Beint á leiđarkerfi vefsins

Frá lesendum

28. Nóvember 2009

MARGT SMÁTT ...

Tvær stuttar spurningar til þín Ögmundur. Jóhanna Sig. segir í Frbl.27.nóv.2009, að verði Icesave ekki samþykkt sé verið "að koma í veg fyrir allar þær stórframkvæmdir sem eru á döfinni". Tekur þú undir þessi stórkarlalegu orð Jóhönnu, sem að mínu mati fela í sér undarlega samtvinnaða réttlætingu fyrir Icesave og gamaldags stóriðjustefnu? ...
Pétur Örn

28. Nóvember 2009

ERU MENN BÚNIR AĐ GLEYMA...?

...Það er alltaf jafn dapurlegt að heyra útskýringar Indriða H aðstoðarmanns Steingríms J um að þetta og hitt sé misskilið í því sem hann sé að gera og allt rétt sem hann ákveði. Eru menn búnir að gleyma hans túlkun sem Ríkisskattstjóra á skattskyldu lögaðila vegna Kárahnjúkavirkjunnar og að Impregilo skyldu greiða opinber gjöld starfsmanna á virkjunarsvæðinu?? Indirði H kom ekki fram í fjölmiðlum þegar Hæstiréttur snéri þessu við og ...
Þór Gunnlaugsson

28. Nóvember 2009

Í HVAĐA LIĐI ERUĐ ŢIĐ?

...Verðið þið í liði með Nixon eða Lennon? Heims-kapítalismans eða fólksins? Hugsið -hvert ykkar og eitt- hugsið í hvert sinn sem þið snertið takkana á þingi? Við, umbjóðendur ykkar, munum dæma ykkur.........að lokum.
Með kveðju,
Pétur Örn

25. Nóvember 2009

STUNDAR SEĐLABANKI FJÁRHĆTTUSPIL?

Getur verið að sjálfstæði Seðlabanka sé stjórnarskrárbrot. Fjárhættuspil Más Guðmundssonar á ábyrgð íslenskra skattgreiðanda er utan fjárheimilda fjárlaga. Svo virðist sem Seðlabanki standi fyrir utan lög og reglur, geti tekið lán og sólundað þeim í gjaldeyrisbrask án eftirlits alþingis og án heimilda...
Hreinn K

23. Nóvember 2009

NAFNGIFTIR BANKA

Sammála þér Ögmundur um Arion bankann. Þetta er ömurlegt nafn svo ekki sé meira sagt, hreint ömurlegt. Þetta nafn sæmir engum banka nema þeim sem ætlar sér eitthvað glæpsamlegt. Ég sem maður get ekki borið virðingu fyrir þessum banka, ég vildi fá aftur Búnaðarbankann með sínum eðlilegum og íslenzkum hefðbundnum gömlu góðu gildum. Ekki finnst mér heldur bankastjórinn traustsins verður, hann hefur gengið hart að viðskiptavinum sínum og ætti þess vegna að ...
Carl Jóhann Lilliendahl

23. Nóvember 2009

UM STÓRIĐJU OG SÉREIGNASPARNAĐ

...Önnur saga; hvet þig og þitt fólk að gera fólki áfram kleift að nýta sér séreignarsparnað enn um sinn og ekki láta slitna á milli greiðslna til fólks eins og við blasir um komandi áramót, en þá eru þeir sem hófu töku um leið og unnt var búnir með þann kvóta sem þá var til úthlutunar. Ég sé í kringum mig bæði við leik og störf að þessir aðilar hafa getað með þessu móti staðið sína pligt, bara ekki slíta á milli svo að þessir aðilar sem njóta í dag, þurfi nú ekki að fara að bíða á meðan einhver nefnd fer að spekulera í einhverjar vikur eða jafnvel mánuði...
Óskar K Guðmundsson, fisksali.

23. Nóvember 2009

BURT MEĐ VERĐTRYGGINGUNA

Verðtrygging á lánum Ljóst er að það þarf að bæta upp það mikla fjárhagslega tjón sem varð við efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Ein leiðin sem farin er nú er að hækka skatta á hinar ýmsu vörur og þjónustu. Þetta veldur því að þessir hlutir hækka í verði og við það eykst verðbólgan. Skelfileg afleiðing þess er að öll húsnæðislán hækka vegna verðtryggingar ...
Ólafur Örn Pálmarsson

21. Nóvember 2009

SÖNGVARI EĐA HROSS ÚR ÁRMÚLANUM

Og svo stofnsettu þeir banka...sem átti íbúð í Lundúnum sem hann lánaði fyrirmönnum fyrr á tíð. Allir skráðu nöfn sín í gestabók. Sú bók hvarf þegar fletta átti upp hverjir ...Mér finnst þessi Arion vera úr Ármúlanum í Reykjavík, eða er það misminni? Mig minnti að Arion væri gamalt verðbréfumsýslufyrirtæki, eða var það fyrirtæki sem hjálpaði innlendum að koma fé úr landi? ... Voru það ekki þeir sem kynntu sig svona uppá ensku.....
Mig minnir að þeir hafi tekið fram, hjá gamla Arion, sérstaklega þetta: „Starfsfólk Arion vinnur eftir starfsreglum sem eru samþykktar af Fjármálaeftirlitinu." 
Grískt skal það vera, og glaðlegt, nema ef heitið verður skýrt með lítilli sögu um ...
Ólína

18. Nóvember 2009

KEM EKKI AUGA Á VINSTRIĐ

Ég tek undir með "einni atvinnulausri" sem skrifar þér á heimasíðuna um "Norrænu vinstri velferðarstjórnina". Ég sé nú ekki lengur mikið vinstri í þessari ríkisstjórn. Ekki hjálpaði að þú fórst úr stjórninni og Álfheiður Ingadóttir var sett í þinn stað. Gagnrýni þín virtist ekki torvelda henni að setjast í þitt ráðherrasæti eins og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hafði manndóm í sér til að afþakka. Mér sýnist fátt trufla ráðherrana annað en að óttast um stólana sína. Aldrei hefði ég trúað þessu á VG!!! Eina sem ...
Ein sem kaus VG síðast

18. Nóvember 2009

NORRĆN VELFERĐAR-STJÓRN?

...Einasta sem ríkisstjórnin gerir að EIGIN frumkvæði er að skera niður í velferðarkerfinu. Ætlist þið til þess að vera tekin alvarlega? Átti þetta ekki að vera vinstri stjórn - átti hún ekki að heita Norræn velferðarstjórn sem verndaði launafólkið og velferðina? Sjálf var ég að missa vinnuna eftir tuttugu ára starf á velferðarstofnun vegna niðurskurðar sem fjármálaráðherrann segir að hafi tekist stórkostlega vel. Átti þetta að vera brandari? Mér er ekki hlátur í huga.
Ein atvinnulaus

18. Nóvember 2009

MESTU SVIK STJÓRNMÁLA-SÖGUNNAR

...Ég óska Ásmundi Einari Daðasyni til hamingju með formannskjörið í félagi sjálfstæðissinna "í Evrópumálum".  Ég eins og þú er meðlimur í Heimssýn, sem ég vil frekar kalla Heimsýn, og báðir viljum við halda okkur utan afskipta og oks annarra þjóða! Ég er einnig mjög á móti samþykkt Iceslaves á Alþingi áður en að ...
Helgi

17. Nóvember 2009

SUBBUSKAPUR!!!

...Nú væri óskandi að fjölmiðlar gerðu grein fyrir þessum kónum og upplýstu á hvaða grundvelli þeir gera þessar kröfur. Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, mætti svo spyrja hvaða ráð hún kaupir og þiggur af fyrrum aðstoðarmanni sínum nú, sem er í þessum hópi, og hvort verðið fyrir þau ráð séu í ætt við kröfuna á Landsbankann. Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, sem þekktur er fyrir nýstárlegar mannaráðningar, gæti svo útskýrt fyrir alþjóð hvort einhver stór-kröfuhafanna er verktakaráðinn hjá honum í ráðuneytinu og í öðru lagi hvort búið sé að samþykkja lagafrumvarp á Alþingi sem veitir einum kröfuhafanum feitt embætti í húsnæðiskerfinu. Subbuskapurinn í kringum þessa ríkisstjórn fer vaxandi sýnist mér, en vonandi er hann ekki smitandi. Hvað ætli menn sem gera svona kröfur hafi haft af ...
Hafsteinn

17. Nóvember 2009

ANNARS EIGUM VIĐ AĐ FARA Í RUSLFLOKK!

Því miður eru margir skólar ekki að standa sig betur en svo að þeir eru ekki einu sinni með myndavélakerfi í skólunum og auglýsa sig svo sem mjög öfluga í að vinna gegn einelti. Síðan má eiginlega segja að skólarnir séu skipaðir fólki sem er misvel fallið til að gæta hagsmuna barna, sérstaklega lesblindum og ADHD börnum sem ítrekað eru svikin um greiningu og hjálp og síðan skömmuð fyrir að standa sig ekki í skólanum. Allir skyni bornir hljóta að skilja að svona meðferð á börnum getur ekki endað öðruvísi en með algjöru niðurbroti hjá börnunum nema þau fái ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

17. Nóvember 2009

EKKI SKULDAŢRĆLAR!

...Pétur Örn spurði þig af ærnu tilefni og þú vísaðir í þessi lokaorð pistils: "Að öðru vísi samsett ríkisstjórn hefði leitt til svipaðrar niðurstöðu. Fyrir þessum einstaklingum ber ég meiri virðingu en fyrir hinum sem alltaf gera það sem auðveldast er í stöðunni hverju sinni". Orðin: "Að öðru vísi samsett ríkisstjórn hefði leitt til svipaðrar niðurstöðu" finnst mér vera afsökun þeirra sem ætla að koma ólöglegri nauðung yfir á saklausan almenning þessa lands. Og af því Bretar, Hollendingar og Evrópusambandið heimta það. Ykkur verður aldrei stætt á að ...
ElleE

17. Nóvember 2009

ŢAĐ Á AĐ STÖĐVA BARNAVERNDAR-NEFND

Það þarf að stöðva Barnaverndanefnd strax og taka völdin af henni og ef starfsmenn Barnaverndanefndar hlýða ekki þá á að láta lögregluna hirða þá...
Jón Þórarinsson

16. Nóvember 2009

"ŢÚ TREYSTIR ŢÉR EKKI..."

Er ekki raunverulega ástæðan fyrir að þú sagðir upp í þessari ríkisstjórn að þú getur ekki horfst í augu við þann niðurskurð sem er framundan? Þú treystir þér ekki í þetta og notar svo Ice-save sem afsökun og heldur að þú sért þjóðarhetja. Ja mér datt þetta svona í hug þar sem þu sagðir upp stuttu eftir að allir helstu fjölmiðlar landsins hefðu birt greinina um St. Jósefss spítala sem er lokað hægt og hljótt, en það eru dæmigerð vinnubrögð hjá Vinstri Grænum, í stað þess að gera eins og Guðlaugur Þór gerði, það er að segja...
Þröstur Kári Jónsson

16. Nóvember 2009

EKKI SAMŢYKKJA

þú ert eina von okkar til að þetta verði ekki samþykkt!!!!!!!!!! Guðfríður Lilja virðist ætla að guggna á síðustu metrunum. Við eigum ekki að borga þetta - þetta voru einkabankar og einkaskuldir þeirra sem nú eru að ...
Guðrún Harðardóttir

16. Nóvember 2009

VARIST AĐ SKATTLEGGJA KREPPUNA

Í allri þessari umræðu um skattamál, hefur aldrei borist til tals að hækka skatta prósentuna á arðgreiðslur fyrirtækja???? það er á allra vitorði að fyrirtæki nýta sér þessa lágu prósentutölu, væri ekki nær að horfa í þá átt frekar en að leggja á umframgreiðslugetuskatt á landslýðinn. ...
Rúnar Harðarson

16. Nóvember 2009

SPURT AF ĆRNU TILEFNI

Ein einföld spurning, eða kannski tvöföld, til þín Ögmundur. Spurt af ærnu tilefni. Ætlar þú að standa vaktina í Icesave málinu, eða ætlar þú og kannski fleiri að lyppast niður í káetu líkt og Guðfríður Lilja, að boði heyrnarlausra Stalínista og heimskapítalista?
Pétur Örn

16. Nóvember 2009

GEGN OFRÍKI

...Þú ert okkar eina von. Ég get ekki sætt mig við þetta ofríki Breta og Hollendinga og vonandi fellur þú þennan samnig...
Jón Björnsson,
Málarameistari

12. Nóvember 2009

Á YKKAR ÁBYRGĐ!

Ögmundur, í bréfi til síðunnar frá Kristjáni 2. nóvember: "ER ÁBYRGÐAR-LEYSI AÐ HAFNA ICESAVE?" kallar hann það þjóðrembu af fólki að vera andvígt Icesave. Kristján, Icesave er ólögleg kúgun AGS, Breta og Hollendinga, Icesave er einkaskuld einkafyrirtækis og stærsti skuldarinn er Björgólfur Thor hinn ríki Londonbúi. Íslenskir skattborgarar skulda engan veginn Icesave samkvæmt neinum lögum. Haltu þig við hluti eins og þeir eru og mæli með að þú lesir skrif fjölda lögmanna þar að lútandi. Ögmundur, í svari þínu til Kristjáns sagðir þú að Sjálfstæðisflokkurinn hefði samþykkt að borga það sem sett yrði upp ...
ElleE

9. Nóvember 2009

AĐ STANDA VIĐ ORĐ SÍN

Sem kjosandi VG frá byrjun varð eg fyrir miklum vonbrigðum að þú skyldir segja af þér sem ráðherra. Hefði talið þig sýna meiri ábyrgð en að hætta á að stjórnin falli og við sætum uppi með hægra sukkið á þessum alvöru tímum. Það var búið að lofa að borga Icesafe og við vinstri menn göngum ekki á bak orða okkar og ...
Óskar

9. Nóvember 2009

MISMUNUN MEĐ HANDAFLI?

...Það er ein ransókn sem verður nú að fara fram, þar sem nú er um eitt ár liðið frá bankahruninu. Það læðist að mér sá grunur að það sé verið að fella niður skuldir með "handafli" á vini og vandamenn, þess fólks sem á góðan aðgang að innviðum bankakerfissinns, hvet ég alla sem hafa slíkan grun...
Kristófer Kristófersson

8. Nóvember 2009

ERUĐ ŢIĐ Á SPORINU?

Ég skil ekki alveg hvað hefur gerst með ykkur Vinstri græna Steingrímur þinn formaður sem var með þér helsti andstæðingur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þegar hann var utan stjórnar. Hann tók mikið upp í sig talaði norðlensku af tungulipurð en er nú linmæltur fyrirmyndar nemandi í háskóla alþjóðlegrar auðhyggju. Ég spyr bara eru þið á sporinu...
Nordlendingurinn/Guðmundur Jónsson

6. Nóvember 2009

UPPHAFIĐ ER RÉTTLĆTI

Að tapa hugrekkinu er að tapa öllu. Ríkisstjórnin viðurkennir að ekki sé gengið fram fyrir skjöldu réttlætis þegar þau hafa afsakað sig í einu orði en í því næsta reynt er að telja þjóðinni trú um að eina staðan sem fyrirfinnist sé að samþykja og gangast undir allt ofbeldi Breta og Hollendinga gagnvart fyrirvinnum landsins, þeim sem ...
Anna Björg Hjaratardóttir

6. Nóvember 2009

VILDU HÁMARKSGRÓĐA

Lögin 98/1999 segja að íslenska ríkið sé ekki í ábyrgð fyrir einkabanka né fyrir Ice-save innstæðunum. Þeir sem lögðu inn vildu fá hærri vexti. Sama og hlutabréfaeigendur vilja. Þeir, sem samþykkja gera það gegn betgri vitund og brjóta æðstu skyldu sína, að gera það sem samviskan býður þeim.
Guðmundur Guðmundsson

6. Nóvember 2009

ÖGMUNDUR STATTU MEĐ ÍSLENDINGUM Á ÖGURSTUND!

...Því hversu mikið sem þú óskar að ríkistjórnin haldi velli bliknar sá draumur við að gera það eina rétta og vernda Ísland og hagsmuni Íslendinga.Og það er ekki gert með því að gefast upp fyrir bleyðum sem sparka í beygða en ekki brotna þjóð heldur með því að berjast gegn þeim yfirgangi!!! Svo sýndu styrk og sanna hetjulund:)og segðu stórt nei. Þú hefur nefnilega það til bera sem allir Íslendingar geta flykkst um af einlægni: sameingarkraft og ættjarðarást. Lifi Ísland. Baráttukveðjur,
Eva Lísa Bjarklind

3. Nóvember 2009

ANDI BJÖRNS?

Halló halló ég hélt að Björn Bjarnason væri farinn úr dómsmálaráðuneytinu ... ég sé ekki betur en andi hans svífi enn yfir vötnum þar. Er ekki kominn tími til að endurskoða meðferð okkar á flóttamönnum?
Jóhannes F. Skaftason

3. Nóvember 2009

NEI VIĐ ICESAVE!

...Ég get ekki séð mig færan um að benda á einn jákvæðan punkt í þessum samningum, það er bara verið að skuldbynda mig og afkomendur mína og ég er samt sem áður aðeins 18 ára. Ég tek það ekki í mál að borga þessa samninga, ég samþykkti aldrei að verða ábyrgðamaður fyrir þessu og mér finnst það forkastanlegt að fólk hugsi til þess að samþykja þá. Hvort er verra, 5-10 ár í efnahagsþrengingum og minnkun lífskjara eða skuld sem mun hafa áhrif á alla í nútímanum og komandi framtíð? Mér finnst fyrri kosturinn standa gífurlega mikið upp úr!! Þú hefur alltaf verið maður orða þinna og fylgt þinni sannfæringu, það er aðeins hægt að segja um...
Sævar Már Gústavsson

2. Nóvember 2009

ER ÁBYRGĐAR-LEYSI AĐ HAFNA ICESAVE?

Það er í sjálfu sér ekki erfitt að vera á móti því að þurfa að greiða háar fjárhæðir úr landi eins og fylgja Icesave samningnum. Margir sem eru á móti Icesave samningum spila nokkuð mikið á þjóðarrembing og hvað allir eru vondir við okkur, sérstaklega Bretar. Vandamálið með þá sem eru á móti Icesave samningum er það að þeir hafa aldrei komið með neinar tillögur um það hvað taki þá við og hvaða afleiðingar menn telja að höfnun hans hafi. Hver er fórnarkostnaðurinn? Ef lánalínur lokast, lán frá AGS o.fl. verða stöðvuð, uppbygging efnahagslífsins frestast. Hvað sjá menn fyrir sér að ...
Kristján

1. Nóvember 2009

BARNALÁNS-SONNETTAN

Í græðgi eru veðsett börn þess virði
að vandamálum foreldra þau breyti
því ávallt fer það svo að lána leiti
þeir lánsömu sem forðast vilja byrði.
....
Kristján Hreinsson


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Frá lesendum

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta