Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

29. Apríl 2009

ANNAĐ MÁ EKKI GLEYMAST Í ARGAŢRASI UM ESB

Hún Ólina er með góða grein hér á síðunni en mér sýnist að hún leggi til að stjórnarandstaðan á Alþingi haldi þá uppi málþófi í allt sumar um hvort senda eigi inn blað og biðja um fund og sjá hvað kemur út úr honum eða ekki og allt annað gleymist í því argaþrasi. Þeir sem hafa lesið MBL á sunnudag sjá í hve hrikalegri stöðu Spánn er í sem Evruland og hvar er nú ...
Þór Gunnlaugsson

29. Apríl 2009

LEYSUM ALŢINGI ÚR ÁLÖGUM

...Tæknileg útfærsla af þessu tagi felur í sér að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er leyst úr álögum. Hún gæti þá greitt atkvæði með aðildarumsókn í samræmi við sannfæringu sína og jafnvel Bjarni Benediktsson og nokkrir aðrir fylgismenn Sjálfstæðisflokksins. Siv Friðleifsdóttir gæti slegist i þennan hóp og fjölmargir þingmenn sem vilja aðildarumsókn í laumi, en eru ekki vanir að geta fylgt sannfæringu sinni. Eftir gætum við staðið með skýran vilja Alþingis í afstöðunni til aðildarumsóknar. Er það ekki tilbrigði við þessa hugsun sem einmitt kom fram í búsáhaldabyltingunni? Er þetta ekki lýðræðisvæðing?
Aðjúnkt í sveitaskóla heldur því fram að þetta sé ...
Ólína

28. Apríl 2009

ŢAĐ Á AĐ KJÓSA UM ESB

Að mínu mati er nauðsynlegt að fara í viðræður við EB. Ef samningar nást og þjóðin fær að kjósa um þá, er lýðræðinu fullnægt betur en oft áður. Það sögulega tækifæri sem nú er til staðar felst ekki aðeins í því að aðeins 2 félagshyggjuflokkar geti myndað ríkisstjórn heldur einnig í því að formenn beggja þessara flokka eru félagshyggjumenn ...
pk

26. Apríl 2009

RADDIR VORSINS TALA

...Þjóðin fær ykkur ríkisstjórnarflokkunum aukverkefnið, að semja af skynsemi um ESB. Ykkur ber líka að taka tillit til þeirra óska. Völd ykkar hafiði frá þjóðinni, þessum þúsundum sem kusu ykkur nú fremur en frá 25 manna flokksráði. Hafðu það hugfast. Stattu vörð um þá lýðræðishefð sem þú hefur hingað til haldið fram. Þið þurfið að mynda ríkisstjórnina hratt, þið hafið ekki langan tíma. Ég held að þjóðin vilji fyrst og fremst sjá ykkur í vinnugallanum. Annars er ég ánægð með útkomu VG. Það er nefnilega þannig að við erum sjö vinkonur. Í síðustu viku komum við saman. Allar ætluðum við að kjósa VG. Í gærkvöld horfðum við saman á leiðtogaspjallið í sjónvarpinu. Þá höfðu tvær okkar þegar ákveðið að kjósa Samfylkinguna og ekki VG. Ástæðan var...
Ólína

25. Apríl 2009

HVAĐ SKIIPTIR ATVKVĆĐAVĆGIĐ MIKLU MÁLI?

Nú styttist í kosnigar og er ég enn óákveðinn. Mig langar að vita áður en kosið er hvort það breyti miklu hvort VG fái fleiri atkvæði en Samfylkingin þegar það verður mynduð ríkisstjórn bæði málefnalega og hver fær hvaða ráðaneyti? Allavega finnst mér Samfylkingin of æst í að komast í ESB og er ég hræddur um að þau vilji flýta sér of mikið. Ég eins og þú vil ekki missa okkar dýrmæta fisk í eign manna sem eru ekki íslenskir eða fylgja ekki íslenskum lögum. Einnig langar mig að vita hvað þér finnst um 20% hugmynd Framsóknar? Þótt ég sé nú að trufla þig svona í miðri kosnigabarátu þá langar mig að vita hvað þér finnst um þessa ofurstyrki sem Sjáfstæðuflokkurinn fékk og ...
Stefán

25. Apríl 2009

UM ÁBYRGĐ HEILBRIGĐIS-RÁĐHERRA

Hér á Húsavík er nýlokinni styrktarsýningu fyrir Hörpu Sóleyju Kristjánsdóttur, 15 ára MS-sjúklings sem fjallað var um í DV nú ekki fyrir löngu. Í lok mars svaraðir þú fyrirspurn á Alþingi um að 50 manns hafi fengið Tysabri lyfjagjöf, og meðalaldur þessa fólks væri 45,5 ár. Hvernig stendur á því að 15 ára stelpa fái neitun, á meðan gamalt fólk fær lyfið sem á kannski lítið eftir? Er þetta heilbriðgiðsstefna Vinstri-Grænna? Sem heilbrigðisráðherra hlýtur að vera eitthvað sem þú ...
Björgvin Friðbjarnarson

25. Apríl 2009

OLÍULEIT ER Í LAGI

....Sjálf er ég á móti álverum og hef alltaf verið, en ég get ekki séð að olíuleit með nýjustu tækni geti skaðað umhverfið, ofan - eða neðansjávar. En t.d. í dag sagði ung vinkona mín, að nú væri hún alveg mát , " ég sem ætlaði að kjósa VG er hætt við ...Enn og aftur , mínar bestu óskir um gott gengi !
Edda

24. Apríl 2009

ŢÚ FĆRĐ PRIK!

Það var athyglisverð gagnrýni í bréfi frá Arnari Sigurðssyni um Seðlabankann. Skýringar Seðlabankans á vaxtaákvörðunum sínum eru ekki trúverðugar og hafi þeirra hagfræði einhvern tíman fengið háa einkunn, þá hefur það verið í háskóla en ekki í praxís. Ég get ekki látið hjá líða að gefa þér prik fyrir gagnrýni þína á Alþingi þegar Seðlabankalögin voru sett 2001, sem þú vitnar í í svari þínu. Nú eru þau varnaðarorð orðin að áhrínsorðum. Þú varar við því að láta hið pólitíska vald af hendi, með svo afgerandi hætti sem í lögunum fólst. Nú er svo komið að þessi lög...
Hreinn K

23. Apríl 2009

RĆNINGJAR Í BOĐI SJÁLFSTĆĐIS-FLOKKSINS

.Það var kærkomin hressing að mæta í dag, á sumardaginn fyrsta, í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal þar sem fram fór fjölskylduhátíð FL-okksins... það var margt um manninn og hug og maga var konunglega skemmt, m.a. með pylsum og kóka kóla og síðast en ekki síst ræningjunum hugljúfu úr Kardemommubænum. Ég fann fyrir einhverri hugarró í sjálfstæðismanninum mínum gamla góða þegar ég fylgdist með kúnstum smákrimmanna Kaspers, Jaspers og Jónatans - húðaletingjanna sem aldrei nenntu að stela nema til daglegra þarfa og miðað við lágmarks framfærsluvísitölu. Gott að þessir heiðursmenn voru ekki uppi á tímum...
Þjóðólfur

23. Apríl 2009

RÉTTMĆT OG SKILJANLEG GAGNRÝNI

Ágætar spurningar hjá þér um vaxtastefnuna hér á landi. Spurning þeirra sem fylgjast í forundran með vaxtaákvörðun peninganefndar og málflutningi seðlabankastjóra er sú hvers vegna ríkisstjórnin breytti ekki um peningastefnu með sama hraða og skipt var um bankastjóra? Er núverandi ríkisstjórn etv ánægð með afrakstur verðbólgumarkmiðsins síðan 2001? Hvernig stendur á því að ...
Arnar Sigurðsson

23. Apríl 2009

TIL ER VALKOSTUR VIĐ VERSTA KOSTINN

OHF. er versta rekstrarform sem fundið hefur verið upp sagði Brian Mikkelsen, þáverandi menntamálaráðherra Dana, árið 2003. Það er rekstrarform þar sem hvorki er lýðræðislegt né markaðslegt eftirlit. Þetta er ekki pólitísk niðurstaða heldur praktísk. OHF. er enda form sem hefur víða verið notað sem millistig frá þjóðareign til einkavinavæðingar. Nú stendur til að búa til ríkisfyrirtæki sem taka á yfir "vondar eignir" eða fyrirtæki í vanda, líkt og Þjóðverjar gerðu 1989 með stofnun Treuhand fyrirtækisins sem tók yfir öll Austur-Þýsk ríkisfyrirtæki. Það þýðir að... það verður...
Hreinn K

22. Apríl 2009

STEINSMUGAN HEFUR ORĐIĐ

Þú ert undarlega umburðarlyndur gagnvart skrifum framkvæmdastjóra Læknafélags Íslands um þig og þína pólitík á vef lækna nýlega þar sem hann er æði stóryrtur og rammpólitískur, greinilega að gæta hagsuma Guðlaugs Þórs og einkavinanna í Sjálfstæðisflokknum. Dapurlegt hlutskipti. Ég heyrði í þér á Bylgjunni um daginn þar sem þú varst spurður út í þessi skrif og sagðir þú þá að þú myndir hugsanlega svara þessu á heimasíðu þinni. Hvers vegna gerir þú það ekki? Á vefmiðlinum ...
Jóel A.

21. Apríl 2009

AUGLÝSING Í BOĐI SKÚFFU-GERĐARINNAR?

...Ólína vekur athygli á nýjum gestum í strætóskýlum á höfuðborgarsvæðinu. Ber þar hæst formann FL-okksins, Bjarna Benediktsson og Illuga Gunnarsson fyrrum sjóðstjóra í Sjóði 9 hjá Glitni. Í þeim „Allt í plati" sjóði var gengið hreint til verks, eins og menn muna, og rétt eins og segir í kosningaslagorði FL-okksins. En skyldu þeir félagar Bjarni og Illugi vera í strætóskýlunum á eigin vegum eða eru þeir í boði einhverra kostunaraðila - fyrirtækja eða jafnvel vel stöndugra einstaklinga? Hvað með ...
Þjóðólfur

20. Apríl 2009

FJÖLGAR Í STRĆTÓSKÝLUNUM

Merkilegir þessir menn sem allt í einu eru farnir að raða sér upp í strætóskýlunum, og athyglisvert hverjum er ekki stillt upp. Bjarni Benediktsson er orðinn hluti af okkur sem tökum strætó í Reykjavík. Sama er að segja um félaga hans, Illuga Gunnarsson, sem hoggið hefur á báðar hendur undanfarið til að gera veg foringjans sem mestan. Þarna eru hins vegar engin Þorgerður Katrín og enginn Guðlaugur Þór. Ætli það sé vegna þess að þau ferðast ekki í strætó? Annað merkilegt kom fram í dag. Það var hugmynd Sverris Hermannssonar, fyrrv. iðnaðarráðherra, hann velti því fyrir sér hvort ...
Ólína

19. Apríl 2009

SKILUM LÁNUM OG BORGUM EKKI

Ögmundur Jónasson, Michel Hudson John Perkins, hvað eiga þessir menn sameigilegt?  Jú þeir hafa allir varað íslensku þjóðina við alþjóðagjaldeyrissjóðnum.  Erum við í þessari stöðu núna vegna þess að íslenska ríkið tók svo mikið af lánum? Nei við erum í þessari stöðu vegna þess að ...
Sigurbjörn Halldórsson

18. Apríl 2009

UM LESBLINDU, EINELTI OG SKYLDUR SKÓLANS

Skólamál Íslands eru á frumskógarstigi. Því miður eru einhverjir kennarar farnir að trúa því að skólarnir séu meira fyrir kennara en börn. Treysti þér til að bæta úr þessari ofurtrú sumra kennara á hlutverk sitt. Þegar lesblindir foreldrar þurfa að ráða utanaðkomandi fólk til að kenna bönum heimanám er eitthvað að í velferðarkerfinu á Íslandi!Svo maður tali nú ekki um eineltismálin. Ég veit að þú veist mikið um þau mál.Treysti á þig og ...
Anna

18. Apríl 2009

KJÓSA FYRST - SVO MÁ GEFA ÖNDUNUM!

...Ég þekki marga sem farið hafa þá leið að fá lánin fryst og þeir hafa allir séð eftir því. 
Og á meðan allt er í kalda koli í þjóðfélaginu er gamla sama rullan leikin í leikhúsinu við Austurvöll og leikararnir þar eru sanfærðir um það að þjóðin ætli að eyða tíma sínum laugardaginn 25 apríl í að fara á kjörstað til þess að framlengja veru þeirra þar.  Nei er ekki meira vit í að fara gefa öndunum á tjörninni brauð?...
Með kveðju,
Sigurbjörn Halldórsson

15. Apríl 2009

ŢARF AĐ SAFNA LIĐI!

Ein af alvarlegustu afleiðingum sjálfsgróðahyggjunar, sem á þjóðinni hefur hvílt sem baggi í stjórnarstefnu liðinna ríkisstjórna, eru bág kjör aldraðra. Fólkið sem okkur ól og annaðist berst nú í bökkum. Ekki þó endilega við að halda húsnæði sínu. Fremur við að halda heilsu sinni. Ein af sparnaðarhugarflóru Guðlaugs Þórs var að skerða möguleika aldraðra til endurhæfingar. Því ákvað hann að sameina 2 deildir á Landakoti í eina - og um leið að fækka sjúklingum. Henda þessum "erfiðleikum" yfir á sveitarfélögin. Birtingarmynd þess er sú að ...
Baldur Ragnarsson

12. Apríl 2009

ERU MÚTUR "BULL" SEM Á AĐ GLEYMA?

Ömurlegt er að hlusta á Sjálfstæðismenn reyna að hvítþvo sig af greiðslum FL-group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins sem lykta meira en lítið af mútum. Þeim finnst málið upplýst. Guðlaugur Þór hafi nefnt menninna sem hann fékk til að safna peningunum. Vandinn er sá að þeir hinir sömu voru innanbúðarmenn í FL-group og Landbankanum, lykilmenn. Samt segir Bjarni, formaður Sjálfstæðisflokksins að enginn kjörinn fulltrúi hafi haft milligöngu!!!! Var Guðlaugur Þór ekki kjörinn? Kristján Þór Júlíusson, oddviti Íhaldssins fyrir norðan, segir síðan í fréttum að ...
Jóel A. 

12. Apríl 2009

AUMINGJA GEIR

...það má vel vera að Geir sé fyndinn í samsætum og þægilegur í persónulegum samskiptum en veruleikinn, ábyrgð mannsins sem stjórnmálamanns og ráðherra ásamt varðveislu hagsmuna íslensku þjóðarinnar, er allt annað mál!  Geir Hilmar Haarde er stórsekur "stjórnmálamaður" sem ber verulega ábyrgð á ástandinu í íslenska þjóðfélaginu í dag og næstu kynslóða, ef það verða þá fleiri Íslenskar kynslóðir!  Hvort sem maðurinn er skemmtilegur á "góðra-manna- fundum," eða á kaffistofu Alþingis, breytir engu þar um...
Úlfur

12. Apríl 2009

JÁ EĐA NEI UM ES!

...það sem mér finnst vanta frá ykkur eru skýr svör varðandi ES. JÁ eða NEI, frá mínu sjónarhorni, hins almenna borgara virkið þið óöruggir og þorið ekki að setja fram skýra stefnu í Evrópumálunum. Að minu mati hefur þingflokkur vg á að skipa einstaklega færum og góðum hóp af góðu fólki..
Páll Kristjánsson

10. Apríl 2009

FALL FLOKKS OG FYRIRTĆKJA

...Þetta gildir jafnt um stjórnmálamennina, forsvarsmenn fyrirtækjanna og svo er ekki úr vegi að Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð og Samtök verslunar og þjónustu íhugi framtíð sína og mannvalið, sem þau hafa skipað til forystu til að innleiða á Íslandi þá hráu frjálshyggju sem hér hefur verið þvinguð fram á öllum sviðum þjóðlífsins. Þessi kampur er nú rjúkandi rúst og það er siðferðileg skylda allra annarra stjórnmálaflokka að heita því, að koma ekki nærri Sjálfstæðisflokknum mjög mörg ár fram í tímann. Það er svo sem marklaust að fara fram á opinbera rannsókn á fjárreiðum Sjálfstæðisflokksins aftur í tímann, en kjósendur eiga hins vegar eftir að ákveða hvort Sjálfstæðisflokkurinn verður 23% flokkur eftir kosningarnar, eða 16% flokkur. Mál standa einfaldlega þannig að ....
Ólína 

9. Apríl 2009

BURT MEĐ NAUĐUNGAR-SKULDIR -- EKKI VELFERĐAR-SAMFÉLAGIĐ

...Að auki erum við síðan nú þegar í ábyrgðum uppá 2500 milljarða (þar með talin Íbúðalánasjóður, Landsvirkjun, Icesave og AGS). Eitthvað af þessu mun falla á ríkissjóð fyrr eða síðar. Sennilega fyrr. Vextir af AGS og Icesave lánum virðast ekki vera með í yfirliti fjármálaráðuneytis. Er ekki rétt að með því að eyða meiri kröftum í að lækka skuldir, lækka ábyrgðir, semja niður vexti og yfirleitt sýsla með þessa 3600 milljarða sem taldir eru að ofan (við höfum náttúrlega ekki minnst á skuldir sveitarfélaga, OR, HS osfrv.), værum við á réttari leið en djöflast í sjúklingum og skattahækkunum?
Hreinn K

8. Apríl 2009

FRÁLEITIR VEXTIR

Ég er einn þeirra fjölmörgu sem er atvinnulaus sem stendur. Ég er bitur og reiður þeim sem brutu niður efnahagslífið með taumlausri græðgi. Einnig er ég reiður stjórnvöldum sem ekki stóðu vörð fyrir okkur landsmenn eins og þeir áttu að gera. Ég ætla mér í fyrsta skipti á ævinni að kjósa VG, gefa þeim sjéns. Mér líst að vísu ekki á aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar og vaxtastefna Seðlabankans er hreint út sagt, hlægileg. Mér líst vel á niðurfellingartillögu ykkar á...
Þorvaldur

8. Apríl 2009

ÁFENGI OG ÁBYRGĐ

Það er eitt sem hefur angrað mig mikið að undanförnu. Það var í Ísland í dag við páskabjór smökkun þar síðasta föstudag, sem aðstoðarmaður þinn, Halla Gunnarsdóttir, sem þú ert að vitna í á síðu þinni, lét út sér ummæli sem mér finnst ekki sæmandi einstaklingi í hennar stöðu. Mér finnst þú vera heill í þínum störfum og því finnst mér þetta vera meira miður. Mín skoðun er sú að aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, eigi ekki að láta út sér að fólki sem ekki drekkur áfengi sé ekki treystandi. Eru þetta skilaboðin sem ráðuneytið vill senda út? Er þetta skilaboð þín ...
Vilhjálmur Ingi

6. Apríl 2009

ŢAU ĆTTU AĐ ÓTTAST SJÁLFA SIG

...Annars er athyglisvert að fjölmiðlar láta órætt að fyrirtæki þau sem nýr formaður sjálfstæðismanna sleppti tökum sínum af í nóvember, fyrir fjórum mánuðum, hafa ekki lent í sérstakri skoðun Morgunblaðsins á afleiðingum hruns efnahagslífsins. Morgunblaðið er uppteknara af þeim sem áttu Essó, nokkru áður en það varð N1. En var ekki formaður Sjálfstæðisflokksins einn af útrásarvíkingunum? ...Og getur verið að félög tengd N1 eða eignarhaldsfélögum sem standa þar að baki séu í hópi þeirra 300 stóru fyrirtækja sem ríkisskattstjóri segir að stofnuð hafi verið á aflandseyjum í því skyni að reka fyrirtæki sem virðast íslensk? Væri ekki fínt að upplýsa um allt þetta og tengslin við Glitni og stjórnendur Íslandsbanka nú? Allt þetta vildi ég vita, fyrir kosningar og ekki eftir...
Ólína

5. Apríl 2009

LÁTUM EKKI GERA OKKUR AĐ FÍFLUM!!!

...Eins og við forðum Sjálfstæðismenn vitum, þá höfum við verið svikin, ekki af þeim sem við töldum andstæðinga vora, heldur  af glæpaklíkum Sjálfstæðisflokksins sjálfs!  Þessi ósómi hefur eyðilagt flokkinn sem í byrjun gaf þjóðinni von um sjálfstæði og bjarta framtíð, en er nú ekkert orðið nema sitt fagra nafn "Sjálfstæðisflokkur" sem er orðið því miður, algjört öfugmæli!  ... Ég vona að heilbrigðir og sannir Íslendingar kjósi allt annað en Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum...
Úlfur

3. Apríl 2009

SJALLARNIR SYNGJA Á MEĐAN LANDIĐ BRENNUR

Það var gaman að kíkja inn á Alþingi í kvöld, þar var náttftapartý að hætti Sjálfstæðismanna, í boði fjárglæframanna og auðvaldsseggja. Árni Johnsen þrumaði á gítarinn og þingflokkurinn söng með; "burt með lýðræðið". Svakalegt stuð. En svona í alvöru, þeir eiga að skammast sín, landið brennur, þjóðin að verða að ösku og sjallarnir syngja. Nú verðum við að vinna öll saman að vinna okkur út úr þessum vanda, og sá vandi verður ekki leystur með að brjóta velferðarkerfið niður í einkavædda mola sem auðmenn geta auðveldlega gleypt, það er takmark ...
Ágúst

2. Apríl 2009

APRÍLGABB SJÁLFSTĆĐIS-FLOKKSINS

Alvitlausasta aprílgabbið var hjá Rúv., þegar Bjarni Ben. nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins lofaði landsmönnum bót og betrun fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Þessu trúir ekki nokkur maður, og allra síst flokksmenn hans, því þeir standa í þeirri trú að ekkert hafi verið athugavert við stefnu og störf þeirra á undanförnum árum...
Sigurjón

2. Apríl 2009

Í EYĐIMÖRK FRJÁLS-HYGGJUNNAR

Frábærlega lýsandi er myndskreytingin um Sjálfstæðisflokkinn sem ætlar að ganga hreinn til verks eða hreint til verks samkvæmt kosningaplakati sínu. Sjálfstæðismenn þyrftu að bæta manninum sem stingur höfðinu í sandinn á plakatið...Nú er nóg pláss í eyðimerkurbreiðum frjálshyggjunnar til að stinga höfði sínu ofan í...
Sunna Sara  

2. Apríl 2009

NEMA ÁRNI JOHNSEN...

Ögmundur það er rangt hjá þér að skensa Sjálfstæðismenn fyrir að heyja litlausa stjórnarandstöðu. Alla vega verður Árni Johnesen þingmaður Sjálfstæðisflokks á Suðurlandi ekki sakaður um liltleysi. Hinn eini sanni. Það kom fram í sýnikennslu í gærkvöldi þegar hann tók lagið í ræðustól Alþingis. Vantaði bara gítarinn og að salururinn tæki undir. Brekkusöngur við...
Haffi

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta