Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

30. September 2009

SÝNIĐ VARFĆRNI

... Fyrir aldarfjórðungi vorum við samherjar í baráttu fyrir fólk sem hafði lent í misgenginu fræga 1983-1984. Þú í Sigtúnshópnum en ég á Akureyri. Nú þegar hrópað er á leiðréttingu vísitöluhækkunar upp á 10% á einu ári verður mér hugsað til 40% hækkunar á lánskjaravísitölunni 1983 með fasta launavísitölu. Þá var lítið gert annað en að lengja í lánum og bjóða upp á viðbótarlán. Munurinn þá og nú er að vísu sá að þá voru menn ekki skuldsettir langt upp fyrir haus, ekki með bílalán og lán til nánast alls sem mönnum datt í huga að kaupa. Lánafylleríið mikla þar sem bankarnir mokuðu út lánsfé eins og ÁTVR hefði gefið öllum alkóhólistum þjóðarinnar vín!!! Að mínu áliti er engin ástæða til að gera ...
Magnús

26. September 2009

Á FRAKKA SKÁLDS

Uppnám og vanstilling fer nú eins og vindhviða fyrir dómkirkjuhorn. Sá sem því veldur er Davíð Oddsson, ritstjóri. Ég skil ekki að menn skuli nenna að fá útrás fyrir óánægju sína í Davíð Oddssyni. Ég er svo sem engin sérstök áhugamenneskja um Davíð, en mér finnst hann ekki njóta sannmælis þegar menn eru að reyna að staðsetja hann í íslenskum stjórnmálum, staðsetningu sem menn nota svo til að sannfæra sig um að hann muni misnota Morgunblaðið sem sumpart á sér glæsta sögu og hefð, sem íslenskir blaðaunnendur ættu að meta.  
Án þess að draga fjöður yfir þá skoðun mína að mörg mistök voru gerð á efnahagssviði á löngum fosætisráðherratíma Davíðs Oddssonar þá held ég að sagan muni ekki skilgreina hann sem einskæran sérhagsmunagæslumann, fjarri því. Rithöfundur er ekki sérhagsmunagæslumaður. Ég er til dæmis ekki viss um að Davíð stjórnmálamaðurinn sé meiri ...
Ólína

20. September 2009

EKKI RJÚFA TRÚNAĐ VIĐ ŢJÓĐINA

Á að setja bráðabirgðalög um Icesave í fullum trúnaði? Eru allir búinir að tapa sér í leynimakki? Menn geta gefið eftir í Icesavemálum, en ekki með því að rjúfa trúnað við þjóðina og lýðræðið. Það má ekkert gera í þessu máli án aðkomu þingsins.
Hreinn K

18. September 2009

SIĐFERĐI HÉR OG ŢAR

Reuters fréttastofan sendi frá sér frétt í gær. Fréttin var um siðferði danskra hægri manna, um ungan dómsmálaráðherra, Lene Espersen. Lene þessi lét þess getið þegar hún kom fyrir fjárlaganefnd danska þjóðþingsins að hún hyggðist láta kanna, hvort ástæða væri til að ábyrgðarvæða þá sem stýrðu danska fjármálaeftirlitinu. Nú hefur Lene Espersen falið óháðum lagasérfræðingum að kanna hvort efni eru til þess að höfða mál gegn stjórnendum og ábyrgðarmönnum danska fjármálaeftirlitsins á grundvelli laga um réttindi og skyldur þeirra sem gegna opinberum embættum. Svona bregst ...
Ólína

18. September 2009

ÓHAGKVĆM ŢJÓĐFÉLAGSVISKA

Viska þorsteins Pálssonar er ekki þjóðhagslega hagkvæm. Hann hefur farið í gegnum dómgreindar hreinsun Sjálfstæðisflokksins. Of fáir hafa komist frá þeirri hreinsun með nothæfa dómgreind í landsmálapólitík í áraraðir. ESB áhugi sumra sjálfstæðismanna er gott dæmi um það. Mér ofbýður stundum.... Þorsteinn talar eins og hann sé óreyndur í þannig vinnu. Hann minnir mig á barn í sandkassaleik ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

17. September 2009

ŢIĐ STÁLUĐ VONINNI

...Þið svikuð fólkið í landinu svo illilega eftir að þið komust til valda að ykkur verður ekki fyrirgefið.  Þið eltið alla ... rotnu spillinguna og vitleysuna í Evrópuflokki Jóhönnu Sig. og co.  Það er sárt að segja að fjöldi fólks getur ekki lengur vitað hvort það sem þið segið er logið eða satt, hvort orð ykkar muni standa. Og það er ykkar tap.
Þið voruð andvígir AGS (IMF) og þeir ...
EE elle

14. September 2009

AFBORGANIR TAKI MIĐ AF GREIĐSLUGETU

...Þegar Þórólfur Matthíasson kynnti sínar hugmyndir á dögunum hrökk ég við, vegna þess að þarna voru nákvæmlega sömu hugmyndir á ferðinni og við höfðum skoðað 1983. En nauðsynlegt er að laga einnig öll viðmið varðandi verðtryggingar og miða verður við verðmæti fastaeignanna hverju sinni. Það er ekki flókið og við eigum vísitölu sem hægt er að nota með nokkrum breytingum til viðmiðunar. Það er síðan viðfangsefni stjórnmálanna að ákveða í hvaða hlutfalli af tekjum væri eðlilegt að endurgreiðslan væri og ekki ósennilegt að hlutfallið yrði að vera eitthvað lægra en við gerðum ráð fyrir forðum.
Kristbjörn Árnason

14. September 2009

ŢAKKIR TIL ÓLÍNU

Mig langar til að þakka Ólínu fyrir lesendabréfið/greinina hér á síðunni hjá þér nýlega Ögmundur undir yfirskriftinni Veröldin að hætti Þorsteins....Þetta er afburða góð pólitísk greining Ólínu á skrifum Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins. Ólína hefur greinilega góða sögulega yfirsýn. Ekki búin að gleyma því að Þorsteinn er...gamall harðlínupólitíkus úr Eimreiðarhópnum sem vildi Báknið burt, les: Niður með velferðarkerfið!
Mér varð hugsað til þessa þegar Þorsteinn sagði í Moggaviðtali fyrir nokkrum dögum að sér þætti þjóðfélagsleg nauðsyn og ábyrgt þegar VG sviki stefnumál sín! Hver skyldu þessi stefnumál vera? ...
Grímur  

13. September 2009

STOPPIĐ LANDSSÖLUNA!

Mikil vá vofir nú yfir þar sem útlendingar eru nálægt því að eignast þriðja stærsta orkufyrirtæki landsins og OKKAR landsmanna. HEIMSKA EÐA MÚTUR?: Ekkert annað skýrir þessar gjörðir landráðaflokkanna í Borgarstjórn en mútur því enginn heilvita maður myndi svíkja þjóð sína svona, en þetta eru víst ekki heilvita menn. Og þó nóbelsverðlaunahafinn Joseph E. Stiglitz hafi nánast fallið á kné og grátbeðið okkur fyrir nokkrum dögum að GERA ÞETTA EKKI. Hann sagði að ....
Skattborgari

13. September 2009

EKKI EINKAVĆĐA ELDHÚSIN!

...Villi hefur 100% rétt fyrir sér á vefsíðunni þinni dag. Ég veit að menn sjá mikið eftir að einkavæða eldhús og ræstingar á sjúkrahúsunum í Kanada, og þá örugglega annarsstaðar.  Það er reynt í gríð og erg að snúa við, en það reynist kostnaðarsamt eftir breytinguna þar sem að allt verður að byrja upp á nýtt. Tækin, starfsfólkið og þjónustan er orðin allt önnur og einkafyrirtækin hafa fengið þefinn af einokunarstöðu sinni.  Þau vilja eðlilega ...
Helgi

13. September 2009

ERLENDIS UNDIĐ OFAN AF EINKAVĆĐINGU

Komdu sæll. Varðandi einkavæðingu á ræstingu og eldhúsi LSH Fossvogi langar mig að spyrja hvort þú hafir kynnt þér þessi mál í nágrannalöndum okkar? Ég þurfti ekki að fara langt á netinu til að sjá að það eru allir að reyna að snúa til baka. Heilbr.ráðherra Skotlands er búinn að banna alla einkavæðingu á ræstingu og eldhúsi á NHS spítölum. Ég sendi þér hlekk um þetta...Í Kanada eru þeir óðum að vinda ofan af þessu. Hvernig er hægt að gefa afslátt á hreinlæti í spítala? Svo vil ég hvetja þig til að vera með hands on stjórnun. Fylgstu með hvernig spítalamenn stjórna. Það er ekki nóg...
Villi

13. September 2009

EFTIRFARANDI ÓSKAST UPPLÝST...

DV undir stjórn Reynis Traustasonar og Jóns Trausta Reynissonar hafa sýnt góða takta í fréttamennsku síðasta árið. Blaðið hefur upplýst fjölda margt um baksvið bankahrunsins og veitt okkur innsýn í það endalausa dellumakerí sem bankadrengirnir aðhöfðust áður en umheimurinn uppgötvaði takmörkun þeirra og vitleysugang.
Síðast afhjúpaði DV Bjarna Ármannsson enn einu sinni þegar blaðið sagði frá að 800 milljónir króna sem félag hans tók að láni þyrfti líklega að afskrifa. Fín frétt hjá DV. Hinir fjölmiðlarnir, þeir sem eru seinni til og þykjast sjálfir vera vandari að virðingu sinni, mættu mjög gjarnan upplýsa fyrir okkur eftirfarandi...
Gunnar

12. September 2009

2007-GAUR FYRIR FINNA

Daginn sem Magnús Árni Skúlason, bankaráðsmaður í Seðlabanka Íslands fyrir Famsóknarflokk, hafði samband við íslensk og bresk fyrirtæki í því skyni að kom upp milli þeirra gjaldeyrissamskiptum fyrirgerði hann stöðu sinni í bankanum. Þetta gjaldeyrismál er ekki flóknara en svo...og það þarf að krefja Sigmund Davíð Gunnlaugsson svars við því hvort endurnýjun Framsóknarflokksins felist í að ...  
Ólína

11. September 2009

RUKKUĐ FYRIR ENGAN TILKOSTNAĐ!

... Það virðist vera alveg sama, ég er rukkuð um tilkynningar og greiðslugjald, þótt svo ég fái ekki greiðsluseðlana. Það virðast ekki vera nein takmörk fyrir því hve þessir bankagúrúar geta plokkað af fólki. Var ekki búið að breyta þessu, mig minnir að Björgvin, fyrrum viðskiptaráðherra hafi komið því á koppinn. Vil koma því að að þú ert mjög vel ...
Kristjana Al.

10. September 2009

ALVÖRU KREPPA HJÁ MÖRGUM

Finnst þér Ögmundur, að það sé núna hinn rétti tími til að eyða helstu kröftum ríkisstjórnar og embættismanna ráðuneytanna í að svara spurningum Olla stækkunarstjóra ESB? Fyrir mér er þetta dauðans alvara og þess vegna spyr ég vafningalaust: Er ykkur ekki enn ljóst að það ríkir alvöru kreppa hjá okkur mörgum?
Pétur Örn

8. September 2009

VERÖLDIN AĐ HĆTTI ŢORSTEINS

Köguður kíkti af hól sínum um liðna helgi í morgunblöðum landsins. Annars vegar í viðtali við Morgunblaðið og hins vegar í stjórnmálaumfjöllun í Fréttablaðinu. Skyggni af þeim hól virðist hafa verið lélegt um helgina, en af því Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, forsætisráðherra, en umfram allt sjávarútvegsráðherra, gerir sér far um að skýra stjórnmálaástandið er ástæða til að fjalla nokkuð um það sem hann kallar, að draga málefnalegar ályktanir af pólitískum hræringum dagsins. Það er líka áhugavert að fara nokkrum orðum um þann heim sem Þorsteinn Pálsson sér þegar hann skyggnist um .....Sá sem stýrir hvíta kóngnum er sagður raunsæismaður, Ögmundur er fyrirvaramaðurinn, sá óábyrgi. Hér gerir Þorsteinn hvítum upp skoðun. Fjármálaráðherra hefur lagt áherslu á að þingið sjálft ætti að fara vandlega yfir málið, og afgreiða að sínum hætti. Hann hefur jafnframt sagt að hann sé prýðilega ánægður með niðurstöðu Alþingis.   Málið snérist ekki um að  ... Eða ber að skilja Þorstein Pálsson á þá leið, að OECD, Icesave að hætti Breta og Hollendinga, og þess vegna Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn séu hvítir á taflborðinu, en þeir sem vilja reisa rönd við innheimtumönnum hins alþjóðlega fjármagns, eins og Stieglitz nefndi þá, þeir eru svartir í valdataflinu? Hefði ekki mátt hugsa þessa analýsu örlítið
Ólína

8. September 2009

STEYPA FREMUR EN FÓLK?

Er réttlætanlegt að verja milljörðum til að reisa tónlistarhús við höfnina á sama tíma og skorið er niður í heilbrigðiskerfinu? Ég segi nei. Sé ekki að tónlistarmenning landans sé að hruni komin. Vissulega á hún skilið höll. En við höfum ekki efni á því núna. Ætlar þessi ríkisstjórn virkilega að verja takmörkuðum fjármunum ríkisins í steypu fremur en fólk? Þetta ...
Baldur Ragnarsson

7. September 2009

UM SIĐFERĐI FORMANNS BSRB

Hver er þín siðferðilega staða Ögmundur, nú þegar ráðist er að opinberum starfsmönnum af ríkistjórn sem þú situr í? Er þér siðferðislega stætt á því að þykjast vera talsmaður opinberra starfmanna lengur?
Stefán Arngrímsson

6. September 2009

ERLEND FJÁRFESTING AĐ HĆTTI FRJÁLSHYGGJU

Frjálshyggjuflokkarnir eru illa að sér í fjármálum, einsog þjóðin veit núna. Nýjasta dæmið birtis í því að þeir halda að erlend fjárfesting, sé það að lána útlendingum peninga...
Hreinn K

4. September 2009

MESTU MISTÖK ASÍ

...Þú skalt líka hafa þökk fyrir að benda á misbrestina í röksemdafærslunni hjá OCDE samtökunum. Ég verð í þessu sambandi að viðurkenna að ég hafði alls ekki áttað mig á samhenginu milli málflutnings Alþýðusambandsins og velferðarkerfisins og hagsmuna alþjóðabankans. Ég fæ ekki betur séð þegar ég rifja upp málflutning minna manna en að þeir hafi beinlínis verið að leggja til atlögu við velferðarkerfið í samvinnu við atvinnurekendasamtökin og Alþjóðabankann. Ég sat fund í sumar og tók undir kröfur okkar manna en viðurkenni eins að þar fór ég villur vegar. Ekki held ég að Ásmundur Stefánsson hefði ...
Gunnar

4. September 2009

ALVÖRU VINSTRI STJÓRN RĆĐST EKKI Á ÖRYRKJA

Getur vinstri stjórn, sem vill láta taka sig alvarlega sem velferðarstjórn í anda norrænnar jafnaðarstefnu, byrjað á því að skerða kjör ellilífeyrisþega og öryrkja? Ég svara þeirri spurningu afdráttarlaust neitandi. Það væri hins vegar fróðlegt að fá þitt álit, Ögmundur. Ég hefi sjálfur notið örorkustyrks frá áramótum, en 1. júlí var hann skertur um þriðjung. Þó er ég áreiðanlega betur settur en margur annar, sem nýtur styrks frá Tryggingastofnun ríkisins.
Beztu kveðjur,
Sigurður Jón Ólafsson

4. September 2009

STJÓRNMÁLAMENN BRUGĐST

...Hvers vegna spyr enginn hvers vegna regluverkið var ekki til staðar sem tryggði að slíkur uppgangur gæti ekki átt sér stað?? Hvers vegna spyr enginn hvers vegna varaformaður Sjálfstæðisflokksins upplýsti ekki þjóð og þing að bankinn hennar væri kominn á hausinn með tilheyrandi afleiðingum. Trúir því virkilega einhver að hún hafi ekki vitað af stöðu mála? Um hvað var rætt um við eldhúsborðið?? Munum að hún er kosin til að gæta hagsmuna þjóðarinnar! Ef við sem forsvarsmenn fyrirtækja gerumst sekir um slík afglöp sætum við ábyrgð. Að mínu viti eru ráðamenn þjóðarinnar í aðdraganda hrunsins sekir um afglöp á starfi sem í sumum tilfellum kunna að falla undir hegningarlög....
Magnus Jósefsson

4. September 2009

HANDBENDI AGS?

Ein einföld spurning. Er Steingrímur viljalaust handbendi Franek landsstjóra AGS? Ástæða þess að ég spyr þessarar einföldu spurningar, er sú að án svars við henni get ég ekki myndað mér skoðun á því hvert VG stefnir. Þið hin í VG getið það kannski ekki ...
Pétur Örn

3. September 2009

FERĐALEIKHÚS OECD KOMIĐ

...Ef einstaklingarnir sem hingað komu til að setja upp gamanleikinn OECD Economic survey of Iceland 2009 bæru virðingu fyrir stofnuninni sem greiðir þeim launin hefðu þeir átt að biðjast afsökunar á skýrslum sínum nokkur undanfarin ár. Og þeir hefðu átt að taka íslenska gagnabrunna sína í gegn. Efnahagsúttektin er eitt, annað eru til frasakenndar og pólitískar ályktanir leikendanna um heilbrigðiskerfið íslenska, en ég treysti því Ögmundur, að þú takir syrpu á OECD mönnunum og íslenskum handlöngurum þeirra varðandi heilbrigðismálin.   Eitt er að þurfa að lifa við yfirþjóðlegt vald alþjóða kapítalismans í gervi IMF, annað að þurfa að hlusta á krítiklausa umfjöllun í nefskattsmiðlum Páls Magnússonar, en verst er að sjá fjármálaráðuneytið gapa athugasemdalaust upp í gin gamanleikaranna frá París...  
Ólína

2. September 2009

AGS OG HS

Nú birtist í fréttum að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn samþykki væntanlega ekki að íslenska ríkið eignist hlutinn í HS orku. Þessi sjóður hefur einmitt verið gagnrýndur mikið fyrir að einkavæða auðlindir. Það er öllum holt að rifja upp vatnsstríðið í Bólivíu og þátt sjóðsins í því, sjá ...
Kristín Þórarinsdóttir

2. September 2009

EKKI EINKAREKSTUR Á OKKAR KOSTNAĐ

...En hvað sem því líður þá á ríkið ekki að taka nokkurn þátt í uppbyggingu þessara stofnanna né styrkja þær með upphæðum. Einkarekstur á EKKI að vera borgaður af skattborgurum! Svo getum við talað um það hversu siðlegt það er að verðleggja líkamsparta,...
Ágúst

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta