Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

31. Mars 2009

NOWHERE MAN

Ég hef verið að reyna að átta mig á niðurstöðunni sem varð á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Það er ekki einfalt. Sé hins vegar að Styrmir Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóri, túlkar ESB afgreiðsluna sem áfangasigur fyrir andstæðinga ESB. Það sýnist mér rétt. Klappstýran, varaformaðurinn, kom ekki á óvart á fundinum, en nýji formaðurinn, sem ég held að sé hinn vænsti drengur,  kallaði fram í huga mér þennan Bítlatexta...
Ólína

29. Mars 2009

GUĐLAUGUR ŢÓR TEKUR TIL Á ÓHREINA SKOLINU

Guðlaugur Þór fagnaði sínum stærsta kosningasigri um síðustu helgi. Hann er nefnilega að eigin sögn og vina hans, maður sem þorir. Afhroð hans í kosningunum síðustu helgi var vegna þeirra nauðsynlegu ákvarðana sem hann þurfti að taka í embætti sínu sem heilbrigðisráðherra. Hann greindi reyndar ekki frá því að aðgerðaráætlun hefði ekki verið gerð í samráði við „fólkið á gólfinu", enda aukaatriði. Guðlaugur Þór réð nefnilega til sín svokallaða sérfræðinga...
Starfsmaður á Landspítala

26. Mars 2009

REYNSLULEYSI?

Mikil mistök eru það af Steingrími J Sigfúsyni að gera Svavar Gestson að formanni samninganefndar um Icesasve. Svavar Gestsson er nefnilega svo reynslulaus. Það segir síðasti blaðamaður kaldastríðsins Agnes Bragadóttir
að minnsta kosti. Svavar Gestsson hefur bara verið ...
Fjóla

26. Mars 2009

RANGLÁT NIĐURSKURĐAR-STEFNA

Ég er ungur læknir og tilheyri þar með þessum hópi mjög vel stæðra samkvæmt þinni skilgreiningu. Ég er verulega ósátt við þá stefnu sem niðurskurður í heilbrigðismálum hefur tekið. T.d. eru læknar á Vestfjörðum að samþykkja að vera á bakvöktum án þess að fá greiðslu fyrir. Hvernig má það vera að það telst sanngjarnt? Hvers vegna eru alltaf skoðuð heildarlaun lækna þegar verið er að bera saman laun. Veit ráðherra hversu mikil vinna er bak við þessi laun og veit hann hve mikill hluti þeirrar vinnu er valkvæður?  Ég er nú deildarlæknir og er ....
Linda

25. Mars 2009

TILVONANDI FORTÍĐARVANDI

Vísitala neysluverðs fyrir janúarmánuð var 334,8 og fyrir marsmánuð 334,5 stig. Sem sagt verðhjöðnun fyrstu þrjá mánuði ársins. Opinberir raunvextir eru hins vegar 15%. Sums staðar er fólk að greiða 25% af yfirdrætti. Það eru því raunvextir. Verið er að ræða hvernig hægt sé að leysa fortíðarvanda, án þess að nokkur virðist taka eftir því að ...
Hreinn K

20. Mars 2009

ĆTLIĐ ŢIĐ AĐ LÁTA ALŢJÓĐA-GJALDEYRIS-SJÓĐINN STEYPA OKKUR Í GLÖTUN?

...Þeir hagfræðingar sem við höfum fengið til ráðslags (frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum) hafa sýn sem ENGIR hagfræðingar annars staðar deila með þeim. Alls staðar í veröldinni: USA, UK, Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi, Frakklandi, Spáni, Ítalíu, Japan, og svo framvegis eru vextir við núllið. Af hverju ekki á Íslandi? Ef það kemur ekki svar við því, þá ber ríkisstjórn Íslands sem nú situr ábyrgð á falli þjóðarinnar, ekkert síður en þær sem áður sátu. Ríkisstjórnin hagar sér ...
Hreinn K.

16. Mars 2009

HELGUVÍKURÓRÁĐ

...Hvers vegna settir þú inn í samninga ofurkjör um aldur og ævi þeim til handa um skattavild og fleira og spurðir þú þjóðina að því í þjóðaratkvæðagreiðslu eða telur þú að okkur komi ekkert við arðsemi auðlinda okkar? Þessu þarft þú Össur að svara strax fyrir kosningar því Samfylkingin mun tapa stórt á þessu bráðræði þínu til bjargar eigin skinni.
Þór Gunnlaugsson

15. Mars 2009

FRÉTTASTOFA RÚV: FYRIR HVERN?

...VG mælist einn þriggja stærstu stjórnmálafloka landsins - stundum sá srærsti - en RÚV virðist fast í gömlu landakorti og ekki koma auga á breytingar. Til dæmis þá miklu breytingu að Guðfríður Lilja er að veljast til forystu í Kraganum og þú Ögmundur að hella þér í slaginn út í talsverða óvissu. Hvort tveggja hélt ég að væri frétt. Í Kastljósi Sjónvarpsins í aðdraganda þessarar miklu prófkjörshelgar var ...
Haffi

14. Mars 2009

VINSTRI GRĆN Í GARĐABĆ

...
Nú bregður lífsins lukkuhjól
á leik með Vinstri grænum,
við höfum eignast húsaskjól
hér í Garðabænum.
...
Kristján Hreinsson
Á stofnfundi VG félagsins í Garðabæ,
 fimmtudaginn 12. mars 2009.

14. Mars 2009

ŢANNIG MUN ATVINNULÍFIĐ RÍSA

Þríliðuhagfræði er léleg hagfræði. Hún er svona: Ef K er konstant og y hækkar þá lækkar x. Þessi lýsing á samfélagi er svo einföld að maður hefði ekki trúað því að óreyndu að alvöru hagfræðingar leyfðu sér slíkt tal. En því miður hefur Íslandi (og reyndar heiminum) verið stjórnað út frá slíkum vísindum. Seðlabankar hafa talið að hægt væri að stjórna efnahagslífi með því að hreyfa til stýrivexti annan hvern mánuð og til þess fengnir færustu sérfræðingar. Hvernig hægt er að vera sérfræðingur í slíkri samfélagssýn er mér hulin ráðgáta. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er hópur slíkra sérfræðinga. Þeir telja að vextir á Íslandi verði að vera háir til að styrkja krónuna. Þeir koma ekki fyrir öðrum breytum í jöfnuna og því má atvinnulífið fara á hausinn og ríkisbúskapurinn einnig. Nú berast fréttir af gagnrýni á þessa einföldu þríliðu ...
Hreinn K

13. Mars 2009

STJÓRNMÁLASKÓLI SJÁLFSTĆĐIS-FLOKKSINS

...Að vísu eigum við einn stjórnmálafræðiprófessor sem ætti að geta skipulagt og kennt námskeið um störf í stjórnarandstöðu en vandamálið er að hann fer svo gjarnan í fræðilega útrás þegar illa stendur á hér heima. Fyrir réttri viku flutti Hannes td. fyrirlestur undir heitinu „The Strange Death of Liberal Iceland" á sérstakri aukaráðstefnu Mont Pelerin-samtakanna í New York...
Þjóðólfur

13. Mars 2009

UM STEINVEGGI OG SKULDUR HEIMILANNA

Það virðist aldrei vera hægt að fella niður skuldir einstaklinga eða heimila hversu erfiða stöðu sem fólk er komið í, með sin fjármál. En það virðist öðru nær með fyrirtæki og vitna ég þá í eftirfarandi grein í DV.is dags, 23 feb 2009 "Ástralinn með hæsta boð í Moggann.....Það er Íslandsbanki sem sker úr um það hver fái Árvakur en bankinn mun þurfa að fella niður 3000 milljónir af skuldum útgáfufélagsins sem skuldar talsvert yfir fimm milljarða króna eftir margra ára óráðsíu í rekstri. Að fella niður skuldir fylgir því ekki gjaldþrot?? Ég held að ég tali fyrir munn margra...
Kristófer Kristófersson

9. Mars 2009

ŢAĐ VERĐUR AĐ ENDURSKOĐA HELGUVÍK!

... Ég treysti því að fjármálaráðherra taki samning um álver í Helguvík til endurskoðunnar strax þótt iðnaðarráðherra hafi undirritað hann því menn eru bara úti á túni með alla þá afslætti og ívilanir umfram önnur íslensk fyrirtæki að ekki tekur nokkru tali. 10 milljónir Kínverja ganga um atvinnulausir eftir hrun á álverði. Þar niðurgreiðir ríkið tonnið um 300$ í dag og ætla Kínverjar að setja 5% innflutningstolla á allt innflutt ál. Hvar halda menn að álverðið endi þá? Þetta þarf að skoða allt upp á nýtt því að ...
Þór Gunnlaugsson

9. Mars 2009

ALLT Í HEILBRIGĐIS-KERFIĐ

...Það væri miklu nær að leggja af loftrýmiseftirlit Natóþjóða hér á landi og þá setja peningana í heilbrigðiskerfið.
Jón Þórarinsson

4. Mars 2009

BURT MEĐ ALŢJÓĐA-GJALDEYRIS-SJÓĐINN!

Það er gríðarlegt hagsmunamál að losna sem fyrst við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn úr landinu. Hann heldur uppi vöxtum og er hér eingöngu til að gæta hagsmuna eignafólks, heimslögregla auðvaldsins einsog þú hefur réttilega lýst honum Ögmundur.  Tímaritið Vanity Fair hefur sagt frá málaliðunum sem hafa verið sendir hingað til lands, fákunnandi og ruglaðir, nýkomnir frá því að ráðskast með efnahagskerfi fátækra þjóða. Vanity Fair lýsir íslandi sem fjárfestingarbúllu, nokkuð sem var réttnefni en er ekki lengur. þess vegna á Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn heldur ekki heima hér. Sjá meðfylgjandi klausu og síðan vefslóð á greinina...
Jóel A.

4. Mars 2009

VG Í FORYSTU

...Loksins tókst að klára Seðlabankafrumvarpið á síðustu metrunum og þar með hafa VG tekið afgerandi forystu í íslenskum stjórnmálum. Árni Mathisen mun ekki hafa hlotið hlýjar móttökur á fundum í kjördæmi sínu og hefur tilkynnt að hann snúi sér hugsanlega að dýralækningum aftur sem er hárrétt hjá honum. Davíð Oddson seðlabankastjóri kom úr felum með enn eina bombuna en Kastljóssþáturinn um kvöldið og svör aðalhagfræðings Landsbankans um bindiskylduverkfæri Seðlabankans lýsti algjöru ...
Þór Gunnlaugsson

1. Mars 2009

AF HVERJU HAFA MENN SKIPT UM SKOĐUN?!

Það segir nokkuð um skoðun þína síðan að þú varðst ráðherra, hvað þú segir í pistlum þínum og hvaða lesendapistla þú birtir á vefsíðunni þinni. Því allir ritstjórar stjórna "eðlilega" því sem sagt er fjölmiðlum þeirra!  Við þekkjum þetta Ögmundur!  Fyrst segir þú " FORÐUMST ALHÆFINGAR - LÍKA UM DAVÍÐ! " síðan segir lesandinn Helgi að þegar ríkisstjórnin ákvað að losa sig við Davíð Seðlabankastjóra, þá "VÆRI VERIÐ AÐ ELTA RANGAN MANN" !  Mann sem er ...
Úlfur

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta