Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

31. Ágúst 2009

HVER BORGAR REIKNINGINN?

Lán til Magma Energy; Þessi Magma-samningur minnir mig ískyggilega á "Cross-Border-Leasing" -samninga þá, sem þýzk bæjarfélög gerðu fyrir fáeinum árum við bandarísk fjárfestingarfélög til 99 ára til thess m. a. ad fá fé uppí skammtímaskuldir. Núna eru þessir samningar ( "linir" US dalir móti "harði" evru ) að sliga þessi sömu bæjarfélög ,- þau þurfa ad afskrifa milljarðaverdmæti ( ! ) Einsog segir í "credo" kapitalismans: " There is no such thing as a free lunch"
Kvedja,
O.M.

30. Ágúst 2009

HVAĐA FYRIRVARAR?

Plan Breta og AGS er einfalt:
1) Íslendingar skrifa undir ábyrgð að upphæð ca. 700 milljarðar króna
2) Íslendingar taka lán að upphæð 700 milljarðar króna hjá IMF
3) Lánið sem er geymt í Washington/London, er fryst, þar til við höfum staðið við ábyrgðina.
Fyrirvarar? Hvaða fyrirvarar? ..
Hreinn K

29. Ágúst 2009

HVERS VEGNA Á OR AĐ VEITA MAGMA LÁN?

... Ég hef verið að velta fyrir mér þessum tilboðum Magma Energy í orkufyrirtæki hér á landi. Allt í þessu máli minnir mann á aðvaranir sem heyrðust þegar að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kom hér inn í kjölfar hrunsins. Bent var á hættuna á því að við myndum selja auðlindir okkar ódýrt bara til að fá einhvern gjaldeyri inn og að sjóðurinn myndi þrýsta á stjórnvöld að samþykkja slíkar hugmyndir. Núna virðist þetta vera að gerast. Það getur varla talist eðlilegt að Orkuveita Reykjavíkur sé að lána stóran hluta kaupverðsins sem kúlulán til 7 ára. Á þeim tíma getur Magma blóðmjólkað fyrirtækið í formi arðgreiðslna og fengið aðgang að þeirri þekkingu sem búið er að byggja upp innan fyrirtækisins. Að 7 árum liðnum veit enginn hvað gerist sbr. reynsluna af ...
Kristján Gunnarsson

29. Ágúst 2009

VÍSITÖLUTENGING LAUNA/LÁNA

...Afhverju er ekki krafan um endurnýjun á vísitölutenginu launa til umræðu á þingi og hjá stéttarfélögunum í landinu? Ég er viss um að vísitölu tenging lána okkar yrði fljót að hverfa ef laun ættu að njóta sömu hækkana...
Guðjón

27. Ágúst 2009

RÉTTVÍSIN VÍSI VEGINN

Þó þú hafir ekki svarað mér fyrir kosningar fyrirspurn er ég bar til þín (þrátt fyrir loforð þar um) vil ég ekki erfa það við þig. Ekki nú, því vá stendur nú fyrir dyrum. Ögmundur Jónasson, enga þarftu yfirvegunina, einungis réttvísina - EKKI SAMÞYKKJA!
Þór Þórunnarson

27. Ágúst 2009

HVAR ER HUGREKKIĐ?

...Það er auðvelt að vera digurbarkalegur í netheimum, en þú og samflokksmenn þínir hafa sanna að þar endar hugrekkið, sbr. atkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB. Hvernig væri nú sýna að ég hafi ekki rétt fyrir mér!
Árni Einarsson

27. Ágúst 2009

UM FIDJI-EYJAR OG ALŢJÓĐA-GJALDEYRIS-SJÓĐINN

...Við verðum að vinna fyrir gjaldeirsforða þjóðarinnar með útflutningi og þjónustu. Það er glæpsamlegt að taka stórlán á okurvöxtum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til að skapa gervi gjaldeyrissjóð. Við eigum að hætta að snapa eftir lánum um alla heimsbyggðina til að borga lán af lánum og gróða blóðsuga!   Við eigum að reka Alþjóðagjaldeyrissjóðinn úr landi, strax! Eins og komið er eftir hræðilega óstjórn, eyðslu, sukk og svínarí undanfarin 20 ár sem hefur ekki lynt með núverandi stjórnvöldum, þá er þjóðin orðin fátæk, sárafátæk og verður svo á næstu árum! Þá er spurningin sem Ágúst Valves Jóhannesson svaraði ...
Helgi

27. Ágúst 2009

KJÓSA.IS

Hugsið um þetta og hugsið um Icesave ... Takið síðan undir með okkur á ...
Hjörtur Hjartarson

27. Ágúst 2009

Á AĐ VERA HAFIĐ YFIR FLOKKSPÓLITÍK

...það verður að nást þverpólitísk samstaða um málið. Bretar og Hollendingar eru háðir ríkisábyrgð, því ef hún fæst ekki fá þeir bara þá peninga sem eru í tryggingasjóði sem er bara brot af upphæðinni. Svo allt bull um að þeir muni ekki vilja semja við okkur er bara áróður frá ESB mönnum. Það er hagur Breta og Hollendinga semja við okkur ...
KF

26. Ágúst 2009

FLOKKAR SEM SIGRUĐU SJÁLFA SIG

Þór Saari, alþingismaður sagði í útvarpi að i afgreiðslu fjárlaganefndar fælist sigur Alþingis yfir framkvæmdavaldinu. Að mínum dómi lýsir sú skoðun full þröngum hugsanagangi...en afgreiðsla fjárlaganefndar á Icesavemálinu felur í sér tímamót í seinni tíma stjórnmálum þjóðarinnar. Forysta Sjálfstæðisflokksins þarf til dæmis að skilja og skynja að hún er líka sigurvegari í málinu...Sama gildir alla þá sem eiga þátt í lausninni. Utan frá séð hefur verið ánægjulegt að sjá framgöngu ykkar þingmanna VG, Guðbjartar Hannessonar frá Samfylkingu, Kristjáns Þórs Júlíussonar, Sjálfstæðisflokki, og síðast en ekki síst finnst mér að Pétur Blöndal, Sjálfstæðisflokki, eigi hrós skilið...
Ólína

26. Ágúst 2009

DĆMISAGA FRÁ FIDJI

...Þetta er mikil ábyrgð og ekki eftirsótt. Icesave er miklu mun stærra mál en svo að hægt sé að flokka það með hægri eða vinstri, enda svo komið í dag að almenningi gæti ekki verið meira saman um þessar skilgreiningar. Það sem hafa verður í huga þegar ákvörðun er tekin, er hvort þetta sé þjóðinni til farsældar eða ekki. Ekkert annað skiptir máli. Það virðist augljóst að VG telur þetta mál ekki stjórnarslitamál, sem það ekki er. Hins vegar skýtur nokkuð skökku við að Samfylkingin skuli líta svo á og hóta stjórnarslitum vegna þessa málsins, en það er í raun Samfylkingin sem hefur mestu að tapa í þessu máli öllu. ... en í þeim pósti ...er frásögn Tolstoy af örlögum Fidji búa, en þeir fengu trakteringar í dúr við frásögn Tolstoy af örlögum Fidji búa, en þeir fengu trakteringar í dúr við Icesave fyrir um 150 árum síðan. Það er vert að lesa þessa frásögn...
Jón Lárusson 

25. Ágúst 2009

BARÁTTUKVEĐJUR

Þú hefur staðið þig eins og hetja, hvikar ekki frá sannfæringu þinni og stefnuskrá flokksins í erfiðum málum. Ég sendi þér baráttukveðjur í harkinu.
Eva

25. Ágúst 2009

STUNDUM GOTT AĐ VERA ERFIĐUR

... það er nokkuð ljóst að ég er sennilega síðasti maður á Íslandi til að verða sammála þér í pólitík... allt þar til að það rann upp fyrir mér að líklega ertu búinn að vera rödd sannleikans í gegnum undanfarin ár. Mér er sérlega minnistætt er ég bísnaðist yfir kapítalistum grein þinni þar sem þú drógst fram samlíkingar okkar v. Argentínu. Sem ættborinn Sjálfstæðismaður er ég að finna að mitt hjarta slær með ...
Óskar Borg

25. Ágúst 2009

FORDĆMIS-GEFANDI?

...Það er athyglivert að í öllu Icesave fárinu hefur enginn vakið athygli á gömlu skuldamáli Evrópuþjóða við Bandaríkin, en þá á ég við stríðsskuldir stóru Evrópuríkjanna við Bandaríkin eftir síðari heimsstyrjöldina sem þau neituðu að greiða. Þetta olli miklum sárindum í samskiptum þessara þjóða, en Rússland var eina landið sem samþykkti að greiða hluta af skuldum sínum. Takið eftir, hluta af skuldunum....
Þetta mál gæti verið fordæmisgefandi.
Sigþór Guðmundsson

25. Ágúst 2009

SAMMÁLA

Viðtal við þig í Kastljósi þann 11/8.2009....Get ekki verið meira sammála þér. það þarf að setja þak á Icesave, við þurfum að geta staðið undir þessu.
BJÖRN A. Kristbjörnsson, smðiur

25. Ágúst 2009

OF MIKIL ÓVISSA

...Ég vil þakka þér fyrir Kastljósið 11. ágúst. Loksins talar einhver af viti í þessari ríkisstjórn. það er allt of mikil óvissa í þessu öllu svo að hægt sé að setja allar auðlindir þjóðarinnar að veði. 90% þjóðarinnar eru sammála þér, hinir bara halda að þeir eigi að vera sammála Samfylkingunni og hafa ekki kynnt sér málin. Þú ert ...
Bjarni Óskarsson

24. Ágúst 2009

ÁFRAM SÖMU STEFNU

Haltu þínu striki Ögmundur, Ég gæti ekki verið sáttari með hverning ég varði mínu atkvæði í síðustu kostningum. Þú ert algjörlega að standa undir væntingum og gott betur.
Sigþór Einar Halldórsson

24. Ágúst 2009

FORĐUMST MISSKILNING

Þetta hef ég soðið saman til að reyna að útskýra fyrir kunningjum hvers vegna ég tel skýringar Ragnars Hall á forgangi kröfuhafa rangar. Segjum að það væri enginn innistæðutryggingarsjóður. Innistæðueigendur eiga forgangskröfu, eru allir jafnréttháir og fá greitt í fyllingu tímans úr þrotabúinu í hlutfalli við sína kröfu og hve mikið innheimtist. Þe. segjum að það innheimtist 75% upp í samanlagðar forgangskröfur, þá myndi sá sem hefði lagt inn 20þús. evrur fá 15þús. og sá sem hefði lagt inn 1 milljón fá 750þús. Þetta er grundvallarregla í uppgjöri á þrotabúum. Nú tryggir íslenski innistæðutryggingarsjóðurinn upp að ca. 20 þús. evrum...
Sveinn Sveinsson.

23. Ágúst 2009

YKKAR AĐ SÝNA KJARK

...Það er ykkar að sýna þann kjark að taka þessa ákvörðun fyrir hönd þjóðarinnar í stað þess að vera í bullandi stjórnarandstöðu og hafna samningnum og koma okkur í enn meiri erfiðleika en ella. Ekki spila eftir skoðanakönnunum frá degi til dags eða blogg-röfli. Við höfum tvo slæma kosti og sá verri er að hafna samningnum. Það hefur nánast engin umræða farið fram um það hvað tekur við ef samningurinn verður felldur. Líklega má búast við að stóru erlendu lánin verði fryst. Vaxtaálagið helst áfram mjög hátt en það þýðir gríðarlegan útgjaldaauka fyrir þjóðfélagið næstu misserin. Orðspor landsins og traust bíður mikla hnekki. Það er eins og sumir haldi að það sé ókeypis staða að hafna samningnum og taka nokkra mánuði í þá áhættu að reyna að ná betri samningi. Gleyma því að ...
Kristján Gunnarsson

22. Ágúst 2009

EINSTAKLINGS-HYGGJU SPRENGJUMAĐUR?

Allar vinstri stjórnir hafa sprengt sig upp sjálfar. Of margir einstaklingshyggjuenn eru innan hreyfingarinnar til þess að hún geti unnið saman sem heild. Þetta er spurning um hver verður það í þetta skiptið sem gengur til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og fellir félagshyggjustjórnina sem fólkið í landinu bindur svo miklar vonir við. Það virðist vera þú í þetta skiptið. Þú Bjartur á Grímshaganum. Þetta er eins og að vera aðdáandi að lélegu knattspyrnuliði...
Natan

22. Ágúst 2009

ORKUMÁLIN OG ÁBYRGĐIN

S.O.S Ætla Vinstri grænir að láta það gerast á sinni vakt að orkufyrirtæki verði einkavædd?
Kristín Þórarinsdóttir

21. Ágúst 2009

VARĐANDI HÚSNĆĐISMÁL: HVAR ERU RÖKIN?

...Þá kemur það í ljós að þetta eru í flestum tilfellum eignir sem Íbúðalánasjóður eða bankarnir hafa leyst til sín, losnað við ábúendur og hafa ENGAN vilja til að leigja út og fá þannig inn einhvern pening til að standa straum af þeim kostnaði sem því óneitanlega fylgir að halda úti fasteign!!! ...Að fyrirtæki og stofnanir í eigu þegna þessa lands fái athugasemdalaust að tapa stórfé með því að neita eigendum sínum um afnot af eignum sem eru með réttu sameign íslensku þjóðarinnar. Hvernig má þetta vera ??? Ef einhver aðili er tilbúinn til og getur borgað á bilinu eina til tvær milljónir á ári fyrir afnot af húsnæði sem engum nýtist, af hverju er það ekki hægt? Og af hverju samræmist það ekki verklagsreglum þessara stofnana? Er afkoma þessara stofnana svona gríðarlega góð að það sé réttlætanlegt að þær hafni milljóna eða tugmilljóna innkomu í hverjum mánuði. Er verið að fíflast með þjóðina. Er kreppan bara hjá okkur launþegum og bótaþegum?? Gilda ekki sömu lögmál um fjármálastofnanir í eigu ríkisins og ...
 Gunnar I. Árnason

17. Ágúst 2009

FREKAR VIL ÉG VERA FRJÁLS ÖREIGI EN SKULDUM VAFINN ŢRĆLL!

...Niðurstaða Icesave ráðgátunar var á endanum sú að stjórnmálaforingjar Íslands ætla að láta þjóð sína, hina tryggu kjósendur sína borga brúsann fyrir endemis brjálaða frjálshyggju síðustu ára í boði 80% Alþingis og stjórnkerfis ríkissins. Nú eigum við erfiðara með að benda á Sjálfstæðismenn og segja, ja það voru þeir sem komu okkur í þessa klípu því nú hefur nýja vinstri stjórnin sem er reyndar ekki vinstri stjórn staðfest ásamt leppum sínum á Alþingi það að þjóðin eigi að borga... með fyrirvörum. Þessir fyrirvarar eru reyndar frekar skondnir því það verður að vera hagvöxtur í landinu til að við borgum, gott og vel. Segjum svo að ég sé með 100000 kall útborgað á mánuði og kaupi hús sem ég á að borga 30000 krónur af mánaðarlega. Hinsvegar hef ég gert samning við bankann minn að ég muni ekki hefja greiðslur fyrr en ég hef ...
Ágúst Valves Jóhannesson

10. Ágúst 2009

GERENDUR OG GREIĐENDUR

...Og til hvers eruð þið að ræða þetta ICEsave mál við fulltrúa flokkanna sem bjuggu vandamálið til með afskiptaleysi sínu í opinberum embættum? Þeir eru ekki mótparturinn, nema náttúrulega menn telji að Íslendingar séu allir í sama báti og ættu að standa sameinaðir gegn hinum vondu útlendingum, hættunni að utan. Mótparturinn er Gordon Brown, Alister hinn elskulegi, Wouter Bos, Van der Hoeven, og Dossier Taken. Þetta er fólkið sem þið ættuð að vera að tala við. Þetta er fólkið sem las upp til agna grein Evu Joly á dögunum. Og Nicolas Sarkosi hann las hana. Og flokkssystkin íslenska forsætisráðherrans á alþjóðavettvangi, þau José Luis Rodríges Zapatero og Elena Salgado, þau lásu þetta örugglega skelfingu lostin. Þetta er fólkið sem þið ...
Ólína

7. Ágúst 2009

INDRIĐI TOPPAR PER

Undarlegt þótti mér að lesa um það í Morgunblaðinu í morgun að Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, hefði skrifað bresku samninganefndinni til að spyrja hvort sú gagnrýni Ragnars Hall og annarra íslenskra lögmanna að Icesave samningurinn væri Bretum í hag og á kostnað Íslendinga hvað varðar skipti þrotabús, ætti nokkuð við rök að styðjast! Með öðrum orðum íslenskur samninganefndarmaður leyfir sér að spyrja gagnaðila okkar leiðandi spurninga til að veikja málstað Íslands á sama tíma og Alþingi ræðir fyrirvara til að vernda íslenska hagsmuni. Mér þótti nóg að heyra um Danann sem dreginn hafði verið upp úr einhverri skúffu í Brussel til að vera íslensku ...
Grímur

7. Ágúst 2009

GAT EKKI VERIĐ BETRI

...Svona rétt til gamans, eftir að horft var á kastljósþátt í gærkv.. Ósköp var nafni góður í gær, gat ekki verið betri. Eitt er víst að enginn hlær á okkar stjórnarsetri....... (vandinn svo mikill sem við er að kljást) Farnist ykkur sem best...
Steingrímur

7. Ágúst 2009

BJÖRGUM OKKUR SJÁLF

...Þrjú mestu áföllin eru fyrir utan siðleysið: 1. Að seðlabankinn tók ekki veð í útlánum bankanna eins og aðrir seðlabankar gerðu. Tap upp á um 300 milljarða. 2. Að ákveðið var að greiða inn í peningamarkaðssjóðina þrátt fyrir að flestir þar inni væru að hámarka arðsemi með meiri áhættu en að liggja með peninga á venjulegum bókum. Þar var tap upp á 200 milljarða. 3. Er svo spurningin um Icesave. NB. Evrópubankinn mun ekki bjarga okkur þó svo að ESB sinnar telji svo vera. Þar verður ekkert lánað án þess að það kosti mikið á móti skv. óformlegu spjalli við AGS mann...Svo er annað - ef lífeyrissjóðir eiga að lána Landsvirkjun þá vill alþjóð sjá að...
Áslaug

5. Ágúst 2009

SKYGGNUMST UTANTJALDS

 ...Í ljósi þess að helstu nágrannaþjóðir okkar hafa ákveðið að fara þá leið að kúga og misþyrma okkur hérna fólkinu upp á litla klakanum hefur þá ekki runnið sú hugsun upp hjá þér að tala fyrir því að leita á náðir annarra utantjalds ríkja á borð við Kína og Venesúela til að fá lán án milligöngu alþjóðalögreglu kapítalismans? Hefur þú áhuga á að tala fyrir þessu?
Ágúst Valves Jóhannesson

4. Ágúst 2009

BLEKKINGAR GYLFA

...Allir sem ég þekki hafa mestar áhyggjur af afkomu ríkissjóðs. Mun okkur takast að koma heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu heilu til næstu kynslóða? Eins og áður skautar Gylfi mjög létt yfir þetta. Hann segir að þessar Icesave skuldir séu nú ekki aðalvandi ríkissjóðs og lætur þar með að því liggja að fyrst aðrar skuldir séu jafnvel meiri, sé Icesave skuldin léttvæg. ...Þessi blekkingaleikur Gylfa þjónar vafalaust tilgangi sem hann telur sannleikanum æðri....Gylfi gagnrýndi stjórnvöld harðlega bæði í ræðu og riti í aðdraganda hrunsins fyrir að tala upp gengi bankanna og láta sem allt væri í stakasta lagi, þótt þau vissu betur. Samt vissi hann að um leið og fólk héldi að bankarnir væru að falla þá myndu þeir falla eins og hann sagði sjálfur efnislega í fyrirlestri sem birtur er á heimasíðu Háskólans. En blekkingaleikurinn á ekki fremur rétt á sér nú en hann átti þá. Við þurfum að komast út úr þessum þrengingum með sameiginlegu meðvituðu átaki og fyrsta skilyrðið er að við verðum upplýst um stöðuna af raunsæi og heiðarleika...
Lína

3. Ágúst 2009

VANDI FYLGIR VEGSEMD HVERRI

Nánasti samstarfsmaður forsætisráðherra gagnrýndi um helgina stórgóða grein Evu Joly um bága stöðu þjóðarinnar gagnvart kröfum, sem ríkisstjórnir nokkurra landa hafa gert á íslensk stjórnvöld, mestan part vegna þess að óvitarnir íslensk stjóprnvöld komu ekki í veg fyrir að nokkrir Heimdellingar byggju til peningalega svikamyllu. Nánasti samstarfsmaðurinn gagnrýndi málflutning Evu Joly efnislega, gerði lítið úr kunnáttu hennar, og dró í efa gagnsemi greinarinnar fyrir íslenska þjóð. Sá sem fremstur er á sviði almannatengsla, Jón Hákon Magnússon, þrautreyndur og þekktur fyrir störf sín á alþjóðlegum vettvangi, slökkti með nokkrum setningum pent í þessari reykbombu...
Hafsteinn

2. Ágúst 2009

MEINLEG MISHEYRN

Franek Rozadowsky, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi, kom fram í hádegisfréttum RÚV í dag. Hann talaði um nauðsyn þess fyrir Íslendinga að efla gjaldeyrisforða sinn með lántökum frá AGS, Norðurlöndum og öðrum "gjafaþjóðum", " donors". Er AGS að gefa okkur eitthvað? Eru Norðurlöndin að gefa okkur eitthvað? Eru Pólverjar að gefa okkur eitthvað? Eina þjóðin sem hefur sýnt Íslendingum alvöru gjafmildi og veðrskulda að vera kallaðir "donors", "gefendur" eru Færeyingar. Allar aðrar þjóðir eru með okkur á háum vöxtum og stilla okkur auk þess upp við vegg vegna Icesave. Fyrst hélt ég að Franek ...
Jóel A.

2. Ágúst 2009

HVAĐ HEFUR BREYST ÖGMUNDUR

Ef maður ætti að nefna 3 boðorð Ögmundar Jónassonar út frá pólitísku lífi hans væri eitt þessara boðorða; Þú skalt ekki einkavæða. Nú stendur til að bjóða út ræstinguna í LSH Fossvogi. Einnig stendur til að einkavæða eldhús LSH. Þar sem þetta er þinn málaflokkur og á þína ábyrgð getur þú þá ...
Villi

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta