Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

28. Febrúar 2009

HVAĐA STJÓRNARSKRÁ GILDIR FYRIR MIG?

Ég á kunningja, sem fór út til Íslands í haust sem leið. Hann býr ekki langt frá mér, er Dani og heitir Hans-Olav Petersen. Hann fór til Íslands til að vinna í fiski og hann er EES borgari. Þetta færði honum öll sömu réttindi á Íslandi og frænda mínum voru tryggð, honum Sigurði, sem líka vann í fiski. Þetta er EES og hin frjálsa för vinnuaflsins. Svo kom útlendingur og var ráðin til Seðlabanka og þá fóru sjallarnir af stað og Sigurður Líndal og sögðu...
Ólína

26. Febrúar 2009

ŢAĐ ER VERIĐ AĐ ELTA RANGAN MANN

...Það eru ábyggilega margir, sem undanfarna mánuði hafa starað út í fjarskann, svipbrigðalausir, og hugsanlega látið pólitíska andstöðu við Davíð Oddsson hér áður og fyrr, lita afstöðu sína til mannsins sem nú er formaður bankastjórnar Seðlabanka og ekki viljað sjá það sem er að gerast.
Í viðtali í Sjónvarpinu í október talaði þessi formaður bankastjórnar Seðlabanka afskaplega skýrt. Hann sagði í stuttu máli, að íslensk þjóð gæti ekki og ætti ekki að greiða niður skuldir óreiðumanna. Kvöldið áður hafði ráðherra í ríkisstjórninni sagt efnislega það sama í samtali við fréttamann ársins á mbl.is. Ummæli formannsins hafa svo verið fest í minni þjóðar, sem megin ástæðan fyrir því að bresk stjórnvöld létu til skarar skríða gegn íslenska bankakerfinu, íslensku stjórnkerfi, en auðvitað fyrst og fremst gegn þeim sem kallaðir voru óreiðumenn.
Síðan hefur ...
Helgi

26. Febrúar 2009

KOMUM ÍSLANDI AF STRANDSTAĐ

...Er ekki komin tími fyrir flokka-póitíkusa að endurskoða í hvað orka þeirra fer? Þeir eru á launum ekki satt? Hjá landi og Þjóð. Er þetta uppbyggileg orka eða niðurrífandi orka. Ég upplifi þetta allt mjög neikvætt og niðurrífandi. Hvernig væri að allir flokkar kæmu sér saman um að koma Íslandi af strandstað í stað þess að vera endalaust með tittlingaskít og móðgast svo yfir öllu og öllu, sem hinn og þessi sagði eða bloggaði um?...
Hrönn

26. Febrúar 2009

EIRÍKUR SENDIR FRÁ SÉR FRÉTTA-TILKYNNINGU

...Auðvitað þarf að gera pólitískt upp við stjórnmálastefnu Davíðs Oddssonar í kosningum og það má sjálfsagt færa rök fyrir að hann njóti ekki traust viðskiptafræðinga sem sumir hverjir bera ábyrgð á bankahruninu og hafa borið hann út gagnvart erlendum fjölmiðlum, en Davíð hefur þó frá í október verið hreinskilnari um stöðu efnahagsmála en flestir aðrir. Hvernig væri að spila aftur við hann viðtalið frá í október? Ætli það sé ekki það vitlegasta sem sagt hefur verið um hvernig við komumst út úr kreppunni? Nú er ...
Ólína

25. Febrúar 2009

VERKTAKAR OG VEIKINDI

Já hann kveinkar sér forveri þinn um verktakagreiðslurnar og góð grein hjá lækninum hér á síðunni af hverju hæft fólk fékk að fjúka bæði á Lansanum svo og ráðuneytinu og nú liggur þetta fyrir að hans sögn eintóm veikindi starfsfólks ráðuneytissins og enginn til að vinna verkin. Laun nýja forstjóra LSH eru reyndar of há að hluta til vegna mikillar vinnu við nýtt hátæknisjúkrahús eins og Magnús Pétursson fékk tímabundið og nýja stýran fékk þau áfram. Ég var hinsvegnar að skoða kostnað vegna dýrra lyfja og sérstaklega ...
Þór Gunnlaugsson

24. Febrúar 2009

PLATKOMMAR

...Ég les altaf síðuna þína, því hún er fólkinu viðkomandi og mér finnst þú vera raunsær. Í dag sé ég ekki betur en þetta íhaldsmanna-kerfi,sem hefur eyðilagt fjárhag Íslands, líkist mjög sovjetíska kerfinu, meðan það var verst. Oddamenn íhaldsins hafa ráðið lögum og lofum og hagað sér eins og væru þeir eigendur Íslands."Fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað þeir gera," stendur í bókinni góðu. "Já!" en
Inga Birna

22. Febrúar 2009

HLJÓĐLÁTAR HREINSANIR

Gott að vita af þér sem heilbrigðisráðherra. Ég sendi þér þetta fyrir hönd okkar nokkurra lækna sem höfum verið að furða okkur á því hvernig skipulagsbreytingar gætu sparað á sjöunda milljarð króna eins og fyrrverandi ráðherra er að segja. Þetta er tært rugl allir læknar vita að 80% af útgjöldum kerfisins er launakostnaður....Annars vildum við líka vekja athygli þína á að fyrrverandi ráðherra fækkaði fólki. Hann rak Magnús Pétursson, forstjórann á Lansanum, hann rak Jóhannes M. Gunnarsson, lækningaforstjórann, hann rak Davíð Gunnarsson, ráðuneytisstjórann, og hann rak Önnu E. Ólafsdóttur hjá Lýðheilsustöð. Það er mjög merkilegt að sjálfstæðismenn skuli í þessu ljósi treysta sér til að ...
Sigurjón

21. Febrúar 2009

"VIĐ SKULDUM EKKERT"

"Sjálfstæðis-"flokkurinn er í dag mikið öfugmæli. Þeirra barátta gengur út á að koma Íslandi undir hælinn á útlendingum og fámennri klíku auðmanna. Útlendingarnir eru álrisarnir, alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og erlendir bankar. Þessi barátta á sér rætur í blindri trú á kapítalismann. Allir nema Sjálfstæðismenn hafa tekið eftir að kapítalisminn er hruninn og vilja nýja stefnu. Kosningabarátta Sjálfstæðisflokksins mun því snúast um að búa til þá trú að í raun hafi ekkert farið úrskeiðis, við séum í vanda vegna ríkisafskipta á bandarískum húsnæðismarkaði. Til þess að sannfæra kjósendur, grípa Sjálfstæðismenn til ósanninda: Að í raun sé engin kreppa á Íslandi, að Ísland skuldi sáralítið, og að allt verði komið í lag eftir nokkra mánuði. Það eina sem við þurfum er að ...
Hreinn K

19. Febrúar 2009

KONAN Í KJALLARANUM HJÁ LÓU OG ÉG

Getur verið að ég hafi misskilið yfirlýsingu þína um Evrópusambandið? Getur verið að ég hafi misskilið einn af grunnþáttunum í því þegar Vinstri - hreyfingin grænt framaboð segist vilja ljá lýðræðinu nýtt innihald? Mig langar til þú svarir mér, ekki í kvöld, eða fyrir helgina, en fljótlega. Ég hef aldrei skilið hvernig menn geta deilt um fyrirbæri eins og Evrópusambandið. Fyrir mér er það eins og að deila um, hvort lýðræði er gott eða vont. Evrópusambandið er bæði hagsmunabandalag og hugsjón. Sumir fagna því sem ESB hefur fært launafólki í réttindum, aðrir sýta að sambandið skuli vera svona hallt undir stórkapítalið, og sumum finnst ESB ólýðræðislegt. Mér finnst það til dæmis og ég er algerlega andsnúin því að ganga í bandalagið og mun berjast gegn því með oddi og egg. En konan á neðri hæðinni ...
Ólína

17. Febrúar 2009

UM UPPHLAUP GEIRS

Hugmyndaleysi virðist hrjá fyrrverandi forsætisráðherra. Hann kann greinilega ekki að vera í stjórnarandstöðu. Hann heldur að stjórnarandstaða gangi út á það að tefja störf þingsins með því að blása út smátriði.Hann leggur í það vinnu að hringja sjálfur í kunningja sína í alþjóðagjaldeyrissjóðnum til þss að ...
Frosti

17. Febrúar 2009

DRÁPSKLYFJAR Í BOĐI ALŢJÓĐABANKANS

Nú er komið í ljós að AGS mótar stefnu uppúr kennslubókum en hvorki lífsreynslu né heilbrigðri skynsemi. Verðbólga er nú lítil sem engin á Íslandi, sé horft fram á við. Enginn rekstur skilar arði. Fjöldi fyrirtækja leggur upp laupana á degi hverjum. Samt vilja þessir ofvitar í AGS halda vöxtum háum! Það er augljóst mál að peningar sem eru lagðir inn í banka á 15% vöxtum eru niðurgreiddir af skattgreiðendum. Það er ekki hægt að ávaxta peninga um 15-20% í atvinnurekstri á Íslandi í dag. Hvernig geta bankar þá lofað slíkri ávöxtun á innlán?
Alls staðar í kringum okkur...
Hreinn Kárason

16. Febrúar 2009

ALLTAF Í BARÁTTUSĆTI

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðhera settist á þing 1995 fyrir Alþýðubandalagið og óháða. Hann var í þriðja sæti listans og við það vannst sætið  en frá konsningunum 1987 hafði Alþýðubandalagið haft tvo þingmenn í Reykjavík. Þarna bættist sá þriðji við 1995.  1999 var Ögmundur hins vegar efstur á lista VG  í Reykjavík er þau buðu fram í fyrsta sinn. Sætið vannst og annað til.  Í kosningunum 2007 ákvað Ögmundur að bjóða sig fram í Kraganum en þar hafði VG ekki þingmann í kosningunum á undan. Sætið í Kraganum vannst.  Nú hefur Ögmundur ákveðið að ....
Sigurður Bjarnason

16. Febrúar 2009

ÁSKORUN TIL FJÁRMÁLA-RÁĐHERRA

Hæstvirtur fjármálaráðherra þarf nauðsynlega að setja í gang endurskoðun á innflutningsgjöldum af ökutækjum sem forveri hans opnaði upp á gátt með því að lækka gjöld úr 45% í 15% af stórum dýrum amerískum trukkum sem flæddu inn í landið. Skipta þarf upp í hagkvæm eyðslugrönn ökutæki og lækka gjöld af þeim og hækka aftur á hinum til að koma í veg fyrir austur á gjaldeyri í slík ökutæki. Það er staðreynd að ...
Þór Gunnlaugsson

15. Febrúar 2009

ĆTTU AĐ SKAMMAST SÍN!

...þá gefur hann út reglugerðina. Reglugerðin gerir ráð fyrir að gefa Kristjáni Loftssyni hvalveiðikvótann í fimm ár. Og þá tekur alvaran við.  ALLIR þingmenn Sjálfstæðisflokksins vilja hefja hvalveiðar. Í þeim þingflokki er ENGINN sem tekur málstað ferðaþjónustunnar. Er það ekki athyglisvert að ekki EINN EINASTI þingmaður Sjálfstæðisflokksins skuli hafa minnsta áhuga á því að sinna hagsmunum  ferðaþjónustunnar. Sú var tíð að Sjálfstæðisflokkurinn sinnti sérstaklega samtökum gistihúseigenda. Nú  er ...
Bjarni Sigurðsson

14. Febrúar 2009

EKKI EFNAHAGS-PRÓGRAMM HELDUR...

Það sitja 400 millarðar í krónubréfum og eru í eigu nokkurra útlendra auðmanna. Við 15% innlánsvexti eru mánaðarlegar vaxtagreiðslur 5 milljarðar. Þessir 5 milljarðar fara út úr landinu á hverjum mánuði.
Það er heimilt. Ef við réðum ferðinni sjálf myndum við lækka vexti niður í 2%. Jafnvel 0% einsog löndin í kringum okkur gera til að vernda atvinnulíf og húsnæðiseigendur. Ef við lækkuðum vexti niður í 5% þá yrði vaxtakostnaður ekki 5 milljarðar á mánuði heldur 1,7 milljarðar. Mismunurinn á ári er næstum ...
Hreinn Kárason

13. Febrúar 2009

ŢÖRF Á ALVÖRU UPPSKURĐI Á HEILBRIGĐIS-KERFINU

...Vonarstjarna skín á himni. Það er komin ný stjórn . Það er kominn nýr heilbrigðisráðherra. Hann hefur lengi gagnrýnt þá sem stýrt hafa heilbrigðismálunum. Nú er komin ögurstund. Mun hann sýna það áræði og þann dug sem þarf? Ábúðarfullur, hávaxinn og myndarlegur maður, með grásprengt hár og skegg, gengur ákveðnum skrefum inn á spítalann. Hann gengur inn í forherbergið og þvær hendur sínar vandlega. Hann skrýðist græna sloppinum, setur upp munngrímuna og gengur inn á skurðstofuna. Hann horfir um stund á sjúklinginn og hikar eilítið. Skyndilega réttir hann fram hendurnar með ákveðnu látbragði. Hnífur er lagður í lófa hans. Aðgerð er hafin. ...
Jóhann G. Frímann

13. Febrúar 2009

UM INNRITUNARGJÖLD

Sumir rugla saman láni og gjöf. Aðrir rugla saman tekjum og gróða. Guðlaugur Þór ruglaði saman skatti og sparnaði. Það er ekki sparnaður að skattleggja fólk. Það er bara skattlagning. Innritunargjöld eru skattar sem lagðir eru á fólk í vanda.
Hreinn K

13. Febrúar 2009

AĐ FĆĐA Í SÍNUM HEIMABĆ

Frábært að heyra með St. Jósefsspítala og innritunargjöldin, en endilega skoðaðu líka með fæðingarþjónustu á suðurlandi það er ómannúðlegt að biðja verðandi foreldra að ferðast úr sínum heimabæ þegar að fæðingu kemur einnig, sérstaklega þar sem ...
Hörður Ágústsson, nýbakaður faðir

13. Febrúar 2009

ŢURFUM RÉTTLĆTI!

Áfram Ögmundur.Við þurfum réttlæti svo við getum snúið Íslandi á rétta braut,það er lykilatriði fyrir okkur og okkar Land.
Guðrún Hlín

13. Febrúar 2009

VANHĆFUR RÁĐGJAFI?

Það má öllum vera ljóst að aðalseðlabankastjóri bankans hefur neitað að víkja sæti og hæstvirtur Forsætisráðherra telur sig ekkert geta gert fyrr en ný lög verði samþykkt. Ekki veit ég hver lögfræðilegur ráðgjafi hennar er en hann er óhæfur því að ...
Þór Gunnlaugsson

10. Febrúar 2009

BETUR EF HLUSTAĐ HEFĐI VERIĐ Á ATLA

... og væri landanum hollt og gott að skoða upptökur af þessum fundum á síðustu metrunum þegar Atli Gíslason þingmaður og hrl fór margar ferðir í pontu veifandi umsögn réttarfarsnefndar hvert stefndi en enginn hlustaði ekki einu sinni dómsmálaráðherra og held ég að þeir hljóti nú að sjá að gerð voru hrapaleg mistök og eins og æðsti prestur Seðlabankans orðar það hrákasmíð. Það er kanski ekki furða þótt enginn skilji....
Þór Gunnlaugsson

9. Febrúar 2009

MEIRIHLUTAVILJI ŢJÓĐARINNAR OG ALŢINGI

Ég fagna því að þú skulir bera þá virðingu fyrir Alþingi og ákvörðun kjörinna fulltrúa að draga kostnaðinn við heilbrigðisþjónustuna niður um 6.7 milljarða. Ekki af því ég haldi að þú sért fullkomlega sáttur við ákvörðun meirihluta Alþingis. Fögnuður minn er vegna virðingarinnar sem þú berð fyrir meirihlutaákvörðun Alþingis. Þetta er í samræmi við þær kröfur almennings sem bornar hafa verið fram í mótmælum fólks undanfarna mánuði. Almenningur er nefnilega ekki sem kjósendur einhverjir vitleysingar. Þess vegna er ein krafan sú að efnt verði til kosninga svo menn geti hafnað meirihlutanum, sem ber ábyrgð á því að einmitt í heilbrigðisþjónustunni skuli skorið niður ... Að lokum þetta. Ég fagna skoðun þinni á seðlabankastjóranum, Davíð Oddsyni, sem fram kemur á heimasíðu þinni. Veruleikinn er ekki jafn svart-hvítur og ætla mætti af umræðum um hann. Það er afsúrt að skrifa vantraustið á íslenska efnhagslífinu á einn mann. Alveg jafn afsúrt er það að halda, að með einum nýjum bankastjóra breytist vantraust í traust. Í þeirri skoðun liggur sama afmyndun veruleikans og sú sem gegnsýrir kosningabækling Sjálfstæðisflokksins sem barst Íslendingum á útmánuðum 2007. Það er einmitt þessi þrönga hugsun, sem veldur því að menn virðast eiga erfitt að greina á milli seðlabankastjórans Davíðs, og stjórnmálamannsins Davíðs, sem á löngum ferli gerði sumt laglega, en getur aldrei losnað undan því að halda fram stefnu Sjálfstæðisflokksins og því að bera ábyrgð á útfærslu frjálshyggjunnar í 18 ár...
Ólína

9. Febrúar 2009

HAFA ŢARF HRAĐAR HENDUR

Sæll Ögmundur og til hamingju með þær er erfiðu byrðar sem þú hefur tekið að þér en þú munt finna lausnirnar er ekki í vafa um það. Það útspil að setja rétt fólk á rétta staði eins og Indriða H Þorláksson í stöðu ráðuneytisstjóra Fjármálaráðuneytisins hlýtur eð skelfa margan viðskiptajörfurinn sem þessa dagana keppast við að koma eignum sínur á ...
Þór Gunnlaugsson

8. Febrúar 2009

LÁTIĐ VERKIN TALA

Til hamingju með nýju ríkisstjórnina. Nú er að sjá hvernig ykkur gengur og bíð ég eftir að þak verði sett á vexti verðtryggðra lána, vísitala lána t.d. færð aftur um einhverja mánuði og stöðvuð tímabundið. Allt mál sem þið hafið talað um og nú ætti að vera auðvelt að koma í framkvæmd. Að færa hluta af verðbótum á höfuðstólinn og borga seinna er eins og að míga í skóinn sinn og ...
Ásgeir Pétur Guðmundsson

7. Febrúar 2009

ŢARF AĐ BYRJA UPP Á NÝTT

...Forgangsvekefni þessarar ríkisstjórnar ætti að mínum dómi að vera að efla atvinnulífið í landinu.Við Íslendingar erum ekki vanir miklu atvinnuleysi en nú er útlitið dökkt.Við þurfum því á ríkisstjórn að halda sem boðar bjartsýni og hvetur fólkið í landinu til dáða.
Jóhannes T. Sigursveinsson

7. Febrúar 2009

UM RÁNFUGLA

...Smá hugrenningar um logo Sjálfstæðisflokksins og hvað stendur á bakvið það!!!! Svo verður hver og einn að túlka það fyrir sig ég fann smá grein um fálkan inná KHÍ og hér kemur það: Fálki eða valur er stór og tígulegur ránfugl, með langa, breiða, odddregna vængi og stél, stærsti fugl fálkaættarinnar og var konungsgersemi fyrr á öldum og um tíma í skjaldarmerki Íslendinga. Fálkinn flýgur með hröðum, kraftmiklum vængjatökum, grípur oft til renniflugs, er hraðfleygur og mjög fimur á flugi. Fálkinn gefur frá sér hvellt væl á varpstöðvum en gargar reiðilega þegar hann er í árásarhug...
Kristófer Kristófersson 

6. Febrúar 2009

AĐ KUNNA SIG, OG EKKI

...En aftur að Seðlabankanum. Ég fagna því að þú skulir ekki hafa stigið trylltan dans kringum liggjandi mann, en ég hvet þig hins vegar til að velta Sjálfstæðisflokknum upp úr gjaldaþrota hugmyndafræði og leiða þá í eiginlegum og óeiginlegum skilningi um þann dimma dal sem þeir skópu sameiginlega fyrir okkur hin, þ.e.a.s. að undanskildum örfáum auðmönnum og nokkur hundruð aftaníossum. Var það misskilningur hjá mér að halda, að víða í heilbrigðiskerfinu hafi menn, í skjóli gjaldþrota hugmyndafræði frjálshyggjunar, komið sér fyrir liggjandi á hryggnum undir kúnni Auðhumlu, eins og jötuninn Ýmir. Á beit hjá ríkissjóði, eftirlitslaust, á meðan sjúklingar og skattgreiðendur blæða? Varstu að ýja að þessu á Alþingi? Mér er sagt að svo hafi ...
Ólína

3. Febrúar 2009

AUĐMENN EĐA...?

...Þar með er ekki útilokað að menn geti auðgast á siðrænan máta, alls ekki, en slíku hefur ekki verið til að dreifa í þjóðfélagi sérhyggju, mafíustarfsemi og frjálshyggju (hugsanlega er þetta þrennt einn og sami hluturinn).
Í mínum huga hefur það legið fyrir frá upphafi, að þegar búið er að virkja lægstu hvatir mannsins er ekki von á góðu enda hefur árangurinn ekki látið á sér standa. Ég var nú lengi með hugmyndir um það þegar Keflavíkursvæðið "rýmdist" að kosið yrði um það hverjir teldu sig frálshyggjumenn og þeir þá fluttir þangað á...
Kári

2. Febrúar 2009

FÉLAGSVÍSINDA-SÉRFRĆĐINGAR SLÁ Í GEGN

...Það er líka í góðu lagi að prófessor í stjórnmálafræði haldi því nú fram að dómsmálaráðherra og viðskiptaráðherra hafi ekki lýðræðislegt umboð frá þjóðinni, að skipan þeirra sé ólýðræðisleg, og að þeir hafi ekki sama styrk og aðrir ráðherrar í rikisstjórn af því þau eru ekki alþingismenn. Ætli þeir í félagsvísindadeildinni kenni ekkert um þrígreiningu valdsins? Ráðherra í ríkisstjórn sætir ákvæðum um ábyrgð og skyldur ráðherra að lögum. Ráðherra fer með og ber ábyrgð á öllu því sem ráðuneyti hennar framkvæmdir. Er í þessu enginn munur á ráðherrum samkvæmt stjórnarskipaninni. Valdsækið flokkakerfi hefur jafnan kallað ný framboð "sérframboð". Félagsvísindasérfræðingarnir hafa oftar en ekki tekið upp þessa orðanotkun. Það kemur því ekki á óvart þegar...
Ólína

2. Febrúar 2009

ŢEIR ELTU HANN Á ÁTTA HÓFA HREINUM...

...Á Sprengisandi, þætti Sigurjóns Egilssonar á Bylgjunni Sunnudaginn 1. febrúar segir Jón Daníelsson hagfræðingur við London School of Economics þetta: „Það þarf að lækka vextina. Í fimm prósent eða meira.... nú er meiri hætta á verðhjöðnun en verðbólgu, sem er mjög alvarlegt. Ef vextir verða lækkaðir mun það laga stöðu heimila og fyrirtækja mjög mikið. Þetta eigum við að gera strax."
Verst að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er ekki með á nótunum.
Hreinn K

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta