Frá lesendum
29. Apríl 2008
HVER BER ÁBYRGĐ Á TVEGGJA STAFA VERĐBÓLGU?
Ólíkt veðrinu er verðbólga ekki náttúrufyrirbæri, heldur ávöxtur skilnings-, getu-, og/eða ábyrgðarleysis þeirra sem standa að stjórn efnahagsmála almennt og stjórn peningamála sérstaklega. Íslenzk stjórnvöld hafa látið undir höfuð leggjast að stjórna peningamálum þjóðarinnar. Og telja sér það til ágætis að láta viðskiptabankana alfarið um þjóðhagslega mikilvæga hluti eins og erlenda skuldastöðu þeirra og...
Gunnar Tómasson
Gunnar Tómasson
29. Apríl 2008
AUĐVALDSHÖLLIN
...Meðan Fríkirkjuvegur 11 var í eigu Templaranna hét húsið bindindishöllin. Á meðan á umræðunni um sölu hússins stóð á sínum tíma lögðu fulltrúar VG fram þá tillögu að húsið yrði gert að barnamenningarsetri og lá þá beint við að húsið yrði kallað barnahöllin. Nú þegar voldugasti fulltrúi fjármálafáveldisins á Íslandi fær húsið til eignar liggur náttúrulega beint við að kalla það auðvaldshöllina.
Þorleifur Gunnlaugsson
Þorleifur Gunnlaugsson
27. Apríl 2008
PÖSSUM UPP Á MATVĆLAÖRYGGIĐ!
Ég rakst á þína ágætu vefsíðu, og las pistil Skarphéðins Gunnarssonar og svar þitt til hans. Þú hefur góða vefsíðu Ögmundur og mun ég opna hana oftar. Þú ættir að hafa fréttbréf til að senda manni, svona til að minna mann á!
Þú hefur 100% rétt fyrir þér Ögmundur, og það er erfitt að ímynda sér Íslendinga eins illa upplýsta og þessi Skarphéðinn er, um stöðu matvælaöryggis í heiminum. Og að reyna svo að blanda mataröryggi við pólitík með því að segja "Það má skilja á málflutningi ykkar VG og hluta Framsóknar " bla.bla.bla...... er ómerkilegt og heimskulegt. Auðvitað á mataröryggi ekki að koma pólitík við frekar en...
Helgi Geirsson
Þú hefur 100% rétt fyrir þér Ögmundur, og það er erfitt að ímynda sér Íslendinga eins illa upplýsta og þessi Skarphéðinn er, um stöðu matvælaöryggis í heiminum. Og að reyna svo að blanda mataröryggi við pólitík með því að segja "Það má skilja á málflutningi ykkar VG og hluta Framsóknar " bla.bla.bla...... er ómerkilegt og heimskulegt. Auðvitað á mataröryggi ekki að koma pólitík við frekar en...
Helgi Geirsson
26. Apríl 2008
BORĐAR ÓHRĆDDUR HRÁTT Í EVRÓPU
Varðandi fullyrðingu þína að ekki sé hægt að fá linsoðin egg í Evrópu þá er það algjör þvæla hjá þér og ég held þú vitir það. Þú hlýtur að setja þessa fullyrðingu fram af annarlegum tilgangi. Það má skilja á málflutningi ykkar VG og hluta Framsóknar að það sé hreinlega stór hættulegt að fá sér að snæða í Evrópu. Hvers konar andsk.... rugl er þetta og hverju þjónar svona vitleysa? Ég er t.d. mjög mikið fyrir ...
Skarphéðinn Gunnarsson
Skarphéðinn Gunnarsson
25. Apríl 2008
Á KÍNA AĐ GANGA Í EVRÓPU-SAMBANDIĐ?
Sögulega séð þá sveiflast gjaldmiðlar upp og niður hver gagnvart öðrum, enda er það tilgangur þeirra. Gjaldmiðill á meðal annars að vera barómeter á styrk efnahagslífs. Þannig eru sveiflur gjaldmiðils ekki merki um veikleika, heldur hitt að hann sé virkur og þjóni tilgangi sínum, sem stillingartæki og gefi auk þess upplýsingar til markaðsaðila um stöðu mála. Ef sú lógík sem nú er uppi að sveiflur gjaldmiðils merki að hann sé ónýtur, þá er hollt að skoða ...
Hreinn Kárason
Hreinn Kárason
24. Apríl 2008
EINKAŢOTULIĐIĐ!
...Bruðl og siðfleysi einkaþotuliðsins er auðvitað til ævarandi skammar enda algjörlega óverjandi. Það er hreint makalaust að þar skuli vera að verki formaður Samfylkingarinnar, stjórnmálaflokks sem kallar sig félagshyggju- og jafnaðarmannaflokk. Maður getur ímyndað sér að margur fyrrum foringi Alþýðuflokksins sé ...
Úlfur
Úlfur
22. Apríl 2008
HVER MÁLAĐI ŢYRNIRÓS?
Líking ríkisstjórnar Geirs H. Haarde við Þyrnirós smellpassar. Eiginlega passar hún hvernig sem á málin er litið. Geir sefur á meðan efnahagslífið fuðrar upp og Samfylkingin sefur á meðan Guðlaugur Þór einkavæðir heilbrigðiskerfið. En spurning mín er þessi: Hver gerði málverkið sem ...
Kveðja,
Haffi
Kveðja,
Haffi
16. Apríl 2008
NOKKRAR ÁBENDINGAR Í KJÖLFAR FRÉTTA UM SKORTSÖLU LÍFEYRISSJÓĐA
Ofangreindar hugleiðingar endurspegla það sem mér finnst vera "lógíkin" í málinu. Ef svo er í raun og ráðagerðir stjórnvalda ná fram að ganga, þá er það eitt hugsanlega til bjargar hagsmunum lífeyrisþega að aðsteðjandi kreppa á peninga- og efnahagsmálum heimsbyggðarinnar gangi hratt yfir - og verði ekki mikið verri en þegar er orðið. Ef þær væntingar ganga ekki eftir, þá ...
Gunnar Tómasson
Gunnar Tómasson
15. Apríl 2008
ŢOTUFLAKKIĐ Á SÉR LÍKA BJARTA HLIĐ!
Í þotu flugu þétt í lund,
þeystu um víða geima.
Ó, hve sæl og ljúf er stund,
séu þau ekki heima.
Pjetur Hafstein Lárusson
þeystu um víða geima.
Ó, hve sæl og ljúf er stund,
séu þau ekki heima.
Pjetur Hafstein Lárusson
14. Apríl 2008
HVER Á AĐ AXLA ÁBYRGĐ?
Hvernig væri að bændurnir við neðri Þjórsá tækju sig allir saman og myndu kæra Landsvirkjun fyrir sitt ofstæki...
Jón Þórarinsson
Jón Þórarinsson
13. Apríl 2008
VILHJÁLMUR ERINDREKI EINKAVĆĐINGAR-SINNA
...Vihjálmur er framkvæmdastjóri SA, samtaka sem tala fyrir hönd fyrirtækja sem vilja einkavæða og komast yfir þessa starfsemi. Er þetta eðlilegt? Þú ert formaður BSRB, Ögmundur, minna samtaka, og hefur haft skoðanir á þessum málum; skoðanir sem eg er sammála. Á þetta að vera einstefnuakstur? Hefur þú verið boðinn á fund Ögmundur með Vilhjálmi Egilssyni um einkavæðingu á störfunum okkar?
Starfsmaður á Landspítala háskólasjúkrahúsi
Starfsmaður á Landspítala háskólasjúkrahúsi
13. Apríl 2008
ĆVILANGT FANGELSI FYRIR FÍKNILYFJAGLĆPI!
...Hafðu í huga Ögmundur, að glæpamenn af þessu tagi hafa gert slíkan mannskaða af sér að þeir eiga dauðadóma fyllilega skilið!...ég hef alls enga meðaumkvun með fíknilyfjaglæpamönnum, hverrar þjóðar sem þeir eru. Þeir eru öllu verri ef þeir eru íslenskir, þar sem þeir gera íslensku þjóðinni óbætanlegan skaða og skömm!
Ég hefði vonað að alþingismenn Íslands hefðu betra og þjóðþarflegra með tíma sinn og atorku að gera, en að taka upp hanskann fyrir fíknilyfjaglæpamenn...
Úlfur
Ég hefði vonað að alþingismenn Íslands hefðu betra og þjóðþarflegra með tíma sinn og atorku að gera, en að taka upp hanskann fyrir fíknilyfjaglæpamenn...
Úlfur
12. Apríl 2008
KRAFTUR, FRELSI, FRIĐUR - Í BOĐI RÍKISSTJÓRNAR-INNAR!
...Eftirgrennslan leiddi í ljós að Hreinn K. hefur rétt fyrir sér! Er ríkisstjórnin að gera grín að þjóðinni eða eru þetta kjánar í ímyndarnefndinni hans Geirs? Er nefndin á launum? Er þetta þá kannski nefnd sem vinnur eins og þau gera í Háskóla Íslands, svona klippt og skorið -cut and paste - nefnd? Er Geir H. Haarde, forsætisráðherra, kannski að flytja fyrirlestra um Animal Farm í útlöndum? Okkur er sagt að hann sé ...
Jóel A.
Jóel A.
11. Apríl 2008
SAMFYLKINGIN ER EKKI LÍTIL SÁL - EĐA HVAĐ?
...Að tala um flokkinn minn sem litla sál, eins og þú hefur gert Ögmundur og sumir lesendur þínir, er í hæsta máta óviðeigandi. Á sviði umhverfismála, utanríkismála og heilbrigðismála framfylgjum við okkar stefnu og fullyrði ég að lengra væri gengið í virkjanamálum, gagnvart NATÓ og í einkavæðingu heilbrigðiskerfisins ef okkar jafnaðarmanna nyti ekki við í ríkisstjórninni...
Jafnaðarmaður
Jafnaðarmaður
11. Apríl 2008
GLEYMUM EKKI LÁGKÚRU GEIRS
Geir H Haarde segir umræðu um nýjasta ferðamáta ríkisstjórnarinnar vera lágkúrulega. Ég legg til að landsmenn allir gleymi þessum ummælum ekki í næstu kosningum...
Jón Þórarinsson
Jón Þórarinsson
11. Apríl 2008
HA?
Var að lesa bréfið frá Hreini Kárasyni og er vægast sagt gáttuð. Ríkisstjórnin virðist ramba inn á allar brautir sem liggja til Dýrabæjar Orwells. Skyldi þetta vera ásetningur eða eðlisávísun? ...Svo er líka góð ábending hjá Sverri Jakobssyni í Fréttablaðinu í dag um ...
Sunna Sara
Sunna Sara
11. Apríl 2008
OG SVO FLJÚGA ŢAU HEIM Í DÝRABĆ!
Í bók sinni 1984 lýsti George Orwell þjóðfélagi "Stóra bróður", leiðtogans mikla, sem var í raun mikill kúgari. Eitt af kúgunartækjunum var að spilla tungunni. Hann lét búa til nýtt tungumál sem kallaðist Nýmál (Newspeak). Fræg er tilvitnunin, þar sem verið er að lýsa breytingum sem Stóri Bróðir hefur látið gera á tungumálinu. Hann gefur út þá yfirlýsingu að héðan af skuli merking orða vera sem hér segir:
"Stríð er Friður"
"Frelsi er Þrældómur"
"Þekkingarleysi er Kraftur"
En er það ekki merkileg tilviljun að akkúrat nú skuli nefnd á vegum forsætisráðherra hafa komist að þeirri niðurstöðu að ...
Hreinn Kárason
"Stríð er Friður"
"Frelsi er Þrældómur"
"Þekkingarleysi er Kraftur"
En er það ekki merkileg tilviljun að akkúrat nú skuli nefnd á vegum forsætisráðherra hafa komist að þeirri niðurstöðu að ...
Hreinn Kárason
8. Apríl 2008
HVERS KONAR JAFNAĐAR-MENNSKA?
Ég fylgdist með umræðunni um einkaþotuleigu ríkisstjórnarinnar á Alþingi og kom það mér óneitanlega á óvart af hve mikilli heift forsætisráðherrann varði ráðslag ríkisstjórnarinnar. En látum það vera með Íhaldið. Það er samt við sig í spillingunni. En hvað með þennan guðsvolaða flokk sem kallar sig Jafnaðarmannaflokk Íslands? Finnst mannskapnum þar allt í góðu lagi að láta almenning ...
Jóel A.
Jóel A.
6. Apríl 2008
NÝIR OG BETRI BANKAR: ŢJÓĐARBANKINN OG HÚSNĆĐIS-BANKINN
Legg til að Íslenska ríkið stofni ríkisbanka, sem gæti heitið til dæmis Þjóðarbankinn og undirbúi að yfirtaka skuldir íslensks almennings við glæfrabankana. Hættan sem þjóðin stendur frammi fyrir er sú að fari bankarnir á hausinn, sem sumir telja líklegt, þá má búast við bréfum frá skiptaráðanda til almennings þar sem óskað er eftir uppgreiðslu lána. Þetta gerðist í Danmörku í kringum 1990 og í Bretlandi ca. 1992. Þá fóru margir einstaklingar á hausinn og misstu húsnæðið. Ef hægt er að bregðast við ÁÐUR en þetta gerist, þá er hægt að koma í veg fyrir stórslys. Það er hægt að nota Íúðalánasjóð í ...
Hreinn Kárason
Hreinn Kárason
5. Apríl 2008
AĐ TAKA EINN BRÉSNEF
...Þú vaktir máls á ýmsum þáttum og sýndir fram á hvað væri að gerast. Guðlaugur Þór, heilbrigðisráðherra stóð á gati og fulltrúar Samfylkingarinnar, litlu sálarinnar sem þú nefndir svo, tóku undir með heilbrigðisráðherranum. Myndin sem dregin var upp í fjölmiðlum var út úr öllu korti. Í einum fjölmiðli var Ellert B. Schram látinn ljúka fréttinni með því að segja að Samfylkingin myndi aldrei samþykkja einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu þótt verið væri að sýna fram á að einmitt það væri að gerast!!! Í öðrum fjölmiðli var okkur sagt að...
Haffi
Haffi
5. Apríl 2008
GEIR SKAMMAR PÚTÍN
...Þetta hefði forsætisráðherrann mátt orða á fundi þar sem Bush og allt NATÓ liðið heyrði til. Það getur vel verið að ég hefði samþykkt að spandera í einkaþotu undir Geir á fund til að ræða mannréttindabrot Bush stjórnarinnar og hernaðarbandalagsins NATÓ. Hitt hefði Geir getað rætt við Pútín í síma.
Grímur
Grímur
4. Apríl 2008
INGIBJÖRG, GEIR OG NATÓ
...Var þetta, sem flokkurinn aðefst nú, stuðningurinn við stríðsrekstur í Írak og Afganistan og skefjalaus undirgefni við erlenda hernaðar- og auðhyggju á kostnað íslensku þjóðarinnar - var allt þetta fyrirséð? Ef svo er þá býr þessi stjórnmálaflokkur yfir meira falsi og undirferli en ég hafði hugarflug til að ætla. Ég var í hópi þeirra sem hlustaði á formann flokksins Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, og veit um marga aðra sem vildu taka hana trúanlega. Getur verið að hún hafi alla tíð verið að bíða eftir tækifæri til að svíkja yfirlýstan málstað sinn og kjósendur sína! Glottandi Geir er eins og hann og hans fólk er ...
Úlfur
Úlfur
4. Apríl 2008
AĐ LABBA REST TIL STUĐNINGS NATÓ
Já, það er merkilegt hvað fólk getur þroskast illa með aldrinum eins og fram kemur í bréfi Sunnu Söru um gamla Keflavíkur-göngugarpinn okkar hana Ingibjörgu Sólrúnu utanríkisráðherra. En hvernig væri nú að hún gengi síðasta spölinn frá NATÓ fundinum í Búkarest - þeas. frá einkaþotunni á Reykjavíkurflugvelli og upp í ráðuneyti - svona rétt til að minna landsmenn á mikilvægi NATÓ og framgöngu þess, m.a. í Írak og Afganistan ...
Sigurfljóð Hermannsdóttir
Sigurfljóð Hermannsdóttir
3. Apríl 2008
Í EINKAŢOTU TIL AĐ HEIĐRA NATÓ
...En svoldið skondin fannst mér þessi tilvitnun þaðan sem barst inn á minn skjá í dag: :"Fyrir nokkrum áratugum gekk Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Keflavíkurveginn á tveimur jafnfljótum til að mótmæla aðild Íslands að NATO. Í gær sparaði hún sér ferðina suður eftir og...
Sunna Sara
Sunna Sara
3. Apríl 2008
GEIR Á HÁU PLANI
...Svona lítum við semsagt út, íslenskur almeninngur, séð úr háloftunum, úr þrjátíu þúsund fetum í einkaþotu - þaðan séð erum við náttúrlega á mjög "lágu plani". Þau Geir og Ingibjörg þá væntanlega á háu plani. Spurning hve lengi við nennum að borga undir þennan mannskap sem talar af slíkum hroka til þjóðar sinnar.
Haffi
Haffi
1. Apríl 2008
LÍFEYRIR Í HÚFI
Er það ekki verkefni stjórnmála að fjalla um kerfi sem leyfir að menn verði milljarðamæringar á því að valda þjóðfélagslegum skaða? Ríkisstjórnin ætti að vera fjalla um kerfið um stjórnmálin, en er að fjalla um daglegar reddingar. Nú þarf að leyfa bönkum að fara hausinn og þjóðnýta restarnar. Ef þetta er gert núna, þá er hægt að ...
Hreinn Kárason
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!
...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLĆTI
...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIĐ VONBRIGĐUM!
...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGĐ Í MUNNINN
Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓĐ KVEĐJA
...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson
Jón Jón Jónsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












