáttu sinni og undirlægjuhætti skuli nú reyna að telja okkur trú um að töfin hafi kostað okkur mikið. Þetta er ekki bara rugl heldur ámátlegur málflutningur og hvorki sæmandi fyrir Seðlabankann né Haskóla Íslands.
Grímur

8. Desember 2010

TOSSATAL

Í dag hafa þeir átt viðræður sín í milli í fjölmiðlum Már Guðmundsson, seðlabankastjóri og Þórólfur Matthíasson, prófessor. Þeir eru sammaála um að öllu máli skipti að semja um Icesave strax og að drátturinn á samningum hafi kostað okkur gríðarlega fjármuni. Þetta er náttúrlega ekkert nýtt, nákvæmlega sömu ræðurnar og yfirlýsingarnar og í fyrra nema nú eru þeir kallaðir tossar sem voru og eru á öðru máli. Á daginn hefur hins vegar komið að tossarnir eru þeir sjálfir, Már og Þórólfur. Þeir reyndust hafa rangt fyrir sér alla leið. Eina sem ég bið nú um er að...
Jóel  A.

6. Desember 2010

UMBĆTUR LÁTA Á SÉR STANDA

Samfylkingin hlustaði um helgina á niðurstöður umbótanefndar flokksins. Svo var að skilja að flokkurinn hefði gengið í gegnum hreinsunarelda gagnsæis og heiðarleika. Kannski nær að tala um meint gagnsæi og meintan heiðarleika. Jóhanna Sigurðardóttir, forætisráðherra, hefur nú lýst því yfir að hún hafi aldrei hótað afsögn eða að ríkisstjórnin myndi fara frá ef menn létu ekki af andstöðu við lausnina sem þá var boðið upp á í Icesave. Þetta snertir þig Ögmundur, sagðist þú ekki hafa farið úr ríkisstjórninni fyrir rúmu ári út af Icesave? Þú sagðist hafa verið að bjarga stjórrninni sem hafi hótað afsögn ef ekki allir fylgdu sömu línu í þessu máli. Ég man eftir öllum viðtölunum þar sem þú sagðir ...
Grímur 

5. Desember 2010

ÖFUGMĆLAVÍSUR Á ATÓMÖLD

Mótsögn nr. 1
Grundvöllur neyðarlaganna var og er að það hafi orðið forsendubrestur. Nú eru í uppsiglingu mikil málaferli vegna neyðarlaganna. Allt tal um "eftirgjöf" og "aðstoð" og "hjálp" við skuldara, í stað þess að taka undir málflutning HH um forsendubrest er vatn á myllu þeirra sem vilja hnekkja neyðarlögunum.
Mótsögn nr. 2
Bankarnir voru á sínum tíma harðlega gagnrýndir fyrir að veita 90% lán til húsnæðiskaupa. Menn töldu það fráleita áhættu. Nú segja menn að það sé ljómandi góð hugmynd að miða við 110% veðsetningu.
Mótsögn nr. 3...
Hreinn K

4. Desember 2010

UM RÍKISBANKA OG EINKABANKA

Hvaða hlutverki eiga bankar að sinna í samfélögum? Mjög athyglisverð grein: http://www.vald.org/greinar/101102.html
Björn Fróðason

4. Desember 2010

HVAĐ MEĐ ŢAU SEM STÓĐU Í SKILUM?

Var að lesa niðurstöður ríkisstjórnarinnar vegna skuldavanda og í frammhaldi langar mig til að spyrja þig um eitt atriði sem mér sýnist að hafi gleymst en það eru þau heimili sem hafa staðið í skilum í gegnum síðustu tvö ár. Þessi heimili eru ansi mörg sem betur fer en þau hafa eins og önnur mátt þola hækkun á höfuðstól sinna skulda vegna óráðssíu bankamanna og annara sem komu að þeim málum á sínum tíma. Þess vegna spyr ég þig Ögmundur finnst þér það réttlátt að þessi heimili haldi áfram að borga af þessum bólgna höfuðstól á meðan að þeir sem fóru offari í skuldsetningu fá ...
Viðar Magnússon

2. Desember 2010

LEYFI MÉR AĐ EFAST

Lýðræði í sókn-valdakerfi á undanhaldi! Ég vona innilega að þú hafir rétt fyrir þér. Samt leyfi ég mér að efast, vegna þess, að VG, flokkurinn sem vann sinn stærsta kosningasigur, í síðustu þingkosningum, virðist vera og er, alveg eins og allir hinir gömlu klíkuflokkarnir. Alla vega er mikill skortur á lýðræði þar inni, ekkert hlustað á grasrótina í flokknum, eða bara venjulegan flokksmann. Eiginlega skil ég ekki sjálfan mig, hversu blindur ég hef verið í áratugi, sem flokksmaður í VG og áður Alþýðubandalaginu, frá unglingsárum. Sama má segja um ríkisstjórnina...gerir ekkert í að breyta til! ...
Friðjón G.Steinarsson,
flóttamaður í Danmörku.

1. Desember 2010

FÝLUPÚKAR OG KLÚĐUR

...Einhvern veginn svona hófst Silfur Egils á sunnudag: Nú er ég kominn með  nokkra frambjóðendur til stjórnlagaþings, sagði Egill Helgason í þætti sínum, og hann bætti því við, að fólkið sem hann kynnti samviskulega 
til sögunnar degi eftir kosningarnar, hefði ekki mátt sjást í gær,  ekki í fyrradag, eða allt frá því það bauð sig fram til setu á  stjórnlagaþingi. Úff. Hann sagði þetta afsakandi, þáttastjórnandinn, sennilega með óbragð í  munni, af því hann hefur eins og við velt því fyrir sér hvernig átti  að glæða áhuga manna fyrir persónukjöri á stjórnlagaþing....Í ljósi framlags nokkurra fýlupoka í fræðimannastétt og hjá ríkisútvarpinu, á áttatíu ára afmæli þeirrar stofnunar, voru  kosningarnar stórfelldur sigur og þeim til sóma sem fóru á  kjörstað. Óskandi er að kjörnir fulltrúar standi sig svo vel og skili svo góðu verki að ekki verði hægt að hunsa tillögurnar...
Ólína


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

13. Maí 2012

HEIMILI EĐA FOSS?

Ég er sammála þér varðandi lýðræðistakmarkanirnar í stjórnarskrárdrögum Stjórnlagaráðs, en er að hugleiða það sem þú segir um eignarréttinn. Vel má vera að það sé rétt hjá þér að eignarréttur eigi ekki að flokkast til grundvallar mannréttinda eins og gert er í núvernadi stjórnarskrá og nýju stjórnarskrárdrögunum einnig. Þó ekki viss. En það er rétt hjá þér að það er ekki sama hvort við erum að tala um ...  
Sunna Sara

13. Maí 2012

HALLĆRISLEGUR HROKI

Þakka þér fyrir að vekja máls á hrokanum í Stjórnlagaráðsfólkinu sem móðgast við alla þá sem voga sér að vera ósammála einhverju í drögum þeirra að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland. Hreytt er ónotum í þá sem eru á einhvern hátt á öndverðum meiði. Maður veit varla hvort á að hlægja eða gráta svo hallærislegt er þetta. Ég hélt að við værum búin að fá okkar skammt af hroka frá fólki sem telur sig yfir aðra hafið.
Jóel A.

11. Maí 2012

AUGLJÓS ÁFORM KÍNVERJA

Mér þóttu góðar hugvekjurnar ykkar Einars Benediktssonar um landvinningastefnu Kínverja og dæmalausar yfirlýsingar Núbós um tryggan 99ára leigusamning. Hvernig halda menn, að heimsmyndin liti út í dag, ef Hermann Jónasson hefði ljáð máls á því á sínum tíma, að leigja þjóðverjum land til að koma upp alþjóðlegum flugvelli eða flugvöllum auk veðurathugunarstöðva, eins og þeir Hitler og Goering töldu miklar líkur á að gæti orðið? Hermann lét ekki gjafir eða yfirlýsingar nafna síns, um að hér væri aðeins um að ræða aðstöðu fyrir Lufthansa með sérstökum samgöngubótum, sem við myndum fyrst og fremst njóta góðs af.  Ég minnist þess sem strákur á þessum tíma, hve ...

8. Maí 2012

TRYGGJA ŢARF SJÁLFBĆRA FERĐAMENNSKU

...Margir áfangastaðir eru nú ofsetnir ferðamönnum svo sér á umhverfinu. Tekjur aukast ekki að sama skapi samkvæmt fréttum frá í október í fyrra. Hvernig væri að ríkisstjórn mótaði stefnu í sjálfbærum ferðamálum fyrir allt landið áður en ráðist er í stórtækar aðgerðir eins og fyrirhugaðar framkvæmdir Huang Nubo? Annars stefnir í massatúrisma sem spillir náttúru og skilar engum hagnaði. Ísland verður eyðilagt sem áfangastaður fyrir náttúru unnendur, innlenda og erlenda...
Sveinn

8. Maí 2012

FREKAR FÁTĆKARI EN AĐ LÁTA SKEMMA FYRIR OKKUR LANDIĐ

Hvernig stenst það að kínverji sem er að leita að óbyggðum, útsýni og kyrrð vill byggja alþjóðaflugvöll og ofurstórt hótel?? og ef hann stofnar fyritæki um leigusamninginn - hverjum selur hann fyrirtækið ?? Hvers vegna má ekki bara segja NEI við Nubo ?? Við Íslendingar viljum frekar vera 860 milljónum fátækari en að fá...
Gréta Adolfsdóttir

7. Maí 2012

MÁLIĐ KEMUR ÖLLUM ÍSLENDINGUM VIĐ

Af hverju kom mer allt i einu Sturla Þórðason i hug þegar ég sá Halldor Jóhannsson tala um áform Huang Nubo a Íslandi? Erum við ad komast i nýja Sturlungaöld, thar sem Kínverjar koma i stað norrænna konunga til ad ráða yfir okkur? Við ættum ad geta hugsað þetta mál til enda sem þjóð, áður en of seint verðr. Kannske að halda þjóðartkvæði? Þetta mál snertir alla Íslendinga. Er enn timi til að verja okkur, eða er það of seint? Frelsi landsins er meira virði en nokkrir kinverskir miljarðar.
Kristín Sigurðsson

7. Maí 2012

LÖGGJAFINN GETUR HAFT HÖND Í BAGGA

Eitt ráðið er að banna að það verði byggt alþjóðaflugvöll á Grímstöðum. Ef um alþjóða-flug verður að ræða þarf það að fara um Egilstaðaflugvöll. Siðan má flytja folkið í rútum að Grímstöðum. Svo getur ríkið bannað að það verði borað eftir heitu vatni þar. Og svo má banna allt sem ekki er í samningi ...
Andrés Adólfsson

7. Maí 2012

BARNALEGUR OG HEIMSKULEGUR

Skrifar þú Ögmundur virkilega svona barnalega? Talar um skítuga skó og Ísland sem "hráefnanýlendu" vegna Grímsstaðamálsins. Nú er það ekki svo að Kínverjinn ætlar að fara að vinna einhver hráefni hér, heldur fara út í einhvern ferðamannabisness (að sögn). Af hverju ekki að gagnrýna þetta á trúverðugan hátt í stað svona heimskulegra ...
Torfi Stefánsson

7. Maí 2012

FJÖLMIĐLAR SKOĐI

Hvað segja þingeyskir samkeppnisaðilar í hótelrekstri um aðkomu Kínverjanna á Fjöllum? Stendur ekki til að veita þeim skattalega ívilnun? Ef svo er þá er hún á kostnað samkeppnisaðila. Finnst mönnum það í lagi? Fjölmiðlar skoði þetta.
Jóhannes Gr. Jónsson

7. Maí 2012

VIĐ EIGUM RÉTT Á UPPLÝSTRI UMRĆĐU

... Það hlýtur að vera öllu sæmilega vitibornu fólki mikið umhugsunarefni hvað á að ganga langt í að lofa erlendum aðilum að komast á einn eða annan máta yfir landið okkar. Þeir sem til þekkja hljóta líka að vera fullir efasemda um þessar áætlanir/framkvæmdir á öræfum Íslands sem hafa verið kynntar sem hótel - golfvellir og flugbrautir.
Vissulega er flest hægt með peningum en náttúran verður nú varla hamin eingöngu með þeim. Hins vegar hjóta allir Íslendingar að eiga rétt á að fá að sjá - í það minnsta heyra - hvaða framkvæmdir eru þarna fyrirhugaðar og tímaröðun þeirra - gleymum ekki að ríkið á stóran hlut í þessari óskiptu jörð.
M.ö.o. það er ekkert sjálfgefið að ..
Níels Árni Lund.


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

28. Apríl 2012

Kári skrifar: EINKAEIGNAR-RÉTTUR OG EINKALEYFI Á ÚTSÝNI

...Höfundar kennslubóka í Íslandssögu framtíðarinnar [ekki síst fyrir framhaldsskóla] eiga að sjálfsögðu að gera öllu einkavæðingarklúðrinu, og hruninu í kjölfarið, jafngóð skil og t.d. sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Æska landsins á heimtingu á því að kennslubækur framtíðarinnar greini rétt frá staðreyndum. Einkavæðingarsinnarnir lögðu og grunninn að Icesave-klúðrinu en hrökluðust frá völdum áður en þeir þurftu að axla ábyrgð. Næsta ríkisstjórn sat því uppi með þann svarta Pétur. Er þá ótalin öll glæpamennskan sem tengist kvótabraski, [brottkasti] og aflaheimildum í sjávarútvegi. Einkaeignarrétturinn kemur víðar við sögu. Gott dæmi er Kerið í Grímsnesi en þar var gestum nýlega meinaður aðgangur. Það mál sýnir einfaldlega frekju og ósvífni einkaeignarsinna gagnvart fólki sem þeim er ekki þóknanlegt. Eðlilegast væri að Kerið yrði þjóðnýtt. Merk náttúrufyrirbæri ættu...

20. Apríl 2012

Baldur Andrésson skrifar: VAĐLABRELLAN

...Að neðan er fram haldið að 2/3 hlutar kostnaðar við ætluð Martigöng um Vaðlaheiði verði ríkissjóðs og að þriðjungur kostnaðar muni skila sér með sérskatti á vegfarendur um Vaðlaheiðargöng, reiknað til fyrirsjáanlegra þriggja áratuga. Þetta teljast nú fyrséð 9 ma kr. bein ríkisútgjöld vegna gerðar umferðarvalkostar við allágætan hringvegarspotta, sem spara mun vegfarendum 8 mínútna akstur.  Allt önnur ásýnd er gefin rangupplýstu Alþingi og þjóðinni. Nafngift á framtakinu er ,,Vaðlabrella". Einkennileg er krafan um gerð Vaðlaheiðarganga. Hugsun að bak er m.a. sú að Akureyri ...

7. Apríl 2012

Kári skrifar: LISTIN AĐ KOMA EIGIN SKULDUM YFIR Á HERĐAR ANNARRA

...Hversu margir hafa þetta í huga í næstu kosningum til Alþingis verður tíminn að leiða í ljós. Kjósendur bera ríka ábyrgð í þessum efnum. Hins vegar er þeim nokkur vorkunn ef svo fer að tilfærslufólk, og stuðningsmenn þess, verður áfram í framlínu stjórnmála. En hlutverk kjósenda er ekki hvað síst að halda slíku fólki utan við völd og áhrif í samfélaginu. Til þess að svo megi verða þurfa öflugir valkostir að vera til staðar. Lýðskrumarar eru oft lagnir að nýta sér grandvaraleysi almennings, nýta sér tómarúm, og snúa staðreyndum á haus. Eina svarið við því er hlutlaus upplýsing. Kjósendur ættu t.a.m. að lesa sem allra mest í nefndri Rannsóknarskýrslu Alþingis (helst alla). Forðast hins vegar pólitísk málgögn sérhagsmunaafla sem t.a.m. styðja siðlaust, ranglátt og glæpsamlegt kvótakerfi í sjávarútvegi og glórulausa einkavæðingu náttúruauðlinda [sbr. vatn og harðhita], í hendur fjárglæframanna. ...


Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta