Frá lesendum
31. Maí 2008
...nema hvað það er rangt að halda því fram að gjaldmiðillinn eigi í vanda. Krónan hefur lækkað, það er allt og sumt, aðeins minna en dollarinn. Það eru bankarnir sem eiga í vanda, EKKI krónan. Krónan er mælieining. Það er einsog að segja að sentímeterinn eigi í vanda ef maður er ekki nógu hávaxinn. Að skeiðklukkan eigi í vanda ef ...
Hreinn Kárason
28. Maí 2008
...Mig langaði til að þakka þér fyrir frábæra ræðu á Alþingi í gær. Það er gott að þú birtir hana hér á síðunni. Þú segir það sem segja þarf. Það eru auðstéttir í landinu og svo eru hinar vinnandi stéttir, og þú talar fyrir fólkið í landinu. Mér fannst Guðni Ágústsson í góðu formi líka....Og hvernig er með kvennastéttirnar? Ég tilheyri einmitt "umönnunarstétt" og finnst niðurlægjandi að fá enn eina ríkisstjórn sem svíkur okkur. Ingibjörg Sólrun og Samfylkingin var margsinnis búin að lofa því að leiðrétta okkar kjör...
Guðrún
23. Maí 2008
...Loksins finnst mér vera komin einhver róttækni í femínistana hér á landi. Það er sko eins gott að einhver berjist af alvöru gegn því að konur gangi kaupum og sölum á Íslandi. Það hefur viðgengist allt of lengi að þessir strippklúbbar séu í gangi og það er vitað mál að ýmislegt misjafnt þrífst í þessum klúbbum. Sumum finnst þetta hallærislegar aðgerðir og jafnvel heimskulegar en þetta minnir mig á aðgerðir rauðsokkanna hér fyrir þrjátíu árum síðan. Það var almennileg barátta og bar árangur þar sem fóstureyðingar voru leyfðar og leikskólum komið upp. Þessi baráttugleði sem ég sá í dag er ...
Snær frá Lundi
20. Maí 2008
...Vil bara koma á framfæri kæru þakklæti til þín fyrir andstöðuna gegn frumvarpi að lífeyrissjóðir megi lána eignir sínar í vogunarviðskipti. Á meðan launþegar eru þvingaðir til að vera í ákveðnum lífeyrissjóðum en fá ekki að ráða sjálfir hvar lífeyrir þeirra er geymdur kemur þetta ekki til greina. Einnig vitum við það öll að ef illa færi væri enginn ábyrgur og við gætum tapað því ...
Margrét
19. Maí 2008
...Ekkert er nógu geggjað til að leyfilegt sé að vera á móti því: Olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum, eyðing Þjórsárvera, virkjanair á viðkvæmum stöðum, stil að selja orkuna svo á spottprís, innflutningur á 30.000 útlendingum á 4 árum. Allt sjálfsagðir hlutir í augum þeirra sem ætla sér að græða....Heilbrigðiskerfið. Nú á að fela hagsmunaaðilum að deila út gæðunum handa sjálfum sér. Fengnir eru læknar og auðmenn til að setjast yfir bráðina. Kæmi ekki á óvart þótt þeir kæmust að þeirri niðurstöðu að þessir hagsmunir væru best komnir í þeirra eigin vörslu...
Hreinn Kárason
17. Maí 2008
Mitt gamla blað Morgunblaðið stendur sig vel í að fjalla um frumvarp landbúnaðarráðherra um innflutning á hráu kjöti. Ég hef hins vegar tekið eftir því að Fréttablaðið sem er í eigu stærsta auðhrings landsins hefur nánast ekkert fjallað um þetta frumvarp. Það er athyglisvert í ljósi þess að í frumvarpinu felst ein róttækasta breyting á íslenskum landbúnaði sem ráðist hefur verið í. Hver ætli sé ástæða þess að þetta víðlesna blað greini ekki frá efasemdum um frumvarpið? Er það vegna þess að eigandi þess mun græða mest á því að frumvarpið verði samþykkt? Það er ...
Halldór Kári
12. Maí 2008
Þakka þér fyrir greinina hér á síðunni um „fréttir" RÚV um eftirlaunalögin sem Ingibjörg Sólrún segir að eigi að afnema! Þegar betur er að gáð kemur fram að ekkert slíkt stendur til þótt fréttastofurnar hjálpi henni í þessum blekkingarleik annað hvort með meðvirkni eða andvaraleysi sínu. Það er einvörðungu verið að tala um að gera smávægilegar breytingar á lögunum sem mér sýnist að myndu til dæmis hvorki skerða kjör þeirra Ingibjargar Sólrúnar né Geirs Haarde. Nú fara fréttastofurnar á fullt að ...
Guðrún Guðmundsdóttir
10. Maí 2008
FL Group er stjórnað af þrítugum manni. Þetta félag hefur tapað 115 milljörðum á 9 mánuðum jafnhárri upphæð og nemur tæplega tíu prósentum af sparifé landsmanna. Í þessu félagi hafa lífeyrissjóðir fjárfest bæði beint og óbeint. Þessi þrítugi drengur er látinn bera ábyrgð sem enginn getur axlað. Bakvið þennan skjöld sakleysis, fela sig ...
Hreinn Kárason
9. Maí 2008
Sé að Kristni H. Gunnarssyni, þingmanni Frjálslyndra nægði nokkurra mínútna svar frá Guðlaugi Þór heilbrigðisráðherra og enn styttra framlag frá Ástu R. Jóhannesdóttur Samfylkingu, sem varði heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins í bak og fyrir, til að sannfærast um að einkavæðing í heilbrigðisþjónustunni væri ekki á dagskrá. Fréttablaðið greinir í dag skilmerkilega frá þessari merku uppgötvun Kristins eftir utandagsskrárumræður á Alþingi. Það vill svo til að ég sá ...
Fyrrverandi kjósandi Samfylkingar
8. Maí 2008
Stærsti hluti hagnaðar bankanna fólst í gengisfalli krónunnar. Vantar ekki eitt gott gengisfall í júní til að redda öðrum ársfjórðungi? Stærsti áhrifavaldur í gengismálum eru bankarnir. Af hverju voru bankarnir ekki á samráðsfundinum um þjóðarsátt?
Hreinn Kárason
7. Maí 2008
...Snýst pólitík Sjálfstæðisflokks og það sem er að gerast núna í heilbrigðismálum bara um kostnaðargreiningu? Svo mátti skilja á ráðherra. Ekki er hann vel að sér í málefnum spítalans, svo mikið er víst. Þar hefur um lítið verið talað annað síðustu árin og allur kraftur farið í kostnaðargreiningarnar, löngu áður en Guðlaugur Þór dúkkaði upp. Nei það sem ríkisstjórnin nýja er að gera í heilbrigðismálum er langt í frá að vera bara enn ein kostnaðargreiningin, sem nóg er af fyrir. Undir þetta kjaftæði íhaldsins í þættinum tók Björgvín viðskiptaráðherra að því er virtist af þvílíkri sannfæringu að það komst ...
Heilbrigðisstarfsmaður
6. Maí 2008
Er Benedikt Jóhannesson Engeyingur og stóreigandi í Sjóvá og öðrum tilvonandi hagsmunafélögum einkavæðingar heilbrigðisgeirans ekki bullandi vanhæfur sem yfirmaður Sjúkratryggingarstofnunar? Er ekki rétt að hann leggi fram yfirlit um eignasafn sitt og fjölskyldu sinnar í ...
H.K.
5. Maí 2008
Var að lesa pistilinn um hinn glaðbeitta flissandi ÞÁTTASTJÓRNANDA í pólitík á Íslandi. Er skrítið að fólk missi áhugann á pólitískri umræðu, finnist hún þreytandi og innihaldslaus? Ég er sammála því að heilbrigðisráðherrann með sinn ótrúlega hroka talar fyrir sig sjálfur. Hann verður dæmdur af verkum sínum. Valdastrákarnir styðja hvor annan, og leitt að Björgvin ætli að spila með í þessari ótrúlegu umræðu um heilbrigðismál. Rétt eins og ...
S.A., starfsmaður Landspítala
2. Maí 2008
...Helgi bendir á eins og þú sjálfur hefur margoft gert, ásamt öðru góðu þjóðlegu fólki, að það verður ekki spornað gegn auðvaldinu á Íslandi frekar en annarsstaðar í heiminum án baráttu. Né verða eignir þjóðarinnar endurheimtar úr krumlum auðvaldsins, nema með baráttu, já mjög líklega harðri baráttu! ...Nú mun reyna á í hvaða fylkingu foringjar Samfylkingarinnar munu skipa sér í. Mun það verða í þjóðlega fylkingu verkalýðshreyfingarinnar og félagshyggjufólks, eða mun Samfylkingin áfram að þjóna auðvaldinu almenningi og íslensku þjóðinni til höfuðs?...
Úlfur
1. Maí 2008
Háir gnæfa turnar tveir
Töfrabjörg og Vinnugeir
Þjóðin niðrá jörðu þreyr
þorrann, hvíslar: Ekki meir.
Hreinn Kárason