Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

30. Maí 2009

GANGI YKKUR ILLA!

Ég vill spyrja þig af því hvernig þér dettur í hug að setja á sykurskatt? Gerirðu þér í alvörunni ekki grein fyrir því að þá eykst verðbólgan og í leiðinni lánin sem eru jú verðtryggð? Afhverju eiga svo þeir sem eru að fara vel með tennurnar og drekka gos í hófi að verða fyrir svona skatti, alltaf er það nú þannig hjá ykkur vinstri mönnum að þeir duglegu uppskera aldrei en þeir lötu lifa í velsæld. Í Guðanna bænum prófaðu að hugsa aðeins. Eða já alveg rétt, þarft kannski að komast til Akureyrar til þess? Getið eflaust eytt öðrum 400.000 kalli í gistingu og flug þangað í stað þess að ...
reiður íslendingur

25. Maí 2009

FORVARNIR ERU LAUSNIN

...Hefur þú hugsað málið til enda Ögmundur minn? að setja á sérstakan sykurskatt til að auka tannheilsu barna er álíka áhrifalítið og að setja skatt á höfuðverkja töflur til að minka áfengisneyslu eða skatt á sprautunálar til að minka eiturlyfjaneyslu. Sykurskattur mun hækka neysluvísitöluna og þar með lánin okkar! Framleiðendur eins og Mjólkursamsalan og Vífilfell og fl. munu nota tækifærið og hækka verð á sykruðum vörum en um leið auka vöruúrvalið á eiturvörum með sætuefni (aspartam) já eiturefni! Nú þegar er nógu erfitt að kaupa mjólkurvörur og t.d. ávaxtasafa og annað án þess að þeir innihaldi þetta gerviefni. Og það er sannað að þó þeir sem eru að drekka þessa sykurlausu gosdrykki skemma tennur sýnar jafn mikið, plús þær ...
Jónas Björgvinsson,

24. Maí 2009

HUGSUM Í ŢÁGU ŢJÓĐARINNAR

...Ég sé undarlegan pistil á síðunni, sem kemur jú fyrir, þó vefsíðan þín sé yfirleitt afar góð, af mínum smekk!  Þessi grein er með undirskriftinni Rósa Luxumburg, en ég hélt að það glæpakvendi væri steindautt fyrir löngu!
Rósa lýsir öllum núverandi stjórnmálakerfum sem handónýtum og almenningslýðnum til ógæfu, sem ég verð að vera sammála henni um að miklu leyti, en hún nefnir þó ekki þau kerfi sem hún barðist gegn og varð henni að bana, né það kerfi sem hún barðist fyrir og hefur nú liðið undir lok með slæman orðstír, sem sé alþjóðakommúnismann. Ég hef oft bent á að ...
Úlfur

24. Maí 2009

FALLINN Í SYKURGRYFJUNA?

Sykurskatturinn, ég bara trúi þessu ekki á þig. Ertu virkilega fallinn í þessa gryfju? Á að fara að ala alþýðuna upp í gegnum skattinn? Er þetta það sem vinstri flokkarnir eru að vinna að? Hvað með hrunið? Er það alþýðunni að kenna? Settu frekar "sykurskatt" á elítuna og þá fylgi ég þér!!!
Elisabet Guðbjörnsdóttir

23. Maí 2009

YFIRRÁĐIN YFIR HINUM EFNAMINNI

Lýðheilsa er þáttur í menningu þjóðar, ekki málsgrein í skattalögum. Stéttabaráttan er dauð og allir sammála um að verkefni stjórnmálanna,sé að stýra hegðun lágstéttanna og gæta þess að þrælarnir geti mætt í vinnuna, borgað vextina fyrir kapítalið. Og þá snýst umræðan eðlilega um það sem á ensku kallast "social engineering". Félags-verkfræði. Slík verkfræði beinist ávallt að láglaunafólki og hegðun þess. Það eru hinir efnaminni, sem reykja mest, borða óholla fæðu, stunda smáglæpi og eiga við alls kyns hegðunarvandamál að stríða. Hæfnissamfélagið (meritocracy), sem er hin hliðin á félagsverkfræðinni, og gengur í stuttu máli út á það, að ...
Rósa Luxemburg

23. Maí 2009

INGIBJÖRG SÓLRÚN LEIĐI

Það er í mínum huga að rétti einstaklingurinn til að taka við starfi aðalsamningamanns Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri og utanríkisráðherra. Það er að því gefnu að Alþingi samþykki þingsályktunartillögu núverandi utanríksráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, og að ISG hafi heilsu til starfans. Hvorugt má gefa sér fyrirfram og hef ég ekki kannað grundvöll þess atarna. Mikilvægt er að pólitísk ábyrgð sé sett í öndvegi þegar Ísland hyggst ...
Kjartan Emil Sigurðsson

17. Maí 2009

ER NÝJA RÍKISSTJÓRNIN MEĐ copy/paste PÓLITÍK FRÁ ESB?

Þegar Evrópusambandið kynnti Lissabon-áætlun sína árið 2000 var eitt helsta slagorðið að „Evrópa ætti að verða samkeppnishæfasta efnahagseining heims árið 2010".  Ekki er nú útlit fyrir að það gangi eftir og vandséð hvað ESB hafði út úr slagorðinu annað en afsökun fyrir þá sem trúðu á markaðslausnir og að samkeppni væri leiðin að markinu til að keyra þá stefnu sína yfir önnur gildi. Því hefur ESB á síðasta áratug misst sjónar á öðrum markmiðum sem einnig voru sett í sambandi við Lissabon-áætlunina eins og t.d. umhverfis-og félagslegum markmiðum.
Nú virðist hin nýja ríkisstjórn Íslands ætla að falla í sömu gryfju, en eftir fyrsta ríkisstjórnarfundinn var kynnt ný sóknaráætlun, þar sem það er „eitt af markmiðum ríkisstjórnarinnar að Ísland verði orðið eitt af tíu samkeppnishæfustu ríkjum heims árið 2020." Þetta líkist óþægilega mikið ....
Helgi

16. Maí 2009

NÚ ŢARF AĐ UPPLÝSA ŢJÓĐINA

Ég er Íslendingur búsettur í Vantaa, Finnlandi, ég kaus v-græna vegna þess að  við erum á móti aðild að Evrópusambandinu, hér er linkur á síðu hjá Ríkissjónvarpinu í Finnlandi þar sem skoðanir Finna á sambandinu eru aðalatriðið.  Mín skoðun er sú að Finnum, venjulegu fólki, finnst evrópska regluverkið vera þrúgandi og smámunasamt og eru óteljandi dæmi þess.   Haltu áfram þínu góða hugsjónastarfi.  Nú þarf að upplýsa þjóðina um alla þá galla sem fylgja Evrópusambandinu.  T.d. mín ástríða....
Móses Helgi Halldórsson

14. Maí 2009

KVEĐJA FRÁ BANNÁRUNUM

Sumir halda að hægt sé að banna burt fíknir og skattleggja burt ósiði. Þetta hefur oft verið reynt, en niðurstaðan hefur alltaf verið sú að gera fíknir að tekjulind glæpamanna og ósiðina að tekjustofni fyrir ríkið og þrúga hina efnaminni.
Al Capone

13. Maí 2009

MINNUGUR ORĐA ATLA

Ég verð bara að viðurkenna það að mér varð ansi heitt í hamsi við að lesa svör Gordons Brown í fyrirspurnatíma Breska þingsins varðandi Icesafe reikningana og hvenær þessir óreiðugemsar uppi á Fróni yrðu látnir greiða skuldirnar. Svarið var einfalt: Hann ætlar að ræða þau mál við AGS ekki íslensku ríkisstjórnina. Hvílík smánun við fullvalda ríki að fara til AGS og ræða þar við stjórnarmenn en ekki okkur sjálf. Hann virtist svo kokhraustur í svörum sínum að ég þykist viss um að ... Ég má bara ekki hugsa það alveg til enda minnugur varnaðarorða Atla Gíslasonar í ræðustól Alþingis með umsögn réttarfarsnefndar í höndunum við setningu Neyðarlaganna.
Þór Gunnlaugsson

12. Maí 2009

BRESKA HEIMSVELDIĐ HEFUR ENGU GLEYMT

Gott hjá þér Ögmundur að benda á hvað UK og Gordon stendur fyrir. Breska heimsveldið er ekki dautt, hefur aðeins skipt um ham, er nú London City og fjármálaveldið. Við eigum að passa okkur mjög vel á breskum yfirvöldum, því að þau reyna að kúga okkur eins og þau fara með þjóðir í Afríku og víðar. Besta upplýsingasíðan er ...
Birgir Rúnar Sæmundsson

12. Maí 2009

UM RÁĐHERRABÍLA OG RÁĐHERRA-KOSTNAĐ

Mér leikur forvitni á að vita, hvort þú notar ráðherrabíl á kostnað almennings, og ef svo er, er hann einn af þeim gljáfögru svörtu þýsku eðalbifreiðum sem oft sjást fyrir utan ráðuneyti landsins og alþingi? Að auki langar mig að vita, hefur beinn kostnaður vegna erinda og starfa heilbrigðisráðherra minnkað eftir að þú tókst við heilbrigðisráðuneytinu?
Björgvin Sigurðarson

10. Maí 2009

SAMLOKUR, SÍBROTA- OG TVÍBROTAMENN

Fréttablaðið greinir frá því að síbrotamaður hafi verið hnepptur í fangelsi eftir að Hæstiréttur staðfesti dóm undirréttar um 3 ára fangelsi. Svokallaður síbrotamaður á langan brotaferil og voru ákæruatriðin mörg, m.a. brot gegn valdstjórninni. Einn fjölmargra ákæruliða var fimmti liður. Hann hljóðar svo: "Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 3. október 2007, í verslun 11-11 að Laugavegi 116 í Reykjavík, stolið Júmbó samloku og drykkjarjógúrti, samtals að andvirði kr. 451, með því að setja umræddar vörur í vasa á yfirhöfn og ganga rakleiðis út úr versluninni án þess að greiða fyrir þær....Nú geri ég ekki lítið úr síbrotum mannanna, en óneitanlega leitar hugurinn til hins sérstaka saksóknara sem átti að taka á hugsanlegum glæpamönnum, sem settu íslensku þjóðina á hausinn og ...
Hafsteinn

9. Maí 2009

HEFJUM KÖNNUNAR-VIĐRĆĐUR VIĐ ESB

Fjölmiðlar keppast nú við að túlka kosningaúrslitin sem sigur Evrópusambandssinna en kosningarnar snérust ekki um ESB, heldur þá alvarlegu stöðu sem þjóðin er komin í og ekki síður hvernig samfélag við viljum móta í framhaldi af því. Um það snérust kosningarnar. Engu að síður tókst fjölmiðlum að draga upp þá mynd að hér færi fram einhverskonar boðhlaup til Brussel. ....Því legg ég til að ríkisstjórnin ef ekki allir þingflokkar sameinist um að óska eftir könnunarviðræðum við Evrópusambandið svo fljótt sem auðið er. Þær eru ekki jafn formlegar og beinar aðildarviðræður sem hefði þann kost að ...
Ragnar A. Þórsson

7. Maí 2009

MIKILVĆGUSTU VERKEFNIN

Einkavæðing sjávarauðlindanna var versta slys Íslandssögunnar síðan 1262. Við hana hrundi stór hluti landsbyggðarinnar og valdið þjappaðist á fáa staði. Þetta varð til þess að auðvelda aðgang erlends auðvalds að Íslandi. Þessari þróun er ekki lokið. Margir hafa bent á að Samfylkingin er ekki vinstri flokkur. Að minnsta kosti ekki í gjörðum sínum. Hún er flokkur sem er stjórnað af menntamönnum og þjónar fyrst og fremst kapítali. Vinstri Græn eru eini flokkurinn sem er hallur undir smárekstur. Það sem mestu máli skiptir í samstarfi við Samfylkinguna er að...
BJ

7. Maí 2009

"SÉRSTÖK MEĐHÖNDLUN"

Gegnheill samtíðarmaður, Ollí Rehn, finnskur stækkunarstjóri ESB, útskýrði fyrir Íslendingum og aðjúnktum há-og sveitaskóla, að Íslendingar væru takk velkomnir í ESB. Bara að sækja og semja, án þess að gera sér vonir um sérstaka meðhöndlun. Þetta síðastnefnda "sérstök meðhöndlun" verður kannski lykilatriðið í skilningi þjóðarinnar á hvað gott er og hvað slæmt í samningum við ESB.
Íslensk stjórnvöld, íslensk yfirstétt eða landeigendur hafa í nokkur hundruð ára sögu landsins ávalt talið sig eiga rétt á og hafa krafist "sérstakrar meðhöndlunar" í samskiptum við útlendinga. Þegar grannt er skoðað einkenndust samskipti íslenskra fyrirsvarsmanna við Dani öðrum þræði af þessu. Samskiptin við frændþjóðirnar á Norðurlöndum, við Breta, við Bandaríkjamenn, afstaða íslenskra stjórnvalda til Kyoto, alls staðar er þess ...
Ólína

4. Maí 2009

RÍKISSTJÓRN FJÁRMAGNSINS

Af hverju er í lagi að:
-bæta innistæðueigendum skaða við hrun bankanna
-bæta eigendum peningamarkaðsreikninga skaða
-lána gjaldþrota fjármálafyrirtækjum á 2% vöxtum

En of dýrt að
-bæta íbúðakaupendum tjón vegna bankahrunsins
-lækka vexti á lánum til almennings og fyrirtækja
-reka ríkissjóð með halla með kreppan gengur yfir

Ráðstafanir ríkisins síðustu 7 mánuði bera öll einkenni þess að verið sé að vernda fjármagnið (sparifjáreigendur, lífeyrissjóði og aðra fjármagnseigendur) og ganga á hagsmuni skuldara (fólk í rekstri og fólk í fjárfestingum). Ástæðan er fyrst  og fremst....
Hreinn K

3. Maí 2009

FORSETAR OG ŢJÓĐ

Það var baulað á forseta ASÍ á Austurvelli. Þeir sem bauluðu voru ekki einungis anarkistar. Tvennt virtist framkalla baulið. Fullyrðingin um að ASÍ hefði verið í fararbroddi þeirra sem vöruðu við útrás óreiðumannanna sem jafnframt voru beint og óbeint forystumenn í samtökum atvinnurekenda og svo ótímabær barátta forsetans fyrir inngöngu í ESB. ASÍ virðist hafa keyrt framúr félagsmönnum sínum í seinna tilvikinu. Ræða forsetans og auglýsingar ASÍ í umboði félagsmanna sinna eru dæmi um þetta. Tökum auglýsinguna fyrst. Þar stendur: „Göngum til aðildarviðræðna við ESB og leggjum varanlegan grunn að stöðugleika og uppbyggingu hér á landi."
Göngum til aðildarviðræðna segir hér. Gott og vel, fyrir aðildarviðræðum eru gild rök. Viðræður eru hins vegar ekki samkomulag ESB og Íslands, endanleg niðurstaða viðræðna. Af sjálfu leiðir að ...
Ólína

2. Maí 2009

ER ENGU NĆR

...Vísukorn eftir silfur Egils sl.sunnudag.

Mér sýnist þú manna sættir
sá ykkur Össur í gær.
Þetta eru góðir þættir
þó ég sé engu nær.

Steingrímur

1. Maí 2009

ASÍ HEFUR EKKI MITT UMBOĐ Í EVRÓPUMÁLUM

...Svo kom öll romsan eina ferðina enn um að þeir Vilhjálmur vildu ganga í Evrópusambandið til þess að lækka vexti, matvælaverð og ég veit ekki hvað. Gylfi Arnbjörnsson má tala fyrir sína hönd og Vilhjálmur Egilsson má halda áfram að tala fyrir sína hönd og Verslunarráðsins einsog hann gerði árum saman. En þeir hafa ekki rétt á því að tala fyrir mig þegar kemur að niðurskurði í velferðarkerfinu og inngöngu í Evrópusambandið. Ég mætti ekki á Austurvöll í dag til að hlusta á svona tal í mínu nafni! Í kvöldfréttum var svo Vilhjálmur mættur með sama textann og Gylfi, orðréttan heyrðist mér, um niðurskurðinn...  
Jóel A. 

1. Maí 2009

ESB FĆRIR KVÓTANN ÚR LANDI

Olli Rehn yfirmaður stækkunarmála ESB, hefur tilkynnt það að Íslendingar fái hraðferð inní ESB, en þeir muni ekki njóta neinna sérkjara. Og nýjustu fréttir frá ESB segja að líklega muni sambandið leyfa kvótasölu. Þar með kollvarpast áætlun núverandi ríkisstjórnar sem hugðist innkalla íslenska kvótann um 5% á ári næstu 20 árin.
Með aðild Íslands að ESB væri þá íslenskum kvótaeigendum hollast að selja hæstbjóðandi útlendingum strax allan...
Guðrún Sæmundsdóttir

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta