Beint á leiðarkerfi vefsins

Frá lesendum

31. Janúar 2009

KOMA SVO!

Loksins glittir í vinstri stjórn og stórfínt að Sjálfstæðisflokkurinn skuli þurfa að láta fyrirliðabandið af hendi og taka sér sæti á bekknum. Þetta gerist að vísu við mjög óvenjulegar og erfiðar aðstæður í þjóðfélaginu, en þó er það gersamlega sláandi hvað andlit nýrrar ríkisstjórnar eru gersneydd upplitsdirfsku. Á öllum þeim myndum sem birst hafa er eins og Jóhanna og Steingrímur hafi verið vakin upp af vondum draumi og stillt rakleiðis upp fyrir framan aftökusveit. Útlitið er vissulega ...
Dagur Kári Pétursson

30. Janúar 2009

MUNDU GJAFAKVÓTANN

...Manst þú eftir því þegar þú sagðir að taka ætti gjafakvótann af útgerðarmönnum? Nú er VG að komast í ríkisstjórn veriði nú sjálfum ykkur samkvæm.
K.v.
Jón Þ

29. Janúar 2009

KVEÐJA ÚR SIGTÚNI

Sæll Ögmundur, mundu að í Sigtúnshópnum höfðum við hlutina einfalda og málin markviss --- og það náðist árangur á stuttum tíma, Gangi þér vel í að afgreiða vandasöm verk...
Ágúst Guðm."einn úr Sigtúnshópnum"

29. Janúar 2009

HVAÐ ER GERT VIÐ ORKUNA?

Að gefnu tilefni http://www.vald.org/greinar/090126.html gangi ykkur vel...
Björn Fróðason

29. Janúar 2009

SJÁLFSTÆÐISMENN MISNOTA VALD SITT

Var að lesa þessa frétt á vísir.is http://visir.is/article/20090127/FRETTIR01/351853935 og spyr er ekki hægt að breyta þessari reglugerð þegar þið gekkið við? Og hvað finst þér um þetta? þá aðalega að setja þetta til 5 ára er þetta ekki missnotkun á valdi spyr ég bara?
Stefán Gunnarsson

28. Janúar 2009

SPURT OG SVARAÐ UM EFTIRLAUNALÖG

...þá ætti að vara að skapast tækifæri til að breyta eftirlaunafrumvarpinu eins og hugur þinn stóð til fyrr í vetur! Hyggst þú beyta þér fyrir því nú?
Jón Sævar Jónsson

28. Janúar 2009

SÚ NÆSTSÆTASTA

Sæll,
það er ekki alltaf nóg að fara heim með næst sætustu stelpunni af ballinu.........
P.

27. Janúar 2009

LOKKAÐIR?

Þessar erlendu kröfur eru til komnar vegna þess að erlendir sparifjáreigendur voru lokkaðir til að setja allt sitt sparifé inná ótrygga reikninga. Þetta er mikilvægt að hafa í huga...
Jón Þ

27. Janúar 2009

BLÓÐPENINGAR!

...að þegar Bjarni Ármannsson og aðrir hans líkir ætla að koma og redda öllum málum þ.e. stofna fyrirtæki og útvega þeim sem eftir verða á klakanum vinnu þá eru það BLÓÐPENINGAR sem þeir nota við uppbygginguna. Held að ég vilji frekar lepja dauðann úr skel heldur en að vinna fyrir þessa skúrka.
Kristófer Kristófersson

27. Janúar 2009

VILJUM EKKI ANDLITSLAUST VALD

Ég treysti því að VG haldi vöku sinni varðandi aðild að Evrópusambandinu. Stór hópur félaga í VG er andvígur aðild að Evrópusambandinu enda er það að mínu mati ekki í anda VG að fela sig bak við andlitslaust vald og skrifræði.
Anna Ólafsdóttir Björnsson

27. Janúar 2009

BRÁÐABIRGÐA-RÍKISSTJÓRN GERIR ENGIN KRAFTAVERK

...Hvers vegna liggur VG svona á að komast í stjórn?  Af hverju bíðið þið ekki eftir kosningum?  Þær verða í síðasta lagi 9. mai. Væri ekki skynsamlegra að setjast í stjórn með umboð frá þjóðinni heldur en að fara að mynda bráðabirgðastjórn með SF?  Mér finnst Steingrímur (og þá væntalega VG) allt of æstir að komast í stjórn og þá læðist að mér sá grunur að flokkurinn líti svo að þetta sé hans eina von um að komast til valda.  Ef að flokkurinn hefði hins vega trú á sér biði hann eftir umboði frá þjóðinni.  Ég hef ekki trú á því að bráðabirgða stjórn myndi ná að gera einhver kraftaverk.  SF er í allsherjar upplausn núna og að mínu mati væri ...
Sigurbjörn Halldórsson

26. Janúar 2009

VG HALDI SÍNU STRIKI!

...Þið hjá VG hafið ein verið á móti þessu láni og verð ég að lýsa virðingu minni á ykkur fyrir hugrekkið og vitsmunina - þess vegna eruð þið nú óstjórntækur flokkur; eða eigum við ekki bara að segja látið-ekki-að-stjórn flokkur. Menn eru fyrir löngu búnir að gleyma umræðunni um kosti og galla þess láns og sjá ekki samhengi hárra stýrivaxta og lánsins - en kvarta samt yfir vöxtunum....
Þór Þórunnarson

26. Janúar 2009

HVAÐ ER AÐ FINNA Í SKÚFFUNUM?

Ríkisstjórnin er voðalega góð þessa dagana að eigin sögn. Hvílík framkvæmdagleði í þágu heimilanna. Hefur sko fundið það upp að setja ekki barnabætur upp í opinber gjöld. Einhverstaðar las ég að umboðsmaður alþingis hefði fyrir löngu sent álit sitt um að það væri óeðlilegt að bætur sem væru ætlaðar til að bæta lífsskilyrði barna væru skuldajöfnuð á þennan hátt. Hvað varðar frumvarpið um greiðsluaðlögun þá er ....
Kristín

26. Janúar 2009

HVER ÓL ÞIG UPP?

Auðvitað veistu það Ögmundur, að maður sem hagar sér eins og þú á Alþingi, eins og þú gerðir í s.l. viku er ekki stjórntækur. Bíttu í það súra. Og mundu: Mótmælendavinir þínir sem ráðast að lögreglunni og særa eru skríll (lesist eiturlyfjafíklar & þjófar), en gerðu þeim ... Hvaða Jónas ól þig eiginlega upp?
84367

25. Janúar 2009

TRAUST HANDABAND

...Auðvitað er það rétt að lögreglan er samherji fólksins en ekki mótherji þess.  Lögreglan er almúgafólk, skattgreiðendur og góðir Íslendingar eins og þú og ég sem veldur mjög erfiðu starfi vel og faglega sem er ekki minnst að þakka Geir Jóni og hins ágæta lögreglustjóra Stefáni Eiríkssyni. Fólk verður að gera sér ljóst að hin óvinsælu og ónýtu stjórnvöld ota lögreglunni ...
Úlfur 

25. Janúar 2009

KOMA ÞARF TIL MÓTS VIÐ FÓLKIÐ

Mig langar svo til að athuga hvort ekkert eigi að fara gera varðandi gjaldþrotalögin í landinu ? Ef svo, hvenær? Það virðist allt stefna í fjöldagjaldþrot og heimilin í landinu geta ekki beðið,ef það verður mikið atvinnuleysi þá rúlla bankarnir aftur yfir og það mun gerast mjög fljótt. Og þess vegna verður að tryggja fjölskyldu fólkinu einhvað öryggi og það strax. Því það er allt að fara í köld kol. Afhverju er hægt að hafa útistandindi kröfur á fólki til 10 ára ! Afhverju er ekki fólki gert kleift að getað lifað áfram sínu lífi og með sínum börnum og einstaklingum almennt í staðinn fyrir að missa þetta fólk endanlega og missa af tekjum til ríkissjóðs. En afhverju er ekki ...
Natalie

25. Janúar 2009

HVAÐ VERÐUR GERT FYRIR VERSLUNARFÓLK?

...Ég hef verið að velta fyrir mér undanfarna mánuði hvað stjórnmálaflokkarnir ætla að gera til að bæta og passa uppá kjör verslunarfólks og verkafólks. Hvað ætla VG að gera fyrir þetta fólk?...
Ásdís Helga

25. Janúar 2009

MAFÍU-STJÓRNMÁL?

Er mafía á Íslandi? Ég þarf svosem ekki að setja spurningamerki á eftir setningunni. Jú lesandi góður, það er mafía á Íslandi. Í örfáum orðum þá virkar kerfið svona,auðmenn útgerðarrisar, Samherji á Akureyri og fl og fl dæla fjármunum inní Valhöll, síðan eru ráðherrar Sjálfstæðisflokksins verkfæri í höndum þessara manna, og koma öllum þeim hagsmunum sem þeir vilja í gegn á Alþingi og fá sennilega svolítin bitling fyrir andskotin hafi það. Það er komið nóg af þessu bulli, nú þarf að svæla út grenið í eitt skipti fyrir öll...
Kristófer Kristófersson

25. Janúar 2009

BARA HUGSAÐ UM VÖLD?

...Eins og þú og Steingrímur hafa talað undanfarið vilið þið mynda stjórn með SF sem er annar þeirra flokka sem fólkið er að mótmæla í dag.  Mun sá flokkur breytast svo mikið við að fara í samstarf við VG að fólk sætti sig við hann í stjórn?  Ég hef ekki heyrt neinn úr SF gera athugasemdir við skilyrði IMF.  SF vil fara inn í ESB.  VG er á móti skilyrðum IMF og síðast þegar ég vissi vildi VG þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort ætti að fara í alildarviðræður við ESB.  Finnst VG það vænlegur kostur að fara í stjórnarsamstarf með fólki sem fer á taugum og gerir ...
Sigurbjörn Halldórsson

22. Janúar 2009

VAKNIÐ AF VALDABLUNDI!

...Það er von mín og meirihluta þjóðarinnar að Samfylkingin fari að vakna af sínum valdablundi , hlusti á meirihluta þjóðarinnar og slíti þessu handónýta stjórnarsamstarfi við sjálfstæðisflokkinn.Síðan yrði boðað til kosninga. Eftir 18 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins með stefnu sem er orðin miklu meira en gjaldþrota, þá er komið nóg. Það er lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að þessi flokkur fari í langt frí svo hægt sé að taka til eftir hann og byrja að endurreisa Ísland úr rústum stefnu hans síðastliðin 18 ár. Geir H Haarde. Gerðu það fyrir Ísland, íslensku þjóðina og sjálfan þig, segðu af þér og vertu utan ríkisstjórnar.
Sveinn Elías Hansson

22. Janúar 2009

AFHROÐ AUÐVALDSINS!

...Geir hefur sagt að ef kosningar yrðu boðaðar þá mundi upplausn skapast í þjóðfélaginu! Hvað heldur maðurinn eiginlega að ástandið sé nú?  Er maðurinn fullkomlega úti að aka og skilningslaus? Getur þjóðfélagsástandið virkilega verið í meiri upplausn en nú er? Geir Hilmar segir að ríkisstjórnin sé starfhæf! Þetta sýnir tvímælalaust að maðurinn er fullkomlega raunveruleikafyrtur?  Það er ekki hægt að halda fundi á Alþingi vegna mótmæla almennings, allra flokka fólks, hver höndin er uppi á móti annarri í ríkisstjórnar liðinu, og ...
Úlfur

21. Janúar 2009

VIRKJUM LÝÐRÆÐIÐ

...Ég geri mér vel grein fyrir því að ástand mála hér er það slæmt að rótækar breytingar þurfa til. Ekki einungis að skipta um ríkisstjórn. Ekki einungis að skipta út fólki - þó að það sé vissulega nauðsynlegt - heldur þurfum við nýtt kerfi. Það þarf að koma til nýtt kerfi sem virkjar og (involverar) fólkið í landinu í ákvarðanatöku er varðar þjóðarhag. Þessar hugmyndir mínar, er ég reifa í umræddu bréfi, eru mitt tilleg í þá átt að auka lýðræði (í raun koma því á) og bæta þar með mannlífið og þjóðfélagið...
Þór Þórunnarson

21. Janúar 2009

HNEFANN Á LOFT!

Takk fyrir að heyra og sjá hvað er að gerast í landinu, það þarf að virkja restina af flokknum til hins sama ef þið eigið ekki að glata trúverðugleikanum. Þú hefur sterka rödd sem við þurfum öll á að halda núna. Hnefann á loft, flott hjá...
Sigríður Ævarsdóttir

18. Janúar 2009

JÓL Á GAZA

Takk fyrir að vera þú og passaðu þig á myrkrinu eins og Jónas segir. Listamenn eiga ekki að þvælast fyrir alvöru fólki á alvörutímum sem þessum. En samt ... Mig langar að biðja þig um að birta þetta ljóð mitt á þínum fjölsótta vettvangi. Held að það eigi erindi til fleiri en örfárra sálna. Gerði fyrsta uppkast í gær og lauk þessu svo í dag.
Jól á Gaza 2008...
Jóhann Frímann Gunnarsson

18. Janúar 2009

BRUNARÚSTIR SJÁLFSTÆÐIS-FLOKKSINS MEÐ KVERKATAK Á ÞJÓÐINNI

Það er heldur dapurlegt að lesa ummæli forsætisráðherra um hvernig komið sé fyrir þjóðinni á hans vakt og sérmenntaður hagfræðingur í þokkabót og ekkert minntist hann á að hann væri á förum úr ríkisstjórn. Ekkert hefur enn skeð á hans vakt. Allir við störf í nýju bönkunum sem tóku þátt í gerningum þeirra gömlu en engar breytingar yfir höfuð fyrirhugaðar í stjórnkerfinu og þessu á að troða niður um kok landsmanna. Bankamálaráðherrann hefur heldur ekki...
Þór Gunnlaugsson

17. Janúar 2009

HVER ER MAÐURINN - HVAÐ GERIR HANN?

Hann var viðskipta-og bankamálaráðherra þegar samið var við Evrópubandalagið um regluverk bankanna á EES- svæðinu. Hann hefur um skeið setið sem varaformaður bankaráðs Seðlabanka Íslands. Hann er formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins. Hann lét nota sig með mynd og texta í auglýsingu Landsbankans um Icesave reikninga sína, einsog hver önnur fyrirsæta, þegar Hollendingar voru plataðir til að ...
Ólína

17. Janúar 2009

EKKI BRENNA INNI Á TÍMA

Eftir lestur MBL í dag 17.01 og umræður á Norðurlöndunum eða hræðslu um að Noregur dragist nauðugur með inn í ESB ef við förum þangað inn beini ég þeirri málaleitan til þingmanna VG að þeir beini áhrifum sínum ... Það vill nú þannig til að Island verður oliuland í framtíðinni og með Noreg sér við hlið verða þessi 2 lönd stórveldi og því allt að vinna fyrir þessi ríki á sviði sjávarútvegs og oliuvinnslu. Varpa þessu fram til ...
Þór Gunnlaugsson

16. Janúar 2009

FYRST UPPLÝSINGAR, SVO ÁKVARÐANIR

...Hann vildi fá "réttar-endurskoðendur" (forensic auditors) og sérfræðinga í að endurskipuleggja ríkisskuldir.
Aðalatriðið: Til að hægt sé að skipuleggja framtíð Íslands þurfum við að vita strax og sundurliðað, hverjar eru skuldir þjóðarinnar og hvaða eignir eru á móti. Til að taka upplýstar ákvarðanir þarf upplýsingar.
Hreinn Kárason

15. Janúar 2009

"JOKA KYMMENES VUOSI"

...Hann er sérfróður um finnsk málefni. Talar finnsku reiprennandi og þekkir fjármálalíf Finna eins og handarbakið á sér. Var til dæmis fenginn til að fylgjast með finnsku fjármálakreppunni sem reið yfir um það leyti sem Davíð Oddsson kom Sjálfstæðisflokkunum aftur til valda í íslenskri pólitík eftir stutt niðurlægingartímabil þess flokks. Þetta tókst Davíð, mestan part fyrir atbeina tveggja Jóna Alþýðuflokksins sáluga, Hannibalssonar og Sigurðs. Báðir "pensionistar" nú, hvor með sínu sniði, ef ég skil fréttirnar að heiman rétt. Grannkonan vildi að ég hittI þennan fyrrum starfsbróður sinn til að heyra hann tala um finnsku leiðina, milliliðalaust. Finnsku kreppuna. Þá ferð án fyrirheits, sem varðhundum valdsins, varð svo töm í haust. Þessi leið sem ég sá að íhaldssamir íslenskir blaðamenn og þeir sem vissu ekki betur mærðu fram eftir hausti eftir að íslensku bankarnir fóru á hausinn. Sumir átu gagnrýnislaust upp eftir talsmönnum ríkisstjórnar, Vilhjálmi Egilssyni, og Þór Sigfússyni að finnska leiðin ...
Ólína

15. Janúar 2009

SLÍTUM STJÓRNMÁLA-SAMSTARFI VIÐ ÍSRAEL

Slíta þarf stjórnmálasamstarfi við Ísrael þegar og upplýsingar um þær vörur sem seldar eru hér og koma frá Ísrael þarf að kynna fyrir alþjóð og þannig geta einstaklingar sjálfir valið hvað keypt er. Vil um leið senda inn athugasemd í sambandi við fjálsverslunarsamning EFTA við Ísrael að þar - við fyrirspurn Össurar í sambandi við hann - að upplýsingar í sambandi við svör - voru að upplýsingar væru ekki tiltækar í sambandi við hvaða fyrirtæki og einstaklingar sem hafa þessi viðskipti. Mjög ...
Emelía Einarsson

15. Janúar 2009

ENGAR VIÐRÆÐUR FYRR EN HRYÐJUVERKA-LÖGUM HEFUR VERIÐ AFLÉTT!

...Sendinefndir koma hér í næstu viku til samningaviðræðna vegna Icesafe og álíkra innlánsreikninga en Bretar hafa hunsað bréf ríkisstjórnarinnar um að aflétta hryðjuverkalögum af útibúum okkar og hindra þannig að hægt sé að vinna við að koma í verð því sem þar er geymt. Mér finnst það bara ekki koma til greina að sitja við samningaborð rétt eins og handteknir aðilar af mannræningjum og semja um lausnargjald. Það bara kemur ekki til greina. Þjóðinni ber afdráttarlaust að neita slíkum fundum uns...
Þór Gunnlaugsson

13. Janúar 2009

GUÐLAUGUR AÐ ÆFA SIG FYRIR SPÍTALAHRUNIÐ

,,Ég er ekkert að þræta fyrir það og get alveg sagt eins og er að ég sá ekki þessa hluti fyrir. Mér þykir það bara mjög miður og biðst afsökunar á því," sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, þegar hann gerði játningar í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi um hlut Sjálfstæðisflokksins í falli bankanna og þeim efnahagsþrengingum sem markaðshyggjan og stuðningsklíkur hennar, innan flokks sem utan, hafa leitt þjóðina í...
Þjóðólfur

12. Janúar 2009

HVAÐ MUNAR BJARNA ÁRMANNS UM 37 KRÓNUR?

Það var lágt risið á snillingnum  Bjarna og var sjálfsagt allt upp spunnið af almannatenglum, ekki bara svör og háttalag heldur hefur hann einnig notið ráðlegginga sérfræðinga um ásýnd alla. Bjarni var ekki með milljóna króna töffaragleraugun á nefinu, hann vildi nefnilega vera alþýðlegur og mildur, hann var þreytulegur að sjá enda sýndist mér hann sminkaður eins og lík. Þá voru jakkafötin ekki úr smiðjum dýrustu hönnuða heims, nei þau minntu á gamlan galla frá...
Þjóðólfur

11. Janúar 2009

GUÐLAUGUR Á FJÖLDAFUNDI

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra "hélt" í gær fjölmennan „kosningafund í Hafnarfirði" ef svo má að orði komast. Kom það reyndar ekki til af góðu enda ekki við að búast. Húsfyllir, yfir tvö þúsund manns, var í íþróttahúsinu við Strandgötu og var yfirskrift borgarafundarins: „Stöndum vörð um starfsemi St. Jósefsspítala og framtíð heilbrigðisþjónustu í Hafnarfirði"...
Jóhanna

11. Janúar 2009

ÞAÐ ER VON ÞÚ SPYRJIR HVORT VERIÐ SÉ AÐ EGNA ÞJÓÐINA TIL UPPREISNAR!

...það er ekki nóg að vera búin að eyðileggja hagkerfi Íslands og setja núlifandi fólk, börn og barnabörn á skuldaklafa útlendinga, það má ekki einu sinni láta sjúkrahúsin og heilbrigðisþjónustuna í friði. Auðvitað er þetta glæpur og Samfylkingin er síður en svo betri en Sjálfstæðisflokkurinn...
Úlfur  

10. Janúar 2009

ILLSKILJANLEG FAGNAÐARLÆTI

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor í "heilsuhagfræði" (hvað sem það nú er) við Háskóla Íslands, fagnar innlagningargjöldum vegna spítalavistar. Hún heldur að fólk muni síður ákveða að leggjast inn. En það eru læknar sem ákveða að leggja fólk inná á spítala, ekki sjúklingurinn...
Hreinn K

8. Janúar 2009

GUÐLAUGUR ÞÓR BÚINN AÐ FINNA OSÖK KREPPUNNAR EÐA LEIÐ TIL AÐ EINKAVÆÐA...?

...Guðlaugur Þór hefur reyndar algjörlega afneitað eigin hugmyndafræði í ræðustól á Alþingi nýlega og Samfylkingin er fullkomlega gagnslaus um leið og einkavæðingarbyltingin á sér stað. Kostnaðarvitund öryrkjans mun líklega aukast nú til muna þegar borga þarf fyrir innlögn á sjúkrahús. En þau eru flott á því, Ásta Möller og Guðlaugur Þór. Öryrkinn þarf víst bara að borga fyrir innlögn á sjúkrahús einu sinni í mánuði. Þá er nefnilega boðið upp á afslátt. Þetta þyrfti líklega að kynna fyrir sjúklingum, þannig að þeir geti hagrætt „veikindum sínum". En Guðlaugur Þór hefur boðað að ...
SB

7. Janúar 2009

ALDAHVÖRF Í STJÓRNMÁLUM ÞJÓÐARINNAR!

...Auðvitað eiga stjórnvöld tímabilsins (Sjálfstæðisflokksins, Krata og Framsóknarflokksins) sinn þátt í glæpunum og hruninu, með einkavinavæðingunni án leikreglna og strangra laga og nákvæmu eftirliti!  Það má jafnvel fara enn lengra aftur í tíman og nefna EES sem aðal bölvaldinn, því það skapaði forsenduna fyrir einkavæðingunni, sem aftur skapaði síðan forsenduna fyrir fjármálaglæpamennskunni og hruni íslenska fjárhagskerfisins! Það hafa orðið aldahvörf í stjórnmálum þjóðarinnar. Það lítur ekki út fyrir að þjóðin fylki blindandi sem áður, sömu jálkum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, eða Krötunum sem er Samfylkingin á bak við...
Úlfur

6. Janúar 2009

ENDURGREIÐSLUR OPINBERRA GJALDA TIL BJARNA

Bjarni Ármannsson, einn af fyrrverandi óskadrengjum þjóðarinnar, upplýsti í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi að hann hefði í október sl. endurgreitt Glitni 370 milljónir króna sem hann hafði fengið við starfslok. Nú leikur mér forvitni á að vita um endurgreiðslur til Bjarna vegna opinberra gjalda...
 Þjóðólfur

5. Janúar 2009

EINFALDUR BLETTAHREINSIR DUGIR VG EKKI!

...Hæstvirtur forsætisráðherra telur það ekki alvarlegt mál að brjóta stjórnsýslulög að áliti umboðsmanns Alþingis og ekki heldur fjármálaráðherra fyrir það sama við skipun dómara. Þessir menn eru gjörsneyddir allri siðgæðisvitund að þeir gera sig með öllu óhæfa til að gegna opiberu starfi og kasta rýrð á embætti umboðsmanns Alþingis. VG mun án efa setja viðbót inn í stórnsýslulög um leið og við tökum við og bæta inn refsikafla gegn þeim brotum ásamt því að gera slíkt hið sama við álitsgerðir umboðsmanns Alþingis sem gefi honum heimildir til að afturkalla skipanir/ógilda gjörninga sem hann telur að styðjist ekki við lög. Fjármálaráðherra ætti fyrir löngu að vera búinn að segja af sér...
Þór Gunnlaugsson

4. Janúar 2009

UM ÁBYRGÐ LÍFEYRISSJÓÐA, STEINGRÍM OG BANKANA

...Var að lesa síðuna þína og horfði meðal annars að Hannes Hólmstein og að mínu mati mætti alveg rífja upp fleiri umæli sem fólk lét falla þegar það hélt ekki vatni yfir því hvað þetta voru miklir snillingar að búa til peninga sem voru svo ekki til þegar upp var staðið. Ég afritaði textan hér að neðan af síðunni þinni  og eins og þú sér undirstrikaði ég hluta af honum og er það vegna þess að mig langar til þess að spyrja þig einnar spurningar. Eru það ekki stjórnir sjóðanna sem taka ákvarðanir um fjárfestingar þeirra?  Ef svo er eiga þær ekki að axla ábrygð og segja af sér?...Ég er enn þeirrar skoðunar að Steingrímur J hafi farið yfir strikið í Kryddsíldinni...Annað sem ég hef verið að velta fyrir mér en það er að öll lán sem ég skulda í Landsbankanum verð ég að borga til baka með fullri verðtryggingu (hverju réttlát sem hún er í dag) og vöxtum, en þessi sami banki má skerða séreingnalífeyrissparnaðinn minn um 30% án þess að ég ...
Sigurbjörn Halldórsson

3. Janúar 2009

VANÞAKKLÁTT STARF BER ÁVÖXT

Nú var að birtast önnur skoðanakönnunin í röð  þar sem VG er að mælast stærsti flokkurinn. Mitt mat er að um enga tilviljun sé að ræða. Þið Steingrímur Sigfússon hafið verið hryggsúlan í andófi gegn græðisvæðingu samfélagsins undanfarin ár og unnið þar gott en vanþakklátt starf sem gæti verið að bera ávöxt nú á krepputímum . Fulltrúi okkar dreifbýlismanna á þingi er samherji þinn Jón Bjarnason sem er vakinn yfir okkar hagsmunamálum nú síðast í dag er hann að berjast á móti hækkun á dreifingarkostnaði raforku sem átti að koma til framkvæmda nú um áramótin. Jón er hreinskiptinn baráttumaður eins og...
Norðlendingur

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Frá lesendum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta