Frá lesendum
27. September 2007
HJARTANS ÞAKKIR TIL MOGGANS
En hvað þarft þú að tileinka þér til að mega klifra upp á ráðherrakoll Moggans? Það er nú tómt skitterí að mati kennarans, einungis smáviðvik við auðstéttina. Þú þarft bara að sýna henni smávægilega gjafmildi: gauka að henni auðlindum þjóðarinnar og hlaða svo orkugeiranum undir afturendann á þotuliðinu svo það nái aukinni flughæð yfir þræla sína og öðlist betra útsýni til að eygja ónumin lönd ... Þar gleymir Mogginn að benda skjólstæðingum sínum á ýmsa fýsilega kosti, m.a. á holræsakerfið. Í því liggja að sjálfsögðu ... langar mig loks að biðja þig að birta með bréfi mínu leiðara Moggans því hann er hreint afbragð og mun sóma sér vel á væntanlegri markaðshyggjudeild Þjóðminjasafnsins sem fyrr eða síðar verður opnuð í þeirri góðu stofnun við hátíðlega athöfn...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
26. September 2007
HINGAÐ OG EKKI LENGRA – ÞÖKK SÉ ÖSSURI
Eins döpur og ég varð þegar ég heyrði Ingibjörgu Sólrúnu boða það sem almenningur er búinn að fá nóg af hresstist ég mikið við að heyra í Össuri Skarphéðinssyni í kvöldfréttum í gær. Hann virðist vita hvað klukkan slær hjá meirihluta landsmanna því ef ég skildi hann rétt boðaði hann löggjöf á haustþingi sem mun tryggja meirihlutaeigu samfélagsins í mannvirkjum og dreifikerfi þeirra dýrmætu orkulinda sem eru sameign allrar þjóðarinnar. Um leið og ég vona að ég hafi misskilið formann...
Anna Jóna
Anna Jóna
26. September 2007
VILLI SANNAR SIG
Um leið og ég flyt sjálfstæðismönnum þakkir mínar vil ég minna á að því miður fara ekki alltaf saman orð og efndir í pólitíkinni. R-listinn sem sat að völdum samfellt í 12 ár hér í borg var með það stimplað í stefnuskrá sína allan tímann að byggja upp almenningssamgangnakerfið. Árangurinn varð hins vegar minni en enginn. Allt sem laut að þessum málaflokki reyndist ómarkvisst fálm út í loftið. Stundum spyr maður sig hvað ami eiginlega að okkur vinstrimönnum. Erum við allt of oft fastir í einhverjum starfshópum og kjaftaklúbbum, leitandi að fullkomnum lausnum en svo gerist stundum nákvæmlega ekki neitt? Ekki svo að skilja að R-listinn gerði margt gott og þar á meðal var sannkölluðu grettistaki lyft í leikskólamálum í hans tíð. En mér finnst að vinstrimenn megi...
Ingi Þórðarson
Ingi Þórðarson
20. September 2007
ÞARF AÐ FRELSA SAMFYLKINGUNA FRÁ ÍHALDINU!
...Getur verið að þú hamist meira á Samfylkingunni en Sjálfstæðisflokki því þú teljir hana standa ykkur VG-urum nær en Íhaldið og sért fyrir vikið henni reiðari fyrir að vera ekki í stjórn með ykkur? Ef svo er þá er ég þér sammála. Ég er kjósandi Samfylkingarinnar sem vildi alls ekki sjá þessa ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum. Fyrir alla muni hættu að skamma Samfylkinguna út í eitt. Í þess stað eiga allir góðir og gegnir vinstri menn að sameinast um að frelsa okkur frá Íhaldinu og mynda vinstri stjórn í landinu.
Kristján Sig.
Kristján Sig.
20. September 2007
ER VERIÐ AÐ KOMA Á TVÖFÖLDU HEILBRIGÐISKERFI?
Hver er afstaða ykkar í BSRB til þeirra breytinga sem ASÍ og SA eru að semja um varðandi breytingu á rétti til örorkubóta og greiðslna í veikindum? Sjálfur er ég öryrki og finnst ég vera búinn að reyna alveg nóg án þess að þurfa að horfa upp á skerðingar á rétti mínum. Eða til hvers halda menn að boðað sé til þessara breytinga? Til þess að spara peninga að sjálfsögðu. Ég blæs á að þetta sé gert til nokkurs annars enda lagt upp í leiðangurinn með sparnað í huga. Halda menn að við fylgjumst ekki með? Og hvað segir þú um þá staðhæfingu Öryrkjabandalagsins að verið sé að koma á tvöföldu heilbrigðiskerfi ...
Öryrki
Öryrki
20. September 2007
AÐ LÁTA OFBELDI VIÐGANGAST ÁTÖLULAUST
..."Glæpur" námsmannsins var að fara fram úr einni mínútu sem honum hafði verið ætluð fyrir fyrispurnina! Hann var m.a. að vísa í staðhæfingar í bók Gregs Palsts um kosningasvindl Bush, forseta og spurði Kerry í ljósi þessa hvers vegna hann hefði verið eins fljótur og raun bar vitni að viðurkenna ósigur í kosningunum. Síðan spurði hann Kerry hvers vegna hann hefði ekki greitt atkvæði með vantrausti á Bush... lengra komst hann ekki. Ég hvet lesendur til að horfa á vídeóupptöku af atburðinum en slóðin er hér að neðan og frásögn Gregs Palasts. Aðfarir lögreglu eru ótrúlegar en verst er aðgerðarleysi viðstaddra - að meðtöldum John Kerry sem lætur ofbeldið viðgangast átölulaust.
Haffi
Haffi
19. September 2007
ATLOTIN Á FLEKASKILUNUM
Allt um það; mér finnst að þú hafir of oft að undanförnu vegið fremur harkalega að utanríkisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Sem bókaútgefanda tel ég bráðnauðsynlegt að þú skrifir nú svo sem eins og eina eró-pólitíska skáldsögu fyrir mig til útgáfu fyrir jólin – gefir Ingibjörgu hvíld og hleypir þess í stað nýju blóði í gamla bókmenntagrein sem á rætur að rekja til 18. aldar og hófst til vegs og virðingar með hinni ódauðlegu ...
Þjóðólfur
Þjóðólfur
19. September 2007
ÞJÓÐLEGT STJÓRNMÁLAAFL VERKALÝÐSHREYFINGARINNAR!
...Höfum ofarlega í huga að andstæðingurinn er vel skipulagður, svífst einskis og hefur ótakmarkaða peninga að baki sér, en vill meira. Andstæðingurinn er óseðjandi auðvald! Gripdeildirnar hafa gengið alltof langt og það verður að byrja á að endurheimta þýfið aftur og hafa hendur í hári þeirra sem hafa stolið sameignum þjóðarinnar, svívirt og svikið þjóðina!
Helgi
Helgi
19. September 2007
HVAR ERU JAFNAÐARMENNIRNIR?
...Það er von að þú spyrjir “Hvar Eru Kratarnir,” eða öllu heldur JAFNAÐARMENNIRNIR, því Jafnaðarmennirnir virðast hafa horfið með Jóni syni Hannibals en kratar sem nú kalla sig Samfylkingu virðast mér ekki beinlínis vera til að hrópa húrra fyrir - meira í ætt við Blair hinn breska en alvöru Jafnarðamenn með stórum staf!
Ég er einna mest hissa á hvernigÖssur Skarphéðinsson og hans fylgjendur geta þolað svívirðuna, getur það virkilega verið að aurarnir freisti? Af hinum gat ég búist við öllu þannig að þeir valda mér síður vonbrigðum - þótt aumari séu!
Þetta er sama spurningin sem var spurð hér áður...
Þjóðúlfur
Ég er einna mest hissa á hvernig
Þetta er sama spurningin sem var spurð hér áður...
Þjóðúlfur
18. September 2007
EIGA KJARASAMNINGAR EKKI FRAMTÍÐ FYRIR SÉR?
...Nú get ég vitnað um það að mitt félag, SFR, hefur staðið sig vel, gert samninga og reynt allt til að hífa okkur félagsmennina upp launalega séð. Hitt vekur athygli hversu góð staða félagsmanna VR er því að því er mér skilst gerir það félag enga kjarasamninga og er orðið eins og hver önnur háeffuð skemmtibúlla. Er þetta kannski það sem koma skal hjá opinberum starfsmönnum? Mun skemmtifélagsformið breyta okkar lífsstandard?
Þórður Þórhallsson Laugdal
Þórður Þórhallsson Laugdal
16. September 2007
DÝRMÆTUSTU AUÐLINDIRNAR Á EKKI AÐ SELJA
...Hitt get ég tekið undir að það verður að stöðva þessi ósköp. Þetta eru tvímælalaust alvarlegustu mistök sem hér hafa verið gerð í langan tíma af hálfu stjórnvalda og er þó af nógu að taka. Það er nefnilega rétt sem þú hefur bent á Ögmundur að það er bókstaflega verið að selja landið - dýrmætustu auðlindir þess - í hendur fjárgróðamanna.
Guðrún Guðmundsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
15. September 2007
LANDRÁÐ?
Landráð er stórt orð. Og það á að fara varlega með að nota það. Þetta orð er mér þó ofarlega í sinni þessa dagana. Einu sinni var það kallað landráð að svíkjast aftan að okkar eigin þjóð í þágu erlendra manna. Mér finnst ríkisstjórnin vera að gera nákvæmlega þetta með því að þjóna erlendu auðvaldi og veita því eignarhald á íslenskum auðlindum með sölinni á orkuveitunum. Sannast sagna hefur mér þótt Illugi Gunnarsson nýbakaður alþingsmaður Íhaldsins hinn mætasti maður. Þess vegna þyrmdi yfir mig að heyra hann ganga erinda peningavaldsins í viðræðu við þig í Spegli RÚV í gær. Það var engu líkara en maðurinn væri á mála hjá peningapakkinu. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum – svona hefði Einar Oddur, tengdafaðir hans heitinn ekki talað – eða hvað? Ég hvet menn til að hlusta á...
Haffi
Haffi
14. September 2007
ALLT ER FALT
Saga Íslendinga hefur gengið í bylgjum. Stundum hefur okkur vegnað vel og stundum illa. Stundum höfum við gengið í gegnum niðurlægingartímabil og á öðrum stundum hefur andinn risið hátt. Því miður óttast ég að það skeið sem nú stendur yfir einkennist af meiri niðurlægingu en flest önnur tímaskeið í sögu þjóðarinnar. Ástæðan er ekki sú að okkur vegni illa efnalega. Þvert á móti þá eru efnin nóg nú um stundir -það er að segja þegar á heildina er litið. En allt er líka falt. þar liggur niðurlægingin. Sú kynsló0ð sem nú ræður virðist reiðubúin að selja frá þjóðinni allar eignir hennar. Sú sala er ekki auðveldlega afturkræf. Þú hvetur til þess Ögmundur að við...
Grímur
Grímur
13. September 2007
EINN OG SAMI MAÐURINN
Í framhaldi af skrifum þínum um sparisjóðina þá vil ég benda þér á "skoðun Viðskiptaráðs." Sérstaklega málsgreinina: "Viðskiptaráð telur því æskilegt að leita sanngjarna leiða við að koma eigin fé sjóðanna að fullu til handa stofnfjáraðilum". Formaður Viðskiptaráðs er jafnframt stjórnarmaður í Spron. Sjá...
Áhugamaður um sparísjóði í þágu almennings
Áhugamaður um sparísjóði í þágu almennings
12. September 2007
SEÐLABANKI Í SJÁLFHELDU
...Ef Seðlabanki Íslands sneri við blaðinu - lækkaði stýrivexti og tæki upp raunhæfa útlánastjórnun - þá myndi útstreymi gjaldeyris vegna carry trade orsaka stórfellda lækkun á gengi krónunnar. Við þessu á Seðlabankinn ekkert ráð - enda liggur rót vandans í langvarandi vanhæfni hans á sviði peningastjórnunar.
Gunnar Tómasson
Gunnar Tómasson
9. September 2007
EKKI BAUÐ ÉG ÞEIM Í MAT
Alltaf öðru hvoru voru að berast fréttir af hátíðarkvöldverðum fyrri ríkisstjórna. Fimm-rétta máltíðir íRáðherrabústaðnum eða á Þingvöllum til að halda upp á hve lengi ríkisstjórnin hefði setið eða hve mikil afrek hún hefði unnið. Hver man ekki eftir þeim Halldóri og Davíð voteygum á Ráðherrabústaðs-tröppunum eftir að hafa haldið upp á eigið ágæti þar innandyra – allt á kostnað skattborgarans! Ég ætlaði varla að trúa eigin eyrum og augum þegar ég heyrði og las að Samfylkingin væri núna komin á þetta kavíar-bragð. Kannski var þetta bara barnaskapur í mér að halda að þau væru eitthvað skárri. Sannast sagna sé ég engan mun á Samfylkingu og Íhaldi. Nákvæmlega sama ...
Guðrún Guðmundsdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
8. September 2007
ÚTLÁNUM BANKA VERÐI TAKMÖRK SETT
Spurningin var hvernig gera mætti peningastjórnun Seðlabanka Íslands skilvirkari:
1. Seðlabankinn setur sér ákveðin markmið peningastjórnunar varðandi innlenda verðþróun og greiðslujöfnuð við útlönd 2008.
2. Seðlabankinn telur þessi markmið krefjast þess að útlánaaukning viðskiptabankanna verði ekki meiri en 20% frá árslokum 2007 til ársloka 2008.
3. Þar sem stýrivextir hafa sýnt sig vera óvirkt stjórntæki, þá er spurningin hvernig Seðlabankinn geti tryggt að útlánaaukning viðskiptabankanna samrýmist markmiðum peningastjórnunar?
4. Einfalt og skilvirkt stjórntæki væri að takmarka útlánaaukningu einstakra banka við ...
Gunnar Tómasson
1. Seðlabankinn setur sér ákveðin markmið peningastjórnunar varðandi innlenda verðþróun og greiðslujöfnuð við útlönd 2008.
2. Seðlabankinn telur þessi markmið krefjast þess að útlánaaukning viðskiptabankanna verði ekki meiri en 20% frá árslokum 2007 til ársloka 2008.
3. Þar sem stýrivextir hafa sýnt sig vera óvirkt stjórntæki, þá er spurningin hvernig Seðlabankinn geti tryggt að útlánaaukning viðskiptabankanna samrýmist markmiðum peningastjórnunar?
4. Einfalt og skilvirkt stjórntæki væri að takmarka útlánaaukningu einstakra banka við ...
Gunnar Tómasson
5. September 2007
DROTTNINGAR KOMNAR Á KREIK
Ekki brást ríkisstjórnarsjónvarpið ohf sínu fólki í kvöld. Drottningarviðtalið við forsætisráðherra á sínum stað, honum strokið með hárunum eins og litlum kettlingi og leyft að mala um hlutina án þess að minnsta tilraun væri gerð til að spyrja gagnrýnna spurninga, hvað þá fylgja einhverju eftir. (Gaman væri að vita hvort Páll hefur skutlað honum heim á eftir í fína bílnum). Geir var orðinn svo gjörsamlega týndur að þjóðin var farinn að gera um það brandara og þá er rokið til og drifið upp viðtal. Ég man ekki eftir einum einasta stjórnarandstæðingi í kastljósinu í háa herrans tíð en mörgum væmnum þáttum með ráðherrunum. Aldrei eru þessir menn ...
Jónatan
Jónatan
4. September 2007
HVERS VEGNA FORSTJÓRAR STYÐJA HÁEFFUN
Mér varð illt þegar ég heyrði Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóra, lýsa því yfir að hann vilji ekki að Orkuveita Reykjavíkur verði seld. Það sé aðeins verið að breyta forminu á fyrirtækinu með því að gera það að hlutafélagi. Í nánast öllum tilvikum þegar stofnanir í eigu samfélagsins hafa verið einkavæddar á undanförnum árum hefur viðkvæðið verið þetta: Við erum bara að háeffa, ekki selja. Alltaf hafa þetta reynst vera ósannindi. Í gær var framkvæmdastjóri SA mættur í útvarp að taka undir með Reykjavíkur-Íhaldinu. Hann sagði að þetta væri liður í því að losna við pólitíkusa úr stjórnum stofnana. Það er nefnilega það. Lýðræðið þvælist fyrir þeim. Vont að hafa Svandísi Svavarsdóttur með sínar...
Sunna Sara
Sunna Sara
2. September 2007
HÁVAXTASTEFNA SEÐLABANKANS: LEIKHÚS FÁRÁNLEIKANS
...Athugun á hagtölum Seðlabanka Íslands varðandi útlán lánakerfisins 2006 vekur þá spurningu hvort verið sé að hengja bakara fyrir smið með einróma umsögn Seðlabanka Íslands og starfsmanna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um starfsemi Íbúðalánasjóðs og áhrif hennar á það sem ekki verður um deilt: Að væntingar Seðlabanka Íslands og starfsmanna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um skilvirkni hávaxtastefnu Seðlabanka Íslands hafa ekki gengið eftir undanfarin misseri...
Gunnar Tómasson
Gunnar Tómasson
Frá lesendum
3. Febrúar 2012
LÁTTU BLÓÐIÐ SVELLA!
...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson
3. Febrúar 2012
HROSSAKAUP?
Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson
Stefán Þorgrímsson
3. Febrúar 2012
ÁKALL UM RÉTTLÆTI
...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson
Hallur Hróarsson
2. Febrúar 2012
VALDIÐ VONBRIGÐUM!
...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon
Auðbergur Magnússon
1. Febrúar 2012
ÓBRAGÐ Í MUNNINN
Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson
Valdimar Hjálmarsson
1. Febrúar 2012
HVERT GAGNRÝNIN BEINIST
...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur
Ingveldur
27. Janúar 2012
GÓÐ KVEÐJA
...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður
26. Janúar 2012
NÝJA ÍSLAND?
...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk
26. Janúar 2012
PÓLITÍSKUR FARSI
Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson
26. Janúar 2012
ANDA LÉTTAR
...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson
Jón Jón Jónsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












